Morgunblaðið - 20.07.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990
ii
,r
\9.. ''
Morgunblaðið/Bolli Magnússon
Nýtt Haukafell SF afhent í dag
Á myndinni sést nýtt Haukafell SF í skipasmíðastöðinni í Aveiro í
Portúgal en skipið verður afhent í dag, föstudag. Skipið, sem
hannað er af Bolla Magnússyni og Steinari Viggóssyni hjá Ráðgarði
hf., er svokallað fjölveiðiskip, þannig að það getur verið á tog-,
línu-, neta- og nótaveiðum en samið hefur verið um smíði á þremur
öðrum slíkum skipum í Portúgal. Haukafell SF, sem kostar 130-140
milljónir króna, kemur til heimahafnar, Hafnar í Hornafirði, seint í
næstu viku, að sögn Guðjóns Jónssonar hjá Ráðgarði.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ:
Enn hægt að halda si g inn-
an rauðu strikanna í haust
Segir tölur flármálaráðherra um fórnir ríkissjóðs rangar
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjármálaráðheri-a og Ásmundur St.efáns-
son, forseti Alþýðusambandsins, eru ekki sammála um kostnað eða
ávinning ríkissjóðs af þeim aðgerðum, sem ríkisstjórnin heíur gripið til
í því skyni að halda vísitöluhækkunum innan rauðu strikanna. í Morg-
unblaðinu í gær sagði Ólafur að kostnaður ríkissjóðs af aðgerðunum
gæti orðið allt að 600-650 milljónir króna, og að aðilar vinnumarkaðar-
ins hafi verið að biðja um aukinn halla á ríkissjóði. Ásmundur segir
að það sé ósatt að vinnumarkaðsmenn hafi beðið um slíkt, og jafhvel
þótt ríkissjóður færi út í að lækka um helming jöfhunargjald á innflutt-
um iðnaðarvörum, myndi hann koma á núlli út úr aðgerðunum. Ás-
mundur telur enn hægt að koma í veg fyrir að farið verði fram úr
rauðu strikunum í september.
„Það er ósatt að aðilar vinnumark-
aðarins hafi farið fram á að halli
ríkissjóðs verði aukinn. Það hefur
hvergi _ veríð gert mér vitanlega,“
sagði Ásmundur Stefánsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Það
blasir á hinn bóginn við að með þeim
ákvörðunum, sem nú hafa verið tekn-
ar, em tekjur ríkissjóðs af jöfnunar-
gjaldi á innfluttum iðnaðarvörum
auknar um 500 milljónir. Fjármála-
ráðuneytið metur kostnað vegna að-
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 20. JULI
YFIRLIT I GÆR: Um 400 km suðvestur af Reykjanesi er 994 mb
lægð sem hreyfist norðaustur og grynníst.
SPÁ: Vestan- og suðvestanátt, víðast kaldi. Skúrir eða dólitil súld
öðru hverju og hitl 10-15 stig sunnan- og vestaniands, en þurrt
og sums staðar léttskýjað og hití á bilinu 12-18 stig á Norðaustur-
og Austurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg suðvestanátt um land allt.
Smáskúrir á stöku stað vestanfands, en víöa léttskýjað um austan-
vert landið. Hiti 10-18 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg sunnan- og suðaustanátt. Skýjað
að mestu sunnanlands og sums staðar litilsháttar súld við sjávar-
síðuna. Þurn og vfða léttskýjað norðanlands. Hiti áfram á bilinu
10-18 stig. Hlýjast verður á Norður- og Austurlandi báða dagana.
y' Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / r
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-JQ' Hrtastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V B
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
CXD Mistur
—|- Skafrenningur
[T Þrumuveður
■ rl
VEÐUR kl. 12:00 VÍÐA i gær UM HEIM að ísl. tíma
Akureyii mti 18 veóur skýjaö
keykjavtk ■■■ ■■ 11 skúr
Bergen 19 hálfskýjað
Helsinki 20 þrumuveður
Kaupmannahöfn 23 lóttskýjað
Narssarssua: 5 alskýjað
Ostó 24 léttskyjað
Stokkhólmur 14 súld
Þórshöfn 15 atskýjað
Algarve vantar
Amsterdam ■i 22 léttskýjað
Bareelona 28 heiðskírt
Berlin 16 alskýjað
Chicago 22 þokumóöa
Feneyjar 26 heiðskírt
Frankfurt 20 léttskýjað
Hamborg 17 skýjað
Las Palmas 26 heiðskírt
London 27 heiðskírt
LosAngeies 21 heiðsklrt
Lúxemborg 23 heiðskírt
Madríd 36 léttskýjað
Malaga 30 heiðskírt
Mallorca 31 léttskýjað
Morrtreal 22 léttskýjað
NewYork 26 mistur
Orlando 25 hóllskýjað
París 24 helðskírt
Róm 27 léttskýjað
Vfn vantar
Washington 27 mistur
Wlnnipeg 12 léttskýjað
gerðanna á 350 milljónir. Samkvæmt
þeirra útreikningum hagnast ríkis-
sjóður þannig um 150 milljónir króna
þegar allt er talið. Ég tel að kostnað-
urinn við að endurgreiða virðisauka-
skatt við viðhald íbúðarhúsnæðis sé
mjög ofmetinn af fjármálaráðuneyt-
inu. Breytingin mun draga úr skatt-
svikum og tekjuskattskil þar með
aukast. Mér þykir þess vegna líkiegt
að í raun sé hagnaður ríkissjóðs af
aðgerðunum í heild um 250 milljónir
og það samsvarar hálfu jöfnunar-
gjaldinu út árið. Það er nú ekki óeðli-
legt að mínu mati að gera tilkall til
þess að ríkissjóður beiti sér á þann
hátt að hann hagnist ekki á aðgerð-
unum,“ sagði hann.
