Morgunblaðið - 20.07.1990, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR™m'
FOSTUDAGUR 20. JULI 1990
39
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNI KSI
8-liða
úrslit
bikar
keppni
KSÍ
IIRSLIT
ÚRSLIT
KR-ÍA........................3:0
Ragnar Margeirsson (38.), Gunnar Skúla-
son (41.), Rúnar Kristinsson (81.).
Valur-UBK.................. 2:0
Sævar Jónsson (27.), Ámundi Sigmundsson
(67.)
Víkingur-Sljarnan............2:1
Goran Micic (62. og 78.) — Valdimar Kristó-
fersson (40.)
ÍBK-Selfoss..................3:2
Óli Þór Magnússon (67.), Gestur Gylfason
(68.), Jóhann Magnússon (87.) — Guðjón
Þorvarðarson (12.), Dervic (70.)
4. deild:
Grótta-Ármann................6:0
Kristján Brooks 3, Bernharð Pétursson 2,
Kristján Pálsson.
Njarðvik-Fjölnir......... 3:1
Páll Þorkelsson, Sigurður ísleifsson, Guð-
bjöm Jóhannesson —
Vikverji-Ægir................4:0
Finnur Thorlacius 2, Níels Guðmundsson,
Sigurður Bjömsson.
Hafnir-Augnablik....írestað til 29.7.
Leiknir-Skallagrímur.........0:0
HK-Árvakur...................3:5
Bjami Frostason 2, Róbert Róbertsson —
Jósteinn Einarsson 2, Wilhelm Frederiksen
2, Björn Pétursson.
Valuráfram
VALSMENIM tryggðu sér sæti
í fjögurra liða úrslitum bikar-
keppninnar í gærkvöldi er þeir
unnu UBK með tveimur mörk-
um gegn engu í daufum leik.
Lítið bar til tíðinda framan af.
Blikar fengu þó fyrsta mark-
tækifæri leiksins á 22. mínútu.
Guðmundur Guðmundsson kömst
þá upp að enda-
SkúliUnnar mörkum en Bjarni
Sveinsson varði skot hans.
skrifar Fimm mínútum
síðar skoruðu Vals-
menn. Sævar Jónsson fékk knöttinn
eftir aukaspyrnu, lék upp að víta-
teigshorni, og sendi boltann í blá-
hornið með vinstra fæti af um 25
metra færi.
Valsmenn sluppu með skrekkinn
á 65. mínútu. Steinar Adólfsson gaf
þá á Guðmund sem óð inn í víta-
teig en skot hans fór í stöngina og
þaðan fór boltinn í fangið á Bjarna
Sigurðssyni sem lá á vellinum.
Steinar bætti fyrir þessi mistök
tveimur mínútum síðar. Hann og
Amundi Sigmundsson léku þá fall-
ega í gegnum vörn Blika og Amundi
skoraði af öryggi.
Bestir hjá Val voru Sævar Jóns-
son og Þorgrímur Þráinsson en hjá
Blikum var Gústaf Ómarsson best-
ur. Dómar var Eyjólfur Ólafsson.
Þórður Bogason úr Val fékk gula
spjaldið og einnig þeir Ingvaldur
Gústafsson, Willum Þ. Þórsson og
Hilmar Sighvatsson úr UBK.
GOLF
IMorman og Allen
með forystu
MICHAEL Allen frá Banda-
ríkunum fékk skolla á síðustu
holunni á fyrta degi Opna
breska meistaramótinu sem
hófst á St. Andrews-vellinum í
gær. Hann og Ástralinn Greg
Normann deila með sér for-
ustunni.
Báðir léku þeir á 66 höggum sem
er sex höggum undir pari þessa
fræga golfvallar. Nick Faldo fékk
fugl á síðustu holunni og lék á 67
höggum og er í þriðja sæti.
„Þetta er frábært," sagði Allen
sem bjóst ekki við að vera meðal
þeirra fremstu á mótinu. Hann fékk
fugl á fjórum af fyrstu fimm holun-
um og síðan setti hann niður rúm-
lega 30 metra pútt á 13. braut.
Skagamenn fengu kaldar
kveðjur í Frostaskjóli
KR-ingarsóttu stíft og uppskáru samkvæmt því
Morgunblaðið/Einar Falur
KR-ingarnir, Pétur Pétursson, Rúnar Kristinsson og Ragnar Margeirsson,
komu mikið við sögu og hér fagna þeir að leikslokum.
Guðjón
Guðmundsson
skrifar
KR-INGAR lögðu lið Skaga-
manna af velli í fjörugum bikar-
leik í Vesturbænum, leik sem
bauð upp á ágæta samleiks-
kafla, þrjú glæsileg mörk og
spennandi augnablik.
