Morgunblaðið - 20.12.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna:
Umbótastefna Gorba-
tsjovs hefur brugðist
NIKOLAJ Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sagði í ræðu á
fulltrúaþingi Sovétríkjanna í Moskvu í gær að perestrojkan, umbóta-
stefna Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga, hefði brugðist og kvað
helsta markmið andstæðinga ríkisstjórnar sinnar vera hrun Sovét-kerf-
isins. í fréttaskeytum sagði að svo virtist sem forsætisráðherrann hefði
með þessari ræðu verið að boða afsögn sína en henni hafa fréttaskýr-
endur þráfaldlega spáð á undanförnum vikum og mánuðum.
Ríkisráðið segir áformin
brot á stj órnar skránni
Belgraö. Reuter.
Ryzhkov sagði að ekki hefði tekist
að hrinda umbótastefnunni í fram-
kvæmd í samræmi við þær forskrift-
ir sem lagðar hefðu verið henni til
grundvallar. Kvaðst hann sem for-
sætisráðherra Sovétríkjanna vera
ábyrgur fyrir þessari þróun á sama
hátt og Míkhaíl S. Gorbatsjov. At-
hygli vöktu þau ummæli Ryzhkovs
að umbótastefnan hefði m.a. mistek-
ist vegna þess að hefðbundin hug-
Sovétríkin:
Leníngrad
verði olíuhöfn
Amsterdam. Reuter.
LENÍNGRAD gæti orðið mesta
útflutningshöfn Sovétmanna fyrir
svartolíu til Norðvestur-Evrópu í
staðinn fyrir höfnina í Klaipeda.
Aðflutningsleiðir þangað liggja
um litháiskt landsvæði Eystra-
saltsþjóðirnar krefjast fulls sjálf-
stæðis frá Sovétríkjunum.
Heimildarmaður sem þekkir vel til
sovéskra olíuviðskipta sagði að þegar
væri hafin vinna við nýja útflutnings-
höfn í Leníngrad og væri stefnt að
því að ljúka verkinu á næsta ári.
myndafræði kommúnista hefði verið
talin mikilvægari en umbreytingar á
vettvangi efnahagsmála. Umbóta-
sinnaðir hagfræðingar og róttækir
þingmenn hafa oftlega sakað forsæt-
isráðherrann um einmitt þetta og
sagt hann standa í vegi fyrir þeim
breytingum sem nauðsynlegar séu
til að koma á markaðshagkerfi í
Sovétríkjunum. Ryzhkov gaf greini-
lega til kynna að hann væri ósáttur
við tillögur þær sem Gorbatsjov hef-
ur kynnt og miða að því að tryggja
viðgang sovéska ríkjasambandsins
og vald ráðamanna í Kreml en sagð-
ist jafnframt gleðjast yfir því að
hafa fengið tækifæri til að vinna
undir stjórn hans. „Ég geri greinar-
mun á háleitum markmiðum hans
og mistökum við framkvæmd stefnu-
mála,“ sagði Ryzhkov.
Hann hvatti Gorbatsjov til þess
að grípa strax til sérstakra ráðastaf-
ana til að unnt reyndist að sigrast á
því ófremdarástandi sem skapast
hefði. Virtist hann með þessu taka
undir sjónarmið bæði harðlínukom-
múnista og ráðamanna innan Rauða
hersins sem fyrr um daginn höfðu
hvatt Gorbatsjov til að færa óróa-
og átakasvæði í Sovétríkjunum undir
beina stjóm ráðamanna í Kreml. í
áskorun þessari er vikið sérstaklega
að „and-félagslegum“ og „and-
sósíalískum" öflum í Sovétríkjunum.
RÍKISRÁÐ Júgóslavíu fordæmdi
í gær fyrirætlanir Slóvena um
að efna til þjóðaratkvæðis um
sjálfstæðisyfirlýsingu næstkom-
andi sunnudag og sagði þessi
Einn þátttakendanna, James Lil-
ley, sendiherra Bandaríkjanna í
Kína, sagði að hann hefði séð við-
horfsbreytingu hjá Kínveijunum
meðan á hinum tveggja daga langa
fundi stóð. „Þetta var viðleitni til
að mæta okkur á miðri leið,“ sagði
Lilley. „Frá því mótmæli náms-
manna voru brotin harkalega á bak
aftur fyrir um 18 mánuðum hafa
Kínveijar sagt Bandaríkjamönnum
að vera ekki að skipta sér af málum
annarra," bætti hann við. Að sögn
embættismanns í bandarísku sendi-
áform vera brot á stjórnar-
skránni.
