Morgunblaðið - 20.12.1990, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
67
tií
auðugra hfo
Sanaya
Roman
Bók
Emina
Inngangur'
Ramt>»w
P„ Roóegu' og
judith Sunion tc
iYKILL AÐ
pERSÓNULEGUM
srnuíOG
andlegum woska
Hv seiritan al lattskk sóbsettan
Förum nú hína leiðina
Til Velvakanda.
Fyrir allmörgum árum marseraði
hópur hugsjónamanna niður Lauga-
veginn undir blaktandi fánum hins
blóðrauða hers og kyijaði baráttu-
söng af miklum eldmóði. Úr þeim
söng man ég bara niðurlagið sem
var: „Lifi Lenín og hinn rauði her,“
og var það margendurtekið og
söngur fullhuganna glumdi um mið-
bæinn. Svo fór hópurinn niður á
plan gegnt Eimskipafélagshúsinu.
Ræðumaður sté í pontu og steytti
hnefa og formælti „helvítis auðvald-
inii“, og boðskapur vorboðans var:
Fullar vísitölubætur á öll laun.
MikidVatn hefur runnið til sjávar
síðan þessi boðskapur var fluttur,
og fulltrúar verkalýðsins trúðu boð-
skapnum og börðust fyrir honum.
En afleiðing hans hefur orðið skelfi-
leg fyrir láglaunafólkið, það fólk
sem boðskapurinn átti að vernda.
Fullar vísitölubætur á öll laun virka
þannig að kjör láglaunafólks rýrna
en kjör hinna hálaunuðu batna. Séu
vísitölubætur reiknaðar 10 prósent
Látið úti-
ljósin loga
Blaðburðarfólk fer þess á leit við
áskrifendur að þeir láti útljósin loga
á morgnana núna í skammdeginu.
Sérstaklega er þetta brýnt þar sem
götulýsingar nýtur lítið eða ekki við
tröppur og útidyr.
fær sá, sem hefur 60 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun 6 þúsund krónur
í launabætur, en sá sem hefur t.d.
300 þúsund krónur í mánaðarlaun
fær 30 þúsund krónur í launabæt-
ur. Svo kemur verðbólgan og tekur
þessar 6 þúsund krónur og meira
til af iáglaunamanninum en há-
launamaðurinn hefur dtjúgan skild-
ing sem raunverulegar launabætur.
Þegar þessi þróun hefur gengið í
tugi ára, verður láglaunamaðurinn
að vinnuþræli. Launin duga ekki
lengur fyrir lífsnauðsynjum, þó að
hann vinni mikla yfirvinnu. Þurfi
hann að taka lán, svokölluð láns-
kjaralán með vísitölu út á eignir sem
hann á, þá eru lánskjaralánin svo
snilldarlega útspekúleruð að skuldin
vex í hvert sinn sem borgað er af
láninu uns ekki verður við neitt
ráðið og iántakandinn missir sína
eign í lánskjarahítina. En fjármagn-
seigandinn hrósar happi. Þennan
vísitölu- og prósentafaraldur kalla
ég djöflaveisluna.
Til þess að bæta kjör láglauna-
fólks ætti að fara „hina leiðina“
eins og Eysteinn Jónsson hafði á
orði fyrir allmörgum árum, — setja
verðbólguna á núll, lækka vöruverð
um t.d. 15 prósent, lækka laun
hátekjufólks um 15 prósent en lág-
tekjufólks um 5-10 prósent í fyrstu
lotu. Þennan hátt ætti að hafa á
uns íslenska krónan yrði jöfn að
verðgildi þeirri dönsku, og kjör á
íslandi lík því sem er á hinum Norð-
urlöndunum.
Fyrir svo sem þremur árum áttu
laun að hækka um 7 prósent sam-
HEILRÆÐI
Kertaljósin gefa þessum árstíma ávallt hátíðlegan blæ. En
kertunum þarf að sinna af gætni og umgangast þau með
varúð. Þau þurfa að vera vel fest í öruggum kertastjökum
og ein er sú regla, sem aldrei má gleymast. Að slökkva á
kertum áður en gengið er til náða, farið úr herbergjum eða
hús yfirgefin. Oft er mikið um eldfimt skraut í nánd við kert-
in og þvi miður hefur alltof oft lítið og fallegt kertaljós orðið
að stóru, eyðandi báli vegna aðgæslu- og hugsunarleysis.
Njótum jólanna með slysalausum dögum.
kvæmt einhverri vísitölu. Mig
minnir að Víglundur Þorsteinsson
hafi þá stungið upp á því fyrir hönd
atvinnurekenda að laun skyldu
hækka um 1,5 prósent fyrir alla en
að öðru leyti um jafna krónutölu á
öll laun. Þetta var viturleg tillaga
eins og á stóð, en var hafnað.
Boðskapurinn: „Lifi Lenín og
hinn rauði her“ og fullar vísitölur
á öll laun hefur reynst banvænt
eitur í röðum vinnandi fólks með
lágar tekjur. Nú er Lenín dauður
og rauði herinn ráðvilltur og söngur
boðberanna þagnaður — nema hvað
Davíð Oddsson, sá stórmerki mað-
ur, lætur spila Nallann við hátíðleg
tækifæri, ASÍ biður um aðstoð við
að lumbra á ríkisstjórninni og
BHMR tekur skólanemendur sem
nokkurs konar gísla eða skjöld í
kjarabaráttu sinni og hótar að gera
ríkisstjórninni allt til miska, en
Olafur Ragnar Grímsson stendur
einbeittur með höfðingssvip og
reynir að hamla gegn framrás
djöflaveislunnar.
Mál er nú að snúa við og fara
„hina leiðina" til að bæta kjör vinn-
andi fólks og efla atvinnulífið í
landinu með skynsamlegri löggjöf.
Oskar Jensen
Sóf asett 3+1 +1 +2 litlir í áklæói.
Allt þetta kr. 161.000,- stgr.
EURO og VISA greiðslukjör
Armúla 8, símar: 8-22-75 og 68-53-75
LIKLEGASTA LÆRIÐ!
' JumiÆSSKA
LETTRliYKTA _
RA UMLSSLÆm
j m HOFN hf.
Hvaða skepna
er „rauðvín“?
Til Velvakanda.
Við erum hér nokkrir starfsfélag-
ar sem höfum verið að velta því
fyrir okkur að undanförnu hvers
konar skepna „rauðvín" sé. A.m.k.
virðist vera hægt að fá læri af því
. og það meira að segja léttreykt.
Starfsfélagar
Barnakuldaskór
Hlýir og mjúkir kuldaskór
með ekta gæru og stömum sóla.
Stærðir frá 20-27
Litir: Hvítur
og dökkblár.
Verð kr.
1.985
smáskór
sérverslun nneð barnaskó,
Skólavörðustíg 6b, sími 622812.
BÆKUR I ANDA NYALÐAR
Miblabar rableggingar fra Ijosverum ab handan.
B*KUr
sem
glebja og
hjálpa-
Þær eru
innbundnar
og kosta
kr. 2.490,-
BOK EMMANUELS
(Emmanuels Books)
Rituö af Pat Rodegast
LIFÐU I GLEÐI
(Living with joy)
Rituö af Sanaya Roman
Fást í öllum helstu
bókaverslunum
NÝALDARBÆKUR
Bolholti 6, símar 689278 og 689268.