Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 45
1
I
I
i
I
I
i
I
3
4
4
4
4
4
4
<seei .otr H*i-'t/.4TjrwT>'r;: cmf ■Kr'^iru
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Merk tillaga um ný-
skipan öryggismála
eftir Sigurð Helgason
Á Alþingi liggur frammi tillaga
til þingsályktunar um samæfða
yfirstjórn öryggismála. Flutnings-
menn eru Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, Matthías Á. Mathiesen,
Friðjón Þórðarson og Ólafur G.
Einarsson. Með sérstakri yfirstjórn
öryggismála er tilgangurinn að
samhæfa þá stjórnsýslu sem lýtur
að öryggis- og löggæslu ríkis og
almennings í landinu. Þeir gera ráð
fyrir að hlutverk yfírstjórnar verði
að fara með samstjórn lögreglu-,
landhelgisgæslu-, toilgæslu-, al-
mannavamamála og aðra öryggis-
gæslu ýmissa fijálsra félagasam-
taka. Til þess að undirbúa setningu
löggjafar um yfirstjórn öryggis-
mála leggja þeir til að sett verði á
fót nefnd sjö þingmanna sem kosin
verði hlutbundinni kosningu í sam-
einuðu Alþingi. Nefndin skal ljúka
störfum eigi síðar en 1. feb. 1992.
Með tillögu þessari fylgir ítarleg
greinargerð. Lögð er þar áhersla á
þá staðreynd að ríki geti ekki talist
fullvalda nema fyrir hendi sé ríkis-
vald, sem geti haldið uppi lögum
og rétti. Bent er á að þjóðin missti
sjálfstæði sitt er má rekja til veiks
ríkisvalds á þjóðveldistímanum.
Það er því höfuðtilgangur þings-
ályktunarinnar að ná fram skilvirk-
ari stjórn. Annars vegar með því
að nýta sem best mannafla og fjár-
magnið. Hisn vegar með nýjum
aðferðum og nýjum vinnubrögðum
og betri nýtingu tækjabúnaðar.
Þannig gæti lögreglan, landhelgis-
gæslan, tollgæslumenn og fleiri
aðilar aðstoðað hvert annað á fjöl-
mörgum sviðum. Sama má segja
um útlendingaeftirlitið, fíkniefna-
deild og mengunarvarnir svo að
nokkuð sé nefnt. Þá er og gert ráð
fyrir hlutdeild almennings í örygg-
is- og gæslustörfum. Bent er á
mikilvægt hlutverk Slysavarnafé-
lags íslands, flugbjörgunarsveita,
hjálparsveita skáta og fleiri félaga,
sem þyrfti að nýta betur. Þá er
bent á að miklar breytingar eiga
sér stað á sviði öryggis- og varnar-
mála í heiminum og er nauðsynlegt
að við förum að huga að því í al-
vöru að taka enn fleiri verkefni af
varnarliðinu. Við íslendingar höf-
um alltaf gengið út frá þvi að er-
lent varnarlið verði ekki hér um
alla framtíð og virðist margt benda
til þess að við í alvöru ættum að
taka sjálf að okkur eigin varnir í
enn ríkari mæli.
Ég tel að hér sé tekið á mjög
merku máli sem þurfi að taka föst-
um tökum. Ég tel aftur á móti
ekki rétt að í þetta mál verði skip-
uð þingmannanefnd. Reynslan af
skipan stjómarskrárnefndar ætti
að vera víti til varnaðar. Þá finnst
mér tillögumenn flækja málið með
illskiljanlegum málalengingum. Til-
laga fjórmenninganna er mjög
tímabær og athyglisverð. Við ís-
lendingar verðum að marka framt-
íðarstefnu í öryggis- og varnarmál-
um er gerir ráð fyrir að við ætlum
að varðveita frelsi okkar og sjálf-
stæði um ókomna framtíð.
Um Kólumbusareggið
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ver-
ið kjölfestan í íslenskum stjórnmál-
um. Það verður því að gera meiri
kröfur til sjálfstæðismanna en til
annarra flokka. Öllum er ljóst að
það voru aðilar vinnumarkaðarins
sem mörkuðu stefnu í efnahags-
og kjaramálum, en núverandi ríkis-
stjórn hefur reynt að telja þjóðinni
trú um að hafi verið þeirra verk.
Skömmu áður en þjóðarsáttin var
gerð hafði ríkisstjórnin samið við
BHMR, en mörg ákvæði þessa sam-
komulags fengust ekki staðfest.
