Morgunblaðið - 20.12.1990, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Jóhanna Bogadóttir við eitt verka sinna.
____________Brids______________
Amór Ragnarsson
Reykjavíkurmót í
sveitakeppni 1991
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni
hefst fimmtudaginn 3. janúar. Spilað
er um Reykjavikurmeistaratitilinn í
sveitakeppni auk þess sem spilað er
um tólf sæti í undankeppni íslands-
mótsins í sveitakeppni. Núverandi
Reykjavíkurmeistari er sveit Ti-ygg-
ingamiðstöðvarinnar.
Spiladagar verða 3. (fimmtudagur),
7. (mánudagur), 8. (þriðjudagur), 10.
(fímmtudagur), 12. (laugardagur), 13.
(sunnudagur) og 16. (miðvikudagur)
janúar. Til vara eru 22. (þriðjudagur),
19. (laugardagur) og 20. (sunnudagur)
janúar. Spilatími er kl. 19.30 virka
daga og kl. 13.00 um helgar. Spiluð
verður raðkeppni, aliir við alla, og ræðst
iengd leikja af þátttöku. Spilað er um
silfurstig. Spilað verður í húsnæði
Bridssambands ísiands, Sigtúni 9.
Keppnisstjóri og reiknimeistari verður
Kristján Hauksson.
Til þess að gera keppnina skemmti-
legri og hjálpa spilurum að kryfja vanda
sveita sinna til mergjar verða spiluð
sömu spil í öllum leikjum í hverri um-
ferð. Utskrift af spilagjöfinni mun
liggja frammi í lok hvers spiladags.
Arangur para verður reiknaður út með
Butlersniði og/eða Kauphallarsniði svo
menn sjái frammistöðu sína í „réttu“
ljósi. Menn viija alltaf finna rætur vand-
ans ef illa gengur og hverjum á að
hossa ef vei gengur ekki satt?
Búíst er við mikilli þátttöku því menn
verða spilaþyrstir eftir hátíðirnar og
búnir að fá nóg af magaþjálfuninni og
viija snúa sér að því að þjálfa nýrun!
í þessu móti gefst mönnum kostur á
að mæta mörgum af bestu bridspilurum
landsins í spennandi keppni. Öll bridsfé-
lögin í Reykjavík (innan BSI) standa
saman að þessu móti. Félagar, fjöl-
mennið og haldið merki ykkar félags á
loft!
Þjóðarsáttarþátttökugjald verður^ð-
eins 16 þúsund kr. á sveit (innan við
2.700 kr. á mann í sex manna sveit)
og jafnvel lægra ef þátttaka verður
mikil. Þetta gjald er á svipuðum nótum
og kvöldgjaid félaganna og ætti því
ekki að fæla neinn frá. Sveitum
mennta- og Qölbrautaskólanema verður
auk þess veittur ríflegur afsláttur.
Skráning er hjá bridsfélögunum og á
skrifstofu BSÍ (sími 68-93-60) og lýkur
miðvikudaginn 2. janúar. Spilarar eru
hvattir til að skrá sveitir sínar sem
fyrst t.þ.a. auðvelda skipulagningu
mótsins.
Fjórar efstu sveitirnar mætast síðan
á Hótel Loftleiðum helgina 26.-27. jan-
úar og verða leikir sýndir á töflu. Efsta
sveitin úr undankeppnjnni velur sér
andstæðing. Undanúrslitaleikirnir
verða 48 spil og hefjast kl. 13.00 á
laugardag. Úrslitaleikurinn verður 64
spil og hefst kl. 10.00 á sunnudag.
Leikurinn um 3. sætið verður 32 spil
og hefst kl. 13.00.
(Úr fréttatilkynningu)
Hreyfill — Bæjarleiðir
Lokið er 5 umferðum í aðalsveita-
keppni staða efstu sveita er þessi:
SveitTómasarSigurðssonar 105
SveitCyrusarHjartarsonar 95
SveitÓlafsJakobssonar 89
SveitBemhardsLinn 77
SveitRúnarsGuðmundssonar 76
6 umferð verður spiluð mánudaginn
7. jan. 1991 kl. 19.30 í Hreyfdshúsinu.
Gleðilega hátíð.
H JÓHANNA Bogadóttir hefur
opið hús á vinnustofu sinni á Hjarð-
arhaga 48 í þrjá daga frá föstu-
degi til sunnudagskvölds. Opið frá
kl. 15.00-19.00. Þar verða bæði ný
og eldri verk, málverk, teikningar
og grafíkmyndir. Jóhann hefur
haldið fjölmargar sýningar hér
heima og erlendis. Hún sýndi fyrir
ári á Kjarvalsstöðum og sl. janúar
í Bandaríkjunum í boði PLU-háskól-
ans í Torona. Hún er svo á förum
í janúar með stóra sýningu er verð-
ur í boði listamiðstöðvarinnar . í
Gárle í Svíþjóð.
