Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
( '
iiltóóur
a
morgun
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn
Agúst Friðfinnsson. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson
messar. Miðvikudag: Fyrirþæna-
stund kl. 16.30. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermd verður Linda Björk Hallgr-
ímsdóttir, Austurgötu 38, Flafnar-
firði. Kaffi eftir messu. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Með þátttöku
KFUM og K starfsins við Maríu-
bakka. Organisti Daníel Jónasson.
Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðrún Ebba Ól-
afsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson.
Guðsþjónusta kl. 14. Kristín Sig-
tryggsdóttir syngur einsöng.
Messukaffi Rangæinga eftir
messu. Sr. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kóþavogskirkju kl. 14. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn Hunger Friðriksson.
Fundur með foreldrum fermingar-
barna eftir guðsþjónustuna. Sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson. Barna-
messa í safnaðarheimili á sama
tíma. Kl. 17 síðdegismessa. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Helgistund
kl. 13.30. Organleikari Birgir Ás
Guðmundsson. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Magnús Björnsson.
FELLA- og Hólakirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón Jóhanna
Guðjónsdóttir. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Eftir guðsþjón-
ustuna verður kvenfélagið Fjall-
konurnar með kaffisölu. Miðviku-
dag: Guðsþjónusta kl. 20.30.
Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Sóknarprestar.
GRAFARVOGSSÓKN:. Barna-
messa kl. 11 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Aðstoðarmenn Katrín,
Valgerður og Aðalbjörg. Skólabíll-
inn fer einso g venjulega frá Húsa-
hverfi kl. 10.30 í Foldir og síðan í
Hamrahverfi. Guðsþjónusta kl. 14
í Félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Ferm-
ingarþörn og foreldrar þeirra sér-
staklega hvattir til þátttöku. Eftir
messu verður fundur með foreldr-
um og fermingarbörnum (8. SP og
8. GH). Kaffiveitingar. Organisti
Sigríður Jónsdóttir. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarfið kl.
11. Eldri börnin uppi, yngri börnin
niðri. Messa kl. 14. Sr. Halldór S.
Gröndal. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: 316. ártíð
Hallgríms Péturssonár. Laugardag
27. október, afmælishátíð Hallgr-
ímssafnaðar. Hallgrímsmessa kl.
14. Hr. Sigurbjörn Einarsson préd-
ikar. Mótettukór Hallgrímskirkju
syngur. Davíð Oddsson borgar-
stjóri flytur ávarp. Ljósmyndasýn-
ing í forkirkjunni. Afmæliskaffi eftir
messu. Tekið við framlögum í org-
elsjóð. Sunnudag 28. október: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Börn úr Aust-
urbæjarskóla taka þátt í mess-
unni. Barnakór Austurbæjarskól-
ans syngur. Kvöldmessa kl. 17.
Fluttir sálmar og textar eftir
Hallgrím Pétursson. Mánudagur
29. október, dagskrá um Thomas
Kingo, sr. Sigurjón Guðjónsson,
Guðrún Ásmundsdóttir og Mót-
ettukór Hallgrímskirkju. Þriðjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Kirkjubíllinn fer um Suðurhlíðar og
Hlíðar fyrir og á eftir barnaguðs-
þjónustunni. Hámessa kl. 14. Sr.
Arngrímur Jónsson. Kvöldbænirog
fyrirbænir eru í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18. Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messusal-
ur Hjallasóknar Digranesskóla.
Barnamessur kl. 11, fyrir yngri og
eldri börn. Húsið er opnað kl.
10.30. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson
dómprófastur visiterar Hjallasöfn-
uð og prédikar við guðsþjón-
ustuna. Sóknarprestur þjónar fyrir
altari. Altarisganga. Kór og barna-
kór Hjallasóknar syngja. Organisti
Elías'Davíðsson. Kórstjóri barna-
kórs Friðrik S. Kristinsson. Ferm-
ingarbörn aðstoða við guðsþjón-
ustuna. Sóknarfólk er hvatt til þátt-
töku. Sóknarnefndin.
KÁRSNESPRESTAKALL. Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju sunnudag kl. 11. Organisti
Guðmundur Gilsson. Sóknarprest-
ur.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Söngur, sögur, leikir.
Þór Hauksson guðfræðingur og
Jón Stefánsson organisti sjá um
stundina. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Organisti Jón Stefánsson.
