Morgunblaðið - 27.10.1990, Page 43
KEPPNI
SLATTUMAÐURINN
Kunnur rokk-
ari sjöunda
áratugarins
skilinn við
Tónlistarmaðurinn Tom Fo-
gerty lést fyrir skömmu
úr berklum í Scottsdale, Ariz-
ona, aðeins 48 ára gamall. Fo-
gerty var annar tveggja höfuð-
paura rokkhljómsveitarinnar
Creedence Clearwater Revival
sem var ein fremsta rokksveit
sjöunda áratugarins. Hinn leið-
toginn var bróðir hans, John
Fogerty, sem var söngvari
sveitarinnar. Undir forystu Fo-
gerty-bræðra, rakaði sveitin
saman sex gullplötum og kom
átta lögum í „topp tíu“ í Banda-
ríkjunum. Meðal þekktari laga
sveitarinnar má nefna „Born
on the Bayou“, „Proud Mary“
og „Bad Moon Rising“.
Langt er síðan Creedence
Clearwater Revival lögðu upp
laupana en Tom Fogerty vann
fyrir sér sem rokkhljómlista-
maður og gaf út nokkrar só-
lóskífur án þess þó að slá
nokkru sinni í gegn svo vit
væri í. Við minningarathöfn um
Tom Fogerty tók bróðir hans,
John, til máls og sagði meðal
annars: „Draumur okkar þegar
við vorum snáðar var að verða
fullorðnir og verða rokkstjörn-
ur. Við náðum því síðarnefnda.
Fullorðnir urðum við aldrei.“
SHAMAL
C. O ■ M P R É S S 0 R S
LOFTÞJÖPPUR
Fyrirliggjandi
loftþjöppur
samkvæmt
sænskum
öryggiskröfum
með eða án
loftkúts.
Hagstætt
verð.
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Nafn Ingi-
mars Eydal
úr hattinum
Hitachi-umboðið á íslandi stóð
fyrir skritinni keppni fyrir
skömm. Þá var dregið úr nöfnum
fjölmargra eigenda Hitachi-góss
og valinn fremsti Hitachi-eigandi
ársins. Hinn kunni hljómlistarmað-
ur Ingimar Eydal var dreginn úr
hattinum og fékk hann gjöf frá
umboðinu í viðurkenningarskyni.
Ingimar með gjöfina ásamt starfsfólki Jóhanns Rönning, umboðsaðila hins japanska fyrirtækis á ís-
landi, og gestum.
* •
reksturs og stjórnunar
fyrirtækja
Lára Margrét á fjölþættan náms- og starfsferil að
baki, bæði hérlendis og erlendis.
Hún er þekkt fyrir einstakan dugnað og frumkvæði
og þau málefni sem hún tekur að sér komast heil í
höfn.
Sérþekking hennar á atvinnulífi, efnahagsmálum og
heilbrigðismálum sýnir best og sannar að hún er
kjörin til starfa á Alþingi Islendinga.
Kosningaskrifstofan er í Hafnarstræti 20, 4. hæð (lyfta)
verður opin.frá kl. 10.00 til 22.00.
Símar 27804, 27810, 28817 og 28847.
Kjósum
Láru Margréti
í 4.—6. sæti.
Látum frumkvæði
og fyrirhyggju ráða úrslitum
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990