Morgunblaðið - 20.07.1990, Page 27

Morgunblaðið - 20.07.1990, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 27 Jón Sigmjónsson frá Bláfeldi - Minning Fæddur 20. ágúst 1899 Dáinn 14. júlí 1990 í dag er til moldar borinn afi minn, Jón Sigurjónsson, Kapla- skjólsvegi 27, Reykjavík. Mig langar til að minnast hans í örfáum orðum. Afi hefði orðið 91 árs í næsta mán- uði, ef hann hefði lifað. Þó skömm sé frá að segja kynntist ég afa fyrst eitthvað að ráði þegar ég fór að heimsækja hann á elliheimilið Grund fyrst nú um áramótin síðustu, en upp úr því urðu heimsóknir mínar þangað nokkuð reglulegar og ég hlakkaði bara til að heimsækja hann, vegna þess að þrátt fyrir háan aldur var hann hafsjór af fróðieik og með afbrigðum minnugur, og gat hik- laust fram á síðustu stund munað dagsetningar og atburði sem gerst höfðu allt aftur í barnæsku. Afi hóf lífshlaup sitt í sveit og var hugur hans ávallt bundinn sveitinni, þrátt fyrir að hann byggi í Reykjavík seinni árin. Þegar maður kom og spurði hann eitthvað varðandi land- búnað og árin í sveitinni lifnaði hann allur við og við gátum setið tímunum saman og spjallað um landbúnað í dag og í gamla daga. En afi fylgd- ist vel með breyttum búskaparhátt- um alveg fram á það síðasta. Afi var heilsuhraustur lengst framan af ævinni og hafði yndi af göngutúmm sem hann stundaði daglega meðan heilsan leyfði. Amma dó fyrir 9 árum og missti afi geysilega mikið er hún dó því þau höfðu verið mjög sam- hent í sínum búskap með mjög stóra fjölskyldu en þau áttu 8 börn sem þau komu til manndóms. Nú eru afi og amma aftur saman eftir 9 ára aðskilnað, íj)etta sinn hjá æðri mátt- arvöldum. Eg mun sakna heimsókn- anna til afa í framtíðinni en þær bytjuðu alltof seint. Eg vona að afi hafi það gott hjá ömmu í nýjum heimkynnum. Arngrímur Pálmason í dag fer fram frá Áskirkju útför Jóns Sigurjónssonar frá Bláfeldi í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hann lést í Landakotsspítala þann 14. júlí síðastliðinn eftir langan ævidag. Jón fæddist þann 20. ágúst 1899 á Bláfeldi, sonur hjónanna sem þar bjuggu, þeirra Siguijóns Guðmunds- sonar og Sveinsínu Sveinsdóttur. Árið 1923 gekk hann að eiga unga stúlku úr sömu sveit, Helgu Kára- dóttur frá Haga í Staðarsveit. For- eldrar hennar voru hjónin sem þar bjuggu, þau Kári Magnússon og Þórdís Gísladóttir af Hjarðarfellsætt. Ungu hjónin hófu búskap á Barða- stöðum sem var næsti bær við Blá- feld og bjuggu þar næstu fimm ár- in. Tvö elstu börn þeirra fæddust á þeim árum en alls varð þeim Helgu og Jóni átta barna auðið. Vorið 1928 fengu þau lausa jörð til ábúðar norð- an á Snæfellsnesi, að Vaðstakks- heiði i Neshreppi utan Ennis. Þar bjuggu þau næstu rúm fimmtán árin og þar fæddust sex yngri börn þeirra. Þau brugðu búi fyrir vestan árið 1943 og fluttust suður, enda börnin þá fiest komin á skólaaldur. Tæpt ár var Jón ráðsmaður við búið á Hvassahrauni sunnan Straums en þá fluttust þau til Reykjavíkur þar sem þau þjuggu í rúman áratug. Starfaði Jón hjá Eimskip hf. á þeim árum. Var það síðan vorið 1953 að þau hjónin hófu aftur búskap. Keypti Jón jörðina Ás í Melasveit og bjó þar rausnarbúi til ársins 1964, er þau fluttust aftur til Reykjavíkur. Eftir að þangað kom starfaði Jón hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur í alln- okkur ár eða fram yfir sjötugt. Síðustu árin sem Helga lifði bjuggu þau á Hrafnistu í Reykjavík