Morgunblaðið - 02.09.1990, Page 47
47
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990
Morgunblaðið/Sverrir
Jon Voight í góðum félagsskap. Lengst til hægri skellir Árni Samú-
elsson upp úr.
KVIKMYNDIR
Rissuðum upp Og1
undirrituðum samn
ing á servíettu!
Hinn heimskunni Hollywood-
leikari Jon Voight var stadd
ur hér á landi undir lok vikunnar
ásamt kvikmyndaframleiðandan-
um Steven Paul. Þeir eru á hrað-
ferð um þau lönd þar sem hin
nýja kvikmynd þeirra, „Eternity",
verður tekin til sýningar. Hér voru
þeir staddir á vegum Bíóborgar-
innar, Árna Samúelssonar, og í
því skyni að kynna kvikmyndina
fyrir hérlendum. Voight sagði á
blaðamannafundi, að það væri
„meiri háttar“ að vera staddur hér
á landi, það hefði staðið til tvö
síðustu árin, en ekki orðið fyrr en
nú og þeir Steven hefðu sannar-
lega notið dvalarinnar, enda hefðu
Árni Samúelsson og flestir þeir
landsmenn sem á vegi þeirra urðu
dekrað þá í alla staði. Hér á landi
ættu allir til bros og ljóst væri á
andrúmsloftinu að hér byggi þjóð
sem hefði reynslu og lag á því að
leysa erfið vandamál.
Jon var spurður hvaða hag þeir
Steven sæu í því að kynna kvik-
mynd þar sem fólksfjöldi væri jafn
lítill og á íslandi. Hann sagði að
fólksfjöldinn hefði ekkert með
málið að gera, sér og Paul væri
það einstakur heiður að sækja Is-
lendinga heim og ekki síst Árna
Samúelsson sem hann sagði afar
vinsælan mann fyrir vestan haf
meðal þeirra sem vinna að mark-
aðssetningu kvikmynda. „Þegar
ákveðið var að koma til Islands
varð uppi fótur og fit og þegar
hringt er að heiman er ekki spurt
um Berlín eða Kaupmannahöfn
eða París, heldur: „Hvernig var á
íslandi?“ eða: „Eruð þið búnir að
koma til íslands?“ Svona er þetta
nú,“ sagði Voight.
Voight er þekktur fyrir að flana
ekki að neinu í vali á hlutverkum
og velur hann sér hlutverk af ein-
stakri kostgæfni. Miðað við langan
feril hefur hann ekki margar kvik-
myndir að baki, en jafnan hefur
hann slegið í,gegn og meira að
segja hreppt Óskarsverðlaun fyrir
hlutverk sitt í kvikmyndinni „Com-
ing Home“ þar sem hann lék her-
mann sem kemur heim frá Víet-
nam og á vægast sagt erfitt með
að fóta sig heima fyrir á ný. Hann
var spurður hvernig á samvinnu
þeirra Stevens stæði. Hann svar-
aði og sagði að Steven væri þekkt-
ur í Hollywood, en samt „lítil)“.
Hann gerði vandaðar myndir fyrir
lítinn pening og viðfangsefni hans
hefðu áður heillað sig. Hann hefði
síðan kynnst Steven og fjölskyldu
hans og dag einn voru þeir stadd-
ir saman á veitingahúsi að ræða
hugmyndir er Steven spurði Jon
hvort að hann myndi ekki vilja
starfa með sér að „Eternity". „Við
rissuðum upp samning á servíettu
og undirrituðum hann á staðnum,"
segir Voight og heldur áfram: „Ég
hef alltaf tekið starfið alvarlega
og reynt að velja þannig hlutverk
að það sem ég skila á hvíta tjald-
inu nýtist ungu fólki á einhvern
hátt. Heimurinn er nú einu sinni
þannig í dag að hann þarfnast
þess að sem flestir komi fram fýr-
ir skjöldu og miðli af krafti sínum.
