Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEFI’EMBER 1990 25 Afmæliskveðja: Halldór Þórðarson Laugaland við Djúp. Fæðingar- staður Steins Steinarrs. Eiginlega dálítið þorp nú á dögum, húsaþyrp- ing, í fallegri umgjörð, grænt um og áin Selá liðast hljóðlega um slétt- ar grundir dijúgan spöl niðurundan bænum. En í dag rita ég ekki um landið og hið fagra útsýni er við blasir þá komið er eftir veginum fram milli Steindórsfells og Mel- graseyrarmúlans. Nú á dögum er ekki „farið fyrir fell“ svo sem áður hét, þá bændur á Laugalandi áttu leið til sjávar. En sleppum því. Halldór bóndi býr á föðurleifð sinni og er að því leyti mikill ham- ingjuhrólfur, að sennilega hefði hann hvergi heldur viljað vera og búskapur er honum í blóð borinn, svo sem var um forfeður hans, er mjög komu við sögu landbúnaðar, bæði í héraði og sumir á víðara sviði. Mikil festa ríkir í öllum búskap Halldórs og hefur hann setið þessa jörð föður síns með ágætum, en hann er elztur barna Þórðar heitins 1 Halldórssonar, er keypti Laugaland endur fyrir löngu, en er nú genginn á vit forfeðranna og hvílir á Mel- graseyri, og Helgu Maríu ættaðri af Snæfjallaströnd, dóttir hjónanna Kristínar Matthíasdóttur og Jóns Egilssonar, Skarði, Unaðsdalssókn. Hún lifir nú í hárri elli á Laugar- holti hjá dóttur sinni, Guðrúnu. — Ætt Þórðar, föður æfmælisbarns- ins, er auðrakin, Laugabólsmenn í hans föðurætt, athafnamenn og frömuðir í ræktun og búskap, stór- huga, atorkusamir, kölluðu ekki allt ömmu sína, eins og stundum er sagt, þekktu jörð sína og unnu henni, viljasterkir, einbeittir og málafylgjumenn. — Aftur á móti var amma Halldórs af Burstafells- ætt, og er þar að finna sjálfan Guðbrand Hólabiskup, einn dyggan drottins þjón og stórmenni í allan stað. Eitthvað má sjá í Halldóri af eig- inleikum feðranna, svo sem jafnan er. Mega menn minnast skeleggra greina hans í blöð, þá honum finnst hallað á bændastétt, penni hans hvass, ef svo ber undir og rökfesta í skrifum, stundum blönduð dálitlu háði, sem eigi þarf að koma á óvart þeim er fylgjast með þeirri fárán- legu vitleysu, sem nú er uppi höfð í málefnum bændastéttar. Halldór á Laugalandi kunni vel, og kann, að skilja hismið frá kjarnanum og hneigðist ekki að lausung og gylli- boðum þeim er upp voru á teningi fyrir nokkru: fór hvorki í refarækt eða annað hjóm heldur skildi alla tíð að sauðkindin er það dýra, er haldið hefur lífinu í þessari þjóð frá öndverðu. Auðvitað féll það í skaut Hall- dórs, að mæta fyrir hönd stéttar sinnar á þingum, svo sem Stéttar- sambandsins og þarf ég ekki neinn um að spyija að þangað var hann ekki kominn til þess að jánka hveiju einu eða vera þar til handaupprétt- ingar, til þóknunar einhverra þeirra er mest leggja uppúr þægum þing- mönnum, skoðanalausu fólki, er stundar það eitt að koma sér vel við þá er með völdin fara, en slíkt er jafnan einkunn þeirra er Háva- mál hafa um „Lítilla sanda/lítilla sæva/lítil eru geð guma/ . . . Halldór varð búfræðingur frá Hvanneyri, svo sem að líkum læt- ur, en fyrir utan þau fræði, er þar eru uppi höfð, bætti hann við sig mikilli lesningu, tungumálum, er vel fær í enskri tungu, hefur gluggað í þýzku, og dönsku hefur hann numið í Bændaskólanum á Hvanneyri, að ég tel víst, svo lengi sem danskar kennslubækur voru hér í nótkun, ekki sízt í landbúnað- arfræðum, og numið hana áður sér til gagns, reyndar. Eg get ekki og má ekki skilja svo við þessi fátæklegu orð mín til Halldórs sjötugs, að ég minnist eigi á, að 1958 — í hásumrinu — gekk hann að eiga núverandi konu sína, frú Ásu Ketilsdóttur, Indriðasonar, lengi bónda á Ytra-Fjalli, Þórkels- sonar. Var það gæfuríkt spor^ er Halldór steig þar, með því frú Ása er hin mesta myndarkona, skáld- mælt vel og kann ágætlega að koma fyrir sig orði, á heldur eigi langt að sækja hagmælsku og ást á skáld- skap. Til hamingju bæði tvö á þessum degi. Héðan úr Vatnsfirði sendum við heillaóskir, þökkum vinsemd ykkar og góð kynni. Lifið heil! Sr. Baldur Vilhelmsson, prófastur. Vatnsfírði. Þegar senda skal gömlum ná- granna og æskuvini Halldóri á Laugalandi afmæliskveðjur, hvarfl- ar hugurinn ósjálfrátt á bernsku- slóðirnar. Við innanvert ísafjarðar- djúp eru fríðar og búsældarlegar sveitir og var þar fram á miðja öld- ina fjölskrúðugt og þróttmikið mannlíf. Djúpið var oft nefnt „gull- kista“ Vestfjarða vegna sinna gjöf- ulu fiskimiða. Sjórinn var fyrrum aðal samgönguleiðin og í hann var