Morgunblaðið - 20.07.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JULI 1990
Minning:
Skúli Sveinsson
fv. aðalvarðsijóri
Það er sunnudagur og ég er
kvíðafullur. Ég er að fara í hádegis-
mat hjá tilvonandi tengdaforeldrum
mínum, Skúla Sveinssyni og Sigríði
Ingibergsdóttur. Ég er að hitta þau
í fyrsta sinn. Nú, fimmtán árum
síðar, get ég vart annað en brosað.
Hveiju þurfti ég að kvíða? Mér var
tekið opnum örmum þá og ætíð
síðan naut ég gestrisni og góðvildar
þessara yndislegu hjóna. I dag er
mér þó allt annað en hlátur í huga.
Það eru rétt rúm tvö ár síðan
tengdamóðir mín lést og nú er
tengdafaðir minn borinn til hinstu
hvíldar.
Skúli Sveinsson fæddist í Syðra-
Langholti í Hrunamannahreppi í
Árnessýslu, 28. nóvember 1905.
Skúli var sonur Ágústu Jónsdóttur
og Sveins M. Hjartarsonar, bakara-
meistara. Fyrstu sex æviárin bjó
Skúli hjá fósturforeldrum sínum í
Efra-Langholti, en fluttist þá í
Lambhústún_ til móður sinnar og
stjúpföður. Átján ára flutti Skúli
svo til Reykjavíkur og byijaði að
vinna hjá föður sínum. Árið 1930
hóf Skúli störf í Lögreglunni í
Reykjavík og 10. október 1931
kvæntist hann Sigríði Ingibergs-
dóttur. Þau eignuðust þijú börn,
Sigurdísi, Svein og Sigríði Ágústu,
og þegar Skúli fellur frá eru barna-
börnin sjö og barnabarnabörnin tvö.
Skúli starfaði í Lögreglunni í 47
ár, en þegar hann hætti þar, hóf
hann störf sem þingvörður, eða eins
og hann sagði sjálfur: „Það hefði
orðið erfitt að fara úr fullu, anna-
sömu starfi og setjast i helgan stein
meðan ég enn hafði góða heilsu og
starfskrafta . ..“, en þingvarðar-
stöðunni gegndi hann fram á áttug-
asta aldursár.
Þetta viðhorf Skúla til vinnunnar
iýsir honum e.t.v. best. Hann var
samviskusamur og eljusamur og
féll aldrei verk úr hendi. Þessi elju-
semi endurspeglaðist líka í einkalífi
hans. Hann bjó fjölskyldu sinni ör-
uggan og traustan lífsgrundvöll, og
þegar Sigríður fékk fyrstu einkenni
erfiðs sjúkdóms, tók hann við
rekstri heimilisins, eldaði og þreif,
og studdi konu sína með ráðum og
dáð. Um leið veitti hann bömum
sínum það veganesti, sem þau
þurftu til að takast á við alvöru
lífsins. Þannig var ijölskyldan Skúla
allt og aldrei leið honum betur en
þegar hann var umkringdur börn-
um, tengdabörnum, barnabörnum
og barnabarnabörnum. Stoltið
leyndi sér ekki, þegar hann hélt á
yngstu börnunum í fanginu og þau
kúrðu sig í hálsakotið hjá afa.
Hvíiík gæfa að hafa átt slíkan að.
Skúli var hógvær og lítillátur, en
ákveðinn. Hann var traustur vinur,
enda vinmargur, og það kæmi mér
ekki á óvart, að við fráfall Skúla,
risti sorgin hvað dýpst í vinahópi.
Skúli var höfðingi heim að sækja.
Hann var söngmaður góður og það
var oft glatt á hjalla á Flókagöt-
unni, enda hraustlega veitt. Þá voru
glettnin og glaðværðin í fyrirrúmi.
Þegar við hjónin komum í heim-
sókn, dró Skúli iðulega fram taflið
og við tókum eina eða tvær „stutt-
ar“. Um leið ræddum við um við-
burði líðandi stundar, landspólitík-
ina og menn og málefni. Þannig
gleymdum við okkur við skákborð-
ið. Þetta voru unaðslegar stundir.
í stuttu máli þá var Skúli Sveins-
son ákaflega vandaður maður og
það eru forréttindi að hafa fengið
að kynnast slíkum manni. Öll viss-
um við að við myndum ekki njóta
samvista við hann eins lengi og við
hefðum kosið. Og nú, þegar hann
er látinn, fyllumst við söknuði og
trega. En verum minnug þess í
sorg okkar að Skúli er nú í góðum
höndum, í faðmi ástkærrar eigin--
konu. Minning þessa sómamanns
mun lifa í hjörtum okkar allra.