Kór Langholtskirkju syngur stól-
vers „Mín sál þinn söngur hljómi".
Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson.
Barnastarf á sama tíma. Organisti
Ronald V. Turner. Heitt á könnunni
eftir guðsþjónustu. Fimmtudag.
Kyrrðarstund í hádeginu. Orgel-
leikur, fyrirbænir, altarisganga.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11 í umsjón Sigríðar Óladóttur.
Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson. Mið-
vikudag: Fyrirþænaguðsþjónusta
kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson. Fimmtudag: Biblíulestur
kl. 20. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Molasopi eftir guðs-
þjónustu. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Gyða Haildórsdóttir.
Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson.
Miðvikudag: Samkoma kl. 20.30.
Sönghópurinn „Án skilyrða",
stjórnandi Þorvaldur Halldórsson.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Útvarps-
messa kl. 11. Þórsteinn Ragnars-
son safnaðarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti. Lág-
messa kl. 8.30. Stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18, nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20. í október
er lesin Rósakransbæn fyrir lág-
messuna kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18, nema á fimmtu-
dögum þá kl. 19.30.
KAPELLA ST. JÓSEPSSYSTRA,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
KAPELLA ST. JÓSEPSSPÍTALA
Hafnarfirði: Hámessa kl. 10.30.
Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga er messa kl.
8.
KAÞÓLSKA KAPELLAN, Hafnarg.
71 Keflavík: Messa kl. 16 á sunnu-
dag.
FRIKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Morgunandakt
miðvikudag kl. 7.30. Cesil Haralds-
son.
KFUM og K: Samkoma kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58. Ræðumaður Arnmundur Kr.
Jónasson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyld-
utími kl. 14. Kapteinn Erlingur
Níelsson stjórnar. Almenn sam-
koma kl. 20.30. Imma og Óskar
sjá um samkomuna. Inngangsorð
major Reidun Morken.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háa-
leitisbraut 58-60. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta í
Hrafnistu kl. 13. Guðsþjónusta í
Víðistaðakirkju kl. 14. Vináttudag-
ur St. Georgsskáta. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Einsöngvari Inga
Bachman. Organisti Jakob Hallgr-
ímsson. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kaffisala kvenfélagsins hefst í
Góðtemplarahúsinu að lokinni
guðsþjónustu. Einar Eyjólfsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Séra Gunnþór Ingason.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
13. Hljómeyki syngur. Minnstverð-
ur 30 ára afmælis Stjörnunnar.
Halldór Vilhelmsson syngur ein-
söng. Organisti Ferenc Utassy.
Séra Bragi Friðriksson. Barnasam-
koma er í Kirkjuhvoli kl. 13.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Barna-
samkoma verður í Stóru-Voga-
skóla í dag, laugard. kl. 13.
INNRI-NJARÐVIKURKIRKJA:
Barnastarf í safnaðarheimilinu.
Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf kl. 11. Barnakórinn
syngur. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Málfríðar og
Ragnars. Munið skólabílinn. Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Ferm-
ingarbarnakórinn syngur. Nem-
endur Tónlistarskóla Keflavíkur
vígja nýjan flygil kirkjunnar með
píanóleik frá kl. 13.30. Steinn Erl-
ingsson syngur einsöng við undir-
leik Einars Arnar Einarssonar.
Fermingarbörn flytja frásöguna af
bræðrunum Herði, Hilmari og Har-
aldi. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Mynd-
band af fermingarbarnanámskeiði
í Skálholti verður sýnt í Kirkjulundi
eftir guðsþjónustuna. Bifreið fer
kl. 13.15 að íbúðum eldri borgara
við Suðurgötu og að Hlévangi við
Faxabraut og sömu leið til baka
að lokinni messu. Sóknarprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJ A: Sunnudaga-
skóli kl. 14. Munið nýtt efni. Hjört-
ur Magni Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA: Sunnudaga-
skóli verður í grunnskólanum í
Sandgerði kl. 11. Munið nýtt efni.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Helgistund
bæði fyrir börn og fullorðna.
Barnakór og kirkjukór Grindavíkur-
kirkju syngja. Órganisti Siguróli
Geirsson. Gítarundirleikur
Svanhvít Hallgrímsdóttir. Áður en
prédikun hefst er börnunum boðið
í safnaðarheimilið og höfð með
þeim stund þar í umsjón Svan-
hvítar, Soffíu og Birnu. Sóknar-
prestur.
