Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
25
b.
f FYLGD STÓR-
• •
SONGVARANS
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Garðar Sverrisson: Kristján
Útg. Iðunn 1990
Kristján Jóhannsson stórsöngvari
er í hópi „unglinganna" sem út koma
bækur um um þessi jól. Kristján
hefur allar götur frá því hann ákvað
að brjóta brýr að baki sér og fara út
í heim og læra að syngja verið býsna
umtalaður. Hann hefur oft gefið
ástæðu til að mönnum þyki nóg um
hversu dirfskulega hann talar um
sjálfan sig og stórkostlega hæfileika
og heimsfrægð. En fáum blandast
hugur um að hann er söngvari sem
hefur getið sér orð svo er honum og
landi hans til sóma. Undirtektir þeg-
ar hann syngur hér heima eða send-
ir frá sér plötur sýna svo ekki verður
um villst að hann er ekki misskilinn
í föðurlandinu.
I bókinni sem heitir því einfalda
og kórrétta nafni „Kristján" lætur
söguritari Kristján vinda sig vel fram
í frásögn; er hann var polli og prakk-
ari á Akureyri, en alinn upp á heim-
ili þar sem allir voru syngjandi, faðir
hans Jóhann Konráðsson þekktur vel
og bræður hans hafa einnig getið sér
orð. Hann segir frá þegar faðir hans
fer að skilja söngáhuga drengsins
og það er bara ljúft að lesa um þeg-
ar hann kemur fyrst fram í hlutverki
„Stúfs“ og syngur Heims um ból.
Hann lýkur iðnnámi, festir ráð sitt,
syngur með kórum og hér og hvar
en það skiptir sköpum þegar Sigurð-
ur Demets Fransson tekur hann í
kennslu. Uppfrá því er ókyrrðin kom-
in í sálina hann væntir einhvers
meira, einhvers hærra. Það endar
með því að ijölskyldan selur mestall-
ar eigur og heldur í nám á nýjar slóð-
ir, til Ítalíu.
Það er viðfelldið og læsilegt að
lesa um söngnámið og gera sér grein
fyrir hversu hart hann hefur lagt að
sér en alltaf haldinn nokkurn veginn
óbilandi trú á sjálfan sig — jafnvel
þó hann segi frá mistökum og
sprungum — hann skal. Og skal
nokk. Það verður ýmsú fórnað óneit-
anlega. En eftir miklar sviptingar
og baráttu finnst honum sem hann
geti verið nokkuð sáttur við það sem
hann hefur þegar gert og það sem
er ógert er sjálfsagt ekki minna.
Garðar Sverrisson
Garðar Sverrisson skrifar söguna
af einlægni og vandvirkni, málfar
er eðlilegt og þjált en ekki rismikið.
Sagan er í hvívetna hefðbundin sem
sjálfssaga og það er eiginlega hvorki
lof né last. Kristján skilar sér
skemmtilega og kemur ugglaust
mörgum þeim á óvart sem hafa æst
sig yfir monti hans og sjálfsoryggi.
Hann hefur húmor fyrir sjálfum sér,
er lagið að segja skemmtilega frá
og hikar ekkert við að segja frá
ýmsum sínum yfirsjónum, sumum
spaugilegum öðrum ekki.
Hann er sannfærður um sig og
hefur ástæðu til. En hann hefur líka
verið misskilinn, orð hans slitin úr
samhengi í viðtölum og lögð áhersla
einlægt á að draga fram þær hliðar
í fari hans sem geta verkað skop-
lega. Hann þjáist ekki af minnimátt-
arkennd, satt er það, en hann hefur
alveg ástæðu til að vera sæmilega
glaður með sig. En það er engu líkara
en slíkt sé eitur í beinum margra.
Menn mættu hafa í hug"a að forsenda
þess að aðrir geti verið ánægðir með
mann er að viðkomandi sé sáttur við
sjálfan sig. Og Kristján má vera
ánægður með þá mynd sem Garðar
Sverrisson og hann hafa náð í sam-
einingu af honum og lesendur eiga
þekkilega stund með Kristjáni meðan
bókin er lesin.
Ykkur öllum, sem glöddu mig með heimsókn-
um, heillaóskum, símskeytum og gjöfum á
nírœðisafmœli mínu þann 16. þ.m., sendi ég
mínar ástúðlegustu þakkir og bið þess, að bless-
un Guðs og varðveisla leiði ykkur og styðji á
óförnum leiðum.
Laufey Tryggvadóttir.
Myndavél ársins í Evrópu 1990-1991.
En láttu ekki dómnefnd Ijósmyndatímaritanna eina um málið. Prófaðu sjálf (ur).
Okkur grunar að þú verðir sammála.
Engin önnur „compact" myndavél getur keppt við Pentax.
Skipholti31 - Sími 680450
Einnig fást PENTAX myndavélar hjá:
Heimilistækjum í Kringlunni, Fuji
framköllunarfyrirtækjum um allt land,
Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og
víðar.
PENTAX
ZOOmMSjþfuper
Niðurstaðan gat ekki farið
á annan veg. PENTAX er
frumkvöðull í framleiðslu
„compact" myndavéla með
súmlinsu. I umsögn dóm-
nefndar segir: „Pentax Zoom
105 Super, er fyrirferðarlítil
en býður þó þrefalt súm,
nærmyndatökur og
margar tækni-
nýjungar er auð-
velda myndatökur.
Myndgæði eru frábær“.
fM.UtV&RlE
PEHTtPAN
OGVASIU