Skagamenn mættu ákveðnir til
leiks en liðin skiptust á um að
sækja fyrsta hálftíma leiksins. KR-
ingar voru öllu meira með knöttinn
og brá oft fyrir
ágætum samleik hjá
þeim. Fyrsta markið
kom eftir mistök í
vörn Skagamanna á
38. mínútu. Knötturinn barst inn í
vítateig Skagamanna þar sem þeir
gulklæddu voru flestir fyrir en
Ragnar Margeirsson náði að leggja
knöttinn fyrir sig, rekja hann í átt
að marki og setja hann neðst í
markhomið af stuttu færi án þess
að Gísli Sigurðsson markvörður
fengi rönd við reist.
Eftir markið sóttu KR-ingar mun
meira og voru ógnandi upp við
mark andstæðinganna. A 41.
mínútu kom há sending fyrir mark
Skagamanna og stökk Atli Eðvalds-
son manna hæst og sendi fasta
kollspymu í átt að markinu sem
Gísli gerði vel að veija. Hann hélt
þó ekki knettinum sem barst út
fyrir vítateiginn þar sem Gunnar
Skúlason kom æðandi og hamraði
knöttinn í vinstra markhornið.
Skagamenn komu frískirtil síðari
hálfleiks og börðust eins og ljón um
hvern bolta. Á 62. mínútu var Guð-
birni Tryggvasyni skipt út fyrir
Þórhall Jónsson og skömmu síðar
Karli Þórðarsyni fyrir Arnar B.
Gunnlaugsson og virtist sem við það
drægi allan mátt úr Skagamönnum.
Á 73. mfnútu hófu KR-ingar sókn
sem endaði með stórglæsilegu
marki Rúnars Kristinssonar. Pétur
Pétursson hóf sóknina á eigin vall-
arhelmingi með því að gefa stungu-
sendingu inn á Ragnar Margeirsson
sem atti kappi við Örn Gunnarsson
upp að endamörkun. Örn hafði bet-
ur en knötturinn barst út að vinstra
vítateigshorni þar sem Gunnar
Skúlason var fyrir og sendi hann
hárnákvæma sendingu á kollinn á
Atla Eðvaldssyni inni i markteig
Skagamanna. Átli skallaði knöttinn
til Rúnars Kristinssonar sem lagði
knöttinn snyrtilega með kollinum
vinstra megin við Gísla í marknetið.
Kraftur í KR
KR-ingar léku þennan leik af
krafti og féllu ekki í þá gryfju að
leggjast í vöm þegar þeir höfðu náð
yfirhöndinni. Ifyrir vikið var leikur-
,inn opinn og skemmtilegur fyrir
fjölmarga áhorfendur sem lögðu
leið sína í Frostaskjólið í nepjunni.
Allt annað var að sjá til Skaga-
manna í þessum leik en fyrr í sum-
ar þótt þeir hefðu ekki erindi sem
erfiði á móti sterku Vesturbæjar-
liði. Bestu leikmenn Skagamanna
voru Haraldur Ingólfsson og Karl
Þórðarson. Bestir í liði KR-inga
voru Gunnar Skúlason og Rúnar
Kristinsson. Auk þess var Pétur
síógnandi og Atli sterkur í návígj-
um.
Markaleikur í Keflavík
Leikur ÍBKog Selfoss í bikar-
keppni KSÍ, sem fram fór í
Keflavík í gærkvöldi var sann-
kallaður markaleikur. Fimm
mörk voru skoruð. Selfyssingar
voru mun ákveðnari ífyrri hálf-
leik og áttu fleiri hættuleg tæki-
færi, en tókst aðeins að nýta
eitt þeirra. í seinni hálfleik áttu
Keflvíkingar hins vegar mun
meira í leiknum og skoruðu þá
þau þrjú mörk sem veittu þeim
sigur.
Það var á 12. mínútu sem Sel-
fyssingar tóku forystu, þegar
Guðjón Þorvarðarson fékk boltann
inn í vítateig Keflvíkinga, einn og
Gunnlaugur
Dan
Ólafsson
skrifar
óvaldaður átti hann
ekki í vandræðum
með að skora. Sel-
fyssingar héldu
áfram að sækja í
fyrri hálfleik, en Óiafur í marki
Keflvíkinga stóð sig vel. Meðal ann-
ars varði hann vel aukaspymu frá
Dervic. Stuttu seinna áttu Selfyss-
ingar skalla yfir mark Keflvíkinga,
eftir snögga sókn og var Dervic þar
aftur á ferðinni. Leikur Keflvíkinga
virkaði ekki sannfærandi í fyrri
háifleik, ónákvæmar og langar
sendingar fram völlinn sköpuðu
ekki neina hættu við mark andstæð-
inganna.