Ríkisráðið sagði ennfremur að
einhliða ákvörðun Slóvena um að
segja sig úr júgóslavneska ríkja-
nefndinni var afstaða Kínveija nú
allt önnur.
Ástæðu viðhorfsbreytingarinnar
hjá kínverskum yfirvöldum má
sennilega rekja til þrýstings frá
öðrum ríkjum um að bæta ástand
í mannréttindamálum. „Kínveijar
hafa, í stuttu máli sagt, komist að
því að þeir geta ekki átt eðlileg
samskipti við margar áhrifamestu
þjóðir heims fyrr en þeir gera eitt-
hvað róttækt í mannréttindamál-
um,“ sagði embættismaðurinn, sem
kaus að láta nafn síns ekki getið.
sambandinu kæmi aldrei til með
að verða samþykkt. Óskaði ráðið,
sem fer með æðsta vald í málefnum
Júgóslavíu, eftir því við ríkisstjórn
landins og þing til þess að gera
ráðstafanir er hindri að ríkjasam-
bandið liðist í sundur. Ekki var frá
því skýrt hvað í þessari beiðni fólst
en Slóvenar óttast að herinn verði
látin hindra eðlilegar kosnignar.
Samþykkti júgóslavneska þingið
ályktun þar sem tekið var undir
sjónarmið ríkisráðsins í deilunni um
þjóðaratkvæðið í Slóveníu.
Yfirvöld í Slóveníu brugðust hart
við yfirlýsingu ríkisráðsins og sök-
uðu það um að reyna að hafa áhrif
á niðurstöður þjóðaratkvæðisins.
Jafnvel þótt útkoman verði sú að
íbúar lýðveldisins samþykki úrsögn
úr ríkjasambandinu, eins og við er
búist, þarf það ekki að leiða til við-
skilnaðar þegar í stað þar sem
stjóm lýðveldisins hefur hálfs árs
frest til að gera upp hug sinn í
málinu.
Velmegun er mest í Slóveníu af
lýðveldunum sex sem mynda júgó-
slavneska ríkjasambandið. Þar
hófst barátta sem leiddi til þess að
Júgóslavar féllu frá stjórnarháttum
kommúnista.
Atkvæði taliuá
Haítí
Fyrstu tölur úr forsetakosningun-
um á Haítí benda tifyfírburðasig-
urs kaþólska prestsins Jeans
Bertrands Aristide. Trúarregla
Aristide gaf út yfirlýsingu í Róm
í gær þar sem tilkynnt var að
honum hefði verið vikið úr regl-
unni fyrir tveimur árum fyrir að
nota trúarbrögð til að ala á hatri
og ofbeldi í landi sínu. Vatikanið
hefur enn ekki geið út neina opin-
bera yfirlýsingu vegna kosning-
anna. Á myndinni sjást talninga-
menn við stafla af atkvæðum.
Alþjóðleg sendinefnd undir for-
ystu Jimmy Carters, fyrrverandi
forseta Bandaríkjanna, hefur
fylgst með framkvæmd kosning-
anna og telja nefndarmenn hana
hafa verið til fyrirmyndar.
Reuter
Kínverjar og Bandaríkja-
menn ræða mannréttindi
Peking. Reuter.
FULLTRÚAR kínverskra og bandarískra stjórnvalda luku í gær við-
ræðum um mannréttindamál og þykja viðræðurnar marka timamót.
Bandarískir þátttakendur í viðræðunum sögðu í gær að þeim virtist
sem kínversk yfirvöld væru að breyta afstöðu sinni gagnvart andófs-
mönnum.
Þjóðaratkvæði í Slóveníu um úrsögn úr ríkjasambandi Júgóslavíu:
Reuter
Hjá tannlækninum
Tannlæknastofa af þessu tagi yrði trauðla hátt skrif-
uð hér á landi en í Karachi, höfuðborg Pakistans,
þykir hún duga vel þótt úti á miðri gangstétt við
mikla umférðargötu sé. Tannlæknirinn er ekkert að
tvínóna með borinn þó óhreinindi og mengun berist
frá bifreiðum sem um götuna bruna. Á borðinu
geymir hann tæki sín og tól og prentist myndin vel
má þar sjá nokkra gervigóma.
BARNA- UNGLINGA- GÖNGU-
PAKKI PAKKI PAKKI
Atomic skíði
Salomon skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
VERÐ FRÁ KR. 19.990,-
Atomic skíði
Salomon skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
VERÐ FRÁ KR. 14.400,-
Atomic skíði
Koflac skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
VERÐ FRÁ KR. 13.995,-