Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 22

Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Einleikstónleikar í Operunni Einleikstónleikar þeirra Evu Mjallar Ingólfsdóttur fíðluleikara og Dou- glas Poggioli píanóleikara, verða haldnir í íslensku óperunni, sunnudag 28. október kl. 16. Góð aðsókn var að fyrri tónleikunum í Seljakirkju síðastliðið fimmtudagskvöld og var listamönnunum vel tekið. Á efnis- skránni voru verk eftir Fritz Kreisler, Béla Bartók, Wieniawsky, J.S. Bach, Ravel og Brams. Tíu tonn af endurvinnsluhæfum pappír falla til árlega: Islendingar ættu að semja við útlend- inga um endurvinnslu -segir tæknilegur framkvæmdastjóri Basberg Papper a/s í Osló TORE STRAND, tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Basberg Papper a/s í Osló, segir að ís- lendingar ættu að semja við erlenda aðila, í Evrópu eða Ameríku, um endurvinnslu á 10 tonnum af endurvinnsluhæfum- pappír sem til fellur á íslandi á ári hveiju. Hann segir að þjóðin ætti ekki búast við fjárhagsleg- um hagnaði af endurvinnslunni en bendir á með þessu móti leggjum við fram skerf til um- hverfisverndar. Framkvæmda- sljórinn hefur haldið tvo fyrir- lestra um endurunninn pappír hér á landi, annan fyrir prent- ara og starfsfólk í prentsmiðj- um en hinn fyrir áhuga- og fag- fólk um pappír. Hann er stadd- ur hér á landi í boði Félags íslenska prentiðnaðarins. ;,Ég reikna með að íslandingar noti um 39 þúsund tonn af pappír á hveiju ári,“ sagði Tore í samtali við Morgunblaðið. „Tæplega helm- ingur þess magns, eða 20 þúsund tonn, er óafturkræfur en af þeim er ekki hægt að endurvinna nema 10 þúsund tonn á hveiju ári. Mín skoðun er sú að fyrir þetta lítið magn borgi sig ekki fyrir Islend- inga að koma upp tækjakosti til endurvinnslu enda er hann rándýr. Ég hugsa að það minnsta sem þið kæmust af með væru 200 miljónir fyrir gömul tæki en þá ætti eftir að borga starfsfólki laun. Þar að auki yrðu þið að sjá til þess að pappírinn væri flokkaður heima á heimilunum áður en hann færi í endurvinnslu. Þess vegna er það mín skoðun að hagkvæmasti kost- urinn fyrir ykkur væri að semja við erlenda aðila, í Skandinavíu eða Ameríku, um að endurvinna fyrir ykkur þann pappír sem á annað borð er endurvinnsluhæfur. í því samhengi tel ég þó skylt að benda á þá staðreynd ekki yrði um beinan_ fjárhagslegan gróða að ræða. Ágóðinn yrði fyrst og fremst í þágu umhverfísins.“ í máli Tore kemur meðal ann- ars fram að dagblaðapappír sé ekki hentugur til endurvinnslu. „Hann er þunnur og fullur af bleki sem erfítt er að ná af,“ segir Tore. Tore Strand. „Dagblaðapappír hefur þó verið notaður til vinnslu á öðrum pappír en skrifpappír og þá með því að blanda annars konar pappír saman við dagblaðapappírinn og styrkja hann með því móti. Ef við ætlum aftur á móti að endurvinna dag- blaðapappír í skrifpappír verðum við að gera annað hvort, að breyta honum í pappamassa eða grafa hann í jörðu og láta vaxa af honum tré,“ segir Tore og kímir góðlát- lega. Hann hefur ekki miklar áhyggj- ur af fækkun skóga og bendir íbygginn á að í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi séu mun meiri skógar nú en fyrir tíu árum. „Tré verða aldrei vandamál,“ segir hann. „Við gróðursetjum tré, þau vaxa og við höggvum þau. Af tijám verður alltaf nóg og ég held að við