Morgunblaðið - 20.07.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990
Þvottavélar
Eldavélar
Örbylgjuofnar
Gœðatœki fyrir
þig og þíria!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
P. Þ0RGBIMSS0N & C0
Armstrong LDFTAPLÖTUR
KDBKDPLAIT GÓLFFLÍSAR
VINKLAR ÁTRÉ
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ
ísland leikur
í Færeyjum
KNATTSPYRNA
Metþátt-
takaí
Polla-
mótinu
Urslítakeppnin
um helgina
ÚRSLITAKEPPNI 7. flokks
Pollamóts Eimskips verður
haldin laugardaginn 21. júlí og
sunnudaginn 22. júlí, og verður
haldin á Valsveliinum að
Hlíðarenda. Ýmislegt verður á
döfinni íkringum þessa úrslita-
keppni, svo sem heimsókn
landsliðsmanna, útigrill á laug-
ardeginum þar sem boðið
verður upp á pylsur og Jaka-
Cola ásamt brauði og öðru til-
heyrandi.
Valinn verður besti varnarmað-
urinn, besti sóknarmaðurinn,
besti markvörðurinn og prúðasta
liðið, bæði í „A“ og „B“ liðum og
fær hver fyrir sig bikar til eignar.
Þátttaka í Pollamóti Eimskips
hefur farið vaxandi ár frá ári og
hefur aldrei verið fjölmennari en í
ár, eða um eitt þúsund keppendur.
Búist er við fjölmenni á Hlíðarenda
þar sem. boðið er upp á frábærar
valiaraðstæður, bæði fyrir leikmenn
og áhorfendur. Fólk er hvatt til að
mæta á völlinn og hvetja yngstu
leikmenn landsins til dáða og horfa
um leið á frábæra knattspyrnu.
Félög í a-liðs úrslitum:
Riðill 1 Fylkir, Fram, Stjarnan og
Valur.
Riðill 2 Afturelding, Austri E., K.R.
og Þór Ak.
Félög í b-liðs úrslitum:
Riðill 1 F.H., Fram, Þór V. og
Valur.
Riðill 2 Afturelding, Þróttur N.,
K.R. og Þór Ak.
Laugardagur 21. júlí
A-riðill
Kl. 11.00 Fylkir - Fram
Kl. 11.00 Stjarnan - Valur
Kl. 12.20 Aftureld. - Austri E.
Kl. 12.20 K.R. - Þór Ak.
Kl. 13.40 Fram - Valur
Kl. 13.40 Fylkir - Stjarnan
Kl. 15.00 Austri E. - Þór Ak.
Kl. 15.00. Afturelding - K.R.
B-riðill
Kl. 11.40 F. II. - Fram
Kl. 11.40 Þór V. - Valur
KI. 13.00 Aftureld. - Þróttur N.
Kl. 13.00 K.R. - Þór Ak.
Kl. 14.20 Fram - Valur
Kl. 14.20 F.H. - Þór V.
Kl. 15.40 Þróttur N. - Þór Ak.
Kl. 15.40 Aftureld. - K.R.
Kl. 17.00 Eimskip býður öllum
leikmönnum og liðsstjórum, 16 pr.
lið, í útigrill, sem samanstendur af
pyísum og Jaka-Cola. Ennfremur
koma landsliðsmenn til með að
sækja okkur heim á meðan á grill-
inu stendur.
Sunnudagur 22. júlí
A-riðill
Kl. 10.00 Stjarnan - Fram
Kl. 10.00 Valur - Fylkir
Kl. 11.20 K.R. - Austri E.
KI. 11.20 Þór Ak. - Aftureld.
Kl. 12.40 Leikur um 7. sæti
Kl. 12.40 Leikur um 5. sæti
Kl. 14.00 Iæikur um 3. sæti
Kl. 15.20 Úrslitaleikur
Kl. 16.00 Afhending verðlauna
B-riðill
Kl. 10.40 Þór V - Fram
Kl. 10.40 Valur - F.H.
Kl. 12.00 K.R. - Þróttur N.
Kl. 12.00 Þór Ak. - Aftureld.
Kl. 13.20 Leikur um 7. sæti
Kl. 13.20 Leikur um 5. sæti
Kl. 14.00 Leikur um 3. sæti
Kl. 14.40 Úrslitaleikur
1
Páll Guðlaugsson, landsliðsþjálf-
ari Færeyja í knattspyrnu.
HEIMSBIKARKEPPNIN ísundi
fer fram í Róm í næsta mánuði
og verða sex íslenskir þátttak-
endur á meðalkeppendaí
þessu móti, sem er eitt það
sterkasta sem haldið verður í
50 metra laug iár.
Ragnheiður Runólfsdóttir frá
Akranesi mun képpa í 100 og
200 metra bringusundi og 200
metra fjórsundi. Helga Sigurðar-
dóttir frá ísafirði keppir í 50, 100,
GEIR Sverrisson, sem er ein-
hentur, sigraði í sínum flokki t
100 m bringusundi á Heims-
leikum fatlaðra í gær. Haukur
Gunnarsson varð í 2. sæti i 100
m hlaupi, en íslendingar kærðu
sigurvegarann og verða úrslit
kynnt ídag.
15 þátttakendur voru í flokki
með Geir Hann var með besta
tímann, bæði i undanrásum og í
úrslitasundinu, en þá synti hann á
1:19,20 mín. Geir á best 1:14,6 í
greininni.