en hún andaðist 31. júlí 1981. Svo sem fyrr sagði voru börn þeirra hjóna átta talsins. Elst var Sveinlaug Lilja, gift Jóni Eldon, en þau eru bæði látin. Næstelst er Est- her sem gift var Jóni Arngrímssyni; Þórdís sem gift var Pálma Árn- grímssyni og síðar Halldóri Sigurðs- syni; Sólveig gift Pétri Friðrik Sig- urðssyni; Gylfi kvæntur Vénýju Við- arsdóttur; Elísa Steinunn gift þeim sem hér ritar, og tvíburarnir Kári, kvæntur Genevieve Jónsson, og Sig- utjón Bláfeld, kvæntur Ragnhildi Johnsdóttur. Hugur Jóns stóð alla tíð mjög til búskapar. í þeim efnum var hann mikill atorku- og framkvæmdamað- ur, enda búnaðist honum ávallt vel. Innan við tvítugt keypti hann, ásamt fóstra sínum, Guðmundi Jónssyni á Bláfeldi, fyrstu sláttuvélina sem í héraðið kom og þótti að vonum hið mesta þing. Sýndi það bæði hve bráðger hann var og þann mikla áhuga á búskaparframförum sem entist honum alla ævi. Eftir að þau Jón og Helga réðust í það á fyrstu búskaparárum sínum að kaupa jörðina á Vaðstakksheiði byggði Jón þar ekki einungis nýtt íbúðarhús heldur einnig öll útihúsi'n. Honum tókst að greiða niður jörðina á tiltölulega skömmum tíma og hýsa hana án þess að taka lán, þótt krepp- an væri þá hafin og fjölskyldan orð- in stór. Jafnvel nú á tímum myndi slíkt framtak þykja nokkrum tíðind- um sæta. En þannig var Jón, bæði hagsýnn og forkur duglegur til allra verka. Jafnframt búskapnum stund- aði hann róðra frá Rifi til þess að afla heimilinu fiskmetis eftir þörfum. Snemma kom í ljós að Jón þótti óvenju glöggur á skepnur og stóð þar að baki áhugi hans á allri bú- fjárrækt, ekki síst sauðijárræktinni. Næmt auga hafði hann fyrir því að ala upp hraust, heilbrigt og vel byggt sauðfé og hafði þar raunar árangur sem erfiði. Upp úr 1930 var hann með einhveija fyrstu kynbótagripina skráða á Snæfellsnesi og verðlaun fékk hann fyrir hrúta sína 1934 og á árunum þar á eftir. Natni hans og glöggskyggni við allt búfjárhald var orðlögð og iðulega fór hann upp um nætur til þess að ganga í fjós og ijárhús. Sigurjón Bláfeld, bóndi og ráðunautur á Ingólfshvoli í Ölf- usi, erfði þessa hæfileika föður síns, enda gladdi það Jón mjög á efri árum að skoða verðlaunafé Sigur- jóns sonar síns er hann kom þangað í heimsókn. Á Reykjavíkurárum Jóns og Helgu uxu börnin átta úr grasi. En hugurinn var áfram í sveitinni frem- ur en á mölinni og þar kom að þau gerðu alvöru úr því að hefja aftur búskap. Jón hafði skoðað margar jarðir hér á Suðurlandi og niðurstað- an varð sú að hann festi kaup á Ási í Melasveit þar sem sjávarsýn er jafn rnikil og inn til landsins. Þegar þetta gerðist var Jón kominn nær hálfsextugu en Helga nokkru yngri. Fátítt er að menn taki sig upp úr þéttbýiinu í höfuðborginni á þeim aldri og hefji búskap á nýjan leik. Það sýndi hve sterkum böndum Jón var bundinn landinu, kostum þess og gæðum, og hvert yndi hann hafði af búfénu sem nú var aftur komið í hans eigu. Og kappið og dugnaður- inn var sá sami sem fyrr í sveitinni fyrir vestan. Á árunum sínum að Ási, sem alls urðu ellefu, jók hann og bætti jörðina og túnið tvöfaldaði hann að stærð. Var hann kominn með nokkru meira en meðalbú undir lokin. Það var á þesusm árum sem ég kynntist Jóni og er mér enn í fersku minni atorka hans og dugnað- ur við bústörfin og sú mikla snyrti- mennska sem einkenndi allan bú- skapinn að Ási. í þeim efnum átti raunar ekki síður hlut að máli húsfreyjan