lífsbjörgin sótt að töluverðum hluta. Ýmsir gildir bændur úr Inn-Djúp- ínu sóttu á sexæringum sínum frá Bolungarvík á vetrarvertíðum. Þar var sjósókn hörð og engum veifi- skötum hent að vera hlutgengir. Margir þeirra voru þar í fremstu röð aflamanna og voru einnig í far- arbroddi í búskaparumsvifum sínum heima fyrir. Fremstir meðal jafningja voru þar forfeður Hall- dórs, þeir Laugabólsfeðgar og reyndar fleiri ættingjar hans. Halldór er sonur Þórðar Halldórs- sonar bónda á Laugalandi, sem fæddur var á.Rauðamýri 22. nóv- ember 1891. Hann lést 26. maí 1987 langt kominn á nítugasta og sjötta aldursár. Móðir hans, eigin- kona Þórðai', er Helga María Jóns- dóttir f. 2. febrúar 1898. Hún býr ennþá með börnum sínum á Lauga- landi. Foreldrar Halldórs voru bæði af atgervisfólki komin og bjuggu á Laugalandi alla sína búskapartíð. Halldór er því fæddur á Lauglandi 19. september 1920 og er elstur sex barna þeirra hjóna. Flestir munu sammála um að góðar samgöngur séu frumskilyrði menningar og framfara. Séu- þær ófullkomnar skapast kyrrstaða, al- menn fátækt og félagsleg einangr- un. Hér á landi hefur verið lyft Grettistökum í samgöngumálum á síðustu áratugum. Það er þó ekki fráleit fullyrðing að Vestfirðir séu eins konar „Garðshorn“ í íslenskum samgöngumálum. Landshættir og veðurfar valda þar miklu um. Þessa hefur byggðin goldið. Heil byggðar- lög hafa eyðst af fólki og fækkunin er orðin uggvænleg á mörgum stöð- um. Inn-Djúpið hefur ekki farið varhluta af þessari þróun og eru sum sveitarfélögin orðin býsna mannfá, svo sem Snæfjalla- og N auteyrarhreppur. Sumir hafa þó skotið svo föstum rótum að ekkert fær þeim haggað. Halldór á Laugalandi er einn þeirra. Ég hygg að hann hafi aldrei verið langdvölum utan heimahaganna, nema þá vetur sem hann stundaði búfræðinám á Hvanneyri. Eigin- kona hans er Ása Ketilsdóttir, af þingeyskum ættum, sonardóttir Indriða skálds á Fjalli í Aðaldal. Þau hjón eiga ijögur börn. Ása er mikil myndarkona og hefur vakið athygli fyrir snilld sína í meðferð bæði bundins máls og óbundins, það er reyndar ættarfylgja hennar. Þau hjón hafa stundað mikinn búskap á Laugalandi, sem Þórður hafði reyndar breytt úr koti í vildis- jörð. Á Laugalandi er jarðhiti svo sem nafnið bendir til. Þar var á fyrri tíð byggð lítil sundlaug — sem var verk unga fólksins úr nágrenn- inu. Þar var gjarnan kornið saman um helgar til spjails og íþróttaiðk- ana. Nú hafa verið reist þar gróður- hús, og er sú ræktun aukabúgrein þeirra Laugalandsmanna. Hjónin hafa auðvitað bæði tekið mikinn þátt í félagsmálum hvers konai' heima í héraði sem að líkum lætur með svo vel gert fólk. Þegar íbúum fækkar, vill oft verða erfitt að sækja fé til stjórnvalda til ýmissa framfaramála. Þá fer tregðulögmál- ið oft í gang og ráðamönnum finnst að höfðatölureglan eigi að gilda. Halldór, sem og þau hjón bæði, hefur vei'ið traustui' málsvari síns byggðarlags, og ritað fjölda snjallra blaðagreina til að veija rétt þess og hagsmuni — og reyndar bænda- stéttarinnar í heild. Hann hefur löngum verið fulltrúi héraðsins á fundum Stéttarsambands bænda og verið þar traustur og einarður full- trúi stéttar sinnar, sem síst veitir af nú á seinni árum. Ég á Halldóri vini mínum mikla þökk að gjalda fyrir alla annála lið- inna ára. Það hafa verið mjög grein- argóðar skýrslur um mannlíf og hræringar í héraðinu, sem hann hefur sent mér svona tvisvar á ári og ég hef ornað mér við ásamt eldi endurminninga frá æskudögum . vestra. Ég og mitt fólk árnum Halldóri heilla á þessu afmæli. Við verðum að vona að honum og hans fólki, ásamt góðum sveitungum, takist með samheldni og áræði að hlúa að góðu og þroskamiklu mannlífi í byggðarlaginu. Johann Jóhannsson LOGSUÐUTÆKI FREMSTIR í 100 ÁR ARVIK ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK- SÍMI 687222 -TELEFAX 687295 & Ármúla 29 simar 38640 - 686100 E Þ0RGRÍMSS0N & C0 Armstrong LDFTAPlJCfTUR KORk O PLA»T GÓLFFLÍSAR l KORKFLÍSAR BMF VINKLARÁTRÉ ITALSKA VERSLUNARFÉLAGIÐ SIMI 91-688850 Fresturinn framlengdur til 27 september! Við drögum svo þann 30. um handhafa Hitachi tökuvélarinnar í beinni útsendingu á FMf?957 0HITACHI r’ 1 i i Égásjónvarp 0vutacH1 semóeÁvr. QlTT Q 5 ára os ■yngva 0 5-10 ára 0 \0 ára og eldra TwistiShoot ------------- Fylltu út svarseðilinn og sendu til okkar merkt: Johan Rönning Sundaborg 15, 104 Reykjavík."Hitachi leitin" RONNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.