Morgunblaðið - 27.10.1990, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
Efhim Sjálfstæðis-
flokkiun til forystu
eftir Björn Bjarnason
Prófkjörsbaráttan undanfarnar
tvær vikur hefur verið lærdómsrík.
Meðal þess sem ég hef orðið var við
er einlægur áhugi margra á að efla
Sjálfstæðisflokkinn til meirihluta-
stjórnar í landsmálum. Öilum er ljós
munurinn á markvissri stjórn
Reykjavíkurborgar undir forystu
samhents meirihluta sjálfstæðis-
manna og upplausninni í landsstjórn-
inni, þar sem Steingrímur Her-
mannsson er í forystu fyrir fimm-
höfða ríkisstjóm og hvert höfuð vill
fá að láta sína rödd ráða ferðinni.
í umræðunum um stefnuræðu for-
sætisráðherra á mánudagskvöldið
kom berlega í ljós, hve sundurlyndið
er mikið innan ríkisstjórnarinnar. í
stórum dráttum má segja, að ræða
Steingríms Hermannssonar hafi ver-
ið lítið annað en upptalning á ágrein-
ingsefnum innan ríkisstjórnarinnar
auk þess sem hann leitaðist við að
fegra stjómina með þjóðarsáttinni
svonefndu, sem aðilar vinnumarkað-
arins gerðu. Forystumenn stjómar-
flokkanna láta á stundum eins og
þeir ætli sér að halda samstarfi sínu
áfram að kosningum loknum. Þeir
sem stjóma Alþýðubandalagi, Al-
þýðuflokki og Borgaraflokki víla ekki
fyrir sér rifrildi við annarra flokka
menn í ríkisstjóm; þeir standa hvort
eð er alltaf í stórræðum við eigin
flokksmenn. Almenningur sér, að
eina leiðin til að halda þessum flokk-
um frá völdum er að efla Sjálfstæðis-
flokkinn.
Þreyttir á
Framsóknarflokknum
í júlí 1971 var mynduð ríkisstjórn
Framsóknarflokksins, Alþýðubanda-
lagsins og Samtaka fijálslyndra og
vinstri manna. Þar með lauk 12 ára
samstarfi Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins í viðreisnarstjóm-
inni. Frá því um sumarið 1971 hefur
Framsóknarflokkurinn átt ráðherra
í ríkisstjómum ef litið er fram hjá
þeim fáu mánuðum, sem minnihluta-
stjórn Alþýðuflokksins var við völd
í kringum áramótin 1979/80.
Hin langa stjómarseta framsókn-
armanna byggist í fyrsta lagi á skipt-
ingu þingsæta, þeir hafa alltaf getað
smeygt 'sér upp í bólið með einhveij;
um öðrum að kosningum loknum. I
öðru lagi njóta framsóknarmenn þess
að kjördæmaskipan er þeim hag-
stæð. Og loks hafa framsóknarmenn
hiklaust skipt um stefnu í meginmál-
um til þess eins að halda völdum.
Nefna má tvö dæmi: í fyrsta lagi
kúvendinguna í vamarmálum haust-
ið 1974. I öðru lagi umskiptin í af-
stöðunni til kjarasamninga og kjara-
mála haustið 1978. Framsóknar-
HUSGAGNASYNING
Nýjar sendíngar af borðstofuhúsgSgnum
oo vegghúsgögnum
Teg: SCALA,- Fáanleg í 3 litum. Borð + 6 stólar kr. 88.900,- stgr.
Teg: IDECO - 2100. Hvítt - svart.
Gott verð - góð kjör
Opiö í dag til kl. 16. — Sunnudag kl. 14-16.
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKORVEGI 66 HAFMAREIRÐI SIMI54I00
flokkurinn er hinn dæmigerði miðju-
flokkur, sem hagar seglum eftir
vindi.
Valdhroki setur æ meiri svip á
forystumenn Framsóknarflokksins.
