Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990
Tvö skip Eimskipafélagsins hafa misst gáma í aftakaveðri:
Augnablikið sem heil eilífð
— segir Jón Guðnason skipstjóri á Reykjafossi
LAXFOSS, skip Eimskipafélags-
ins, missti þrjá gáma útbyrðis við
Færeyjar á fimmtudag og er það
í annað sinn á tæpri viku sem
skip Eimskipafélagsins missa
gáma útbyrðis í aftakaveðri. Jón
Guðnason, skipstjóri á Reyiga-
fossi, sem fékk á sig mikinn
brotsjó aðfaranótt laugardagsins
22. desember, segir að veðurofs-
inn hafi verið um 10-11 vindstig
og brotsjór hafi lagt skipið á hlið-
ina. „Það er erfitt að gera sér
grein fyrir hversu lengi skipið
hallaðist. Við svona kringum-
stæður finnst manni augnablikið
sem heil eilífð. Skipveijar voru
þó ekki í hættu," segir hann.
Jón sagði að Reykjafoss hefði
verið staddur um 600 mílur suð-
vestur af landinu þegar sjórinn reið
yfir en við það fóru sjö gámar út-
byrðis. „Það var vissulega vont veð-
ur en þetta var þó bara ein af
mörgum brælum sem hægt er að
lenda í. Það voru 10-11 vindstig
og samsvarandi sjór. Það amaði þó
ekkert að mannskapnum um borð,“
sagði hann.
Áætlað verðmæti vamings í
gámunum sjö sem fóm útbyrðis af
Reykjafossi er um 25 milljónir kr.
Eigendur varningsins fá hann
væntanlega bættan hjá trygginga-
félögum en ekki er ljóst hvort Eim-
skip hf. þarf að bera einhvem skaða
vegna þessa máls.
Aftakaveður gekk yfír við Fær-
eyjar þegar Laxfoss missti þijá 40
feta gáma í hafíð en skipið var á
leið frá íslandi til Bretlands og
Evrópu. í einum gáminum var físk-
ur en í hinum tveimur var almenn
vara til Bretlands. „Þetta verður
að teljast mjög óvanalegt því þetta
hefur líklega ekki komið fyrir oftar
en tvisvar til þrisvar áður á síðustu
sex árum,“ sagði Hjörleifur Jakobs-
son, forstöðumaður áætlanadeildar
Eimskips. Hann taldi ekki að skip-
veijar hefðu verið í hættu en þeir
reyndu að festa gámana betur eftir
að ólagið hafði gengið yfir skipið.
Af gámunum sjö sem féllu út-
byrðis af Reykjafossi vom þrír físk-
gámar, sem lestaðir vom á Ný-
fundnalandi og ráðgert var að flytja’
til Evrópu, og fjórir gámar með
vörar til íslands, þar af einn með
almennri vöm, annar með búslóð
en í hinum tveimur vom fímm not-
aðir bílar.
„Af fyrri reynslu má ætla að
verðmæti þessa vamings sé um 25
milljónir kr.,“ sagði Hjörleifur Jak-
obsson forstöðumaður áætlana-
flutninga Eimskipa. Hann sagði að
venjan í svona málum væri sú að
tjónþoli leiti til síns tiyggingafélags
og fái vömna bætta. Hann sagði að
í þessu tilfelli hafí allir verið með
sínar vömr tryggðar. Hins vegar
lægi ekki enn fyrir hver væri ábyrg-
ur fyrir þessu tjóni.
Mikil örtröð á hlutabréfamarkaði:
Morgunblaðið/Þorkell
Mikil örtröð var hjá verðbréfafyrirtækjum í gær eins og sjá má á
þessari mynd, sem tekin var í Verðbréfamarkaði íslandsbanka.
Á annað þúsund manns
keyptu hlutabréf í gær
HATT á annað þúsund manns
keyptu hlutabréf í gær hjá verð-
bréfafyrirtækjunum og þurfti
fólk að standa í biðröðum
langtimum saman eftir að hljóta
afgreiðslu. Flestir keyptu hluta-
bréf í hlutabréfasjóðum en hluta-
bréf nokkurra almenningshluta-
félaga voru einnig á boðstólum.
Hlutabréfasjóðimir hafa í sumum
tilvikum gert ráðstafanir til að
tryggja sér hlutabréf en aðrir
munu geyma það fjármagn sem
streymt hefur inn í þá að undan-
förau í skammtímaverðbréfum
þar til arðbær hlutabréf fást.
Verðbréfafyrirtækin ,munu hafa
opið í dag og fyrir hádegi á gaml-
ársdag.
