Morgunblaðið - 18.10.1990, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 18.10.1990, Qupperneq 51
51 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDÁGUR 18. OKTÓBER 1990 KNATTSPYRNA Amór til Bordeaux! Franska félagið ertilbúið að greiða Anderlecht 65 milljónir íslenskra króna lyrir Arnór ARNÓR Guðjohnsen er á förum til Frakklands í dag þar sem hann kannar aðstæður hjá Bordeaux, sem leikur í frönsku 1. deildinni. Anderlecht, félag Arnórs í Belgíu, hefur náð samkomu- lagi við Bordeaux. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Bordeaux sé tilbúið að greiða andvirði 65 milljónir íslenskra króna fyrir Arnór, sem er svipuð upphæð og Anderlecht setti upp fyrir leikmanninn í viðræðum við önnur félög fyrr á árinu. Arnór er 29 ára. Arnór sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að honum litist mjög vel á að fara til Borde- aux. „Eg fer til Frakklands á morg- un [í dag] og mun setjast að samn- ingaborði við Bordeaux á föstudag eða laugardag. Mér líst mjög vel á þetta fornfræga lið. Þetta lið er mjög spennandi, en ég á enn eftir að skrifa undir,“ sagði Árnór. Gekk hratt fyrir sig Hann sagði að þetta hafi gengið mjög fljótt fyrir sig. „Ég frétti það fyrir nokkru að Bordeaux hefði áhuga en hlutirnir fóru ekki að gerast fyrr en um síðustu helgi. Eg fékk hringingu frá félaginu eft- ir að ég kom heim frá Spáni á laug- ardag og var spurður hvort ég hefði áhuga, sem ég sagðist hafa. I fram- haldi af því fór forseti Bordeaux til Belgíu til viðræðna við Anderlecht og það náðist strax samkomulag. í gærkvöldi [þriðjudagskvöld] var síðan hringt í mig og mér tjáð að félögin hafi náð samkomulagi um kaupverðið og því ekkert því til fyrirstöðu að ég kæmi út til við- ræðna.“ Arnór sagði að aðstoðarþjálfari Bordaux væri Lippens, sem var aðstoðarþjálfari Anderlecht í sex ár, og þekkti hann því vel til sín. Annar fyrrum félagi Arnórs hjá Anderlecht, Vervoort, var keyptur til franska liðsins í sumar. Amór sagði að hlutverk sitt hjá Bordaux yrði að vera á miðjunni og vinna í kringum Hollendinginn Wim Kift, markaskorarann kunna sem keypt- ur var frá PSV Eindhoven í sumar. Arnór hefur aðeins leikið með íslenska landsliðinu frá því sl. vor. Samningur hans við Anderlecht rann út eftir síðasta keppnistímabil og vildi Amór ekki endurnýja samn- ing sinn við félagið. Síðan hefur hvorki gengið né rekið og And- erlecht ekki viljað sleppa honum fyrr en nú. Frægt félag Bordeaux er eitt allra frægasta og sigui-sælasta félag Frakklands. Það varð meistari 1984, 1985 og 1987, varð síðan í öðru sæti 1988, datt niður í 13. sæti í fyrra en varð svo aftur í 2. sæti í deildinni á eft- ir Marseille í vor. Liðinu gekk afleitlega framan af nýbyijuðu keppnistímabili, en hefur verið á uppleið undanfarið og er nú í 8. sæti. Þjálfarinn gamalkunni, Belginn Raymond Goethals, var lát- inn fara fyrir skömmu, en við starf- inu tók Gerard Gili, sem stjómaði meistaraliði Marseille áður. Hann fór frá meisturunum eftir að Þjóð- veijinn Franz Beckenbauer kom þangað. Um tilboð enska félagsins Leeds sagði Arnór að forráðamenn þess hefðu haft fleiri leikmenn inní myndinni — „þeir vildu bíða átekta og skoða málið betur. Því kvaddi ég þá bara enda Bordeaux mun vænlegri kostur," sagði Arnór. Arnór Guðjohnsen ógnar marki Albana í Evrópuleiknum á Laugardalsvelii síðastliðið vor. Ormarr. IMjáll. faóm FOLX P NÆR öruggt er að Ormarr Orlygsson verði þjálfari 1. deildar- liðs KA í knattspyrnu næsta sum- ar. Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að KA-menn hefðu leitað til hans, Ormarr hefur nú sagst tilbúinn til að taka verkið að sér, þannig að aðeins á eftir að komast að endanlegu samkomulagi og skrifa undir. ■ ÍR-INGAR hafa hug á að end- urráða Njál Eiðsson sem þjálfara 2. deildarliðs síns næsta sumar, en hann stýrði því á nýliðnu keppn- istímabili, auk þess að leika með Breiðholtsliðinu. Viðræður eru í gangi. ■ GRIND VIKINGAR, sem leika í 2. deild, eru á höttunum eftir Sigu- róla Kristjánssyni hjá Þór á Akur- eyri, en hann lék með Suðurnesja- liðinu í fyrrasumar. í samtali við Dag segist Siguróli ekki hafa gert upp hug sinn. SUND Fleiri afreksmenn ekki á leiðinni EÐVARÐ Eðvarðsson varð í 16. sæti (8. sæti í b-úrslitum) í 100 m baksundi á Ólympíuleikunum íSeoui 1988. Þetta er mesta afrek íslensks sundmanns. Þá var það ekki talið mikið afrek, en það var margt sem hafði áhrif.á að hann bætti sig ekki, þó svo að hann teidi sig geta betur. „Ég fann fyrir mik- illi fjölmiðlapressu, fannst eins og að ég væri ónærður og þróttlaus, en ég var aðeins 77 kíló. Svo hafði þjálfari minn reynt að breyta tækniaðferðinni rétt áður en við fórum til Seoul. Við héldum að þetta mundi breyta miklu, en ég held nú að við höfum gert mistök með því að reyna að breyta tækninni svona stuttu fyrir leikana," sagði Eðvarð í viðtali við Morgunblaðið. Hvað varð um Eðvarð, þegar hann kom heim frá Seoul? Margir íþróttamenn taka sér langa hvíld á meðan ákvörðun er _■■■■ tekin um hvort Eftir þeir eigi að hætta Conrad eða halda áfram Cawley næstu fjögur árin. Þetta er alltaf erf- iðara í annað eða þriðja sinn, því vitað er hveiju gera má ráð fyrir. Menn sjá fyrir sér langar og strangar æfingar snemma á morgnana og ýmsu þarf að fóma; fara þarf snemma í háttinn, passa upp á mataræði og æfa ekki aðra íþrótt vegna meiðslahættu. Af- reksmaður í sundi verður að gefa sig alfarið í sundið. Eftir Ólympíuleikana tók Eð- varð sér langþráð frí, fljótlega hafði hann bætt á sig 18 kg sam- fara því að venjast eðlilegu lífi. Á sama tíma hætti þjálfari hans — tók að sér annað lið. í maí 1989 ákvað Eðvarð að rétti tíminn væri kominn til að byija að æfa á ný. Þá hafði hann engan þjálfara og því reyndist honum erfitt að koma sér í form, bæði líkamlega og sálarlega. Hann vissi hvað hann þurfti að gera, en hann hafði engan til að synda með og ýta sér áfram, sem olli pirringi. Á þessum tíma tók hann þátt í Kallot-keppninni hér á landi og Smáþjóðaleikunum á Kýpur, en gekk ekki vel. Hann ákvað að ljúka náminu það árið og æfa aðeins lítils háttar. Hvað var að gerast hjá besta sundmanni íslands? Hann var að fjarlægjast íþróttina smátt og smátt, íþróttina, sem hann unni svo mikið, sem hann var bestur í, en þetta var ekki beint honum sjálfum að kenna. „Ég var búinn að fá nóg og fékk ekki þann stuðn- ing, sem ég hafði gert ráð fyrir frá Sundsambandinu. Að mínum dómi er komið betur fram við íþróttafólk erlendis. Hér er alltaf krafist besta árangurs án stuðn- ings, sem er samt svo mikilvægur. Sundfélag Suðurnesja hefur reynst mér mjög vel. Martin Rademacher, þýski þjálfarinn, sem er aðeins ári eldri en ég, hefur vakið áhuga minn á ný og ég er tilbúinn að æfa.“ Eðvarð var boðið að þjálfa í Kaliforníuhá- skóla í Bandaríkjunum, en hann ákvað að æfa heima. Nú er hann kominn niður í 83 kg og æfír með Ævari Emi Jónssyni, sem er einn- ig í baksundinu. Radenmacher segir að Eðvarð hafi hæfileika á heimsmæli- kvarða. En hvert stefnir Eðvarð? EAvarð Þ. Eðvarðsson. „Ég stefni á að kpmast á Heims- meistaramótið í Ástralíu, en það verður erfitt, því stutt er í keppn- ina. Langtímamarkmiðið er að komast á Ólympíuleikana í Barc- elona 1992.“ Þetta eru góðar fréttir því sund- menn eins og Eðvarð eru mjög sjaldgæfir. Aðspurður um hvort annar Eðvarð eða önnur Ragn- heiður Runólfsdóttir væri einhvers staðar á leiðinni hér á landi, sagði hann: „Nei. Og ég held að mörg ár líði þangað til staða sundsins á íslandi verði í eins góðri stöðu aftur." Undirritaður er hræddur um- að þetta sé satt. Það verður erfitt að fylla í skörðin, þegar sund- stjörnumar, Eðvarð og Ragn- heiður, hætta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.