Morgunblaðið - 27.10.1990, Side 52

Morgunblaðið - 27.10.1990, Side 52
VOI.VO wagti&xaet ÆS^ ™AC «A>».<J JL^i -íJAki XBHkgmÍBka 8esí/ Wnur sjómannsins! Vorveður í vetrarbyijun HLÝTT loft hefur leikið um landið undanfarna daga með 7-10 stiga hita. Sunnanlands rigndi í gær. Veðrið var eins og á vordegi og ekki hægt að sjá að veturinn væri í nánd en fyrsti vetrardagur er einmitt í dag. Á sunnudag má búast við að það fari að snúast í norðanátt og kólna með éljum norðanlands en að heiðskírt verði sunnanlands og vestan. Myndin sem tekin var í Lækjargötu í gær getur minnt okkur á veðrið, skamm- degið og hraðann og að aka varlega nú þegar svartasta skammdegið er í nánd. Prófmál höfðað um skiptaverð til sjómanna á frystiskipum: Getur ínimið hundruðum millj- óna króna fyrir flotann allan -seg-ir Kristján Loftsson forsljóri Hvals hf. Skagafjörður: Stórhætta af fjöður Sauðárkróki. ÓHAPP varð á þjóðvegi 1, rétt sunnan við Varmahlíð, síðastlið- inn föstudag þegar 30 til 40 sm langt bílfjaðrarblað, sem legið hafði á veginum, kastaðist und- an hjóli Range Rover-bíls og lenti á Lancer, sem ekið var rétt á eftir jeppanum. Fjaðrarbrotið lenti í vélarhlíf seinni bílsins og skar það eins og dósarlok eftir endilöngu, fór síðan inn um framrúðuna, rétt snerti höfuð farþega í framsætinu, eyði- lagði hnakkapúðann og kastaðist þaðan upp i þak bílsins og stór- skemmdi. Farþeginn skarst lítillega á gagnauga og var áverkinn saum- aður á Sjúkrahúsinu á Blönduósi. Að sögn lögreglu á Sauðárkróki, er talin mikil mildi að ekki varð þama stórslys. Þar munaði litlu að járnstykkið lenti í andliti farþegans. HÁSETI á frystitogaranum Ven- usi HF-519 hefur stefnt útgerðar- fyrirtæki skipsins, Hval hf., fyrir bæjarþing Iteykjavíkur vegna launakröfu í sambandi við sölu- skilmála og uppgjör á skiptaverði til sjómanna þegar afurðir eru seldar í Asiu. Er hér prófmál á ferðinni sem getur numið hundr- uðum milljóna króna fyrir frysti- togaraflotann allan. Að mati Sjó- mannasambandsins og útgerðar- innar snýst það um grundvallarat- riði við túlkun laga um skiptaverð á frystiskipum. Ágreiningur hefur ríkt á milli sjó- manna og útgerðarmanna um hvort reikna skuii söluverð á fob-verði eða cif-verði þegar gert er upp við sjó- menn en á síðustu þrem árum hefur orðið algengt að fiskafurðir til Asíu- landa séu seldar með svokölluðum c&f-söluskilmáium. Uppgjör við sjó- menn hefur hins vegar verið látið miðast við fob-verð. Við fob-sölu ber kaupandi flutningskostnaðinn en skv. c&f-skilmálunum sér seljandi um kostnað og fraktina. Hafa bæði Sjómannasamband íslands og LÍU fylgst grannt með þessu máli. Krafa sjómannsins er upp á rúmar 300 þús. krónur, en að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf., getur þetta mál skipt frystitogaraflotann allan hundruð milljóna kr. Sjómannasambandið telur að þar sem skiptaverð til sjómanna ráðist af því með hvaða söluskilmálum af- urðir eru seldar sé óheimilt sam- kvæmt lögum að umreikna söluverð með þessum hætti þegar selt er. Vilja þeir að við umreikning verði miðað við cif-verð en ekki fob-verð og að sjómenn fái greiddan þennan mismun. Kristján Loftsson segir að þessi háttur hafi verið hafður á í uppgjör við sjómenn í góðri trú enda væri c&f-söluskilmála hvergi getið í kjarasamningum eða