HVERAGERÐISPREST AKALL:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Tómas
Guðmundsson.
ÞORLÁKSHAFNARPRESTA-
KALL: Barnaguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá Rúnars Reynissonar. Messa
í Strandarkirkju kl. 14. Tómas Guð-
mundsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Laugardag
27. október: Barnastarf kl. 13.
Umsjón Sigurður Lúther og Hrafn-
hildur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Messa kl.
14. Kaffi eftir messu. Sóknarprest-
ur.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Mosfellskirkju kl. 14. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu Þverholti
3 kl. 11. Skólabíllinn fer venjulega
leið og verður uppi í Dal kl. 10.25
og við Reykjalund kl. 10.40. Jón
Þorsteinsson.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í safnaðarheimil-
inu Vinaminni laugardag kl. 13.
Barnaguðsþjónusta í kirkjunni
sunnudag kl. 11. Messa kl. 14.
Sigurbjörn Þorkelsson, frkvstj.
Sambands Gideonfélaganna á ís-
landi flytur stólræðu og kynnir
starf félaganna. Altarisganga.
Messa í dvalarheimilinu Höfða kl.
15.30. Fyrirbænaguðsþjónusta
fimmtudag kl. 18.30. Beðið fyrir
sjúkum. Organisti Jón Ólafur Sig-
urðsson. Séra Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju sunnudag kl. 10. ^óknar-
prestur.
Minning:
Lilja Sigfúsdótt-
ir frá Kirkjubæ
Fædd 11. október 1917
Dáinn 15. október 1990
í dag er til moldar borin fyrrver-
andi tengdamóðir mín Lilja Sigfús-
dóttir frá Kirkjubæ í Vestmannaeyj-
um. Ég minnist hennar með hlýhug
og þakklæti. Hún tók mér opnum
örmum þegar ég kom til Vest-
mannaeyja og var að bytja búskap
með Brynju dóttur hennar. Við byrj-
uðum að búa í risíbúð í húsi tengda-
foreldra minna í Eyjum, eða í loft-
inu, sem var kallað, og bjuggum
þar fram að eldgosinu, ásamt tveim
bömum Brynju, þeim Kela og Lilju
titlu.
Samgangur okkar var því mikill,
þar sem hjálpsemi sat í fyrirrúmi.
Alltaf var Lilja boðin og búin til
að líta eftir og passa börnin þegar
hún gat og oft þurfti að leita til
hennar þar sem við unnum bæði úti.
Sérstöku ástfóstri tók hún litlu
nöfnu sína Lilju Berglindi og var
henni einkar góð.
Uppi af Urðunum austur í
Heimaey var mjög fallegt. Þar voru
grösug tún og gamlir matjurtagarð-
ar og hvítmáluð húsin á víð og dreif.
Þegar eldgosið hófst í Vest-
mannaeyjum í janúar 1973 stóð
Kirkjubær næst eldstöðvunum og
var líka fyrsta húsið sem varð eldin-
um að bráð. Allt þetta svæði liggur
nú undir tugum metra af hrauni
og ösku og þeir Vestmanneyingar
sem þarna áttu heima gátu fæstir
hugsað sér að flytja til Eyja aftur,
þar sem öll þeirra heimabyggð var
horfin.
Eftir gosið fluttum við því öll upp
á land og Lilja settist að í Garðinum
ásamt eiginma'nni sínum Pétri Guð-
jónssyni en hann lést fyrir 8 árum.
í Garðinn fluttu um þetta leiti
töluverður fjöldi Vestmanneyinga
og átti hún bæði ættingja, tengda-
fólk og vini í þeim hópi. Það var
mikil samheldni og samhugur milli
þessara brottfluttu Vestmanney-
inga og oft var líka tilefni til að
koma saman og gleðjast. Þá voru
stundum rifjaðir upp ýmsir
skemmtilegir atburðir úr Eyjum,
eða einhver fyndin tilsvör og þá var
alltaf tiihlökkunarefni að skreppa
suður í Garð og ekki síst fyrir börn-
in sem áttu alltaf vísan glaðning
hjá ömmu Lilju og afa Pétri. Seinna
þegar við Brynja vorum einnig flutt
út í Garð í næsta nágrenni við Lilju
kom hún að sjálfsögðu oft til okkar
og var þá að jafnaði hress og kát.
