Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÖIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Flateyri:
Ný flugstöð í Holti
Flateyri.
NÝ FLUGSTÖÐ var formlega tekin í notkun á Holtsflugvelli laugardag-
inn 8. desember. Guðbjðrn Charlesson flugumferðarstjóri á Vestfjörðum
bauð hreppsnefndum Mosvalla og Fiateyrarhrepps ásamt starfsfólki
flugumferðar i Holti til að fagna þessum áfanga.
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdðttir
Flugstöðin er 87 fm og getur ann-
að 20 sæta flugvélum hverju sinni.
Jón Fr. Jónsson á Flateyri er flugvall-
arstjóri í Holti, hann segist ánægður
með aðstöðuna enda var hitt húsið
í alveg ömurlegu ástandi. Ekki varð
um formlega vígsluathöfn að ræða
þar sem Steingrímur J. Sigfússon
samgönguráðherra var erlendis.
Guðbjörn rakti byggingarsögu
þessarar flugstöðvar sem er stutt,
byggingin hófst 26. ágúst og lauk
7. desember. Guðbjörn hafði orð á
að saga nýrrar flugstöðvar í Holti
væri hálfgerð harmsaga. En í upp-
hafi kom gamalt viðlagasjóðshús sem
nota átti sem flugstöð en áður en
það hús komst í notkun fauk það og
skemmdist í óveðri þá voru Onfirð-
ingar sammála um að einhver hefði
tekið í taumana þar. Þá var ákveðið
að byggja veglega flugstöð, hún var
114 fm með turni og var kostnaðará-
ætlun um 13-15 milljónir króna. Var
hafin bygging á grunni hússins en
frá því var horfið sl. vetur en þá
hefði verið tekin ákvörðun um að
byggja minni flugstöð. Sú breyting
kom heimamönnum mjög á óvart,
kom það í kjölfar breytinga í sam-
göngumálum sem ölium eru kunnar
varðandi jarðgangagerð á Vestfjörð-
um. í dag njóta Hólmvíkingar þeirrar
flugstöðvar.
Guðbjörn sagði að með tilkomu
jarðganga mætti gera ráð fyrir minni
flugumferð en ella þó ekkert væri
hægt að fullyrða í þeim efnum,
tíminn skæri úr um það. En þá var
Guðbjörn Charlesson flugum-
ferðarstjóri á Vestfjörðum.
ákveðið að byggja minni flugstöð,
var Guðbirni falið að sjá alfarið um
þá byggingu sem nú er risin á grunni
frá fyrri vetri og er hún þokkaleg í
alla staði og vinnuaðstaða góð. Guð-
björn sagðist ekki geta sagt ná-
kvæmlega um endanlegan kostnað
Nýja flugstöðin í Holti.
við flugstöðina en með breytingum
sem gerðar voru væri kostnaðurinn
líklega liðlega 4 milljónir króna.
Húsið er úr timbri, reist af starfs-
mönnum flugmálastjórnar frá
Reykjavík, verkstjóri og yfirsmiður
var Andrés Sigurðsson, Arnór Magn-
ússon starfsmaður flugmálastjórnar
á ísafirði innréttaði húsið að öllu
leyti, smíðaði allar innréttingar í
það. Rafmagnslögn annaðist Björg-
vin Þórðarson, Flateyri, og pípulagn-
ir annaðist Rörverk frá Isafirði.
- Magnea
FÓRNFÚS MÓÐIR
ELSE-MARIE NOHR
Hún hefur aldrei verið mikið fyrir börn, en
í fríi sínu verður hún ástfangin af manni
nokkrum og kynnist lftilli dóttur hans, sem
er hjartveik og bíður eftir því að komast
undir læknishendur.
í DAG HEFST LÍFIÐ
ERIK NERLÖE
Aðeins sautján ára gömul er hún að verða
fræg og rík. Og margt er að gerast ílífi henn-
ar. Hún fær tækifæri sem söngkona; hún
verður ástfangin; hún hittir móður sína,
sem hún hefur aldrei þekkt, en hefur svo
oft dreymt um.
HAMIN GJTJHJARTAÐ
EVA STEEN
ÆVINTÝRI í MAROKKÓ
BARBARA CARTLAND
Nevada Van Arden var bæði mjög falleg og
vellrík, og hún naut þess að kremja hjörtu
ungu mannanna. Tyrone Strome varð æva-
reiður, þegar hann komst að raun um,
hvernig hún fór með aðdáendur sína, og
hve laus hún var við alla tillitssemi og
hjartahlýju.
í SKUGGA FORTÍÐAR
THERESA CHARLES
Uona var dularfuíl í augum samstarfsfólks
síns. Engu þeirra datt í hug, að hún skrifaði
spennusögur í frítíma sínum, eða að þessi
,,Nikulás" sem hún átti að vera trúlofuð,
væri aðeins til í hugarheimi hennar.