lögum. „Þetta mál snýst um það hvort útgerðin á að greiða sjómönnum afla- hlut af flutningskostnaði vöru frá íslandi á erlenda markaði eða ekki,“ segir hann. Hann bendir á að þegar kjarasamningar við sjómenn á frysti- skipum voru gerðir árið 1985 hafí það komið nokkuð jafnt út í skipta- verðinu hvort selt var skv. fob- eða cif-söluskilmálum í Evrópu. A síðustu árum hafi íslenskir útflytj- endur tekið að sér stjórnun útflutn- ingsins til Asíu og til að ráða við flutningskostnaðinn hafi oftast verið samið um c&f-verð. Sjómenn telja að það jafngildi cif-sölu en á það vilja útvegsmenn ekki fallast. Að sögn Hólmgeirs Jónssonar, framkvæmdastjóra Sjómannasam- bandsins, benda sjómenn á að flutn- ingskostnaðurinn skv. kjarasamning- um sé um 7-8% og með því að umreikna söluverðin yfir í fob-verð þegar vara er flutt er til Asíu rýrni skiptaverðið verulega vegna þess hve kostnaður vegur þungt þegar selt er til ijarlægari markaða. Háseti á Klakk VE féll útbyrðis og var 10 mínútur í sjónum: Hugsaði ekki um annað en að mér yrði bjargað - segir Unnar Víðisson sem telur flotgalla hafa bjargað lífi sínu Vestmannaeyjum. • UNNAR Víðisson 22 ára gamall háseti á Klakk VE féll útbyrðis þegar skipið var á veiðum á Öræfagrunni en náðist úr sjónum eft- ir tíu mínútur. Unnar telur að flotgalli sem hann var í hafi bjargað lífi sínu, en hann var nýbúinn að kaupa gallann. Verið var að draga inn veiðar- færin laust eftir miðnætti þegar blökk slóst í bak Unnars og hann féll útbyrðis. Hann sagði að fyrstu viðbrögð sín hefðu verið að synda að skut skipsins til að komast upp í rennuna en það tókst ekki. Skipið var á ferð og íjarlægðist hann smátt og smátt. „Ég er kannski ekki hár í loftinu Morgunblaðið/Sigurgeir en mér fannst ég vera svo óendan- lega lítill þar sem ég svamlaði í ísköldum sjónum í myrkrinu. Allt sem ég sá í kringum mig fannst' mér vera svo ótrúlega stórt og ég svo smár í samanburði við það. Þetta var óþægileg og skrýtin til- finning," sagði Unnar. Hann náði hvorki til björgunar- hrings né Markúsarnets, sem félag- ar hans köstuðu til hans, en tókst loks að ná taki á trollpokanum og var (ireginn á honum um borð. „Ég held að ég hafi aldrei verið hræddur enda veitti það mér mikið öryggi að vera í flotgallanum. Það róaði mig og fullvissaði mig um að mér yrði bjargað. Enda kom aldrei neitt annað til greina í huga mér, ég hugsaði ekki um annað og var ákveðinn í að gefast ekki upp,“ sagði Unnar Víðisson. Unnar Víðisson góða. í flotgallanum sjá viðtöl á bls. 22. Grímur LAUGARDAGUR 27. OKTOBER 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Sameinaða sveitarfélag- ið heitir Eyja- fjarðarsveit Ytri-Tjörnum, Eyjafirði. Á fundi hreppsnefnda hrepp- anna þriggja framan Akureyrar í gærkvöldi var ákveðið að nýja sveitarfélagið sem formlega verður stofnað 1. janúar næst- komandi heiti Eyjafjarðarsveit. Tveir áttu uppástunguna, Helga Hallgrímsdóttir í Hvammi og Guð- mundur Sveinsson á Selfossi. Þau fá bókaverðlaun. Fjórtán af fimm- tán hreppsnefndarmönnum sam- þykktu nafnið. Á fundinum var lagður fram sameiginlegur framboðslisti frá- farandi hreppsnefnda fyrir vænt- anlegar sveitarstjórnarkosningar sem verða 17. nóvember. Annar framboðslisti er í undirbúningi. Benjamín

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.