Morgunblaðið - 29.12.1990, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 29.12.1990, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 Ambergur Stefánsson, Borgamesi - Minning Fæddur 9. október 1897 Dáinn 19-. desember 1990 Hinn 19. desember sl. lést Arn- bergur Stefánsson á Dvalárheimili aldraðra í Borgarnesi. Með honum er genginn einn af frumheijum bættra samgangna hér á landi á framanverðri öldinni. Maður sem ruddi marga brautina í Borgarfirði og víðar um land, meðan vegir voru næsta frumstæðir og oftast aðeins slóðir fyrir hestvagna. Arnbergur var maður sem aflaði sér meiri tækniþekkingar en almennt á fyrstu árum bílaaldar hér á landi og til hans var leitað þegar þurfti að gera við eða stilla viðkvæman og vand- meðfarinn vélbúnað. Arnbergur Stefánsson var Skag- fírðingur. Hann fæddist í Sólheima- gerði í Akrahreppi 9. október 1897, yngstur barna þeirra Soffíu Guð- bjargar Björnsdóttur og Stefáns Péturs Magnússonar. Alsystkinin voru fjögur, Sveinn Jósef, Karólína, Guðbjörg og Arnbergur. Elst var Sigurbjörg. Faðir hennar var Björn Bjarnason bóndi á Löngumýri. Ekki varð úr hjónabandi hans og Soffíu Guðbjargar og þegar Sigurbjörg var á öðru ári hóf Soffía Guðbjörg bú- skap á Tyrfingsstöðum í Akra- hreppi. Hún réð til sín ráðsmann, Stefán Pétur Magnússon, og nokkr- um mánuðum síðar gengu þau í hjónaband. Það var 16. desember 1888. Vorið eftir flutti fjölskyldan að Sólheimagerði. Arnbergur var að sögn mjög glaðsinna barn og unglingur og sú lyndiseinkunn fylgdi honum alla tíð. Þungar sorg- ir urðu hlutskipti fjölskyldunnar er eldri sonúrinn, Sveinn Jósef, drukknaði í Hérðasvötnum aðeins 18 ára gamall en Guðbjörg systir hans lést á sóttarsæng, éinnig á Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. unga aldri. Hin systkinin urðu öll langlíf. Sigurbjörg giftist Jóni Hannessyni bónda í Deildartungu, Borgarfirði. Hún lést 97 ára. Kar- ólína giftist Sæmundi Eggertssyni frá Leirárgörðum. Hún varð 94 ára. Arnbergur kvæntist Þorgerði Hállmundsdóttur. Hann varð 93 ára. Arnbergur Stefánsson flutti úr Skagafirði ásamt móður sinni vorið 1914. Faðir hans var þá látinn. Hann dó 30. maí l913. Báðar syst- urnar fluttar úr héraðinu. Hart var í ári á Norðurlandi á þessum tíma. Vorið 1906 höfðu foreldrar Arn- bergs neyðst til þess að bregða búi og fara í húsmennsku. Heimilið á Sólheimagerði sundraðist. Eldri börnunum var komið til vinnu á heimilum sem betur voru sett á þessum erfiðu tímum. Eftir að Arnbergur og móðir hans komu í Borgarfjörð voru þau í Deildartungu hjá Sigurbjörgu og Jóni Hannessyni. Arnbergur stundaði nám í Hvítárbakkaskóla veturna 1917- 1919 og þótti afbragðs námsmað- ur. Veturinn 1918 gekk mikil plága yfir ísland, spánska veikin svokall- aða. Hvítárbakkaskóli breyttist á nokkrum vikum í sjúkrahús. Miklir kuldar þennan vetur juku á erfið- leika. Það varð til bjargar, að stutt var til læknis á Stafholtsey, en þar var Jón Biöndal læknir ávallt reiðu- búinn til hjálpar. Enginn sími var á bæjunum og varð sendimaður, oftast gangandi, að sækja lækninn, sem einnig kom gangandi í sjúkra- vitjanirnar. Ekki var lát á veikind- um í Hvítárbakkaskóla þennan vet- ur og flestir voru nemendur fölir og veiklulegir þegar skóla lauk um vorið. Um þetta leyti höfðu tíu bændur í Borgarfirði bundist samtökum um að kaupa vörubíl. Tilgangurinn var að flytja nauðsynjar úr Borgarnesi að Kljáfossbrú, en þangað náði bílfær vegur. Þeir leituðu til Arn- bergs, buðu honum að verða bílstjóri á þessum fyrsta vörubíl, sem kom í Borgarfjörð. Arnbergur tók þessu boði, fór til Reykjavíkur og lærði á bíl hjá Jóni Sigmunds- syni, sem þá rak litla bílaviðgerða- stöð í