Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
I
Forsætisráðherra um beiðni Halldórs Blöndals:
Ljósmynd/Hafþór Ferdinandsson
Jólavarningur til Hveravalla
HEIMILISFÓLKIÐ á Hveravöllum fékk í gær glaðning frá byggðum
þegar Hafþór Ferdinandsson kom færandi hendi með jólamatinn og
jólapakka og annan jólavaming. Á myndinni eru Harpa Lind Guð-
brandsdóttir og Grímur Sigtirjónsson ásamt tíkinni Skottu.
Gefur upp nöfn
lögfræðinganna
HALLDÓR Blöndal alþingismaður fór fram á það við forsætisráð-
herra að hann upplýsti hvaða lögfræðingar veittu ríkisstjórninni
sérfræðiálit við setningu bráðabirgðalaganna siðastliðið sumar. For-
sætisráðherra svaraði erindi þingmannsins á þriðjudag á þá lund
að honum yrðu veittar umbeðnar upplýsingar í fjárhags- og viðskipta-
nefnd efri deildar alþingis sem trúnaðarmál. Kveðst Haildór eiga
von á að það verði eftir áramót.
Halldór segist hafa sagt við for-
sætisráðherra að hann myndi kalla
hann fyrir í fjárhags- og viðskipta-
nefnd til að spytja hvaða lögfræð-
ingar hefðu verið kallaðir til á veg-
um ríkisstjórnarinnar í sambandi
við undirbúning bráðabirgðalag-
anna um launamál og það álit að
1. grein laganna héldi og ekki
þyrfti að standa við kjarasamning-
inn við BHMR.
„Forsætsráðherra svaraði því á
þriðjudaginn að hann myndi gefa
þessar upplýsingar í fjárhags- og
viðskiptanefnd. Það verður þó ekki
fyrr en eftir áramót,“ sagði Halldór
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Mæðrastyrksnefnd;
Margar ungar konur
koma í fyrsta sinn
í GÆR leitaði ung 6 barna gift
móðir aðstoðar hjá Mæðra-
styrksnefnd vegna jólanna. Hún
á ekki kost á að vinna úti vegna
barnanna en eiginmaður hennar
hefur 57 þúsund króna mánað-
arlaun. Þau búa í 57 fermetra
íbúð sem þau festu kaup á fyrir
tveimur árum og gengur erfið-
lega að standa í skilum. „Þessi
kona hefur aldrei áður leitað til
okkar en hún er eitt dæmi af
mörgum því hingað koma nú
margar ungar konur í fyrsta
sinn. Fleiri leita aðstoðar
Mæðrastyrksnefndar en áður.
Konan fór mjög sæl frá okkur
og það er það ánægjulega við
þetta, að geta veitt fólki veru-
lega hjálp,“ segir Guðlaug Run-
ólfsdóttir, starfsmaður nefndar-
innar í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Að sögn Guðlaugar var stans-
laus ös hjá Mæðrastyrksnefnd í
gær. „Fólk hefur tekið við sér og
við höfum fengið töluverð framlög
en þó eru þeir fleiri sem leita eftir
aðstoð," sagði hún.
Guðlaug sagði að nú bæri nokk-
uð á því að fólk styrkti Mæðra-
styrksnefnd sem ekki hefur gert
það áður. „Við erum mjög þakklát-
ar fyrir það,“ sagði hún.
Á seinasta ári leituðu um 300
fjölskyldur og einstaklingar að-
stoðar hjá nefndinni og þykir ljóst
að þeim muni eitthvað fjölga í ár.
„Hingað koma margar ungar, frá-
skildar konur sem eru með böm á
framfæri sínu, og ekki hafa sést
hér áður. Við reynum að hjálpa
öllum sem þurfa á aðstoð að
haida,“sagði hún.
Auk peningagjafa berst talsvert
af notuðum fatnaði en minna hefur
borist af nýjum fatnaði. Sagði
Gúðlaug að helst hafi skort nær-
fatnað á böm.
