Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 9 Jólaráðstefna S.I.N.E. verður haldin í dag kl. 14.00 í Stúdentakjall- aranum. Mætum öll. Stjórn S.I.N.E. BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. Múlalundur I SÍMI: 62 84 50 HENTUDOS TIL HJÁLPAR! Á laugardögum söfnum við einnota umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum. ÞJÓÐÞRIF LANDSSAMBAND BANDALAQ ISLENSKRA SKÁTA IIJÁLPAnSVEITA SKÁTA Dósakúlur um allan bæ HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR LOKAÐí DAG Næsti Kolaportsdagur verður 5. janúar - og síðan alla laugardaga. Nokkrir sölubásar lausir. Pantanasíminn er 687063 (virkadaga kl. 16-18) Þökkum seljendum og gestum ánægjulegt samstarf á árinu. Vonumst til að sjá ykkur öll aftur á nýju ári. KOLA PORTIO Mar*Ka£>S tOg<T SödMÉmi? Fl ÓTRÚLEGIR TÍMAR Þjóðfélagsgerð sósfal- ismans hrunin Davíð Stefánsson formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna skrifar greinina „Ótrúlegir tímar" í Fréttabréf SUS. Þar segir hann m.a. að „þjóð- skipulag sósíalismans hafi lagst af í Mið-Evrópu og að í Sovétríkjunum, föðurlandi kommúnismans, sé allt á fallandi fæti“. Staksteinar glugga í þetta efni í dag. „Á meðan til er böl...“ Davíð Stefánsson for- maður SUS segir m.a. I grein sinni: „Það segir sína sögu að þau ríki, sem búið hafa við alræðisskipulag, eru nú ekki fær um að fæða og klæða þegna sína. Hungursneyð er yf- irvofandi í Sovétríkjun- um og Þjóðverjar, fornir fjendur rússnesku þjóð- arinnar, reynast Rússum nú hinir beztu bræður. Það er tímanna tákn. Þótt við sjálfstæðismenn höfum háð hugsjónabar- áttu gegn rikjum sósial- ismans, sem oft var grimmileg, þá var það barátta gegn þjóðskipu- lagi þeirra en ekki þegn- um. Nú, þegar þær þjóðir feta vandrataðan veg til frelsis, eiga um sárt að binda, kallar skyldan á okkur til að hjálpa með- bræðrum okkar með ein- hverjum hætti... Það á enn við sem Tómas Guðmundsson segir í kvæði sinu Heim- sókn: „Og vitund þín mun öðlast sjálfa sig er sérðu heiminn far- ast kringum þig og elfur blóðs um borgarstrætin renna. Því meðan tíl er böl sem bætt þú gast og barist var á meðan hjá þú sast, er ólán heimsins einn- ing þér að kenna.“ Varðveitum það sem vel hefur reynzt Formaður SUS heldur áfram: „Yfirburðir lýðræðis- þjóðamia og samtaka- máttur þeirra kemur meðal annars fram i því að ríkin, sem hafa hrund- ið af sér oki kommúnism- ans, leita nú í síauknum ópuráðið og sumar þess- ara þjóða vilja ganga í Evrópu-bandalagið. Havel forseti Tékkó- slóvakíu segir áð það sé Atlantshafsbandalaginu að þakka að andstaðan gegn kommúnismanum lifði og sigraði í austan- fjaldsríkjum. í þ'ósi þessa vekur það furðu að heyra ýmsa íslenzka stjórn- málamemi halda því fram að aðild okkar að NATO sé orðin úrelt. Hvenær hefur það verið svo að hlutum, sem hafa mæli samstarfs við Iýð- i’æðisríkin. Austurhluti Þýzkalands er nú orðinn hluti af Evrópu-banda- laginu og NATO. Ung- veijar, Tékkar, Júgósla- var, Rúmenar, Búlgarar og Pólverjar liafa sýnt áliuga á imigöngu í Evr- þegar sannað ágæti sitt, sé kastað fyrir róða?“ Aðdragastaft- ur úr öllum... Síðar í grein sinni seg- ir Davíð Stefánsson: „Á meðan stjómvöld í Póllandi, Tékkóslóvakíu og Ungveijalandi og víðar keppast við að einkavæða ríkisfyrirtæki og létta álögum af þegn- unum, _ hyggjast stjóm- völd á íslandi eim þyngja skattabyrðina. I flestum efnum er stefna þeirra öfug við framfarastefn- una í Mið-Evrópu. Það vakti athygli mína þegar efnahagsráðgjafi vinstri stjórnai'innar lýsti því yfir fyrir nokkm í grein í Morgunblaðinu að skattlagning væri komin að endamörkum sínum. Þau ummæli þessa sér- fræðings um efnahags- stefnu ríkisstjómarinnar ættu að segja sína sögu. Samt þreytast forystu- menn félagshyggjuflokk- anna ekki á að koma með tillögur um enn frekari skattahækkanir... Að undanfömu hefur verið fjallað nokkuð um þá staðreynd að hagvöxt- ur á íslandi væri mjög lítill ef miðað er við önn- ur lönd sem eru aðilar að Efnahags- og fram- farastofnuninni OECD. Þetta ætti að vera okkur. sem yngri emm nokkur viðvömn. Málið snýst um það hvort velmegun verður sú sama á Islandi og i nágramiarikjunum. Það kann jafnvel að kosta atgervisflótta frá landinu; að vclmenntað ungt fólk sem þjóðfélagið hefur kostað miklu til að mennta, telji hag sínum betur borgið í öðrum ríkjum. Vinstri stjómin sem nú situr að völdum virðist ekki hafa miklar áhyggjur af þessu, a.m.k. sýna verkin ekki að reynt sé að breyta til betri veg- ar. í þess stað að horfa til framtíðar em ríkisum- svifin og skattheimtan aukin og kraftur dreginn úr atvinnulífinu." „Kraftur nýrr- ar kynslóðar“ í lokaorðum greinar- innar segir m.a.: „Á árinu átti SUS 60 ára afmæli, og var yfir- skrift afmælisársins „kraftur nýrrar kynslód- ar“. Þessi orð urðu að áhrínisorðum í kosninga- baráttunni sl. vor. Það tókst að virkja þann kraft sem býr í æsku Sjálfstæðisflokksins til að vinna stóra sigra um land allt Nú skiptir mestu að halda uppi merkinu og vinna af jafnmiklum krafti í næstu kosning- um.“ INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS f 1. FL B1986 Hinn 10. janúar 1991 er tíundi fasti gjalddagi vaxtamiöa verðtryggöra spariskírteina ríkissjóös með vaxtamiðum í 1. fl. B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 10 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: __________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 4.353,40_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1990 til 10. janúar 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986 til 2969 hinn 1. janúar nk. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 10 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1991. Reykjavík, 29. desember 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.