Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 14
14___________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990_
Forsjárhyggjan, starfs-
fræðslukerfíð og sannleiksást
menntamálaráðuneytisins
eftir.Guðjón
Tómasson
Þann 12. desember síðastliðinn
birti menntamálaráðuneytið at-
hugasemdir við grein minni sem bar
heitið „Er forsjárhyggjan að mola
allt starfsfræðslukerfi okkar?“ At-
hugasemdir ráðuneytisins eru í fjór-
um meginliðum og þar er ég ýmist
sakaður um órökstuddar fullyrðing-
ar eða að ég fari með staðlausa
stafí. Mér er það sönn ánægja að
fá tækifæri til að bæta rökstuðning
minn fyrir því hvernig forsjárhyggj-
an er að mola verkmenntakerfi okk-
ar.
1.
Ráðuneytið telur það alrangt hjá
mér, að með lögum nr. 72/1989
hafi verið numin brott aukin áhrif
atvinnulífsins á skólakerfið, og að
það sé út í hött að stjómkerfi skól-
anna og fræðslukerfísins sé óstarf-
hæft vegna fjölda stjórnunarstiga,
stjórnskipunarþátta, embætta og
skilyrða, að enginn viti lengur hver
á að stjóma hverju. Ráðuneytið tel-
ur meginatriði laganna vera, að
fjölgað var í skólanefndum úr 5 í
7 og starfsmenn skólanna og nem-
endur fengju fulltrúa í skólanefnd.
Skoðum örlítið nokkur brot úr
nefndum lagabreytingum, hvað var
numið brott og hvað kom í staðinn.
1. A brott var numið ákvæði
varðandi tilnefningu í skólanefnd
skóla sem annast starfsmenntun,
og hljóðaði svo: „Þegar um er að
ræða skóla sem annast starfs-
menntun skal af hálfu sveitastjórna
gætt við tilnefningu að fulltrúi við-
komandi starfsgreina eigi sæti í
skólanefnd." Tekin var á brott sú
eina trygging sem atvinnulífið hafði
til beinna áhrifa á námsframboð
viðkomandi skóla.
2. Áður vom stjórnskipunarstigin
við skóla tvö. Skólanefnd sem í
voru 5 fulltrúar, 4 tilnefndir af við-
komandi sveitarfélagi og 1 af ráð-
herra. Þeirra framboð, tillögur til
fjárlaga og fjárhagslegt eftirlit.
Síðan var skólaráð skólameistara
til aðstoðar við daglega stjómun
og rekstur skólans. Skólaráð var
skipað fulltrúum kennara, nem-
enda, aðstoðarskólameistara við
skólann.
3. Nú em stjórnstigin orðin þrjú.
Skólanefnd sem í em 7 fulltrúar. 1
tilnefndur af ráðherra, 3 af sveitar-
félagi, 2 af starfsmönnum skóla og
1 af nemendum. Hlutverk skóla-
nefndar er óbreytt. Skólaráð heitir
nú skólastjóm og hefur sama hlut-
verk og áður, en í því er fjölgað
um þá áfangastjóra sem starfa við
skólann. Síðan kemur. nýtt stjórn-
skipunarstjg, þ.e. almennur kenn-
arafundur. Sá fundur skal fjalla um
stefnumörkun, námsskipan,
kennsluhætti og aðra starfsemi
skólans. Þegar reglugerðin er skoð-
uð, þá kemur hringlandinn í ljós.
Ákvörðun skólanefndar, t.d. um
reglur, stjórnskipan og ráðningu í
stjórnunarstöður, þarf að senda til
skólastjórnar, og eða almenns kenn-
arafundar til umsagnar áður en þær
koma til framkvæmda. Fyrirtæki
sem býr við slíkt stjómkerfi yrði á
skömmum tíma gjaldþrota, nema
því aðeins að það hefði lögbundna.
einokun.
4. í lagabreytingunni 1989 var
enn aukið við laga- og reglugerða-
bundin störf og starfsheiti innan
skólanna. Inn komu eftirfarandi
ákvæði: Setja skal í reglugerð
ákvæði um menntun og starfssvið
námsráðgjafa og skólasafnvarðar.
Setja má í reglugerð ákvæði um
menntun og starfssvið annara
starfsmanna. Nú er því svo komið,
að ísland hefur skipað sér fremst
í hóp miðstýringarvaldsþjóða, ráð-
herra hefur fengið beina heimild í
lögum til að setja í reglugerð bund-
in skilyrði varðandi menntun og
starfssvið fyrir öll störf innan fram-
haldsskólans.
Það eru þessi atriði, sem ég á
við, þegar égtala um aukið miðstýr-
ingarvald og segi að stjómkerfí
skólanna hafi verið breytt til hins
verra og gert nánast óstarfhæft.
Já, slíkur fjöldi stjórnskipunarþátta,
með laga- og reglugerðarbundin
skilyrði varðandi öll störf, mun
ávallt vinna gegn hagkvæmni og
ala af sér þiýstihópa.
2.