þurfum ekki að vera hrædd um að eyða skógunum ef við notum óendur- unnin pappír enda er þess konar pappír í sumum tilfellum mun ákjósanlegri en endurunnin pappír. Þetta á til dæmis við um bækur sem við viljum að endist næstu kynslóð og bækur sem límdar eru á kili eða heftaðar. í þeim tilfellum er endurunnin pappír einfaldlega ekki nægilega sterkur," segir framkvæmdastjór- inn. Féll útbyrðis af Klakki VE: Mér fannst ég vera svo óendanlega lítíll - segir Unnar Víðisson Vestmannaeyjum. Unnar Víðissoná dekkinu á Klakk, í flot- gallanum góða sem án efa bjargaði lífi hans. Morgunblaðið/Sigurgeir Jðnasson „EG ER kannski ekki hár í loft- inu en mér fannst ég vera svo óendanlega lítill þar sem ég svamlaði í isköldum sjónum í myrkrinu. Allt sem ég sá í kring- um mig fannst mér vera svo ótrúlega stórt og ég svo smár í samanburði við það. Þetta var óþægileg og skrýtin tilfinning," sagði Unnar Víðisson, 22 ára Eyjapeyi, háseti á Klakk VE, en hann féll útbyrðis er Klakkur var að veiðum á Oræfagrunninu en náðist úr sjónum eftir tíu mínútur. Gerðist þetta í byijun túrsins en Klakkur kom til Vest- mannaeyja í gær. Skipið kom til að taka ís en hélt samdægurs i siglingu til Þýskalands. „Við vorum að takaþað. Upphal- arinn var eitthvað óklár og við gátum ekki lásað bakstroffunni úr hleranum. Ég prílaði því upp á lunninguna til að redda þessu en þá kom smá velta, og blökkin slóst í bakið á mér þanig að ég hentist útbyrðis. Sem betur fer var ég í flotgalla, því annars væri ég líklega ekki hér til frásagnar nú. Ég er búinn að vera hér um borð í tvö ár og hef ekki verið í flotgalla allan þann tíma fyrr en í síðasta túr en fyrir hann keypti ég mér gallann. Það var góð fjárfesting því líklega hefur hann bjargað lífi mínu þegar ég féll í hafíð,“ sagði Unnar. Hann sagði að fyrstu viðbrögð sín hefðu verið að synda að skut skipsins til að komast upp í renn- una en það hafi ekki tekist. Skipið hafi verið á ferð þegar hann féll út og hann hafí því smá saman fjarlægst það. „Strákamir reyndu að kasta til mín bjarghring en línan í honum flæktist eitthvað og þegar átti að kasta til mín Markúsarneti þá var ég kominn það Iangt frá að ég náði ekki til þess. Ég heyrði öskrin og lætin um borð en reyndi að halda ró minni. Ég held ég hafi aldrei verið hræddur enda veitti það mér mikið öryggi að vera í flotgall- anum. Það róaði mig og fullvissaði- mig um að mér yrði bjargað. Enda kom aldrei neitt annað til greina í huga mér, ég hugsaði ekki um annað og var ákveðinn í að gefast ekki upp. Það var svolítil alda, ég fór nokkrum sinnum á kaf og saup smávegis sjó en það var ekkert til að tala um. Mér var náttúrulega hálf kalt en það var ekkert að ráði nema á höndum og fótum, þar var ég orðinn verulega kaldur en eigin- lega fann ég lítið fyrir kuldanum fyrr en eftir að ég var kominn um borð á ný,“ sagði Unnar. Hann sagðist hafa verið kominn all langt frá skipinu er pokanum skaut upp og hann gat synt að honum. „Það voru ein fjögur tonn í pokanum þannig 'að hann flaut upp. Ég gat þvi synt að honum komist upp á hann þar sem ég lagð- ist. Pokinn sökk reyndar undan mér skömmu síðar en kom fljótt upp aftur og þá gat ég synt að honum á ný og flækt mig fastan við hann. Ég var síðan dregin upp í rennuna á pokanum og þar náðu strákarnir f mig. Unnari varð ekki meint