ATVIN mw
ggg BORGARSPÍTALINN
Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis á Grensásdeild (end-
urhæfinga- og gigtardeild) er laus frá
1. janúar 1991.
Upplýsingar gefur yfirlæknir í síma 696710.
íþráttakennari/þjátfari
Sveitarfélag í nágrenni Reykjavíkur óskar
eftir íþróttakennara til alhliða íþróttaþjálfunar
og umsjónar í nýrri og glæsilegri íþróttamið-
stöð. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 3. janúar merktar:
„íþróttamiðstöð - 8188“
Vesturbær
Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í Odda-
götu, Aragötu, Neshaga, Ægisíðu frá 80-98
og Hofsvallagötu 55-62.
Ennfremur vantar blaðbera í Skerjafjörð,
norðan flugvallar.
Hressandi morguntrimm sem borgar sig.
Upplýsingar eru gefnar í síma 691253.
Fjölbrautaskóli
Suðurlands
á Selfossi leitar eftir kennurum í stærð-
fræði, sálfræði og ferðamálagreinar.
Upplýsingar veitir skólameistari, sími
98-22111.
Vélavörður
Vélavörð vantar á bát frá Vestfjörðum frá
áramótum.
Upplýsingar í símum 94-6105 og 94-6175 á
kvöldin.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á skuttogara sem gerir út
frá Austfjörðum.
Upplýsingar í síma 97-58950.
Útgerð
Framkvæmdastjóra vantarfyrir útgerðarfélag.
Áhugasamir leggi inn á auglýsingadeild Mbl.
lágmarksupplýsingar fyrir 28. desember nk.
merktar: „U - 8615“.
RADAÚGt YSINGAR
éraé&Lc
BORG
LISTMUNIR-SYNINGAR-UPPBOÐ
Málverk
Höfum hengt upp olíumyndir eftir Kristján
Davíðsson, nýjar vatnslitamyndir eftir Karó-
línu Lárusdóttur og nýleg verk eftir Louisu
Matthíasdóttur. Einnig olíumyndir eftir Erro.
Þá eru til sölu úrval mynda gömlu meistar-
anna, t.d. Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefáns-
son, Gunnlaug Blöndal, Kristínu Jónsdóttur,
Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason og Gunn-
laug Scheving.
Vekjum athygli á að á Þorláksmessu verður
opið hjá okkur frá kl. 14.00-22.00.
Pósthússtræti 9
Austurstræti
sími 24211.
BORG
Rekstraraðili óskast
Hreppsnefnd Reyðarfjarðarhrepps óskar eft-
ir rekstraraðila að félagsheimilinu Félags-
lundi. Til greina kemur að viðkomandi leigi
Félagslund eða reki hann í samvinnu við
sveitarfélagið.
Umsóknum skal skila til undirritaðs fyrir 15.
janúar nk. og veitir hann einnig nánari upplýs-
ingar í síma 97-41245.
Sveitarstjóri Reyðarfjarðarhrepps.
KENNSLA
Tónskóli Sigursveins D.
Kristinssonar
Fresturinn til að staðfesta nám á vorönn
með greiðslu eða samningi um síðari hluta
námsgjalds hefur verið lengdur til föstudags-
ins 21. desember.
Innritun stendur nú yfir á hlustunarnámskeiði
„Njótum tónlistar", sem hefst 8. janúar. Tímar
eru einu sinni í viku kl. 20.00 á þriðjudögum.
Getum bætt við nokkrum nemendum á klari-
nettu og málmblásturshljóðfæri.
Skrifstofan í Hellusundi 7 er opin virka daga
frá kl. 13.00-17.00, sími 25828.
Skólastjóri.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
FLOKKUMNN
&
Borgaraflokksfólk!
Munið jólafundinn í dag milli kl. 17 og 19 á
skrifstofunni í Síðumúla 33. Þingmenn flokks-
ins munu mæta og ræða þinghaldið.
Jólakökur og kaffi verða á boðstólum.
Borgaraflokkurinn.
SJALFSTflEÐISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Aðalfundur Sleipnis,
FUS, Neskaupstað
Aðalfundurverður haldinn í safnaðarheimil-
inu laugardaginn 22. des. kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Hrafnkell A. Jóns-
son.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, fjölmennið.
Stjórnin.
Wélagslíf
Frá Félagi eldri borgara
Gönguhrólfar hittast nk. laugar-
dag kl. 10.00 á Hverfisgötu 105.
fÍMnhjólp
Almenn söng- og bænasam-
koma verður I Þríbúðum í kvöld
kl. 20.30. Stjórnandi Óli Ágústs-
son. Allir velkomnir.
Skipholti 50b
Samkoman í kvöld fellur niður
vegna styrktartónleika útvarps-
stöðvarinnar Alfa í Fíladelfíu kl.
21.00.