Ari Kr. Sæmundsen
Minning:
Málfreð F. Friðriks-
son skósmíðameistari
Fæddur 4. ágúst 1916
Dáinn 13. júlí 1990
Mágur minn, Málfreð Friðrik, eða
Malii eins og hann var kallaður,
lést í Sjúkrahúsi Skagfirðinga,
Sauðárkróki, 13. júlí eftir stutta en
harða sjúkdómsbaráttu. Málfreð
Friðrik var fæddur á Sauðárkróki
4. ágúst 1916 í húsi sem nefnt var
Þorkelshóll. Foreldrar hans voru
Friðrik Jónsson skósmiður og al-
þekktur sigmaður í Drangey af
skagfirskum ættum og kona hans
Steinunn Hansen frá Sauðá. Mál-
freð ólst upp á Sauðárkróki við
venjuleg störf til sjávar og sveita
og sótti gjarnan til bjargfugls út í
Drangey eins og faðir hans sem var
einn fræknasti sigmaður í Drangey
á sinni tíð. Skósmíðar urðu þó aðal-
starf Malla, hann lærði þá iðn og
var mjög vandvirkur og eftirsóttur
fyrir skósmíðar, reiðtygi og
hnakkasmíði og fleira sem lýtur að
hestamennsku. Málferð ólst að
mestu upp, eftir að hann missti
Leiðrétting
Prentvillupúkinn lék lausum hala
í fyrirsögn minningargreinar um
Ingibjörgu Sigvaldadóttur, sem
birtist í blaðinu. Þar komst stafur-
inn þangað sem hann átti ekkert
erindi. Varð starfsheitið kaupkona
að kaupakona. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
föður sinn á áttunda ári, hjá ömmu
sinni Maifríði Friðgeirsdóttur og
manni hennar Þorkeli Jónssyni,
ásamt uppeldissystkinum sínum
Ingvari Magnússyni, sem nú er lát-
inn, Málfríði Magnúsdóttur og
Hólmari Magnússyni, húsasmið,
sem búsett eru í Reykjavík og sakna
þau sárt síns góða bróður, en mjög
kært var með þeim frændsystkin-
um. Bræðurnir voru gjarnan kallað-
ir Málfríðarstrákarnir. Málfríður
dvaldi í góðu yfirlæti á heimili
Malla og Sesselju, sem önnuðust
hana síðustu árin og andaðist hún
þar háöldruð. Bróðir Málfreðs var
Garðar Hansen, sem nú er látinn.
Hálfsystir hans er Álfhildur Frið-
riksdóttir og hálfbróðir Björgvin
Brynjólfsson. Málfreð var tvíkvænt-
ur, fyrri kona hans var Rósa Péturs-
dóttir frá Sauðárkróki og eignuðust
þau 4 börn, þar af eru tvö látin,
Ragna Hrafnhildur og Hans Birgir.
Rósa og Málfreð slitu samvistir.
Seinni kona Málfreðs er Sesselja
Hannesdóttir, dóttir Ólafar Stefáns-
dóttur og Hannesar Jónssonar
kaupmanns í Reykjavík. Þau Sess-
elja og Málfreð eignuðust fimm
börn, þau eru: Haraldur, búsettur
á Sauðárkróki, kvæntur Rósa-
mundu Óskarsdóttur og eiga þau 4
börn. Ólöf, sem gift er Kristni Jóns-
syni sfmvirkja í Reykjavík, og eiga
þau 2 börn. Birgir, ókvæntur og
barnlaus. Hannes, sambýliskona
hans er Þórdís Jónsdóttir. Yngstur
er Árni, sambýliskona hans er
og sama er að segja um barna-
barnabörnin tvö og syrgja þau nú
elsku afa sinn sárt. Þakkir langar
mig að senda einstaklega góðri vin-
konu Skúla, Katrínu Jakobsdóttur
Smára, sem hann hitti í Félagsmið-
stöðinni í Bólstaðarhlíð fyrir um
tveim árum, en þar endurnýjaði
hann kynni frá í gamla daga, er
hann hitti gamla vinkonu. Vinátta
þeirra og kunningsskapur þessi tvö
ár hefur einkennst af einstökum
kærleika þeirra í milli og er hann
henni mikill harmdauði. Þar sem
við Sveinn höfum lengst af okkar
búskap búið í sama húsi og tengda-
faðir minn má segja að húsið hans
á Flókagötunni sé eins og félags-
miðstöð fjölskyldunnar, en fjöl-
skyldan hefur verið alveg einstak-
lega samhent og samiýnd, þar sem
mál eins er mál allra. Börnin mín
hafa einnig notið ástúðar ömmu
sinnar á meðan hennar naut við
ásamt afa, en þeim hefur þótt alveg
sjálfsagt í gegnum árin að fara nið-
ur til afa og ömmu, enda eru þau
ófá súkkulaðistykkin, sem afi og
amma gáfu bita af hvenær sem
börnin birtust enda voru barnabörn-
in ekki látin fara án þess að þeim
yrði gert eitthvað gott og sama er
að segja um okkur, börnin og
tengdabörnin, sem og aðra er að
garði bar.