Svisslendingur hafnaði í 2. sæti
á 1:21,81 og Hollendingur varð
þriðji á 1:22,50.
Haukur Gunnarsson varð annar
í 100 m hlaupi í cp7 flokki
spastískra. Læknir íslenska liðsins
taldi hins vegar að sigurvegarinn
væri of lítil fatlaður til að keppa í
þessum flokki, sagði að hann ætti
að vera í flokki cp8 og lögðu íslend-
ingar inn kæru vegna þessa.
Engir tímar voru gefnir upp, en
úrskurður í málinu verður kveðinn
upp í dag.
LANDSLIÐ Færeyinga í knatt-
spyrnu karla býr sig nú af kappi
undir fyrstu þátttöku sína í
Evrópumótinu í knattspyrnu. í
undirbúningum felst meðal
annars leikur í Þórshöfn við
íslenzka a-landsliðið þann 8.
ágúst næstkomandi.
Færeyskir knattspyrnumenn
gera um mánaðarhlé á deildar-
keppninni á miðju sumri og hefur
það verið notað til æfinga fyrir
landsliðið. í annarri viku júlímánað-
ar lagði liðið upp í keppnisferð til
Danmerkur og Svíþjóðar, þar sem
leikið var gegn félagsliðum og var
árangur ferðarinnar góður að sögn
landsliðsþjálfara þeirra Færeyinga,
og 200 metra skriðsundi. Magnús
Ólafsson frá Þorlákshöfn keppir í
50, 100, og 200 metra skriðsundi.
Ragnar Guðmundsson frá
Reykjavík keppir í 400 og 1500
metra skriðsundi. Arnþór Ragnars-
son frá Hafnarfirði keppir í 100 og
200 metra bringusundi, en hann
vann sér rétt til þátttöku í heims-
bikarkeppninni með því að setja
Islandsmet í þessum vegalengdum
um síðustu helgi.
Geir Sverrisson
íslendingsins Páls Guðlaugssonar.
Eins og áður sagði, er fyrirhugaður
landsleikur við íslenzka a-landsliðið
í ágúst, en auk þess er búið að
ákveða að færeyska landsliðið fari
á hverjum miðvikudegi í ágúst nið-
ur til Danmerkur, spili þar æfinga-
leik samdægurs og haldi heim að
nýju á fimmtudeginum, enda verður
færeyska deildarkeppnin byijuð að
nýju í ágúst.
Færeyingar taka nú þátt í Evr-
ópukeppni landsliða í fyrsta sinn,
en þar sem þeir eiga engan hefð-
bundinn grasvöll, aðeins gervigras-
velli, verða þeir að leika heimaleiki
sína annars staðar en í Færeyjum.
Ákveðið hefur verið að leika þá í
Landskrona í Svíþjóð.
KNATTSPYRNA
Staða dómara:
KDSÍ bodarfund
nattspyrnudómarasamband
íslands hefur boðað alla lands-
dómara í knattspyrnu á sérstakan
fund á mánudagskvöld. Þar verður
fjallað um almenn öryggismál dóm-
ara í sambandi við leiki í ljósi
síðustu atburða. Fundurinn verður
í kaffiteríu ÍSÍ í Laugardal og hefst
klukkan 21.
GOLF
Opin mót
Golfklúbburinn Keilir heldur opið
mót í golfi á morgun, laugardag, á
Hvaleyrarholtsvelli. Keppt verður
með og án forgjafar. Sérstök ver-
laun verða veitt í kvennaflokki.
Ræst verður út frá klukkan átta.
Skráning er í dag, föstudag, í síma
53360.
Hjóna- og parakeppni GS
Hjóna- og parakeppni GS verður
á Hólmsvelli, Leiru, í dag og verður
ræst út frá kl. 14 til 18:30; Nánari
upplýsingar í síma 92-14100.
SUND
Meistaramótið:
Keppni hefst
íkvöld
Sundmeistaramót Islands hefst
í Laugardalslaug klukkan
20:00 í kvöld með keppni í 1500
metra skriðsundi karla. Meðal kepp-
enda er Islandsmethafinn, Ragnar
Guðmundsson. Mótinu verður fram
haldið á morgun, laugardag, og
hefst keppni þá klukkan 14:00. Á
sunnudag, sem er síðasti keppnis-
dagurinn, stinga þeir fyrstu sér til
sunds klukkan 14:00.
HLAUP
Kvenna- og æsku-
hlaupárlega
ÆT
Iþróttasamband Islands hyggst
gangast fyrir Kvennahlaupi og
Æskuhlaupi árlega. Ákvörðun um
þetta var tekin í ljósi þess hve vel
tókst til með hlaup af þessu tagi á
íþróttahátíð ÍSÍ um síðastliðin mán-
aðamót, en þátttaka var þá mjög
góð og fram hefa komið eindregnar
óskir um að þessir viðburðir verði
árlegir. Framkvæmdastjórn sam-
bandsins hyggst leita eftir sam-
starfi við Fijálsíþróttasambandið,
héraðssamböndin og Trimmnefnd-
ina um framkvæmd hlaupanna.
Ragnheiöur Runólfsdóttir keppir í heimsbikarkeppninni.
Sex íslendingar með
HEIMSLEIKAR FATLAÐRA
Geir með gull
Haukur í 2. sæti í 100 m hlaupi
en íslendingar kærðu sigurvegarann