á bæn- um, Heiga Káradóttir. Það fór ekki framhjá neinum sem til þekkti að Jón bjó við óvenjulegt konulán. Helga var um flesta hluti einstök kona að allri gerð. Skaphöfn hennar var leiftrandi og lundin svo ljúf, létt og glöð að hvarvetna sem hún kom bar hún með sér birtu og yl. Slík lífsgáfa er fáum gefin og því flestu öðru dýrmætara veganesti. Hvar sem Helga fór var hún hrókur alls fagnaðar. Bjartsýni hennar, hnyttni og einstök frásagnargáfa olli því að dagamunur var hvert sinn að fund- um við hana. Hún kunni þá list öðr- um betur að gleðjast og gleðja aðra. Slíkar konur eru fágætar. Það vissi Jón og mat Helgu að verðleikum allt frá fyrsta degi. Milli þeirra ríkti einlægt, fagurt og ti-yggt samband þau nærfellt sextíu ár sem þeim auðnaðist að njóta samvista í ham- ingjusömu hjónabandi. Bæði voru þau að auki mjög fé- lagslynd, voru hvarvetna aufúsu- gestir þar sem þau komu, og hrókar alls fagnaðar þegar gesti, börn og barnabörn bar að garði. Á yngri árum dró Jón þá gjarnan fram harm- ónikkuna, en hann hafði yndi af tón- list og spilaði bæði heima og á dan- sleikjum fyrir vestan. Þótt Jón næði óvenju háum aldri eltist hann vel og hélt andlegum kröftum óskertum allt fram á síðustu daga. Hann var ætíð sama ljúfmen- nið og fylgdist af áhuga með hinum stóra hópi barnabarnanna, líkt og með hjörðinni forðum fyrir vestan. Nú er komið að leiðarlokum. Við kveðjum hann með það í huga að hann var hamingjumaður í h'fi sínu. Hann eignaðist ástríka konu, átta mannvænleg börn og vann þau störf sem hann hafði unun af á langri ævi. Um meira verður vart beðið. Við óskum honum friðar nú þegar leiðir skilja að ferðalokum. Gunnar G. Schram Jón Siguijónsson var fæddur að Bakkafit við Búðir í Staðarsveit 20. ágúst 1899, dó 14. júlí 1990. For- eldrar: Siguijón Guðmundsson bóndi þar, síðar í Vatnsholti í sömu sveit og Sveinsína Sveinsdóttir. Bæði voru þau af Staðarsveitarættum. Foreldr- ar Jóns slitu samvistir er hann var ungur og fluttist Jón þá á Bláfeld í Staðarsveit, þar sem Sveinsína hóf búskap að nýju með Guðmundi Jóns- syni, sem var hálfbróðir Siguijóns. Mjög kært var ávallt með þeim stjúp- feðgum. Jón kallaði Guðmund alltaf frænda, og við Bláfeld kenní hann sig lengst af á löngu og farsælu æviskeiði. Helga Káradóttir var fædd að Saurum í Helgafeilssveit 9. apríl 1904, dó 31. júlí 1981. Foreldrar: Kári Magnússon bóndi þar, af Lax- árdalsætt, og Þórdís Gísladóttir kona hans frá Saurum, af Hjarðarfellsætt. Það var laugardaginn fyrir hvíta- sunnu, 19. maí 1923, sem þau bund- ust tryggðaböndum og giftu sig, Jón Siguijónsson frá Bláfeldi, sem þá var orðinn bóndi að Barðastöðum í sömu sveit og kær systir mín, Helga Káradóttir frá Haga í Staðarsveit. En hún hafði flutt í Staðarsveit 1918 með foreldrum sínum. Að sjáifsögðu fylgdu þeim góðar óskir eins og öllum sem gifta sig. Þau voru heilsuhraust og sæmiiega efnum búin að þeirrar tíðar hætti og mjög hamingjusöm. Ég held að þessi ákvörðun þeirra að styðja hvort annað í straumi lífsins hafi endst þeim óvenjuvel eða í 58 ár, er Helga dó 77 ára. Jón tregaði mjög konu sína og þegar hann er kvaddur nú með fátæklegum minningarorðum er það ekki hægt án þess að minn- ast líka á hans góða hjónaband. Um æviferil þeirra hjóna er hægt að lesa í Borgfirskum æviskrám, sjötta bindi, bis. 252 og snæfellskum ættfræðiritum og Byggðum Snæ- fellsness, en í stuttu máli skal gerð grein