Morgunblaðið - 27.10.1990, Page 24

Morgunblaðið - 27.10.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 Þingkosningar á Nýja Sjálandi: Þj óðarflokknum spáð stórsigri Wellington. Reuter. ÚRSLIT skoðanakönnunar sem birt var á Nýja Sjálandi á fimmtudag benda til þess að stjórn Verkamannaflokksins muni gjalda mikið af- hroð í þingkosningum sem fram fara í dag, laugardag, og missa stjórn- artaumana. Könnunin bendir ennfremur til þess að Mike Moore forsætisráð- herra sé síður en svo öruggur með að halda þingsæti sínu en hann situr á þingi fyrir kjördæmi í norðurhluta Christchurch. Þá stefnir allt í að David Caygill fjármálaráðherra muni ekki ná endurkjöri en hann er þingmaður St. Albans sem er næsta lq'ördæmi við kjördæmi Moores. Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að forysta Þjóðarflokksins, sem er mið- og hægriflokkur, á Verkmannaflokkinn hafi minnkað úr 21% í 16% á rúmum mánuði. Fylgissveiflan frá Verkamanna- flokknum til Þjóðarflokksins er 11,5%. Moore, sem tók við starfi forsætis- ráðherra í síðasta mánuði af Geof- frey Palmer, hefur undanfamar vik- ur reynt ákaft að vinna fyrrverandi kjósendur Verkamannaflokksins aft- Danmörk; Ellefu slas- ast í járn- brautarslysi Herning. Reuter. ELLEFU menn slösuðust í gær í árekstri jámbrautar- lestar og vörubíls á nærri borghinni Ikast á Jótlandi. Lestin var á leið frá Árósum til Heming er hún ók á vöru- flutningabíl á brautarmótum skammt frá Ikast. Með lestinni voru 20 farþeg- ar og slasaðist helmingur þeirra er hún fór út af teinun- um og valt. Okumaður vörubílsins slas- aðist lífshættulega. ur á band flokksins en þær tilraunir virðast hafa lítinn árangur borið, enda binda kjósendur ekki miklar vonir við að flokkurinn geti leyst þann vanda sem við er að etja, sem lýsir sér m.a. í meira atvinnuleysi en áður og háum vöxtum. Samkvæmt könnuninni, sem birt- ist í blaðinu New Zealand Herald á fimmtudag, má gera ráð fyrir því að Verkamannaflokkurinn tapi 34 þingsætum af 56 sem hann hlaut í kosningunum 1987 og lendi því í minnihluta en 97 menn sitja á nýsjá- lenska þinginu. Til þingsins er kosið með sama hætti og í Bretlandi, þ.e. sá frambjóðandi vinnur kjördæmið sem flest atkvæði hlýtur. I gær birti svo nýsjálenska útvarp- ið niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var fyrir stöðina og eru úrslit hennar á sömu lund og í framan- greindri könnun, Þjóðarflokkurinn fær 43% atkvæða en Verkamanna- flokkurinn 28%. Moldova: Keuter Moldovi af rúmensku bergi brotinn heldur á skilti í höfuðborg lands- ins, Kishinjov, þar sem fólk er hvatt til að halda til héraðs Tyrkja til að veija föðurlandið. Neyðarlög sett í héraði tyrkneska miimihlutans Moskvu. Reuter. RÁÐAMENN í lýðveldinu Moldovu, áður Sovétlýðveldinu Moldavíu, hafa sett neyðarlög í héraði tyrkneska minnihlutans í landinu. Einnig hefur héraðsstjórnin verið lýst ómerk og nefnd sett á fót til að stjóma í staðinn. Moldova tilheyrði áður Rúmeníu en var innlimuð í Sovétríkin fyrir fimmtíu árum. Mikill meirihluti íbúanna eru Rúmenar. Þing landsins lýsti yfir fullveldi í júní og þá var nafninu