Það er gott að miðla krafti í gegn
um kvikmynd og Steven var með
góðar hugmyndir og undursam-
legar sögur. Maður er stundum
farinn að halda að það sé ekkert
nýtt undir sólinni, en svo kemur
á daginn að það er rangt. En vegna
þess hve hugmyndirnar í „Etern-
ity“ eru ferskar og nýjar, þá er
myndin umdeild. Myndin snýst um
von og hið góða. Það er undirtónn-
inn.“
Kvikmyndin „Eternity" hefur
verið frumsýnd í Bandaríkjunum
og voru þeir Voight og Paul spurð-
ir um móttökurnar. Þeir sögðu:
„Við erum mjög ánægðir, mynd-
inni er yfirleitt vel tekið. Það virð-
ist að vísu vera svo að hún sé
seintekin og annaðhvort átta menn
sig ekki almennilega á henni, eða
þeir heillast og vilja jafnvel koma
aftur og aftur. Okkur er sagt að
hún verði sýnd á íslandi í október
og við eigum von á því að íslend-
ingar taki myndinni vel. Kynni
okkar af þeim gera okkur bjart-
sýna. íslendingar eru opnir og
menningin í þannig jafnvægi að
hún hefur tekið það besta úr
menningu nágrannalanda án þess
að skerða sína eigin.“
Og í lokin var Voight beðinn
að rifja upp hvað væri sér efst í
huga eftir þessa íslandsheimsókn.
Það stóð ekki í honum. Kvöldið
sem hann kom blés Árni Samúels-
son til móttöku í Veitingahöllinni
og var þar margt gesta úr íslenska
kvikmyndaheiminum. Voight seg-
ist hafa heyrt á tal manna sem
hann hafði nýlega rætt við. Einn
sagði: „Hann er ágætur þessi Jon
Voight, hann er jarðbundinn, alveg
eins og við.“ „Þetta snart mig
djúpt og hafði ekki minni áhrif á
mig heldur en að standa uppi á
sviði og taka við Óskarnum um
árið„“ sagði Jon Voight.
ROKK
Þarf mikla sölumennsku til að
lokka hingað erlenda tónlistarmenn
Nú er aðeins um vika þar til að
sannkölluð þungarokksþruma
ríður yfír landið, en næstkomandi
föstudags- og laugardagskvöld leika
bresku hljómsveitirnar Whitesnake
og Quireboys í Reiðhöllinni. Quire-
boys eru það sem gjarnan er kallað
efnilegir nýliðar, hafa vakið þó
nokkra athygli og eru talsverðar
vonir bundnar við þá. Whitesnake
er aftur gömul í hettunni. Sú sveit
)ykir í senn ein fremsta þungarokks-
hljómsveit allra tíma auk þess sem
margt af tónlist sveitarinnar er það
sem kalla mætti „melódískt" og
sveitin -er laus við alls konar „stæla“
sem einkennir fjölmargar hljómsveit-
ir í þessum tónlistargeirá. Tónleik-
arnir í Reiðhöllinni eru því hvalreki
fyrir alla unnendur rokktónlistar á
islandi. Hitt er svo annað mál, að
jað hefur alltaf þótt fjárhagslegt
glæfraspil að flytja inn erlenda tón-
listarmenn þar sem íslenski markað-
urinn fyrir slíkt er svo lítill og marg-
ir hinna frægustu fá ekki nema brot
af venjulegri þóknun fyrir tónleika-
hald þegar þeir leika hérlendis. Sá
sem ber hitann og þungann af komu
Whitesnake og Quireboys er Breti,
Alan Ball að nafni, og Morgunblaðið
tók hann tali.