Elsku tengdapabba þakka ég
fyrir allar góðu stundirnar. Ekki
má láta ósagt frá söngelsku hans
og stundunum sem við tókum lagið
fjölskyldan saman án nokkurs sér-
staks tilefnis nema ef vera skyldi
vegna lífsgleðinnar. Við uppi eigum
eftir að sakna þess að Skúli afi
komi ekki í morgunkaffi og til þess
að spjalla en við munum alltaf eiga
minninguna um hann sem einstak-
an föður, tengdaföður og afa.
Erna Valsdóttir
Elskulegur tengdafaðir minn,
Skúli Sveinsson, er látinn. Hann
sem var alltaf svo frískur, hress og
kátur, þrátt fyrir háan aldur, þar
til fyrir aðeins fáum vikum að hann
fór að kenna sér sjúkleika er ekk-
ert var við ráðið. Margs er að minn-
ast eftir um tuttugu ára kynni, en
þó ber hæst hvað Skúli var mikill
mann- og dýravinur. Mikla um-
hyggju bar hann fyrir konu sinni,
sem var heilsulítil mikinn hluta af
þeirra hjúskap, en hún var honum
mikili harmdauði er hún lést fyrir
rúmum tveimur árum. Einstakur
faðir var hann börnum sínum þrem-
ur, Sigurdísi, Sveini og Sigríði
Ágústu, og fengu þau gott vega-
nesti úr foreldrahúsum og sama er
að segja um okkur tengdabörnin,
en undirrituð er gift Sveini og eigin-
maður Sigríðar Ágústu er Ari K.
Sæmundsen. Tel ég að börn hans
hafi endurgoldið honum elsku hans
og reynst honum mjög vel og má
þar nefna að Sigurdis, elsta dóttir
hans, hefur búið hjá föður sínum
síðan móðir þeirra lést. Aðrir ætt-
ingjar og vinir hans reyndust hon-
um einnig vel síðustu vikurnar og
má þar nefna að ekki var vikið frá
honum eftir að hann veiktist og þar
til yfir lauk. Einnig má nefna að
ástúð hans til barnabarna sinna sjö
voru engin takmörk sett. Þau voru
honum gimsteinar hvert fyrir sig
Þuríður Harpa Sigurðardóttir þau
eiga einn son.
Margar ferðir áttum við hjónin
norður í land hér áður fyrr, þótt
ferðir hafi stijálast hin seinni ár
og var þá alltaf komið við á Krókn-
um, hjá Sesselju og Malla á
Ægisstíg 2. Þar var gott að koma,
hjartahlýja og ljúft viðmót. Við
þökkum að lokum okkar látna vini
fyrir öll elskulegheitin fyrr og síðar.
Guð blessi hann. Sesselju, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur. Minning lifir um góðan
dreng.
Guðrún Árnadóttir,
Pétur Hannesson.
Útför Málfreðs Friðriks fer fram
frá Hóladómkirkju á morgun, laug-
ardaginn 21. júlí, kl. 14.00. Jarð-
sett verður í Sauðárkrókskirkju-
garði.
SPRENGIDAGAR
LAUGAVEGI33
Við bjóðum viðskiptavinum okkar nú
að nýta sér hina stórkostlegu
sprengidaga, sem verða í verslun
okkar á Laugavegi 33 og standa yfir
í 2 daga mánaðarlega
20. og 21. júlí
24. og 25. ágúst
21. og 22. september
19. og 20. október
23. og 24. nóvember
Við bjóðum upp á stórkostlegt úrval
af hljómplötum, kassettum og
geisladiskum.
Misstu ekki af þessu einstæða tæki-
færi og nældu þér í uppáhaldstón-
listina þína á sprenghlægilegu verði
S-K-l-F-A-N
ATH. LAUGAVEGI 33 SÍMI 600933
kAtamaskínan/sek