í öðru lagi andmælir ráðuneytið
þeirri fullyrðingu minni, að við
samningu reglugerða hafi verið
forðast að hafa atvinnulífíð með í
ráðum. Það er rétt hjá ráðuneytinu,
að það voru margir vinnuhópar við
samningu reglugerða, og það er lika
rétt að fundir voru haldnir 6. og
20. mars, og að ég sat á þeim báð-
um. Það er hinsvegar alrangt sem
ráðuneytið heldur fram, að það
hafí lagt sig í framkróka við að ná
víðtæku samstarfi við fulltrúa úr
atvinnulífinu um samráð við setn-
ingu reglugerðanna. Ég tel því
nauðsyn á að rifja upp fyrir ráðu-
neyti og lesendum nokkur atriði
varðandi þetta mál. Með setningu
laganna nr. 57/1988 voru numin
úr gildi samtals 21 lög, ásamt fjölda
relgugerða sem byggðu á þeim lög-
um. Ráðuneytið skipaði síðan án
tilnefninga fjölda vinnunefnda til
að semja drög að reglugerð við
þessi einu nýju lög. Þessar vinnu-
nefndir áttu að ijalla um og -gera
tillögur um ákveðin svið eða þætti
sem áður voru bundin sérstökum
lögum og reglugerðum. Þau vinnu-
brögð, að skipa marga vinnuhópa
til að vinna eitt og sama verkið er
mér óskiljanleg. Enda kom á dag-
inn, að í hópunum fór verulegur
tími í umræður um ákvæði eldri
laga og reglugerða, sem alþingi
hafði fellt úr gildi, og hvernig hnoða
mætti einstökum ákvæðum þeirra
inn í nýja reglugerð. Já, og svo langt
var gengið, að inn voru sett ákvæði
sem ekki eiga stoð í þeim lögum
sem alþingi samþykkti.
Rúmum þremur mánuðum eftir
að reglugerðimar áttu að taka gildi
var komið að kynningu reglugerð-
ardraganna og þau send út til um-
sagnar útvaldra aðila og stuttur
frestur gefinn.
Þar sem ég sat sem formaður
skólanefndar Iðnskólans í Hafnar-
firði þá fékk ég drögin til umsagn-
ar og lagði þau m.a. fram í Fræðslu-
ráði málmiðnaðarins. Þá kom í ljós
að hvorki samtök vinnuveitenda né
launþega höfðu fengið þessi drög
til umsagnar, og þá var aðeins vika
eftir af auglýstum umsagnarfresti.
Þá kannaði ég hjá Landssambandi
iðnaðarmanna, Meistara- og verk-
takasambandi byggingarmanna,
Vinnuveitendasambandi Islands og
fleirum, hvort þeir hefðu fengið
drögin til umsagnar, en svo var
ekki. Ráðuneytið bætti að vísu úr
þessu eftir að samtökin óskuðu eft-
ir því að fá drögin til umsagnar.
Já, og þetta kallar ráðuneytið að
leggja sig í framkróka um að ná
víðtæku samstarfi við atvinnulífíð.
I þriðja lagi gerir ráðuneytið at-
hugasemd við þá fullyrðingu mína,
að tekið hafí 18 ár að koma í gegn
námskrá í stálskipasmíði og byija
að rekja málið frá breytingu reglu-
gerðar frá 1978, og að Iðnfræðslu-
ráð hafí samþykkt námskrá í
stálsmíði 1981. Hér verð ég enn
að fríska upp á minni ráðuneytis-
manna. Stálskipasmíði hófst á ís-
Jandi árið 1955 með smíði dráttar-
bátsins Magna. í apríl 1956 var
stofnað Félag dráttarbrauta, og í
aprfl 1965 var stofnað Félag drátt-
arbrauta- og skipasmiðja. Þessi
samtök hafa allt frá stofnun látið
sig menntun starfsmanna sinna
miklu varða. Árið 1967 sat ég fyrsta
fund minn með fulltrúum vinnuveit-
Sjóður 1, Vaxtarsjóður og
Valsjóður sameinaðir
Til eigenda Sjóðsbréfa 1, Vaxtarbréfa og Valbréfa.
Frá síðustu áramótum hefur Verðbréfamarkáður Islandsbanka hf. séð um
rekstur Valsjóðs, Vaxtarsjóðs og Sjóðs 1 sem voru upphaflega stofnaðir af
Verðbréfamörkuðum Alþýðu-, Utvegs- og Iðnaðarbanka. Ávöxtun sjóð-
anna og uppbygging hefur frá upphafi verið mjög svipuð. Því hefur nú verið
ákveðið að sameina þá frá og með næstu áramótum. Hinn sameinaði sjóður
mun heita, Sjóður 1 - Vaxtarbréf.
Líktog Vaxtar-ogValsjóðurmun hinn nýji sjóðursameinakosti skammtíma
og langtíma verðbréfasjóða vegna möguleika á innlausn án kostnaðar fyrstu
þrjá virka daga hvers mánaðar. Ennfremur hefur Vaxtarsjóðurinn haft ögn
rýmri heimildir til kaupaá verðbréfum en hinir, og verður þeim eiginleika
haldið fyrir Sjóð 1 - Vaxtarbréf.
