Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það kann að verða smáuppnám
út af peningum fyrri hluta dags-
ins. Þú færð ráð sem koma sér
vel í vinnunni. Farðu ekki yfir
strikið ef þú ferð út að skemmta
þér í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
F^rðu varlega með krítarkortið
þitt núna. Sambönd þín úti í
þjóðfélaginu nýtast þér vel í við-
skiptum. Bjóddu til þín gestum
í kvöld, en vertu ekki með neina
sýndarmennsku.
Tvíburar
(21) maí - 20. júní) Æfc
Þér kann að sinnast við náinn
ættingja eða vin núna. Þú færð
góð ráð í fjármálum úr óvæntri
átt. Sumum þeirra sem þú um-
gengst í kvöld hættir til að ýkja.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HíS
Þú reiðist ef vinur þinn gerir of
miklar kröfur til þín núna þegar
mest er að gera hjá þér. Þér
hættir til að eyða of miklum
peningum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef þú gætir ekki skapsmuna
þinna núna, kann það að draga
úr afköstum þínum í vinnunni.
Þiggðu hjálp sem þér er boðin í
mikilli vinsemd og forðastu
raupsemi í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Óþoiinmæði þín gæti dregið úr
afköstum þínum fyrri hluta
dagsins. Þú kaupir eitthvað
óvænt handa baminu þínu.
Vertu hógvær i framgöngu og
hugaðu að heilsufari þínu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Slitnað getur snögglega upp úr
fjármálaviðræðum í dag. Þú
færð óvæntan gest í heimsókn.
Taktu þátt í félagslífinu af lífi
og sál.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú færð óvænta símhringingu
sem gleður þig mjög. Óvarlegt
orð af þinni háífu kann að særa
tilfinningar náins ættingja eða
vinar. Gættu tungu þinnar.
Bogmadur
(22. nóv. — 21. desember)
Óþolinmæði getur stórlega dreg-
ið úr afköstum þínum í vinnunni
í dag. Þú kannt að vera í slíku
uppnámi að þú ættir ekki að
koma nálægt hættulegum vélum
núna. Sumum verður á að ýkja
í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þó að tilvalið sé fyrir þig að
kaupa inn núna ættir þú að forð-
ast alla eyðslusemi. Eitthvað
sem gerist á bak við tjöldin kem-
ur þér úr jafnvægi núna. Hafðu
taumhald á þér.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þér kann að sinnast við náinn
ættingja eða vin núna. Þig lang-
ar tii að fá tíma til eigin ráðstöf-
unar í dag. Notaðu tækifærið
vel ef það gefst. Þér hættir til
að sóa tímanum í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 'jSrt
Þú og vinur þinn eruð ekki á
sömu bylgjulengd um þessar
mundir. Varastu önuglyndi í
dag. Þú virðist hafa betra af því
að njóta einveru núna en vera
innan um margt fólk.
AFMÆLISBARNIÐ er bæði til-
finninganæmt og fúst að taka
áhættu. Það á gott með að vinna
með öðrum og og er samkvæm-
isvera. Það kann að hafa hæfi-
leika til ritstarfa og er hluttekn-
ingarsamt að eðlisfari. Hvers
konar ráðgjafarstörf kunna að
höfða til þess.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum gruttni
vísindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
NÚ þEG/tfZ AtAMAtA
■SBTUfe SÚkDCUl/UDf-
St'tZÓP úr í MJÓLPffJA
Mt'NA, fiL/UcfeA ÉG T/L.
\AÐ pA pELAfJN M/tJN/
( HÉP FÆREHJ PELAUN \
! Þ/NN, LOLU... Nú E/EEÐU \
AFTUft ’OBLANMÐA WÖLK.,
/ÍDCTTID
uKt 1 1 Irv
FERDINAND
SMÁFÓLK
I 6UE5S U)E ALL REAP
U)I4AT 5EEM5 TO INTERE5T
U5 THE M05T, PON'T WE?
Mér finnst gaman Myndasögurnar og og bók- Slúðurdálk- Ég býst við að við lesum „Hundur
að lesa mynflasög- íþróttasíðurnar mennta- ana. öll, það sem við virðum liafa bítur óboð-
urnar. gagnrýnina. mestan áhuga á, er það inn gest“
ekki?
BRjDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Fyrrum ritstjóri The Bridge
World, Alphonse Moyse yngri,
sat í sagnhafasætinu í eftirfar-
andi spili þegar það kom upp í
Vanderbilt-keppninni árið 1949.
Suður gefur; NS á hættu
Norður
♦ KD92
VÁK10
♦ K752
+ Á6
Austur
♦ D10943
Suður
♦ Á10875
¥ 953
♦ ÁD9
+ 82
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 5 grönd Pass 6 lauf
Pass 6 spaðar Pass Pass
Útspil: spaðaþristur.
Moyse tók þrjá slagi á tromp
og spilaði svo hjarta á tíuna.
Kannski átti vestur DG.
Nei, ekki í þetta sinn, austur
drap á gosann og spilaði aftur
hjarta. Moyse tók þriðja hjarta-
slaginn og vestur henti laufi.
Nú var kominn tími til að prófa
tígulinn. Undir venjulegum
kringumstæðum yrði hann
hreinlega að brotna 3-3, en þeg-
ar 108 féllu í austur kom til
greina að svína fyrir gosann
fjórða.
Spurningin sem Moyse stóð
frammi fyrir var því þessi: Hvort
byrjaði austur með 108 eða
G108 í tígli? Það var útilokað
að telja upp hendurnar af ör-
yggi, því laufið gat verið 5-4 á
báða vegu.
En þá fór Moyse að velta fyr-
ir sér útspili vesturs. Það var
óneitanlega „passíft". Hefði
vestur ekki reynt hvassara út-
spil með tvo hunda í hjarta og
tvo hunda í tígli? Trompútspil
gegn hálfslemmu bendir yfirleitt
til þess að viðkomandi eigi styrk
í a.m.k. tveimur litum og vilji
ekki gefa sagnhafa fría íferð í
neinn lit. Að þessu athuguðu lét
Moyse tígulníuna rúlla.
Þetta var 1949.
SKÁK
¥ DG742
♦ 108
Vestur
+ G43
¥86
♦ G643
+ KG75
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu alþjóðlegu mjóti í Aosta
á Italíu, sem lauk á sunnudaginn,
kom þessi staða upp í skák ísra-
elska alþjóðameistarans Valery
Beim (2.480), sem hafði hvítt og
átti leik, og Stuart Wagman
(2.245), Bandaríkjunum. Svartur
lék síðast 16. — Be6-d5?
17. Bxh7+! - Kxh7, 18. Dh5+
— Kg8, 19. Bf6! og svartur gafst
upp, því hvítur hótar 20. Dg5 með
óveijandi máti og eftir 19. — gxf6,
20. Dg4+ — Kh8, 21. He3 verður
ekki komist hjá máti.
Undirritaður kom við í Aosta á
heimleið frá Ólympíumótinu og
náði að sigra með 7 v. af 9 mögu-
legum, hærri á stigum en hol-
lenski stórmeistarinn Van der
Sterren, sem hlaut jafnmarga
vinninga. 6 'A v. fengu ensku stór-
meistararnir Flear og Gallagher
og júgóslavneski alþjóðameistar-
inn Laketic. Þátttakendur í efsta
flokki voru 110 talsins, þar af 19
stórmeistarar og 26 alþjóðameist-
arar.