Ball sagði að það þyrfti mikla sölu-
mennsku til að lokka frægar hljóm-
sveitir eða tónlistarmenn hingað til
lands, meðlimir Whitesnake og Qu-
ireboys hefðu sagt sér að þeir væru
spenntir fyrir að koma, einkum
vegna þess að þeir vissu varla að til
væri sá staður, ísland. Það stafaði
af því að þótt landið væri stórt,
væru landsmenn fáir og því tiltölu-
lega lítil sala á hljómplötum. „Þess
vegna er ísland léttvægt í margra
augum,“ segir Ball. Þetta segir hann
þó vera að breytast og hann sé kom-
inn í samband við umboðsmenn fyrir
vest.an haf sem hafí áhuga á því að
senda hingað heimsfræga tónlistar-
menn á næstu misserum og má nefna
Billy Joel, Bon Jovi, Billy Idol og
jafnvel Dire Straits sem munu líkast
til hefja samstarf á nýjan leik innan
tíðar. „En það þarf að selja þeim
hugmyndina, ég komst snemma á
borð til skipuleggjanda heimsreisu
Whitesnake og eftir því sem ég sagði
þeim meira frá landi og þjóð þeim
mun spenntari voru þeir. Það er til
dæmis verið að skipuleggja laxveiði-
túr og golfvallarferð fyrir þá meðan
á hinum stutta stans stendur," segir
Ball.
En hversu stór uppákoma er þetta
og hvað kostar hún? Ball segist ekki
vera yfir sig spenntur að ræða fjár-
málin á þessari stundu, en fæst þó
til að segja að Whitesnake tekur í
sinn hlut 150.000 dollara fyrir bæði
kvöldin. Það er nálægt 8,5 milljónum
króna. Það er bara þóknunin, enginn
aukakostnaður er þar inni, né þóknun
Quireboys. Hann segir þó að sveitim-
ar hafí lækkað taxta sinn verulega
vegna mannfæðarinnar. „Þetta er
óheyrilega dýrt og enginn endir á
aukakostnaði, en maður vonar það
besta,“ segir ofurhuginn. Hvað stærð
uppákomunnar varðar segir Ball:
„Hljóðmaðurinn minn, Bjarni Frið-
riksson, tjáði mér að þetta yrði meiri
styrkur heldur en hjá Kiss, Aha,
Europe, Meatloaf og páfanum til
samans. Þetta verður langstærsta
dæmið sem lagt hefur verið upp á
íslandi. Ég var á Doningtonhátíðinni
um daginn. Ég er ekki mikið fyrir
svona tónlist, en Whitesnake grípa
hvern sem er, þeir eru frábærir, mikl-
ir karakterar og stórkostlegir tónlist-
armenn, sérstaklega gítarleikaramir
Steve Vai og Adrian Vandenbergh."
En hvað um samgöngur og örygg-
isvörslu? „Háaum fjárhæðum verður
varið í ókeypis strætisvagnaþjónustu.
Vagnarnir munu ganga frá Hlemmi,
Austurstræti og Mjóddinni. Þá verða
140 manns við öryggisvörslu, m.a. í
strætisvögnunum. Það urðu einhver
vandræði eftir Meatloaf-tónleikana
um árið. Það mun ekki endurtaka
sig. Til að koma í veg fyrir örtröð
verður húsið opnað klukkan 20.00,
eða klukkustund áður en Quireboys
taka að leika. Samkvæmt áætluninni
eiga Whitesnake að hefja leik klukk-
an hálfellefu og með uppklappi leika
þeir til um það bil klukkan tólf á'
miðnætti," segir Alan Ball. Og í lok-
in, hvað hefur selst? Það er uppselt
á föstudagstónleikanna, rúmlega •
5.000 miðar famir. Síðdegis á
fímmtudag voru auk þess þegar seld-
ir 3.700 miðar á laugardagskvöldið.
Það stefnir því allt í að uppselt verði
þá einnig.
Morgunblaðið/Þorkell
Pappírs Pési á s1já á ný
Barna- og fjölskyldumyndin
Pappírs Pési var frumsýnd í
gær, en það er Hrif hf. sem fram-
leiðir myndina. Pappírs Pési er
teikning sem lifnaði við. í mynd-
inni segir frá nýjum uppátækjum
krakkanna og Pésa. Meðal annars
óvæntri flugferð Pésa, hörku-
spennandi kassabílaralli, prakk-
arastrikum í stórmarkaði, útistöð-
um við geðstirðan nágranna og
geimfari sem lendir í garðinum hjá
honum. Kvikmyndin var tekin upp
í Hafnarfirði sumrin 1989 og 1990.
Leikarar eru flestir börn og má sjá
þau hér samankomin á myndunum
sem teknar voru á forsýningu á
föstudag.