Eigendur Valbréfa, Vaxtarbréfa og Sjóðsbréfa 1 munu því frá og með 1.
janúar 1991 njóta ávöxtunar og eiginleika hins nýja sjóðs. Ekki er þörf á að
koma með áður útgefin bréf til skráningar eða endurútgáfu hjá VÍB því að
gengi Vaxtarbréfa, Valbréfa og Sjóðsbréfa 1 verður áfram birt daglega.
Þeim sem það vilja er boðið að skipta á Sjóðsbréfum 1, Vaxtarbréfum og
Valbréfum og öðrum Sjóðsbréfum VÍB, eða innleysa þau, án kostnaðar
dagana 3. til 18.janúar næstkomandi. Nýjum viðskiptavinum bjóðum við að
eignast Sjóð 1 - Vaxtarbréf frá og með 3. janúar 1990.
Itarlegar upplýsingar um hinn nýja sjóð, stærð hans, eignaskiptingu og
áætlaða ávöxtun, liggja frammi í afgreiðslu VÍB. Þeim sem hafa einhverjar
frekari spurningar varðandi sameininguna, eiginleika hins nýja sjóðs eða
önnuratriði, ervelkomiðaöhafasamband viö ráðgjafaVIBíÁrmúIa 13aeða
í síma 91-681530.
framkva*mdastjóri
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
Guðjón Tómasson
„Er nokkur furða þó
mönnum bregði illa í
brún þegar þeir lesa
síðan í námskrá ráðu-
neytisins, að búið sé að
gjörbreyta námskránni
í vélsmíði og fleiri
málmiðnaðargreinum,
án þess að bera það svo
mikið sem undir þá að-
ila sem um eiga að fjalla
lögum og reglugerðum
samkvæmt.“
enda í málmiðnaðargreinum og
menntamálaráðuneytis um nauðsyn
þess, að endurskoða og aðlaga nám
í iðngreininni plötu- og ketilsmíði
að þörfum stálskipasmíðinnar. Árið
1968 efndu samtök launþega og
vinnuveitenda í málmiðnaðargrein-
um sameiginlega til ráðstefnu um
stöðu og þróun málmiðnaðar. Þar
voru m.a. flutt erindi um iðnmennt-
un og tækniþróun, samkeppnisað-
stöðu og skipulagsuppbyggingu
málm- og skipasmíðaiðnaðarins í
landinu. Til ráðstefnunnar var boðið
sitjandi ríkisstjórn, alþingismönn-
um og fulltrúum ráðuneyta. Þessi
ráðstefna er upphaf farsællar sam-
vinnu samtaka atvinnulífsins í
málmiðnaði um sín innri mál, og
þar á meðal menntun innan starfs-
greinanna.
í ályktunum frá þessari ráð-
stefnu er mikið fjallað um menntun
og tækniþróun innan málmiðnaðar-
ins, og þar er m.a. ítrekuð þörf
fyrir aðlögun náms í plötu- og ket-
ilsmíði að þörfum stálskipaiðnaðar-
ins. Baráttan fyrir námskrá í stál-
skipasmíði hófst 1967 og samþykkt
Iðnfræðsluráðs á námskrá í stál-
skipasmíði var gerð 1981, en það
er eins og mig minni að ráðuneyti
menntamála hafí ekki samþykkt þá
námskrá fyrr en 1985, en það kann
að vera rangt. Það breytir hinsveg-
ar engu um það, að jafn óviðunandi
er fyrir atvinnulífíð hvort breyting-
arnar taka 14 eða 18 ár. Styðji
menntun ekki við atvinnuþróun á
hveijum tíma, þá hrakar samkeppn-
ishæfni viðkomandi atvinnugreinar.
4.
í fjórða lagi telur ráðuneytið
óskiljanlegt að breytingar sem
gerðar voru á námskrám í málmiðn-
aðargreinum, eins og t.d. í vélsmíði,
skuli koma mér fyrir sjónir eins og
þruma úr heiðskíru lofti, þar sem
ég hafi einmitt sjálfur mælt með
þeim sem formaður Fræðsluráðs
málmiðnaðarins. Já þetta eru stór
orð, en þarna held ég að forsjár-
hyggju menntamálaráðuneytisins
hafí orðið fótaskortur í eigin flór.
Sannleikur málsins er sá, að á þeim
fundum sem fulltrúar Fræðsluráðs
málmiðnaðarins sátu, var aldrei
fjallað um breytingar á námskrá í
vélsmíði. Ég vil því i stuttu máli
rekja þá sögu sem ráðuneytið vitnar
til, svo lesendur geti séð hvernig
forsjárhyggjan snýr út úr hlutunum
og segir að svart sé hvítt.
Hið rétta er, að kennarar í málm-
iðnaðargreinum við Iðnskólann í
Reykjavík töldu sig ekki geta kennt
samkvæmt gildandi námskrá í
vélsmíði, sbr. bréf frá 26. okt. 1988.
Málinu var vísað til þáverandi
fræðslunefndar í vélsmíði. Fræðslu-