bakhúsi við Laugaveg 20. Jón hafði dvalið í Bandaríkjunum og unnið í Ford-bílaverksmiðjunum. Hjá þessum manni lærði Arnbergur nú bílaviðgerðir og bílstjórn. Sjálfur kenndi Jón nemendum sínum ýmis- legt bóklegt um bílvélar og gang- verk og annaðist einnig verklega kennslu á verkstæðinu, en hafði mann í vinnu við að kenna akstur- inn. Arnbergur tók bílprófið 21. maí 1920 og nokkru síðar ók hann vörubílnum sína fyrstu ferð frá Borgarnesi að Kljáfossbrú, þar sem eigendur bílsms, sem flestir voru bændur I Reykholtsdal, biðu hans. Vegirnir, sem lágu um þetta leyti frá Borgarnesi upp í Norðurárdal og um Kljáfossbrú í Reykholtsdal, voru frumstæðir. Arnbergur sagði svo frá síðar, að oft hefði bíllinn fest svo illa að allan varninginn varð að bera af honum, stundum þrisvar í ferð. Arnbergur ók vöru- bíl bændanna í eitt ár, en þá varð að samkomulagi að hann keypti af þeim bílinn og annaðist flutninga fyrir þá áfram. Hann fór enn til Reykjavíkur og ,tók þá meirapróf sem veitti réttindi til farþegaflutn- inga og til kennslu á bíl. Hann keypti einnig fólksbíl. Bílaútgerð og flutningar urðu aðalævistarf hans þaðan í frá. Arnbergur kvæntist 20. maí 1925 glæsilegri stúlku, Þorgerði Hallmundsdóttur frá Eskiholti. Hún fæddist 13. október 1899, dóttir Hallmundar Halldórssonar sem var ættaður úr Dalasýslu og Arnfríðar Sveinsdóttur, borgfirskrar ættar. Þorgerður hafði 12 ára gömul farið til vistar á heimili Jóns kaupmanns frá Svarfhóli og konu hans og vat' þar til heimilis uns hún giftist. Þau Arnbergur og Þorgerður eða Bergur og Gerða, eins og þau voru kölluð daglega, byggðu sér hús miðsvæðis í Borgarnesi, sem eftir að göt'uheiti og númer voru tekin upp er Berugata 10. Borgarnes vat' ungum systur- INNLAUSNARVERÐ VAXTAMÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FLB1985 Hinn 10. janúar 1991 er tólfti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 12 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiðimeð 5.000,-kr. skírteini kr. 487,00 Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteini kr. 974,00 ___________Vaxtamiöi með 100.000,- kr. skírteini_kr. 9.740,00_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1990 til 10. janúar 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2969 hinn 1. janúar 1991. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Inníausn vaxtamiða nr. 12 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1991. Reykjavík, 29. desember 1990 SEÐLAB ANKIÍSLANDS börnum Arnbergs frá Akranesi tnikið ævintýraland. Þarna var gott að koma og dvelja nokkra daga í senn. Arnfríður, móðir Þorgerðar, var í heimili hjá ungu hjónunum meðan henni entist aldur, mikil gæðakona og barngóð. Dóttur- dæturnar, Hulda, fædd 1927, og Elsa, fædd 1936, voru að sjálfsögðu augnasteinarnir. Þarna var mikið um að vera og bílarnir fjórir sem húsbóndinn átti og gerði út voru ungum dreng af Skaganúm stór- fenglegri en orð fá lýst. Bílstjórarn- ir voru sumir hvetjir heimilismenn um lengri eða skemmri tíma, svo að sjálfsögðu var mikið um að vera á mannmörgu heimili. Þá var vindmillan á hæðinni fyrir ofan húsið ekki síður merkileg. Áður en rafvæðing sveitanna varð að veru- leika varð að hlaða rafgeyma vegna útvarpstækjanna. Arnbergur smíðaði vindrafstöð og hlóð raf- geyma bænda og annarra gegn vægu gjaldi. Þá var ekki síður for- vitnilegt að litast um í bílageymsl- unni, sem var um leið verkstæði. Þarna fékkst húsbóndinn við margvísleg og flókin tæki sem kom- ið hafði verið í viðgerð og hann amaðist ekki við því þó að drengur- inn spyrði í sífellu til hvers þessir hlutir væru. Alltaf sama ljúf- mennskan og léttleikinn og skapið góða. Það leiðir