Steingrímur Hermannsson hefur sér-
hæft sig í því að bera ekki ábyrgð
á gjörðum eigin ríkisstjórnar. í ræðu
á Alþingi á þriðjudag sýndi forsætis-
ráðherra þar að auki, að hann gerir
ekki nægilega skýran mun á al-
mennri lagasetningu og bráðabirgða-
lögum. Þá er skammt í að tekin verði
upp stjóm með tilskipunum. Um-
mæli ráðherrans hljóta að vekja þing-
menn til umhugsunar um nauðsyn
þess að setja valdi ríkisstjómar til
að setja bráðabirgðalög skorður.
Aráttu framsóknarmanna til mið-
stýringar hafa menn kynnst síðustu
daga í umræðum um heilbrigðismál,
hvort heldur heilsugæslu, rekstur
sjúkrahúsa eða lyfjaverslun. í tilefni
kosningabaráttunnar hafa samtök
sparifjáreigenda snúið sér til fram-
bjóðenda með spurningum um lækk-
un eignaskatts, frekari skattheimtu,
svo sem á vaxtatekjur einstaklinga
og afnám lánskjaravístitölunnar. Eg
tel að ríkisstjórnin undir forystu
framsóknarmanna hafi farið rangt
að með hækkun eignaskattsins, hún
hafí sem betur fer verið hindrað í
að skattleggja spariféð og hringl for-
sætisráðherra með lánskjaravísi-
töluna sé stórvarasamt.
Einfaldasta leiðin til að útiloka
framsóknarmenn frá því að geta
sveiflað sér á milli flokka í frum-
skógi stjómmálanna er að grisja
skóginn með því að efla einn flokk
til ábyrgðar, Sjálfstæðisflokkinn.
Fækkun þingmanna
Meðal þeirra leiða sem færar era
til þess að skerpa ábyrgð stjórnmála-
manna er að breyta skipan Alþingis
á þann veg, að það starfi í einni deild
í stað tveggja. Er þetta meðal ann-
ars á dagskrá' þess þings sem nú
situr. Deildaskiptingin á sem kunn-
ugt er rætur að rekja tii þess, að í
neðri deild sátu þjóðkjörnir þingmenn
en fulltrúar konungs í efri deild.
Annars staðar byggist deildaskipting
þjóðþinga enn á því, að fulltrúar eru
kjömir til deildanna með mismunandi
Björn Bjarnason
hætti. Þær forsendur eiga ekki leng-
ur við hér.
Samhliða því sem rætt er um að
Alþingi starfí í einni málstofu á að
huga að fækkun þingmanna. Það er
með öllu óþarft að þeir séu 63. Ekki
hefur það spillt stjómarháttum í
Reykjavík, að Davíð Oddsson beitti
sér fyrir því að borgarfulltrúum var
fækkað aftur í 15 eftir að þeir höfðu
verið 21 í eitt kjörtímabil, samkvæmt
ákvörðun vinstri meirihlutans á árun-
um 1978-82?
Sjálfstæðisflokkurinn. á að beita
sér fyrir því, að þingmönnum verði
fækkað. Með því að efla smáflokka
minnka menn líkur á, að samstaða
náist um jafn róttæka ráðstöfun á
Alþingi; þingmenn þeirra líta þannig
á að lífslíkur flokkanna sép meiri
eftir því sem þingmennimir eru fleiri.
Þeir sem vilja stuðla að fækkun þing-
manna hljófa því óhjákvæmilega að
vilja hlut Sjálfstæðisflokksins sem
mestan á þingi.
Aukinn þingstyrkur
Til þess að Sjálfstæðisflokkurinn
nái þeim styrk sem hann þarf til að
hafa æskileg áhrif á Alþingi þarf að
fjölga þingmönnum hans. Skoðana-
kannanir sýna, að flokkurinn hefur
nú betra tækifæri en oft áður til að
eflast. Galdurinn er að nýta þetta
tækifæri. Þar skiptir miklu að fram-
boðslistar séu þannig að þeir veki í
senn traust og höfði til sem flestra.
Ég hef aldrei verið talsmaður
prófkjara og tel hættuna við þau
einkum felast í því, að þau ýti undir
sundrangu innan flokka. Þingmenn
telji sér síður skylt en ella að lúta
þeim flokksaga, sem er nauðsynlegur
til að pólitísk barátta skili árangri.
1
Síðasta námskeið ársins!
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum?
Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og
bættri námstækni?