Umfangsmikil leit
ber ekki árangrir
Bolungarvík.
í DAG hefur verið haldið áfram
leit að mönnunum tveimur sem
saknað er af vélbátnum Hauki
ÍS 195 frá Bolungarvík, sem
fannst mannlaus á siglingu út af
Stigahlíð á þriðjudag. Fjöldi báta
leitaði á sjó, auk varðskips, sem
tók við stjórn leitarinnar í gær,
en fram að því hafði leit verið
stjórnað frá skuttogaranum Páli
Pálssyni
Leitarflokkar björgunarsveita frá
Bolungarvík, Hnífsdal og ísafírði,
gengu fjömr allt frá Arnamesi að
Gelti. Þá leitaði þyrla af danska
eftirlitsskipinu Vædderen með allri
strandlengjunni, frá mynni Álfta-
fjarðar að Súgandafírði. Leitin hef-
ur engan árangur borið og um kl.
Vélbáturinn Haukur.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Steingrímur segir sig
úr stjórn Stöðvar 2
Steingrímur Ellingsen stjórnarmaður í stjórn Stöðvar 2 sagði sig
úr sljórn íslenska útvarpsfélagsins h.f. í gær, en hann tók sæti
Hreins Loftssonar þegar hann sagði sig úr stjórn félagsins fyrir
skömmu. Steingrímur segir sig úr stjórninni á sömu forsendum, það
er að hann sjái sér ekki fært að starfa í félaginu þar sem stjórnin
hafi brotið hlutafjárlögin er varðar 112. grein, en það er sama ástæða
og Hreinn Loftsson gaf m.a. fyrir úrsögn sinni
Steingrímur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann byggði úr-
sögn sína á álitsgerð lögmanns síns,
Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl.
um álitaefni innan félagsins.
Steingrímur telur að greinargerðina
eigi að leggja fyrir hluthafafund til
ákvörðunar ásamt öðrum brýnum
málum sem varða innri mál félags-
ins. Steingrímur kvaðst hafa gert
Jóhanni J. Olafssyni formanni
stjómar Stöðvar 2 grein fyrir úr-
sögn sinni.
17.30 í gær var leit hætt, enda
komið myrkur og veður farið að
versna. Skilyrði til leitar í gær voru
góð, en ísing hamlaði þó að minni
bátar gætu farið til leitar.
Vélbáturinn Haukur ÍS 195, sem
er 22 lesta eikarbátur, smíðaður í
Reykjavík árið 1973, fór í línuróður
frá Bolungarvík á þriðjudagsmorg-
un og var þá veður ágætt. Upp úr
hádeginu fór veður hins vegar
versnandi á miðum. Skipveijar á
Hauki lögðu línuna á svokölluðum
Eldingahrygg, sem er um átta mílur
norður af Deild. Til bátsins sást um
hádegisbil, en þá voru skipveijar
að draga línuna og amaði ekkert að.
Næst verður vart við bátinn um
kl. 19 þegar vélbáturinn Kristján
ÍS 122 kom að honum, þar sem
hann sigldi í hringi, um tvær sjómíl-
ur út af Krossavík í Stigahlíð.
Að sögn Sveinbjöms Ragnars-
sonar, skipstjóra á Kristjáni, gekk
vel að koma manni um borð í Hauk
þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Rögn-
valdi Guðmundssyni, vélstjóra á
Kristjáni, tókst að komast um borð
í Hauk og kom þá í ljós að enginn
maður var um borð og öll ummerki
bentu til þess að sjór hafi gengið
yfír bátinn. Nokkur sjór var í honum
en vel gekk að sigla honum til hafn-
ar í Bolungarvík.
Af siglingartækjum bátsins má
ráða að slysið hafi orðið er bátnum
hafði verið siglt rúmar þrjár mílur
áleiðis til Bolungarvíkur og gæti
því hafa gerst á milli 16 og 17 á
þriðjudag. Strax og ljóst var hvað
gerst hafði var hafín umfangsmikil
leit sem hefur staðið síðan án
árangurs.
