Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 15

Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 15 nefndin fékk þá Guðmund Guð- laugsson yfirkennara við Iðnskól- ann í Reykjavík og Nicolai Jónasson fræðslufulltrúa Fræðsluráðs málm- iðnaðarins til að freista þess að finna lausn á þessu vandamáli Iðn- skólans í Reykjavík. Þeir lögðu síðan tillögur sínar fyrir sameigin- legan fund fræðslunefndar í vélsmíði, þróunarhóp Iðnfræðslu- ráðs og fulltrúa frá samtökum vinnuveitenda og launþega í málm- iðnaðargreinum. Á þessum fundi, svo og fundi Fræðsluráðs málmiðnaðarins var ijallað um tillögur þeirra Guðmund- ar og Nicólais til lausnar á þessu vandamáli Iðnskólans í Reykjavík. Guðmundur Guðlaugsson yfirkenn- ari fullvissaði fundarmenn um að innihald útfelldra námsáfanga í námsbrautartillögu þeirra, miðað við gildandi námskrá, væru felldir inn í aðra námsáfanga. Aukið rými hefði fengist fyrir þá kennslu, þar sem lokaþáttur sérgreinaáfanga verður tekinn á sérstöku 60 stunda námskeiði á vegum Fræðsluráðs málmiðnaðarins. Að fenginni þeirri fullvissu, að ekki ætti að skerða kröfur gildandi námskrár, þá féllust samtök vinnumarkaðarins í málm- iðnaðargreinum á að gera þá tilraun sem tillaga þeirra var um. Tillaga þeirra tvímenninga er dagsett 11.11. 1988, og hljóðar upphaf hennar svo: „Hjálögð tillaga að námsbraut í vélsmíði er hugsuð sem tilraun og skref í átt að sam- þykktri námskrá, þar sem reynt er að þjóna nokkuð öllum ljórum sér- sviðum greinarinnar." Á áður- greindum fundum var aldrei einu orði á það minnst að breyta gild- andi námskrá, heldur aðeins að heimila framangreinda tilraun til að uppfylla gildandi námskrá. Eg kannast ekki við nein önnur gögn varðandi þetta mál, hvorki frá ráðu- neyti né Iðnfræðsluráði en bréf kennara dags. 26.10. 1988 og til- lögur Guðmundar Guðlaugssonar og Nicolai Jónassonar með fylgi- gögnum dagsett 11.11. 1988 um nám í vélsmíði. Er nokkur furða þó mér bregði illa í brún þegar ég les síðan í nám- skrá ráðuneytisins, að búið sé að gjörbreyta námskránni í vélsmíði og fleiri málmiðnaðargreinum, án þess að bera þær breytingar undir þá aðila, sem um eiga að fjalla lög- um og reglugerðum samkvæmt. 5. Menntamálaráðuneytið segir í lokin, að það fagni allri umræðu um menntamál, og þar er ég ráðu- neytinu sammála. Ég vil því í lokin grípa þetta tækifæri og óska eftir nokkrum upplýsingum frá mennta- málaráðuneytinu varðandi stjórnun, vinnuskyldu og launauppbyggingu til nokkurra starfa á framhalds- skólastigi. Spurningarnar eru eftirfarandi: 1. Að hve miklu leyti er kennari framhaldsskóla undir stjórn skólastjóra, og að hve miklu leyti undir stjórn ráðuneytisins? Hef- ur skólastjóri heimild til að setja kennara t.d. til námsgagnagerð- ar til að fylla upp í það sem á kann að vanta upp í venjulega 40 stunda viðveruskyldu á viku á vinnustað? 2. Hver yrðu árslaun verkmennta- kennara með 15 ára starfsaldur, próf frá handavinnudeild Kenn- araskóla íslands og með fullgild kennsluréttindi? Árs vinna hans við skólann væri sem hér segir: Kenndi fimm 40 mín. kennslu- stundir fyrir hádegi, og aðrar fimm 40 mín. kennslustundir eftir hádegi 5 daga vikunnar frá 1. sept. til 31. maí og að hann ynni 8 klst. á dag í skólafríum um jól, páska og allan júní- og júlímánuð að gerð námsgagna fyrir skólann. Hvernig skiptast launin milli dagvinnu og yfir- vinnu? 