Hjá Verðbréfamarkaði íslands-
Kvóti á saltfiski til Evrópubandalagsins:
Lítil breyting frá fyrra ári
„ÞAÐ er auðvitað ánægjulegt að
það skuli vera samþykktur kvóti,
en þetta er lítil breyting frá þeim
kvóta sem gilti fyrir árið 1989,“
sagði Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskframleiðendá (SÍF)
um samþykkt sjávarútvegsráð-
herra Evrópubandalagsins um
kvóta á innflutning á saltfiski og
söltuðum flökum.
Sjávarútvegsráðherrar EB náðu
á fímmtudag fyrir jól samkomulagi
um að heimila innflutning á 55
þúsund tonnum af saltfíski á 7%
tolli og 1.200 tonnum af söltuðum
flökum með 11% tolli.
„Það sem skiptir máli fyrir okkur
í þessu sambandi er tollurinn á
blautverkaða saltfiskinum, þorsk-
flökunum og ufsaflökunum. Þetta
er óbreytt að öllu leyti nema hvað
magnið á blautverkaða fískinum
eykst um tvö þúsund tonn. Þetta
er auðvitað kostur fyrir okkur því
annars þyrftum við að greiða 13%
toll..
Ástand vinnukran-
ans í Tý rannsakað
SJÓPRÓF vegna banaslyssins
um borð í varðskipinu Tý sl.
fimmtudag hófust í gær og
verður framhaldið í dag. Ekk-
ert hefur komið fram við
rannsókn slyssins sem varpað
getur ljósi á orsakir þess, að
sögn Jóns Magnússonar, lög-
manns Landhelgisgæslunnar.
Enginn sjónarvottur var að
slysinu. Umboðsmaður fram-
leiðenda vinnukranans sem
skipverjinn varð undir er
væntanlegur hingað til lands
eftir helgi.
Rannsóknarlögregla ríkisins
óskaði eftir sérfræðilegu áliti
Vinnueftirlits ríkisins á ástandi
vinnukranans og að sögn Eyjólfs
Sæmundssonar forstjóra Vinnu-
eftirlitsins gengur sá þáttur
rannsóknarinnar vel. Eyjólfur
sagði að eftir helgi væri umboðs-
maður framleiðenda vinnukran-
ans væntanlegur til landsins og
þá yrði farið yfir niðurstöður
rannsóknarinnar með honum.
Þá kæmi einnig í ljós hvort nauð-
synlegt væri talið að gera breyt-
Sigurður Bergmann
ingar á öllum samsvarandi krör.-
um í íslenska skipaflotanum.
Skipverinn sem lést í slysinu
hét Sigurður Bergmann. Hann
var 47 ára og lætur eftir sig
aldraða foreldra og dóttur á
tvítugsaldri.
Þessi samþykkt tekur ekki gildi
fyrr en 1. apríl og það er galli fyr-
ir okkur. Árið byijar með 25 þús-
und tonna tollfijálsum kvóta, sem
við keppum um við Kanadamenn
og Norðmenn, og þess vegna er það
mikils um vert fyrir okkur að fram-
leiða eins mikið og hægt er á fyrstu
vikunum," sagði Magnús.
Magnús sagði að töluverður sam-
dráttur hafí orðið á heildarfram-
leiðslunni á þessu ári, en verðmætið
væri heldur meira, bæði í dollurum
talið og íslenskum krónum. „Útlitið
er tiltölulega gott, en það er einn
galli á gjöf Njarðar. Páskamir em
mjög snemma á næsta ári og sá
fískur sem við framleiðum á næstu
vikum verður líklega uppurinn á
erlendum mörkuðum fyrir pásk-
ana,“ sagði Magnús.
banka keyptu yfír 650 manns hluta-
bréf í gær fyrir um 80-100 milljón-
ir. Þurfti fólk að bíða í biðröðum sem
náðu út á götu á aðra klukkustund
en fjölmargir keyptu einnig gegnum
síma. Að sögn Svanbjöms Thorodds-
en, deildarstjóra hjá VÍB, vom til
hlutabréf í Eimskip, Flugleiðum,
Ármannsfelli og Eignarhaldsfélagi
Verslunarbankans. Langmest sala
var hins vegar í bréfum hlutabréfa-
sjóða. Vegna mikilla kaupa á hluta-
bréfum í hlutabréfasjóðum streymir
mikið fjármagn inn í þá á stuttum
tíma. Svanbjörn Thoroddsen segir
að þegar hafí verið gerðar ráðstafan-
ir til að tryggja Hlutabréfasjóði VÍB
hlutabréf auk þess sem sjóðurinn
muni geta keypt þau bréf sem komi
til innlausnar eftir áramótin.
Síðdegis í gær höfðu 300-400
manns keypt hlutabréf fyrir um
50-60 milljónir króna hjá Landsbréf-
um, að sögn Sigurbjöms Gunnars-
sonar, deildarstjóra. Salan var mest
í íslenska hlutabréfasjóðnum sem
er í vörslu Landsbréfa en einnig
seldust bréf í Flugleiðum og Olís.