Gunnar
Þormóður
rammi í eigu
heimamanna
RÍKISSJÓÐUR seldi í gær um
57% hlutafjár í Þormóði ramma
hf. á Siglufirði. Kaupendur voru
tvö fyrirtæki á staðnum, Drafnar
hf. og Egilssíld hf. Kaupverð var
rúmar 87 milljónir króna.
Tvö tilboð bárust í Þormóð
ramma. Fyrirtækin þijú verða nú
sameinuð í eitt og verður hlutur
ríkisins í hinu nýja fyrirtæki um
20%. Nýtt hlutafé verður boðið út
að nafnvirði 50 milljónir króna og
hafa Siglfirðingar forkaupsrétt á
því. Aflakvóti sá er fylgir skipum
félagins verður nýttur á Siglufirði
en ekki seldur þaðan. Hluthafa-
fundur verður 27. desember.
Eldey kaup-
ir Dalborgu
fyrir 182
milljónir
ELDEY hf. í Keflavík hefur keypt
Dalborgu EA af Söltunarfélagi
Dalvíkinga hf. fyrir 182 milljónir
króna og verður skipið afhent 20.
febrúar næstkomandi. Dalborgu
EA fylgir 725 tonna aflakvóti, eða
446 tonn í þorskígildum og verð-
mæti kvótans er um 65 milljónir.
Nafnverð hlutafjár í Eldey hf. er
55 milljónir króna en stefnt er að
35 milljóna króna hlutafjáraukn-
ingm í félaginu vegna kaupanna á
Dalborgu EA, að sögn Jóns Norð-
fjörð stjórnarformanns Eldeyjar.
„Dalborgu fylgja mjög hagkvæm
lán og við höfum gert ráðstafnir til
að brúa mismun á kaupverði og lán-
um, sem fylgja skipinu, með hluta-
fjáraukningu, sem þegar er farin í
gang og miðar vel,“ sagði Jón Norð-
fjörð í samtali við Morgunblaðið í
gær. Dalborg EA er 274 tonn að
stærð og smíðuð í Ancona á Ítalíu
árið 1971.
Þrátt fyrir kaupin á Dalborginni
ætlar Eldey hf. að halda áfram að
géra út bátana Eldeyjarboða GK og
Eldeyjar-Hjalta GK en aflaverðmæti
þeirra er orðið rúmlega 200 milljónir
króna á þessu ári. Aflakvóti þessara
þriggja skipa verður tæp 1.700 tonn
í þorskígildum á næsta ári og afli
þeirra verður seldur á Fiskmarkaði
Suðurnesja og erlendum fískmörkuð-
um. Eldey hf. leigir einnig bátana
Guðvarð frá Ólafsfirði og Vigdísi
Helgu frá Grindavík og afli þeirra
hefur verið seldur á Fiskmarkaði
Suðurnesja.
Sjálfstæði Eystra-
saltsríkja;
Alþingi
ítrekar við-
urkenningu
Þingsályktunartillaga frá utanrík-
ismálanefnd um stuðning við sjálf-
slæði Eystrasaltsríkjanna, Eist-
lands, Lettlands og Litháen var
samþykkt einróma á sérstökum
fundi sameinaðs þings í gær. En
nýlcga bað forseti Litháens, Vy-
tautas Landsbergis, forsætisráð-
herra um að staðfesta og ítreka
stuðningsyfirlýsingar íslendinga
við málstað Eystrasaltsríkjanna.
í þingsályktunartillögunni er
stuðningur Alþingis við sjálfstæðis-
baráttu Litháens ítrekaður og minnt
á að íslensk stjórnvöld hafi viður-
kennt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna
óslitið frá 1922 eins og Alþingi og
ríkisstjórn hafi staðfest. Alþingi telur
að meðan Eystrasaltsríkin hafí ekki
fengið fulla viðurkenningu á sjálf-
stæði sínu vanti enn mikið á að sett-
ar hafí verið niður deilur í Evrópu.
I
1
I
I
I