breytt ú Moldovu. Þar búa einnig 150.000 manns af tyrkneskum uppruna. Tyrkirnir lýstu yfir stofnun eig- in lýðveldis í ágúst og ákváðu að efna til kosninga nú í vikunni. Rússneski minnihlutinn hefur í landinu hefur einnig lýst yfir sjálf- stæði og vill halda í gamla nafnið, Moldavíu. Yfirvöld í Moldovu brugðust ókvæða við aðgerðum Tyrkjanna og sendu 2.000 lögreglumenn til Komrat, höfuðborgar tyrkneska héraðsins. Opinberir fundir hafa verið bannaðir í tvo mánuði og ferðalög takmörkuð. Einnig hafa þúsundir rúmenskra Moldova streymt til héraðsins til að spilla kosningun- um. Albanía: Virtur rithöf- undur fær hæli í Frakklandi París. Tirana. Reuter. ALBANSKA rithöfundinum Isma- il Kadare hefur verið veitt pólitískt hæli í Frakklandi. Kad- are og kona hans höfðu verið í landinu frá því í september og ósk hans um pólitískt hæli var nokk- urt áfall fyrir stjórnvöld í Alb- aníu, sem að undanförnu hafa reynt að bæta ímynd sína erlend- is, segja skilið við stalínismann og rjúfa einangrun landsins. Rithöfundurinn og fjölskylda hans eru undir lögregluvernd og er heimil- isfangi þeirra haldið leyndu. Hann kvaðst í samtali við franska blaðið Le Monde hafa sagt við Ramiz Alia, forseta Albaníu, að hann hefði neyðst til að fara í útlegð vegna þess að albönsk stjómvöld hefðu ekki staðið við loforð sín um örar lýðræðisbreyt- ingar. Kadare var virtur á meðal mennta- og listamanna í Albaníu og mörgum þeirra kom ákvörðun hans á óvart. Nýjasta skáldsaga Kadares, sem gefin hefur verið út á Vesturlöndum, heitir „Draumahöllin" og er dæmi- saga um heim undir alræðisstjórn, þar sem „draumalögregla" reynir að segja fyrir um og hafa áhrif á at- burðarásina með því að njósna um, drauma fólks. HÆTTA Á BORG- ARASTYRJÖLD 160 km S O R i y Moldavar moldo búa sig undir átök meöan tyrkneski minnihlutinn berst fyrir ) eigin lýöveldi / V É T - ( I N VA Kíshínjov -® í ® Komrat y RÚMENÍA Búkarest REUTER Litlu hefur munað að brytust út átök milli Tyrkja og Rúmena. Fjármál austur-þýska kommúnistaflokksins: Viðurkenna sviksamleg- ar millifærslur til að koma eigunum undan Trier. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunbladsins. STJÓRNARMAÐUR í Flokki hins lýðræðislega sósíalisma (PDS), arftaka austur-þýska Kommúnistaflokksins (SED), sem í síðustu viku reyndi að taka út 70 milljónir marka af bankareikningi í Ósló, er nú horfinn. Hafði þessi upphæð verið millifærð af reikningi skráðum á fyrirtækið „Putnik“ í Berlín. Grunsemdir vöknuðu um að þarna hefði PDS verið að reyna að koma undan með sviksamlegum hætti peningum sem flokkurinn hafði safnað saman þegar kommúnista- flokkurinn var einn við völd í Austur-Þýskalandi. í gær iýsti talsmað- ur flokksins, Hanno Harnisch, síðan yfir því að ásakanir þessar væru réttmætar. Gjaldkeri flokksins, Wolfgang Pohl, hefði lýst sig ábyrgan fyrir millifærslum þessum og sagt af sér. Lögreglan hand- tók Pohl í gær. Jafnframt sagði talsmaðurinn að formanni PDS, Gregor Gysi, hefði ekki verið kunnugt um að reynt hefði verið að koma eigum flokksins undan. Eftir ítarlega húsleit í aðalstöðv- um PDS í