Hún er rekin úrT)allettskólanum og fer því
til London, þar sem hún gerist þjónustu-
stúlka hjá fjölskyldu einni, og gætir lítillar
stúlku. A leiðinni til London kynnist hún
ungum manni, sem sýnir henni mikinn á-
huga.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF t
Morgunblaðið/Theódór
Snorri Þorsteinsson fræðslustjóri tekur við Macintosh-tölvunni
frá Hallgrími Jónssyni sem var fulltrúi gefenda. Auk þeirra var
starfsfólk Fræðsluskrifstofunnar viðstatt afhendinguna.
Fræðsluskrifstofu
Vesturlands færð giöf
Borgamesi.
í TILEFNI af ári læsis gaf Radíóbúðin í Reykjavík ásamt öilum
bókabúðum á Vesturlandi, Fræðsluskrifstofu Vesturlands tölvu
af Macintosh-gerð. Tölvan er ætluð til aðstoðar við kennslu nem-
enda með lestrarörðugleika.
Gjöfina afhenti Hallgrímur Jóns-
son sem var fulltrúi gefenda og
veitti fræðslustjórinn Snorri Þor-
steinsson gjöfinni viðtöku og þakk-
aði gefendum rausnarlegt framlag
til bættrar lestrarkunnáttu í um-
dæminu. Að gjöfinni standa auk
Radíóbúðarinnar, Bókabúð Andr-
ésar Níelssonar Akranesi, Bóka-
skemman Akranesi, Kaupfélag
Borgfirðinga Borgarnesi, Bókabúð
Grönfeldts Borgarnesi, Bókabúð
Sigurðar Jónssonar Stykkishólmi,
Bókabúðin Dalaker Búðardal og
foreldrar barna undir skólaaldri
sem notið hafa talkennslu á svæð-
inu.
Tölvan verður í umsjá sérkenn-
ara Fræðsluskrifstofunnar og mun
hún gagnast beint nemendum sem
eiga við sértæka lesörðugleika að
stríða. Lars H. Andersen kennari
hefur ásamt öðrum hannað tvö
forrit fyrir tölvuna, annað er lestr-
arforrit en hitt málörvunarforrit.
Einnig er fyrirhugað að nota tölv-
una til að halda utan um tölfræði-
legar upplýsingar sem snerta lestr-
armat nemenda og vista spjaldskrá
talkennara og önnur gögn sem
tengjast talkennslu í umdæminu.
- TKÞ.
Nattúruverndarfélag Suðvesturlands:
Vetrarsólstöðuganga
Á LAUGARDAG 22. desember er sólin lægst á lofti og lifsorka
íslenskrar náttúru í lágmarki. Það hefur verið venja hjá Náttúru-
verndarfélagi Suðvesturlands, NVSV, undanfarin ár að minna á sól-
stöður og jafndægur.
A laugardag stendur NVSV fyrir
sólstöðugöngu sem skiptist í næt-
ur-, morgun-, dag- og kvöldgöngu.
Gangan hefst á föstudagskvöld á
miðnætti. Hver ganga er sérstakur
áfangi. Kl. 24.00 verður lagt af
stað út í Viðey með Maríusúð Haf-
steins úr Sundahöfn. Síðan gengið
austur háeyna og fjöruna til baka
og litið til stjarnanna.
Kl. 1.00 verður kveikt miðnæt-
urbál í Kríusandi. Kl. 3.07 sólstöðu-
mínútan á Sjónarhóli. Kl. 3.30 kom-
ið til baka í Sundahöfn og nætur-
göngu lýkur.
Kl. 9.30 gengið um Húsdýra-
garðinn og fjallað um ræktuð dýr.
Þaðan verður svo farið niður í
Grasagarðinn og rætt um ræktaðar
plöntur. Síðan gengið upp á Laug-
arásinn og morgungöngu lýkur þar
við sólarupprás kl. 11.22.
Kl. 13.30 gengið innst úr
Vogavík undir Stapanum út fjöruna
og hugað að plöntu- og dýraríki
hennar og svæðisins upp af flóða-
mörkum hennar. Daggöngunni lýk-
ur á Fálkaþúfu við sólarlag kl.
15.31.
Kl. 21.00 verður sýningin: „Hvað
er vistfræði" skoðuð í Náttúru-
fræðistofu Kópavogs Digranesvegi
12 og síðan verður starfsemi NVSV
næstu þijá mánuði kynnt. Að því
loknu verður farið í kvöldgöngu á
Borgarholt og stjörnurnar skoðaðar
ef skýjafar leyfir. Kvöldgöngunni
lýkur þar kl. 24.00.
Þátttaka í sólstöðugöngunni er
öllum heimil og án alls kostnaðar.
Að sjálfsögðu er hægt að koma og
fara hvenær sem er. Fróðir menn
verða með í öllum áfangagöngun-
um. (Frá NVSV)