3. Hver myndu laun vélfræðings, sem hefði 15 ára starfsreynslu af rekstri hátæknistýrðra vél- kerfa, en engin kennslufræði- réttindi, ef hann ynni sömu vinnu og kennarinn í lið 2? Þessi dæmi hér að framan eru ekki tekin af handahófi. Þau eru tekin með hliðsjón af því, að í lögum og reglugerð um framhaldsskóla er lögð kennsluskylda á framhalds- skóla og iðnmeistara í atvinnulífinu. Framangreindur vinnutími er lág- marksvinnutími iðnmeistara með kennsluskyldu í atvinnulífinu sam- kvæmt kjarasamningum. Reglu- gerð leggur einfaldlega á þyngri kvaðir og meiri eftirlitsskyldu, þó ekki sé minnst á refsiákvæði á meistara í atvinnulífinu en skólana sjálfa, nema í þeim tilfellum þegar skólinn sjálfur er meistarinn. Svona til upplýsinga í lokin, þá vil ég taka fram, að ég stundaði sjálfur stundakennslu á framhalds- skólastigi í 13 ár. Ég hætti þeirri kennslu, þegar ég átti að fá hálf laun fyrir alla mánuði ársins fyrir eftirfarandi kennslu: Frá kl. 8 til 20 mín. yfir 9 fimm daga vikunn- ar, og frá kl. 8 til kl. 11 á laugardög- um í níu mánuði á ári, sem í raun voru ekki nema liðlega átta þegar tekið er tillit til jóla- og páskaleyf a. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri og starfar nú sem ráögjafi. Sveifla í Púlsinum ÁRAMOTAFAGNAÐUR með forskoti og svingi nefnist ára- mótagleði sem haldin verður á veitingastaðnum Púlsinum á laugardagskvöld. Fagnaðurinn verður í samvinnu Jassvakningar og Púlsins. Fram kemur íjöldi tónlistar- manna sem ætla að leika fram eft- ir nóttu jasstónlist. Meðal þeirra er Friðrik Theódórsson, söngur og bassi, Jón Möller, píanó, Guðmund- ur R. Einarsson, trommur, Tómas R. Einarsson, bassi. Þá koma fram ýmsir gestir eins og Þorleifur Gísla- son saxafónleikari, Hjördís Geirs söngkona auk fjölmargra annarra. STAÐGREIÐSLA Skatthlutfall og persónuafsláttur árið 1991 Aríðandi er að launagreiðendur kynni sér rétt skatthlutíall og skattafslátt 1991 Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt- hlutfalli og persónuafslætti veröa ný skattkort ekki gefin út til þeirra sem þegar hafa fengiö skattkort. Frá og með 1. janúar 1991 ber launa- greiðanda því að reikna staðgreiðslu af launum miðað við auglýst skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar og taka tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar sem tilgreint er á skattkorti launamanns. Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991 verða einungis gefin út til þeirra sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Á þeim verður aðeins tilgreint hlutfall persónu- afsláttar auk persónubundinna upplýs- inga um launamanninn en skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar kemur þar ekki fram. Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti og námsmannaskattkort útgefin 1988-1990. Skatthlutfall staðgreiðslu er 39,79% Á árinu 1991 verður skatthlutfall staðgreiðslu 39.79%. SkatthIutfa11 barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða síðar, verður 6%. Persónuafsláttur er22.831 kr. Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur persónuafsláttur verður þá 22.831 kr. Sjómannaafsláttur er 630 kr. Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður 630 kr. fyrir hvern dag sem maður telst stunda sjómannsstörf. Breytingar síðar á árinu Breytingar sem kunna að verða á upp- hæð persónu- og sjómannaafsláttar síðar á þessu ári verða auglýstar sér- staklega. Auk þess fá allir launagreið- endur sem hafa tilkynnt sig til launa- greiðendaskrár RSK orðsendingu um breytingar á fjárhæðum. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.