Svarir þú játandi, skaltu skrá þig strax á síðasta hrað-
lestrarnámskeið ársins, sem hefst miðvikudaginn 31. októ-
ber nk.
Skráning alla daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
10 ARA
í stjórnmálum gildir hið sama og í
íþróttum, að liðið skilar aldrei betri
árangri allt en sem nemur framlagi
hvers og eins. Veikur hlekkur veikir
alla keðjuna. Þá kann prófkjörsbar-
áttan sjálf að skapa sár sem seint
gróa eða eitra andrúmsloftið þannig
að seint verði úr bætt.
í þeirri prófkjörsbaráttu sem nú
er að ljúka hér í Reykjavík hef ég
ekki orðið var við néitt, sem veldur
áhyggjum um framhaldið. Hvemig
sem úrslitin verða held ég, að nú sé
tækifæri til að velja einhuga hóp
manna til að fylgja sjálfstæðisstefn-
unni fram með þeim hætti, að sig-
urlíkur í komandi þingkosningum
aukist. Kjömum þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins ætti að geta fjölgað
um tvo eða þijá hér í Reykjavík.
Einn þingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík, sem nú sitja á Al-
þingi, Ragnhildur Helgadóttir, leitar
ekki eftir endurkjöri. Þetta sýnir, að
auðvelt ætti að vera fyrir kjósendur
að tryggja endumýjun á framboðs-
listanum án þess að það bitni á þeim
sem fyrir era. í prófkjöri eiga menn
ekki að beijast gegn neinum heldur
samhliða keppinautum sínum um
ákveðið sæti á listanum.
Það er kjósenda að ákveða með
hve sterkum endumýjunarsvip listinn
verður. Um leið og ég þakka með-
frambjóðendum mínum framgöngu
þeirra og kjósendum þann áhuga sem
þeir hafa sýnt, vil ég hvetja sem
flesta tii þátttöku í prófkjörinu.
Þannig skapast best víðtæk sam-
staða um listann og kemur í ljós, hve
Sjáfstæðisflokkurinn á mikinn hljóm-
grann meðat Reykvíkinga. Með því
yrði fyrsta skrefíð stigið til að stór-
efla Sjálfstæðisflokkinn í komandi
kosningum.
Höfundur er aðstoðarritsjóri
Morgunblaðsins og tekur þáttí
prófkjöri Sjáfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Leiðrétting-
í GREIN Sunnu Borg í Morgunblað-
inu í gær: Ósanngjörn og óréttmæt
ummæli var höfundur kynntur sem
leikari. En hið rétta er að höfundur
er formaður Leikfélags Akureyrar.
Biðst Morgunblaðið velvirðingar
á þessum mistökum.
I KYNNING verður á gæða-
stjómun þjónustu 30. október kl.
13-17 í Tæknigarði, Dunhaga 5.
Gæðastjórnun er vaxandi þáttur í
stjómun íslenskra fyrirtækja. Fjöldi
athugana hefur sýnt að fyrirtækjum
og stofnunum gengur vel ef gæðum
er stýrt, því virk gæðastjómun hefur
bæði áhrif til kostnaðariækkunar og
söluaukningar. Endurmenntunar-
nefnd háskólans mun hann 30. októ-
ber bjóða upp á kynningu á grann-
hugtökum og aðferðafræði, gæða-
stjómun þjónustu. Leiðbeinandi verð-
ur Höskuldur Frímannsson rekstr-
arhagfræðingur hjá Ráðgarði, en
hann hefur þróað gæðaaðferðina fyr-
ir þjónustufyrirtæki og stofnanir.
Kynningin er ætluð stjórnendum fyr-
irtækja og stofnana og þeim sem
láta sig gæði einhveiju máli skipta.
Markmið kynningarinnar er að þátt-
takendur kynnist grannhugtökum og
aðferðafræði við að ná fram varan-
legum umbótum. Þeir geti metið
þörf fyrir gæðastjómun þjónustu í
fyrirtækjum sínum.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals íValhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 27. október verða til viðtals Árni Sigfússon, í borgarráði, stjórn sjúkrastofnana,
húsnæðisnefnd, atvinnumálanefnd, Margrét Theódórsdóttir, í fræðslu- og skólamálaráði, ferða-
málanefnd, og Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar.