Morgunblaðið - 20.12.1990, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Opið bréf til sveitarstjórn-
armanna á Austurlandi
eftir Kristin
Pétursson
Tilefni þessa bréfs eru áhyggjur
undirritaðs af framtíð atvinnumála á
Austurlandi. Samskipti sveitarstjóm-
armanna og alþingismanna hafa að
mestu snúist um opinber málefni, og
er nauðsynlegt að samskiptin vaxi á
sviðum eins og í atvinnumálum.
Það sem verður nú að taka föstum
tökum er' stefnumörkun austfirskra
sveitarfélaga gagnvart fiskveiði-
stjórnuninni og-byija umræðuna um
framtíðarfyrirkómulag varðandi út-
flutning á ferskum fiski og hvort
ekki sé rétt að koma á fiskmarkaði
á Austurlandi til þess að taka við
a.m.k. verulegum hluta þess sjávar-
afla sem fluttur er til vinnslu á er-
lendri grund.
Fiskmarkaður og aukin markaðs-
verðlagning sjávarfangs á Austur-
landi kæmi útgerð og sjómönnum til
góða vegna minnkandi útflutnings
þar sem reynslan af fiskmörkuðum
er hækkað hráefnisverð. Aukin fisk-
vinnsla á Austurlandi gefur fisk-
vinnslufyrirtækjum meiri möguleika
á sérhæfingu, með endurskipulagn-
ingu rekstrar og þannig möguleika
til þess að greiða hærra fiskverð í
aukinni samkeppni.
Einhveijir rekstrarerfiðleikar
kynnu að fylgja í fiskvinnslu, vegna
hækkandi hráefnisverðs, en þeim
erfiðleikum verðum við að sigrast á
og Ijóst má vera að bindum við fyr-
ir augun þá verða erfiðleikarnir
meiri og stærri. Fiskverð á fisk-
mörkuðum í dag er hátt vegna of
mikils útflutnings á ferskum fiski.
Kæru sveitarstjórnarmenn. Eins
og ykkur er kunnugt þá verður lfk-
lega flutt út frá Austurlandi allt að
20 þúsund tonn af bolfiski tii vinnslu
erlendis á þessu ári. Þessi útflutning-
ur hráefna fer sívaxandi. 7% fóru
af óunnum fiski úr landinu í heild
árið 1984, en fimm árum seinna,
1989, var þetta hlutfall komið í 21%.
Að viðbættri sjófrystingu nemur
þetta hlutfall 33%. Með sömu áfram-
haldandi hlutfallslegri þróun verður
énginn fiskur unninn í landi 1977! Á
hvaða leið erum við!
Sveitarfélög fá heldur ekki út-
svarsgreiðslur af vinnu erlendis.
Sveitarfélög fá heldur ekki aðstöðu-
gjald af fiskvinnslu innan landamæra
EB. Þjónusta, iðnaður, verslun og
önnur tekjumyndandi margfeldis-
áhrif sem fiskvinnsla skapar er og
verður grundvöllur íslenska velferð-
arkerfisins sem sjávarplássin og
sveitir landsins, já landið allt, byggir
lífsafkomu sína á. Reykjavíkurborg
hefur notið þessara margfeldisáhrifa
sjávarútvegs á iðnað, þjónustu og
verslun. Hvemig fer ef margfeldis-
áhrifin aukast innan landamæra EB
en minnka á Islandi, — líka í Reykja-
vík! Þetta er stórháskaleg þróun!
Kannski vill einhver reiknings-
glöggur Austfirðingur reikna út
auknar tekjur Austfírðinga af því að
vinna aflann heima. í því dæmi er
rétt að reikna með að tekjur útgerð-
FLUGLEIÐIR
Gistideild Hótels Esju verður opin alla daga
yfir jól og áramót.
Skálafell, Laugaás og Rammagerðin
verða opin sem hér segir:
SKÁLAFELL LAUGA-ÁS RAMMAGERÐIN
Þorláksmessa 19.00-01.00 11.30-22.00 09.00-16.00
Aðfangadagur Lokað 11.30-14.00+18.00-20.00** 09.00-12.00
Jóladagur Lokað 11.30-14.00+18.00-20.00** Lokað
Annar í jólum 19.00-01.00* 11.30-22.00 10.00-14.00
27. desember 19.00-01.00* 11.30-22.00 10.00-18.00
28. desember 19.00-01.00* 11.30-22.00 08.00-18.00
29. desember 19.00-01.00* 11.30-22.00 09.00-13.00
30. desember 19.00-01.00* 11.30-22.00 10.00-14.00
Gamlársdagur Lokað 11.30-14.00+18.00-20.00** 09.00-12.00
Nýársdagur Lokað 11.30-14.00+18.00-20.00**
2. janúar Lokað v/vörutalningar
*Lifandi tónlist, Guðmundur Haukur spilar
**Vinsamlegast pantið borð tímanlega í símum 689509 og 82200.
FLUGLEIÐIR
Á Hótel Lofleiðum er gisti- og veitingadeildin lokuð
frá og með 22. desember til 3. janúar.
Opnunartími sundlaugarinnar á Hótel Loftleiðum
um jól og áramót er sem hér segir:
Þorláksmessa ....... 08.00-19.00
Aðfangadagur ....... 08.00-16.00
Jóladagur ...........10.00-16.00
Annaríjólum .........10.00-17.00
Gamlársdagur ....... 08.00-16.00
Nýársdagur ..........10.00-17.00
_____________________________________________________________r
ar og sjómanna héldust óbreyttar að
meðallagi vegna markaðsverðlagn-
ingar á fiski sem kæmi sem tekju-
aukning á móti minnkandi útflutn-
ingi.
Margfeldisáhrif sjávarútvegs á
iðnað, verslun og aðra þjónustu
eru það sem þessi þjóð byggir sitt
velferðarkerfi öðru fremur á.
Aukning þessara margfeldisáhrifa á
tekjur sveitarfélaga á Austurlandi
með meiri vinnslu sjávarafla er slíkt
stórmál að höfundur þessa bréfs
leggur til hér opinberlega að þessi
mál verði nú þegar sett á forgangs-
lista austfirskra sveitarfélaga sem
stefnumörkunarmál til aukinnar
tekjuöflunar og bættra lífskjara í
fjórðungnum.
Tillaga mín er þessi: Samband
sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi
efni til ráðstefnu um aukna full-
vinnslu sjávarafla á Austurlandi og
aukna tekjumögleika austfirskra fyr-
irtækja, verkafólks og sveitarfélaga
samfara aukinni vinnslu sjávarafla
með tilkomu fiskmarkaða á Austurl-
andi sem tækju þann afla til sölu sem
nú fer til vinnslu í erlendum fisk-
vinnslustöðvum.
I leiðinni myndum við ræða nýja
stefnumörkun í samgöngumálum þar
sem fBættar samgöngur verða að
koma til vegna aukinna fiskflutninga
innan ijórðungs. Einnig myndum við
ræða möguleika Austfirðinga á því
að senda fersk fiskflök með flugvél-
um til Evrópu sem er sú framtíðar-
sýn sem við eigum að stefna að.
í guðanna bænum fáið ekki sér-
fræðinga úr Þjóðhagsstofnun til að
messa yfir okkur á ráðstefnunni.
Austfirðingar þekkja sín mál best
sjálfir og nýleg skýrsla þjóðhags-
stofnunar um auknar tekjur þjóðar-
innar upp á 10 milljarða við stórauk-
inn ferskfískútflutning opinberar
rækilega vanþekkingu þeirrar stofn-
unar á málefnum þess atvinnuvegar
sem skapað hefur öðru fremur vel-
ferðarkerfi íslensku þjóðarinnar með
margfeldisáhrifum sínum eins og
áður sagði. Skýrsla stofnunarinnar
er enn einn löðrungur sem fólk í sjáv-
arútvegi fær frá þessum reynslu-
lausu snillingum með fínu prófskír-
teinin. Ef forsjárhyggjupólitíkusar fá
áfram umboð — með alla sína reikni-
meistara — til þess að ráðskast áfram
með íslenskan sjávarútveg, er spurn-
ingin hvort um aldamót neyðumst
við til — vegna fátæktar — að leggja
okkur til munns allar skýrslurnar, —
verðbréfin og fínu prófskírteinin rétt
eins og forfeður okkar neyddust til
þess að leggja sér til munns handrit-
in til forna.
Afleitt er, — í þessu sambandi —
að næringargildið í pappírnum er
langtum minna en það sem var í
blessuðum handritunum, — en á
móti kemur að mikið magn er til af
skýrslum vandamálafræðinga, á
ábyrgð forsjárhyggjupólitíkusa
sem ráða sér gjaman í vinnu „viðráð-
anlegt“ reynslulítið fólk. Útkoman
er vaxandi vandamál um allt þjóðfé-
lagið, þar sem saklaust fólk verður
fórnarlömb í tilraunastarfsemi of-
stjórnar sbr. fjölskyldur smábátaút-
gerða allt í kring um landið um þess-
ar mundir. Fiskistofnunum stafar
ekki hætta af smábátum og því ættu
þeir einungis að sæta ákveðnum
fjölda banndaga eins og var hér áður.
Tilraunaofstjómin sem tilraunakeyrð
er í dag er alvarlegt tilræði við lands-
byggðina — að því er virðist vegna
algers skilningsleysis þeirra sem
ábyrgð á því bera. Samkvæmt stjóm-
arskrá landsins má ekki takmarka
atvinnufrelsi borgaranna nema al-
mannaheill sé í húfi. Almannaheill í
sjávarplássum stafar hinsvegar
hætta af ofstjórninni eins og hún
er orðin. Af hveiju gerist svona lag-
að á íslandi 1990!
Kæru sveitarstjórnarmenn og aðr-
ir Austfirðingar. Við getum náð ár-
angri ef við tökum'höndum saman,
treystum okkur sjálf, snúum vörn í
sókn, nýtum þekkingu heimamanna
og eflum málefnalega umfjöllun á
heimavettvangi. Okkur bráðvantar
Kristinn Pétursson
„ Annað er vanvirðing
við baráttu forfeðranna
fyrir sjálfstæði lands-
ins. Hefðu fjármála-
ákvæði stjórnarskrár-
innar verið virt, hefði
verðbólga aldrei orðið
meiri en í Evrópu al-
mennt!“
ekkert „þriðja stjórnsýslustig". Okk-
ur vantar að löggjöf Alþingis Is-
lendinga sé vandvirknislega unnin
og þess gætt að stjórnarskrá lýð-
veldisins sé í heiðri höfð. Ónefndir
hrossakaupmenn gera stundum grín
að undirrituðum fyrir að vera sífellt
að fjasa um stjórnarskrána. Stjórnar-
skráin er grundvöllur okkar þjóðskip-
ulags um þrískiptingu valdsins í lög-
gjafar-, framkvæmda og dómsvald
ásamt ákvæðum um grundvallarat-
riði í landsstjórninni og réttindum
einstaklingsins í samfélaginu. Hún
er afrakstur baráttu þeirra sem börð-
ust hetjulega langri baráttu — árum
saman fyrir sjálfstæði landsins.
Stjómarskrána eigum við að virða.
Annað er vanvirðing við baráttu for-
feðranna fyrir sjálfstæði landsins.
Hefðu fjármálaákvæði stjórnarskrár-
innar verið virt, hefði verðbólga aldr-
ei orðið meirí en í Evrópu almennt!
Löggjöf um takmörkun atvinnufrels-
is eins og fiskveiðistjórnun er langt-
um alvarlegri Iöggjöf en margir
halda. Þetta er skerðing á grund-
vallarmannréttindum, — atvinnu-
frelsi. Um þetta vantar meiri um-
fjöllun. Sömu sögu er að segja um
einokunarrétt Landsvirkjunar til þess
að virkja vatnsaflsvirkjanir yfir 5
MW. Hvernig geta þeir sem sam-
þykktu þessa einokun rökstutt að
þetta sé í þágu almannaheilla á
Austurlandi! Austfirðingum bannað
að virkja sjálfir. Merkilegt að mönn-
um skuli ekki bannað að hugsa líka!!
Lykillinn að bættum hag þjóðar-
innar er að virða grundvallaratriði
eins og stjórnarskrá, efla nákvæmni
og reglusemi í stjórnun. Tæknifram-
farir geta einnig fært okkur bætt
lífskjör í öllum atvinnuvegum. Lítum
til Japans. Tækniframfarir, ná-
kvæmni, iðjusemi og dugnaður hefur
verið þeirra leiðarljós. Af hveiju
skoðum við þetta ekki betur samfara
því að kveðja forsjárhyggjupólitíkina!
Sveitarfélög á Austurlandi geta
sameinast um málefnalega umræðu
án þess að hafa eitthvert „þriðja
stjórnsýslustig" með tilheyrandi
fjölgun embættismanna, kostnaði og
forsjárhyggju. Betra er að efla sveit-
arfélögin, — Alþingi Islendinga
og sjálfstæði þess og vandvirkni.
Til þess að ná árangri i framtíð-
inni þurfum við öll að leggja hönd á
plóginn og taka málefnalega þátt í
að móta leikreglur sem leiða okkur
til bættra lífskjara og stöðugleika,
með því að stuðla að lagasetningu
sem samrýmist stjórnarskrá landsins
og þeim viðhorfum sem ríkja al-
mennt í hinum vestræna heimi í dag.
Vil ég svo að endingu óska Aust-
firðingum gleðilegrar jólahátíðar og
farsældar í framtíðinni.
Höfundur er annar af
alþingismönum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
A usturlnndskjördæmi.