Strax í upphafi seinni hálfleiks
áttu Selfyssingar ágæta sókn, en
Freyr Sverrisson hreinsaði á síðustu
stundu. Stuttu síðar var Jóhann
Júlíusson kominn í gott færi við
mark Selfyssinga, en skaut fram-
hjá. Þar með urðu nokkur kaflaskil
í leiknum og Keflvíkingar tóku hann
í sínar hendur. Á 67. mínútu skor-
aði Óli Þór með skalla eftir fyrir-
gjöf frá Jóhanni Júlíussyni og rúmri
mínútu síðar skoraði Gestur Gylfa-
son af stuttu færi. Þar með voru
Keflvíkingar komnir yfir og virtust
hafa leikinn í hendi sér. En sem
köld vatnsgusa framan í heima-
menn, kom jöfnunarmark Selfyss-
inga á 70. mínútu. Það var Dervic
sem fékk stungubolta, var eldfijótur
fram og renndi boltanum framhjá
Ólafi markmanni Keflvíkinga.
Glæsilega að verki verið. Bæði lið
áttu nokkur færi eftir þetta, en það
voru Keflvíkingar sem náðu að
nýta, þeir skorðuðu sigurmarkið 83.
mínútu. Engin hætta virtist á ferð-
um, en Jóhann Magnússon náði að
skjóta lúmsku skoti af löngu færi
og í markið fór boltinn.
Júgóslavarnir tveir í liði Selfyss-
inga voru bestu menn vallarins.
Dervic var eldfljótur og jafnan
hættulegur í sókninni. Keflvíska lið-
ið var jafnt og sótti í sig veðrið
eftir því sem leið á leikinn og spil
þess var orðið mjög sannfærandi
undir lokin og það vel að sigrinum
komið.
Katrin
Friðriksen
skrifar
„Það þarf að hafa fyrir hlutunum"
- sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkings, eftir 2:1 sigur gegn Stjörnunni
andi og sendi boltann í netið af
stuttu færi, 1:1.
Eftir jöfnunarmark Víkinga hljóp
fjör í leikinn og bæði lið náðu ágæt-
is sóknum. Það voru Víkingar sem
nýttu eina slíka og átti Hörður
Theódórsson allan heiður af því.
Hann komst inn í sendingu Svein-
bjarnar Hákonarsonar ætlaða Jóni
Otta markverði Stjörnunnar og eft-
ir að hafa leikið á Jón Otta lagði
Hörður boltann vel fyrir Micic sem
kom boltanum í markið af stuttu
færi.
Stjörnumenn geta sjálfum sér um
kennt, og reyndar Guðmundi mark-
verði Víkinga, fyrir að hafa ekki
gert út um leikinn í fyrri hálfleik.
Þá fengu þeir tækifærin, en í síðari
hálfleik voru Víkingar sterkara lið-
ið.
„MENN sáu í ieikhléi að það
þarf að hafa fyrir hlutunum.
Varnarmistökin um miðjan
hálfleikinn hefðu átt að vera
nægileg aðvörun, en það þurfti
mark til þess að menn færu
að átta sig. Þegar vörnin er
kominn í lag fer sóknarleikur-
inn að bera árangur," sagði
Logi Ólafsson, þjálfari Víkings,
eftir 2:1 sigur á Stjörnunni í
átta liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ í gærkvöldi.
Leikurinn byijaði rólega og fátt
var um hættuleg marktækifæri
framan af. Þegar á leið urðu sókn-
ir Stjörnumanna beittari og Víking-
ar virtust eiga í
miklum erfiðleikum
í vörninni. Lárus
Guðmundsson fékk
tvívegis gullin tæki-
færi tii þess að koma Stjörnunni
yfir, en bæði marktækifærin komu
eftir hrikaleg varnarmistök hjá
Víkingum. Guðmundur Hreiðars-
son, markvörður Víkinga, átti hins
vegar ekki við sama vandamál að
stríða og félagar hans í vörninni
og sá tvívegis við Lárusi með glæsi-
legri markvörslu.
Hinum megin á vellinum náðu
Víkingar góðri sókn sem lauk með
því að Hörður Theódórsson skaut
yfir úr ágætis færi. Skömmu áður
en Óli P. Ólsen flautaði tii leikhlés
skoruðu Stjörnumenn. Guðmundur
Hreiðarsson kom engum vörnum
við þegar varnarmenn Víkinga
sofnuðu á verðinum enn einu sinni
og skildu Valdimar Kristófersson
eftir einan og óvaldaðan á mark-
teig. Heimir Erlingsson sendi bolt-
ann beint á Valdimar utan af
vinstra kanti og eftirleikurinn var
auðveldur. Stjörnumenn voru því
verðskuldað einu marki yfir í leik-
hléi.
Víkingar mættu öllu hressari til
leiks í síðari háifleik. Aðaisteinn
Aðalsteinsson átti þrumuskot að
marki Stjörnunnar snemma í hálf-
leiknum, en boltinn fór rétt yfir
markið. Stuttu síðar var Aðalsteinn
aftur á ferðinni með hörkuskot vel
utan vítateigs. Jón Otti Jónsson í
marki Stjörnunnar varði vel, en
hélt ekki boltanum sem barst út í
teig. Þar kom Goran Micic aðvíf-