„Ólafur Ragnar blandar saman
óskyldum málum þegar hann talar
um að á móti tekjum af jöfnunar-
gjaldi standi kröfur iðnrekenda um
endurgreiðslu söluskatts. Hann tekur
inn í þetta þá skuld ríkissjóðs, sem
augljóslega hefði orðið að greiða,
hvort sem gripið hefði verið til þess-
ara aðgerða eða ekki, og kemur að-
gerðunum því ekkert við.“
Af hálfu Ásmundar hafa komið
fram tillögur um að gengið verði
hækkað, auk þess sem jöfnunargjald
lækki. „Ef það verður gert þá lækka
innfluttar vörur í verði. Það þrengir
þá að útflutningsgreinunum og auð-
vitað líka að innlendum iðnaði, sem
yrði að svara með því að lækka sín-
ar framleiðsluvörur. Þannig yrði at-
vinnulífið að axla byrðar vegna að-
gerðanna. Ríkisstjórnin hefur neitað
að taka þessar hugmyndir til nok-
kurrar umræðu.“
Ásmundur sagði að vandann
þyrfti að leysa með samstarfi. „Það
virðist vanta um 0,3% upp á að
rauðu strikin í byijun september
haldi. Ef farið verður fram úr þeim,
hækka laun 1. október. Það er hins
vegar enn hægt að ná upphaflegu
kaupmáttarmarkmiði í september
með lækkun jöfnunargjalds og lítils-
háttar gengishækkun, ef við fylgjum
þeim aðgerðum eftir með öflugum
áróðri í verðlagsmálum, þar sem all-
ir aðilar standa saman um að gera
sitt ýtrasta. Markmiðið næst aftur á
móti ekki með gagnkvæmum ásök-
unum,“ sagði Ásmundur.
Hafnarfjörður;
Grunur um
afbrot gegn
börnum
Rannsóknarlögrcgla ríkis-
ins hefúr til meðferðar kæru
á hendur þroskaheftum manni
í Hafiiarfirði vegna kynferðis-
brota gegn börnum. Að sögn
Þóris Oddssonar vararann-
sóknarlögreglustjóra er fotl-
un mannsins slík að mjög
ósennilegt þykir að hann sé
sakhæfúr.
Að sögn vararannsóknarlög-
reglustjóra þykja verulegar líkur
komnar fram fyrir því að maður-
inn hafi gerst brotlegur gegn
einum dreng en einnig þykir
ýmislegt benda til að fleiri börn
hafí lent í hinu sama.
Auk RLR vinna sálfræðingar,
sem ræða við börnin, og félags-
málayfirvöld í Hafnarfirði að
málinu en stefnt mun að því að
koma manninum fyrir á stofnun.
Ráðgjafarnefiid um áliðju:
Ríkissljórnin upp-
lýsi hvort hún vilji
hafa áhrif á staðarval
Ráðgjafarnefiid iðnaðarráðherra um áliðju telur að ríkisstjórnin
verði að upplýsa það sem fyrst, hvort hún vilji hafa áhrif á það hvar
nýju álveri verði valinn staður.
Að sögn Guðmundar G. Þórarins-
sonar, eins nefndarmanna, var sam-
þykkt að fela Jóhannesi Nordal,
formanni ráðgjafarnefndarinnar, að
vekja athygli iðnaðarráðherra á
því, að ráðgjafarnefndin og Atlants-
álshópurinn hefði unnið að staðar-
vali fyrir nýtt álver út frá því að
finna hagkvæmasta staðinn, með
tilliti til lægsta byggingarkostnað-
ar, minnsta rekstrarkostnaðar og
minnstu umhverfisáhrifa. Nú líði
brátt að því að sú niðurstaða fáist,
og vilji ríkisstjórnin hafa áhrif á
staðarvalið, sé nauðsynlegt að hún
geri þær skoðanir ljósar hið fyrsta.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði, að þessi samþykkt væri
vegna umræðu í þjóðfélaginu um
hvar best sé að velja mögulegu ál-
veri stað. Margt bendir til þess að
hagkvæmast sé að reisa álver á
Keilisnesi, en vegna byggðasjónar-
miða hafa margir aðilar, m.a. þing-
flokkur Alþýðubandalagsins og
stjórnarþingmenn í öðrum flokkum,
viljað reisa álver við Reyðarfjörð
eða Eyjafjörð.
Stefnt er að því að ákvörðun um
staðarval liggi fyrir í byijun sept-
ember, en ráðgert er að samningum
miili Atlantsálshópsins og íslenskra
stjórnvalda ljúki fyrir 20. septem-
ber. Þá eiga bæði Alþingi og stjórn-
ir álfyrirtækjanna í Atlantsálshópn-
um eftir að fjalla um samningana.
Síðasti samningafundur var haldinn
hér á landi í lok júní, og næsti fund-
ur er ráðgerður 9. og 10. ágúst.
Guðmundur sagði að þá væri ætlun-
in að ræða aðallega um skattamál
og orkumál.
Vísitala bygging-
arkostnaðar:
Hækkunin 0,1%
milli mánaða
Byggingarvísitalan, eftir verð-
lagi um miðjan júlí, er 171,9 stig
og reyndist hafa hækkað um 0,1%
frá júnívísitölunni. Þessi vísitala
gildir fyrir ágúst.
Síðustu 12 mánuði hefurbygg-
ingarvísitala hækkað um 18,3%, en
síðustu 3 mánuði hefur vísitalan
hækkað um 1,5% og samsvararþað
6,3% árshækkun.