Berlín fyrr í mánuðinum, sem um hundrað vopnaðir lögreglu- menn tóku þátt í, lýstu yfirvöld í Berlín því yfir, að talið væri að flokkurinn hefði millifært um 100 milljónir marka (tæplega fjóra millj- arða íslenskra króna) á bankareikn- inga utan Þýskalands. Þijátíu millj- ónir hefðu farið á bankareikning í Hollandi og sjötíu milljónir á banka- reikning í Noregi. Gregor Gysi, formaður PDS, sagði þarna vera um að ræða skuld- bindingar á grundvelli gamals samnings milli SED og sovéska kommúnistaflokksins um fjármögn- un náms austur-þýskra ungmenna í Sovétríkjunum. Einnig hefði SED skuldbundið sig til að taka þátt í kostnaði við byggingu alþjóðlegrar „verkalýðsmiðstöðvar“. Lögreglu- aðgerðina sagði Gysi vera „hrylli- Iega“ — „ólöglega" og greinilega hefðu pólitísk markmið verið að baki. Höfðu ekki húsleitarheimild Lögreglumennirnir höfðu ekki húsleitarheimild og sögðu yfirvöld það vera réttlætanlegt í tilvikum sem þessum þegar hætta væri á að bið eftir slíkri heimild gæti dreg- ist á langinn. Margir stjómmála- menn hafa gagnrýnt hvernig staðið var að húsleitinni og lögreglan hef- ur viðurkennt að ákveðin mistök hafi átt sér stað. Meðal annars var leitað í skrifstofum þeirra Gregors Gysis og Hans Modrows, fyrrver- andi forsætisráðherra Áustur- Þýskalands, en þeir njóta báðir þinghelgi. Um þá staðhæfingu Gysis að millifærslumar væru vegna gam- alla skuldbindinga kommúnista- flokksins sagði Werner Thronicker, talsmaður yfirvalda í Berlín, að Gysi væri þarna að tala gegn betri vitund. Ekki eitt einasta mark hefði Gregor Gysi farið til Moskvu heldur væm þau öll á reikningum í Utrecht og Ósló. Hefði alþjóðalögreglan Interpol lát- ið rannsóknarlögreglu Berlínar vita af því að einn flokksmanna PDS hefði reynt að fá alla upphæðina, 70 milljónir, greidda úr norskum banka. Maður þessi, sem situr í stjórn PDS, heitir Karl-Heinz Kauf- mann og er frá borginni Halle. Hann er sá eini sem er með prók- úm fyrir bankareikninga fyrirtæk- isins „Putnik“. PDS var því greini- lega enn með aðgang að þessum „námsstyrkjum“. Ekkert hefur sést til Kaufmanns eftir að hann reyndi að ná út peningunum í Ósló. Forstjórinn gufaður upp Putnik er sovéskt fyrirtæki með lögheimili í Moskvu, stofnað í júlí á síðasta ári og skráð sem sameigin- Hans Modrow Reuter legt áhættufyrirtæki sovéskra og erlendra aðila (joint-venture) hjá sovéska fjármálaráðuneytinu. 40% hlutafjár er í eigu Zhilsots-bank- ans, 17,3% í eigu samvinnufyrir- tækis sem ber nafnið „Putnik" og afgangurinn er skráður á ýmsa aðila sem enn hafa ekki verið nafn- greindir í fjölmiðlum. Skráður for- stjóri fyrirtækisins, maður að nafni Popov, virðist rétt eins og Kauf- mann hafa gufað upp með öllu. Rannsóknarlögregla Berlínar hafði frá banka fengið upplýsingar um að peningarnir í Ósló kæmu frá bankareikningi skráðum á Putnik í Berlín. Reikningurinn í Berlín var stofnaður 12. september sl. og talið að PDS hafi í heild millifært um 220 milljónir marka (rúmlega átta milljarða íslenskra króna) á hann. Enn er þó ekki ljóst hvort þessi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.