Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 27. ÓKTÓBRR 1990
31
Afmæliskveðja:
Guðrún Einarsdóttir,
Blönduósi - 90 ára
Litríkir haustdagar og ánægjuleg
vikudvöl í sumarhúsi vjð Mývatn
er að baki, þegar bifreið er ekið
yfir Blöndubrú og numið staðar við
Héraðshælið á Blönduósi. Þetta er
í septemberbyrjun nú í haust, og
ákvörðun er tekin um að líta inn
til aldraðrar konu þarna á ellideild-
inni. Ég hleyp upp tröppurnar og
ber að dyrum hjá Guðrúnu Einars-
dóttur. Alltaf er jafngaman að hitta
þessa öldnu heiðurskonu, hafsjó-af
fróðleik um liðna tíð, hafandi yfir
heilu kvæðin frá bernskuárum
sínum, án þess að fipast. Ég gleðst
enn um stund við sagnabrunn þeirra
ára, er ég átti heimili hjá henni og
manni hennar á barnaskólaárum
mínum. Þessi heiðurskona hefur lif-
að níutíu ár í dag, en mér finnst
það harla ótrúlegt að líta þessa
unglegu konu með silfrað hárið, og
ég fæ ekki varist því að verða hugs-
að til langömmu hennar, skáldkon-
unnar Rósu Guðmundsdóttur
(Vatnsenda-Rósu 1795-1855), sem
mér hefur oft fundist eiga hvað
litríkastan æviferil nítjándu aldar
kvenna. Ekki aðeins vegna þess hve
hagmælskan lék henni á tungu, sem
yljar enn um hjartarætumar og lýk-
ur upp dyrum bæði harms og gleði
mikillar konu, heldur vegna hrein-
skilni hennar og einlægni og hvað
hún var sjálfri sér samkvæm í
lífshlaupi sínu.
Það er engri tilviljun háð, að svo
stórbrotin tilfinningakona skili frjó-
mætti mannkosta sinna áfram til
niðja sinna. Sigríður Ólafsdóttir,
dóttir Vatnsenda-Rósu, átti dóttur-
ina Margréti Björnsdóttur sem gift-
ist Einari Jónssyni ættuðum úr
Steingrímsfirði á Ströndum, en í
fang þeirra var lögð dóttirin Guðrún
sem fæddist á Blöndubakka í Engi-
hlíðarhreppi 27. október 1900, sleit
þar bamsskónum, en fluttist til
Óseyrar á Skagaströnd ásamt for-
eldrum og systkinum og ólst þar
upp.
Ung byrjar hún að vinna fyrir
sér eins og aldamótakynslóðin mátti
gera og vann um skeið hjá Ewald
Sæmundsen á Blönduósi, gekk þar
í Kvennaskólann en lagði síðar land
undir fót ásamt skólasystur sinni
austur á land og vann um það bil
hálft annað ár á pósthúsinu á Seyð-
isfirði, hjá Sigurði Baldvinssyni frá
Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
Guðrún giftist 23. desember
1928 Zophoníasi Zophoníassyni frá
Bjarnastöðum í Vatnsdal. Hann var
sonur hjónanna Zophoníasar Ein-
arssonar, Andréssonar frá Bólu og
Guðrúnar Pálmadóttur, Sigurðsson-
ar frá Æsustöðum í Langadal.
Zophonías var bifreiðastjóri að at-
vinnu, einn sá fyrsti á Blönduósi,
en vegir vom lélegir á þeim árum,
nánast vegleysur. Þau hófu búskap
yrðakona mikil og gestrisin með
afbrigðum, mikil myndarkona hvað
alla matargerð snerti, slátur tekið
á haustin og mikil vinna lögð í að
búa sem best að heimilinu og oýta
allan mat vel eins og siður var á
góðum heimilum.
Guðrún hefur alltaf haft yndi af
góðum skáldskap eins og hún á kyn
til. Skáld og hagyrðingar voru kær-
komnir gestir hjá þeim hjónum og
var ævinlega fagnað og þeim veitt
vel.
Guðrún og Zophonías áttu heim-
ili sitt þar sem nú er Aðalgata 3 á
Blönduósi. Hjónaband þeirra var
farsælt, enda báru þau hjón djúpa
virðingu hvort fyrir öðru og vænt-
umþykju eftir hartnær sex áratuga
sambúð. Börn þeirra á lífi eru Zoph-
onías, búsettur á Blönduósi, kvænt-
ur Grétu Arelíusdóttur, Guðrún
Sigríður, búsett á -Eiðum, Suður-
Múlasýslu, gift Einari Þór Þor-
steinssyni, og Kolbrún, búsett á
Blönduósi, gift Guðjóni Ragnars-
syni.
Zophonías lést 10. maí 1987 og
skömmu síðar flyst Guðrún til dval-
ar á Héraðshæli Húnvetninga. Af-
komendur þeirra eru orðnir margir,
allt mesta myndar- og dugnaðar-
fólk.
Elsku Guðrún mín. Litla stúlkan,
sem lék sér við dætur þínar á barna-
skólaárum sínum, býr enn að því
veganesti er hún hlaut á heimili
þínu og vill nú flytja þér ástúðar-
þakkir fyrir liðna tíð og árnaðar-
óskir á þessum merkisdegi. -
Megi ævikvöldið verða þér fag-
urt.
Sigurlaug Asgrímsdóttir
sinn af litlum efnum enda almenn
fátækt á kreppuárunum. Hann hélt
uppi áætlúnarferðum fram í Vatns-
dal um tuttugu ára skeið. Lítið
kúabú höfðu þau í nokkur ár, því
að lítið var um peninga og fremur
fékkst borgun með afurðum. Þau
önnuðust afgreiðslu fyrir Olíuversl-
un íslands um það bil hálfan fjórða
áratug og ráku litla verslun jafn-
hliða bensínafgreiðslunni á bakkan-
um innan við Blöndu. Oft var gest-
kvæmt á heimili þeirra en aldrei
var talið eftir að veita gestum og
gangandi alla þá þjónustu sem um
var beðið. Heimilið var mikið menn-
ingarheimili, góðar bækur lesnar,
húsmóðirin ræktaði blóm sér og
öðrum til augnayndis. var hann-
ATHUGIÐ
Við höfum stœkkað við okkur
og opnað undirfataverslun
Vandaðar vörur fyrir
dömur og herra.
SANDRA
Snyrtivöruverslun
Reykjovtkurvegí 50 • Hafnarfirðl
Slmi 53422
S
:
NÚERAÐ HITTA Á RÉTTU KÚLURNAR
Ef þú hittir fœröu milljónir
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
SAMEINAÐA/SÍA