fyrir lífshlaupi þeirra. Þau fluttu eftir 5 ára búskap úr Staðarsveit að Vaðstakksheiði í Nes- hreppi og bjuggu þar í 16 ár er þau fluttu á höfuðborgarsvæðið, þar sem Jón vann við skipaafgreiðslu í nokk- ur ár. Sveitastörfin voru samt þeim mjög í huga og árið 1953 tóku þau sig upp frá höfuðborginni og keyptu jörðina Ás í Melasveit og bjuggu þar - í 11 ár, er þau fluttu aftur til Reykjavíkur, þar sem Jón fór að vinna hjá Kirkjugörðum Reykjavík- urborgar allt fram undir áttræðisald- ur. Voru þau tiltölulega nýflutt á Hrafnistu er Helga dó. Jón undi þó ekki ævinni þar og fékk sig fiuttan á elliheimilið Grund þar sem hann naut góðrar aðhlynningar þar til yfir lauk. Þau hjón nutu barnaláns. ' Tvær dætur eignuðust þau á Barða- stöðum en sex voru fædd á Vað- stakksheiði og lifa þau öll nema Sveinlaug Lilja, sjúkraliði, sem látin er fyrir 6 árum. Var hún elst. Hin eru: Óskheiður Esther, Þórdís Rak- el, Sólveig Benedikta, Svavar Gylfi, Elísa Steinunn, Kári Hóimkell og Siguijón Sveinar. Öll börn þeirra eru dugnaðar- og reglufólk og búsett hériendis nema Kári Hólmkell sem er flugstjóri hjá Cargolux í Lúxem- borg. Mér er kunnugt um að Jón var mikið þakklátur börnum sínum fyrir það hvað þau voru samhent í að stytta honum stundir á Grund, einkum eftir að sjónin fór að bila fyrir nokkrum árum. Það sama mátti segja um tengdabörnin, barnabörn og barnabarnabörn. Afkomendur - Jóns héldu honum veglegt afmælis- hóf á 90 ár afmælinu. Hann kunni vel að meta það vinarbragð og var þakklátur forsjóninni að hafa gefið sér heilsu til að gleðjast með börnum sínum, vinum og öðrum afkomend- um sem nú skipta tugum. Þau hjón voru atorku- og ræktun- arfólk, ræktuðu tún og byggðu hús, einkum á Ási. Þar hygg ég að þau hafi notið sín vel. Þau voru félags- lynd og sérstaklega skemmtileg í 11 allri viðkynningu. Mér er í barnsminni hve foreldrar mínir tóku nærri sér er þau fluttu úr Staðarsveit í Neshrepp. Það var dagsferð á hestum. Heimsóknir voru oftast einu sinni eða tvisvar á ári og voru það sannkallaðar gleðistund- ir yfir okkur systkinin frá Haga að fá að heimsækja stóru systur og fjöl- skyldu hennar í litla bæinn á Vað- stakksheiði. Mátti sannarlega segja um þau hjón að þarværi bæði hjarta- rúm og húsrúm. Ég naut einnig handleiðslu þeirra hjóna einn vetur í Staðarsveit og minnist þess tíma, sem var ánægjulegur. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka Jóni, Helgu og þeirra ■* ágætu stórfjölskyldu, tryggð og vin- áttu hvort _sem þau bjuggu í sveit eða borg. Ég vissi að Jón hlakkaði til endurfunda við Helgu, konu sína. Með henni fær hann nú vonandi al- sjáandi meira að starfa Guðs um geim. Hvíli hann í friði. Þórður Kárason Gullið tækifæri Nú er rétti tíminn til að velja sér hestsefni. Folold undan gæð- ingaföðurnum Þresti 908 frá Kirkjubæ, trippi undan Háfeta 804 og ekki spilla folöldin undan Sleipni 785 frá Ásgeirsbrekku. Hreinir gullmolar. Greiðslukjörin aldrei betri. Sumarkjör, sími 98-78551. F ÉLAGSIÍF ÚTIVIST GRÓFIHNI i • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍHSVARI 14606 Helgarferðir 20/7.