Hún var mjög félagslynd og ætt-
rækin og dugleg að heimsækja vini
og ættingja enda var oft gestkvæmt
hjá henni sjálfri því frændgarðurinn
var stór. Seinni ár var heilsu henn-
ar farið að hraka en þó átti enginn
von á því að kallið kæmi svo skyndi-
lega.
Börnum hennar og öðrum ástvin-
um sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur og bið góðan guð að styrkja
þau.
Hvíli hún í friði.
Hörður Steinþórsson
í dag er kvödd hinstu kveðju
móðursystir mín, Lilja Sigfúsdóttir
frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum.
Hún var yngst 12 systkina en tvö
þeirra dóu í frumbernsku. Lilja
fæddist í Egilsstaðakoti í Villinga-
holtshreppi 11. október 1917. For-
eldrar hennar voru hjónin Sigfús
Vigfússon bóndi þar og Gróa Gests-
dóttir. Lífið var enginn dans á rós-
um hjá barnmörgum fjölskyldum .
þeirra tíma, húsakynnin þröng og
köld og ekki tókst alltaf að metta
alla munna sem skyldi. En með
guðs og góðra manna hjálp tókst
að koma öllum hópnum til manns.
Eldri systkinum Lilju var mörg-
um komið í fóstur um lengri eða
skemmri tíma til að létta á heimil-
inu en þar sem hún var yngst, fékk
hún að fylgja foreldrum sínum
ásamt tveimur sem næst voru í
röðinni, þegar foreldrar þeirra
brugðu búi og fluttu til Eyrar-
bakka. Að Lilju genginni eru nú á
lífi tveir bræður hennar, þeir Guðjón
og Guðmundur. Þótt sýstkinin
tyístruðust fyrr en skyldi, misstu
þau aldrei sjónar hvert af öðru og
það voru gleðifundir þegar þau
komu saman enda var þeim lífsgleði
og létt lund í blóð borin.
Þegar Lilja var um tvítugt, lá
leið hennar til Vestmannaeyja. Þar
réðst hún í vist til Péturs Guðjóns-
sonar frá Oddsstöðum sem þar bjó
á hinu forna höfuðbóli Kirkjubæ.
Hann hafði þá nýlega misst konu
sfna frá fimm börnum á aldrinum
þriggja til þrettán ára. Þau tóku
brátt ástfóstri við Lilju og hún undi
hag sínum vel. Þau Pétur gengu í
hjónaband í fyllingu tímans og ól-
ust öll börn Péturs upp hjá þeim
utan eitt. Að auki varð þeim fjög-
urra bama auðið. Öll börn þeirra
lifa móður sína nema Guðjón stjúp-
sonur hennar sem lést á besta aldri
fyrir nokkrum árum. Pétur missti
hún fyrir átta árum. Stjúpbörn
hennar voru henni ætíð jafn kær
og hennar eigin og blandast engum,
sem til þekkir, hugur um að börnum
verði ekki betur gengið í móðurstað
en hún gerði.
Lilja var með afbrigðum vel látin
og vinsæl hvar sem hún fór enda
var alla tíð gaman að vera í návist
hennar. Hún var létt og kát hvað
sem á dundi og lét erfiðleika aldrei
buga sína léttu lund. Það varð henni
mikið áfall líkt og mörgum öðrum
að þurfa að yfirgefa heimili sitt í
Eyjum og sjá það verða eldi og
hrauni að bráð í Heimaeyjargosinu
en hún bjó sér og sínum hlýlegt og
fallegt heimili í nýjum heimkynnum
í Garðinum. Þar festi hún yndi og
sætti sig eins vel við orðinn hlut
og verða mátti.
Ég sóttist eftir að heimsækja
Lilju og hennar fólk í Vestmanna-
eyjum frá unga aldri og fannst ferð-
irnar aldrei nógu margar. Þaðan á
ég ógleymanlegar endurminningar
frá bernsku- og æskuárum. Þar var
mér ævinlega tekið opnum örmum
hvort sem var til lengri eða skemmri
tíma. Hjá Pétri og Lilju í Kirkjubæ
var alltaf glatt á hjalla enda jafnan
margt um manninn. Þar var gest-
risni í hávegum höfð og heimils-
bragur allur til fyrirmyndar. Þar
var gott að vera. Hafi hún kæra
þökk fyrir.
Fjölskyldu hennar votta ég
dýpstu samúð.
Þóra Kristín