af volk- inu að öðru leyti en því að hann er aumur í handlegg en hann skall utan í skutrennuna er hann féll útbyrðis. „Ég hef ekki fundið að þetta hafi haft nein eftirköst og það hefur ekki sett að mér neina hræðslu en flotgallann nota ég ör- ugglega alltaf eftir þetta og hvet aðra til að gera það líka enda á ég gallanum líf mitt að launa,“ sagði Unnar Víðisson að lokum. Grímur Unnai’ var ótrúlega í’ólegnr allan tíniann - segir Páll Þór Guðmundsson stýrimaður Vestmannaeyjum. „MÉR dauðbrá auðvitað en þeg- ar ég sá að maðurinn, sem fór í sjóinn, var í flotgalla þá varð ég strax rólegri. Það gaf manni visst öryggi og ég er næstum viss um að hann hefði ekki haft þetta af ef hann hefði ekki verið i gallanum,“ sagði Páll Þór Guð- mundsson, 1. stýrimaður á Klakki, en hann var á vakt í brúnni þegar Unnar féll útbyrð- is. „Við vorum að hífa á Öræfa- grunninu, laust eftir miðnætti. Hleramir voru komnir upp og strákamir voru að lása úr hlerun- um. Það var eitthað bras hjá þeim við bakborðshlerann. Upphalarinn var óklár og Unnar fór upp á lunn- inguna til að reyr^ að fá þetta klárt. Um leið og hann var að brasa við þetta kom einhver kvika, hler- inn hreyfðist til og blökkin sló strákinn í sjóinn. Það var austan kaldi, fjögur _til fímm vindstig og dulítill sjór. Ég bakkaði strax og eins mikið og ég mögulega þorði en Unnar fjarlægð- ist okkur og við náðum ekki að henda til hans bjarghring, enda vorum við þá lens þannig að vindur- inn hjálpaði ekki til. Eg lét ræsa skipstjórann strax en síðan kveikt- um við á ískastaranum og vorum fljótir að finna strákinn í sjónum og beina geislanum á hann. Það Páll Þór Guðmundsson, 1. stýri- maður á Klakki VE. kom sér vel að hafa öll endurskins- merkin á gallanum því við gátum allan tímann fylgst vel með honum vegna þess hve vel glampaði á þau. Unnar fjarlægðist skipið og var orðinn talsvert langt fyrir aftan okkur. Við gátum lítið gert til að komast að honum fyrr en trollið væri komið um borð því skipið hef- ur takmarkaða stjórnhæfni með veiðarfærin í skutnum. Við byrjuð- um að hífa í grandarana og þá sáum við hvar pokinn kom úpp langt aftan við skipið. Skipstjórinn kallaði þá til Unnars í gegnum kallkerfið og sagði honum að synda að pokanum og koma sér á hann. Hann var þá skammt frá pokanum um 70 metrum aftan við skipið og tókst að komast upp á hann. Við héldum síðan áfram að hifa en hífðum full skart í fyrstu þannig að pokinn sökk aftur en hann kom strax upp er við stoppuðum hífíng- una og Unnari tókst að komast upp á hann á ný. Við hífðum trollið síðan rólega inn og lýstum pokann upp með kastaranum allan tímann þannig að við gátum fylgst með stráknum þar sem hann lá á pokan- um. Pokinn var síðan hífður upp í rennuna og hékk Unnar ofan á honum þar til strákarnir náðu taki á honum,“ sagði Páll. Hann sagði að Unnar hefði verið ótrúlega rólegur allan tímann sem hann var í sjónum og hann hafí bara verið hress þegar hann var kominn um borð á ný. „Hann kvart- aði um kulda á höndum og fótum en að öðru leyti virtist honum ekki neitt ofsalega kalt. Hann dreif sig í sturtu og eftir að hafa fengið sér kaffisopa fór hann í aðgerð með strákunum og var svo kominn á dekk næst þegar híft var og það var ekki að sjá neinn beig í honum". Grímur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.