Hjá Fjárfestingarfélaginu vom til
sölu hlutabréf í Olíufélaginu hf.,
Hlutabréfasjóðnum, Almenna hluta-
bréfasjóðnum hf. Útgerðarfélagi
Akureyringa, Eignarhaldsfélagi
Verslunarbankans og Ármannsfelli.
Þar keyptu hátt í 500 manns hluta-
bréf í gær og var heildarsalan á bil-
inu 50-60 milljónir. „Salan hefur
verið ótrúlega mikil og jafnvel meiri
en í fyrra," sagði Agnar Jón Ágústs-
son, hagfræðingur hjá Fjárfesting-
arfélaginu. Hann sagði að mest hefði
verið selt af bréfum í Almenna hluta-
bréfasjóðnum. Því fé sem kæmi inn
í sjóðinn yrði ráðstafað í
skammtímabréf þar til góð hlutabréf
fengjust.
Um 300-400 manns keyptu hluta-
bréf í gær fyrir um 60-70 milljónir-
hjá Kaupþingi. Þar var sömuleiðis
mikil ös en sparisjóðir og útibú Bún-
aðarbankans höfðu einnig hlutabréf
til sölu.
Það sem af er þessu ári hefur
hlutabréfavísitala HMARKS hækk-
að um 78%., Vísitalan var lækkuð
lítillega í desember vegna tæknilegra
leiðréttinga.
Ikveikja af völd-
um flugelds
SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var
kl. 20.30 í gærkvöldi tilkynnt um
eld á svölum fjölbýlishúss við
Ártún 8 í Kópavogi. Kviknað hafði
í rusli í pappakassa og hafði íbúð-
areigendum tekist að slökkva eld-
inn að mestu þegar slökkviliðið
kom á staðinn.
Talsvert bál var á svölunum og
mátti ekki miklu muna að eldurinn
læsti sig í íbúðina því rúður spmngu
undan eldinum. Lögreglan telur að
flugeldur hafí kveikt í kassanum en
nokkrir krakkar höfðu verið að
skjóta upp flugeldum við húsið
skömmu áður.
Bankaráð Landsbanka íslands:
Halldór Guðbjama-
son ráðinn bankastjóri
BANKARÁÐ Landsbanka íslands flokks borgarar. Þrátt fyrir að lögin
samþykkti á fundi sínum í gær
að ráða Halldór Guðbjarnason,
viðskiptafræðing, i stöðu banka-
stjóra frá 1. janúar 1991 í stað
Vals heitins Araþórssonar. Halld-
ór kveðst vera mjög ánægður með
ráðninguna.
„Baráttan var hörð en ég trúði
að ég hefði það að lokum," segir
Halldór í samtali við Morgunblaðið.
Ég hef unnið að bankamálum í 16
ár á ýmsum sviðum. Þetta hefur
orðið mitt lífsstarf og ég kann best
við mig í bankastörfum," sagði hann.
Halldór sagði að sýknudómurinn
í Útvegsbankamálinu hefði einnig
haft áhrif á ákvörðun sína að sækj-
ast eftir stöðunni. „Það er engin
launung á, að á meðan það mál var
í gangi vom settir ákveðnir hlekkir
á menn, og þeir vom gerðir annars
segi, að maður sé saklaus uns sekt
er sönnuð, þá er það í reynd svo að
ef maður er ákærður liggur við að
hann sé dæmdur þar til sjálfur dóm-
urinn er kveðinn upp. Það má segja
að niðurstaðan í málinu hafi hleypt
í mig ákveðinni orku. Kannski hefur
hún ráðið úrslitum um að menn
stóðu aftur í fæturna," sagði hann.
Halldór er fæddur 20. október
1946 á ísáfírði. Hann varð stúdent
frá MA árið 1967 og lauk prófi í
viðskiptafræði frá Háskóla Islands
1972. Halldór var starfsmaður
bankaeftirlits Seðlabanka íslands
frá 1971-1975 og var útibússtjóri
Útvegsbankans í Vestmannaeyjum
1975-1980. Hann var aðstoðar-
bankastjóri Alþýðubankans á ámn-
um 1981-1983 og bankastjóri Út-
vegsbankans frá 1983-1987. Hann
Halldór Guðbjarnason.
starfaði eftir það um tíma hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga og
vann m.a. að stofnun Samkorta. Að
undanfömu hefur hann stundað
framhaldsnám í Boston í Banda-
ríkjunum. ,
Halldór er kvæntur Steinunni
Brynjúlfsdóttur, meinatækni, og
eiga þau þrjú böm.