-22/7. Kjölur - Karlsdráttur Gist á bökkum Hvítárvatns. Ferj- að yfir- Hvítárvatn í Karlsdrátt sem er einstök gróðurvin undir Langjökli. Fararstjóri: Reynir Sigurðsson. Fimmvörðuháls - Básar Fögur gönguleið upp með Skógaá, yfir Fimmvörðuháls, milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjalla- jökuls, og niður á Goðaland. Gist í Útivistarskálunum í Básum. Básar í Goðalandi Um hverja helgi. Básar eru sann- kallaður sælureitur í óbyggðum, náttúrufegurð og fjallakyrrð. Skipulagðar gönguferðir við allra hæfi. Sumarleyfi f Básum í óspilltu umhverfi og hreinu lofti, stenst fyllilega samanburð við sólarlandaferð - en er til muna ódýrara. Sunnudagur til föstudags á aöeins kr. 4.000/4.500. Laugardag 21/7. Kl. 13: Heilaferð Farið í Undirganga á Hrafna- bjargahálsi og í Tvíbotna. Skemmtilegir hellar á mörgum hæðum. Fallegar hraunmyndan- ir. Takið með ykkur vasaljós, vettlinga og hjálm eða þykka húfu. Verð kr. 1.200. Farið frá BSÍ-bensínsölu, stans- að við Árbæjarsafn. Sjáumst! Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Dagsferðir Ferðafélagsins Laugardag 21. júlí kl. 8.00 Hekla - gönguferð. Gangan á fjallið tekur um 8 klst. fram og til baka. Munið þægilega gönguskó, hlífðarfatnað og nesti. Verð kr. 1.800,-. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Sunnudagur22. júlí Kl. 8.00: Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 2.000,-. Kynnið ykkur tilboð Ferðafélagsins á sumar- leyfisdvöl í Þórsmörk. Ódýrasta og eftirminnilegasta sumarleyfið. Kl. 13.00: Höskuldarvellir- Sog - Vigdísarvellir. Létt gönguferð í Reykjanesfólkvangi um slétta velli og eldfjallasvæði. Forvitni- legt landsvæði í nágrenni höfuð- borgarinnar. Verð kr. 1.000,-. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðar við bll. Frítt fyrir börn að 15 ára aldri. Ferðafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Helgarferðir 20.-22. júlí: Þórsmörk - Langidalur Gönguferðir um Mörkina við allra hæfi. Sumarleyfisdvöi á til- boðsverði. Kynnið ykkur að- stæður til skemmtilegrar dvalar hjá Ferðafélaginu i Þórsmörk. 2. Skógar - Fimmvörðuháls Gengið á laugardaginn yfir Fimmvörðuháls til Skóga (8 klst.). Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. 3. Landmannalaugar Gönguferðir um nágrenni Lauga. Litríkt fjallasvæði sem ekki á sinn lika. Gist í sæluhúsi F.í. í Laugum. Brottför í ferðirnar er kl. 20.00 föstudag frá Umferðamiðstöð- inni, austanmegin. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Hvítárnesskáli Okkur vantar sjálfboðaliða til gæslu næstu viku. Ferðafélag islands. H ÚTIVIST GRÓFINNI l • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606 Um næstu helgi 20/7-22/7. Kjölur - Karlsdráttur Gist á bökkum Hvítárvatns. Ferj- að yfir Hvítárvatn í Karlsdratt sem er einstök gróðurvin undir Langjökli. Fararstjóri: Reynir Sigurðsson. Fimmvörðuháls - Básar Fögur gönguleið upp með Skógaá, yfir Fimmvörðuháls, milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjalla- jökuls, og niður á Goðaland. Gist í Útivistarskálunum í Básum. Básar íGoðalandi Um hverja helgi. Básar eru sann- kallaður sælureitur í óbyggðum, náttúrufegurð og fjallakyrrð. Skipulagðar gönguferðir viö allra hæfi. Sumarleyfi i Básum í óspilltu umhverfi og hreinu lofti, stenst fyllilega samanburð við sólarlandaferð - en er til muna ódýrara. Sunnudagur til föstudags á aðeins kr. 4.000/4.500. Laugardag 21/7. Kl.13: Hellaferð Farið í Undirganga á Hrafna- bjargahálsi og í Tvíbotna. Skemmtilegir hellar á mörgum hæðum. Fallegar hraunmyndan- ir. Takið með ykkur vasaljós og vettlinga. Verð kr. 1.200. Farið frá BSÍ-bensínsölu, stansað við Árbæjarsafn. Sjáumst! Útivist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.