Forsætisráðherra og nokkrir sam-
ráðherrar hans gáfu munnlegt lof-
orð um leiðréttingu á verstu ann-
mörkum. Með aðgerðaleysi og
vegna skorts á áræði drógu þeir
að hefja viðræður við BHMR. Ríkis-
stjórnin valdi síðan fráleitustu leið-
ina að leggja deiluna fyrir Félags-
dóm, því að aðeins vilhallur dómur
skyldi tekinn gildur. Með slíkum
vinnubrögðum er og vegið að þrí-
skiptingu valdsins, sem lýðræðið
byggir á hjá frjálsum þjóðum. Er
hægt að ætlast til þess að vinnu-
deilur verði í framtíðinni leystar í
Félagsdómi, ef ríkisvaldið virðir
ekki niðurstöður hans?
Að mínu mati átti Sjálfstæðis-
flokkurinn sterkan leik sem hefði
getað snúið allri atburðarásinni
honum í hag. Með lögum nr.
13/1987 um umboðsmann Alþingis
var stigið mikilvægt heillaspor í
margvíslegum mannréttindamálum
hér á landi. Einn virtasti lögfræð-
ingur og fræðimaður landsins,
„ Yið íslendingar verð-
um að marka framtíð-
arstefnu í öryggis- og
varnarmálum er gerir
ráð fyrir að við ætlum
að varðveita frelsi okk-
ar og sjálfstæði um
ókomna framtíð.“
Gaukur Jörundsson, var kjörinn
fyrsti umboðsmaður Alþingis. Þann
skamma tíma, sem hann hefur
starfað, hefur verið tekið á fjöl-
mörgum málum af festu og sann-
girni og nýtur embættið trausts
landsmanna. Mál þau sem tekin
hafa verið til umfjöllunar snúa að
auknu eftirliti með stjórnsýslu rík-
isins og byggist á margvíslegum
Sigurður Helgason
kvörtunum á stjórnsýslugerning-
um. Umboðsmaður gefur Alþingi
árlega skýrslu um starfsemi sína
og hafa aðfinnslur hans veruleg
áhrif, sem hér verður ekki rætt
nánar.
Það er meginregla að umboðs-
maður hafi ekki afskipti af þing-
störfum eða öðrum störfum, sem
eru undir eftirliti Aiþingis. Á þessu
er veigamikil undantekning í 11.
gr. umræddra laga, en þar segir
orðrétt: „Ef umboðsmaður verður
þess var að meinbugir séu á gild-
andi lögum eða almennum stjórn- —
valdsfyrirmælum, skal hann til-
kynna það Alþingi, hlutaðeigandi
ráðherra eða sveitarstjórn." Á þetta
ákvæði hefur ekki reynt ennþá,
enda umboðsmaður störfum hlað-
inn og hefur lítinn tíma að sinna
þessu mikilvæga verkefni.
Það virðist vera samkvæmt eðli
málsins rökrétt að Alþingi gæti
óskað eftir áliti umboðsmanns Al-
þingis, hvort á gildandi lögum séu
meinbugir. í Svíþjóð hefur þingið
snúið sér til embætti umboðs-
manns, hvort meinbugir séu á lög-
gjöf en þeir voru með fyrstu þjóðum '
að setja lög um umboðsmann. Að
mínu mati hefðu svör umboðs-
manns getað gjörbreytt allri máls-
meðferð þessa máls og þá ekki síst
Sjálfstæðisflokknum í hag. Ég tel
víst að með svari umboðsmanns
hafi verið höggvið á Gordionshnút-
inn.
Fallið hefði að sjálfu sér niður
ómerkileg umræða um að ríkis-
stjórnin segði af sér og starfsstjórn
síðan að setja ný bráðabirgðalög.
Fallegir hlutir gefa lífinu gildi
Það á einnig við um penna. Sumir misskilja þá en við ætlumst til þess að skrifað sé með
þeim.
Parker Duofold kúlupenninn hér að neðan er vissulega fallegur, enda hefur ekkert verið til
sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður.
Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki. Það er hrein unun að skrifa
með Parker Duofold.
Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum.
t PARKER
REYKJAVÍK
Penninn, Hallamiúla
Mál og menning, Slðumúla
Eymundsson, Mjódd
Penninn, Kringlunni
Griffill, Síðumúla
Mál og menning, Laugavegi
Eymundsson, við Hlemm
Penninn, Austurstræti
KÓPAVOGUR
Bókaverslunin Veda
HAFNARFJÖRÐUR
Bókabúð Olivers Steins
KEFLAVÍK
Bókabúð Keflavíkur
ÍSAFJÖRÐUR
Bókaverslun Jónasar
Tómassonar
AKUREYRI
Bókaverslun Jónasar
Jóhannssonar
Tölvutæki - Bókval