af líkum að margir leituðu til Arnbergs til að læra á bíl. Hann var um áratugi mikilvirk- ur ökukennari í Borgarnesi og einn- ig á Akranesi. Bæði var um að ræða kennslu til minnaprófs og meirapt'ófs. Enda þótt kennslan væri aukastarf skipta nemendurnir hundruðum. Þegar bílaviðgerðir urðu iðngrein hlaut Arnbergur réttindi bílvirkja, enda flestum færari í greininni. Eftir að hann dró úr bílaútgerð starfaði hann á bílaverkstæði Kaup- félags Borgfit'ðinga og síðar í áhaldahúsi Borgarneshrepps. Eftir langan starfsdag fluttu þau Þor- gerður og Arnbergur át'ið 1987 úr húsi sínu við Berugötu 10 og gerð- ust vistmenn á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgarnesi. Þau voru lengst af við allgóða heilsu. Dætur þeirra, tengdasynir og barnabörn létu sér annt um þau og heimsóknir voru tíðar. Hulda er gift Þorvaldi Þor- valdssyni bifreiðarstjóra í Reykjavík. Þau eiga fjögur börn. Elsa er gift Gísla Sumarliðasyni skrifstofumanni í Borgarnesi og eiga þau tvö börn. Þau Arnbet'gur og Þorgerður bjuggu í farsælu hjónabandi þar til hún lést í apríl 1990. Það urðu því aðeins nokkrir mánuðir milli ferða þeirra hjóna yfir móðuna miklu. Arnbergur Stefánsson var að mörgu leyti mjög sérstakur maður. Hann var einn þeirra sem ruddi brautina fyrir þá sem eftir komu í fleiru en einu tilliti. Hjálpsemi hans og góðvild var sérstök. Hann hafði ungur fengið að kenna á harðræði lífsins á bernskuslóðunum, sem þrátt fyrir það voru honum og systr- um hans kærar. Hann hafði ungur gengið á vit tæknialdarinnar, sem þá var upp runnin á Islandi. Gérð- ist þá þegar sókndjarfur.liðsmaður og vann af djörfung og færni að tæknivæðingunni á samgöngusvið- inu. Hann var einn þqirra aldamóta- manna sem gladdist yfir bættum hag þjóðarinnar og lagði sitt pund á þá vogarskál án þess að spytja um daglaun að kveldi. Slíkra er gott að minnast. Við Mæzý sendum Huldu, Elsu og ijölskyldum þeirra samúðat'- kveðjur. Sveinn Sæmundsson Kveðjuorð: Jóhanna Birna Helga- dóttir, Fremstagili Fædd 6. júlí 1911 Dáin 21. desember 1990 Sælir eru hógværir því að þeir munu landið erfa. (Matt. 5.5.) Það er ekki að ástæðulausu að þetta orð hefur leitað á hugann eftir að við fengum að vita að hún Birna á Fremstagili hefði sofnað svefninum langa þann 21. desembet' eða í lok jólaföstu. Við áttum því láni að fagna að kynnast henni 5-6 síðustu æviár hennar, eða þann tíma við höfum verið búsett á Blönduósi. Yngsta dóttir okkat' var aðeins á fyrsta ári þegar við fórum í fyrstu heimsókn- irnar á Fremstagili, og þar sem við búum fjarri nánasta skyldfólki og öfum og ömmum var hjartahlýjan frá Birnu vel þegin, og fór Laufey Fríða okkar ekki varhluta af henni. Þrátt fyrir mikið barnalán og fjölda barnabarna og barnabarnabarna hafði Birna rúm í hjarta sínu fyrir lítinn telpuhnokka sem hafði ekki tækifærit il að heimsækja ömmur sínar í önn hversdagsins. Þegat' við hjónin höfum þurft að bregða okkur frá hvort sem um lengri eða skemmri tíma var að ræða, var ávallt jafn auðsótt að Laufey Fríða fengi að dvelja á Fremstagili, þar sem'hún fann sig örugga og vel- komna. Fyrir það langar okkur að færa þakkir. Birna var hljóðlát kona í marg- menni og bar ekki tilfinningar sínar eða skoðanit’ á torg, en í samræðum þar sem fáir voru saman komnir duldist okkur ekki að hún var greind kona og vitur. Hún átti lifandi trú, sem hún kappkostaði að lifa í sam- ræmi við. Störf sín vann hún af einstakri natni og alúð, og hvenær sem okkur bar að garði streymdi þessi hlýja frá henni sem mun ylja okkur áfram. Án þess að ætlast til þess ávann hún sér virðingu í hug- um okkar. Um kýrnar sínat' talaði Birna með sömu hlýjunni og væri ekki að undra þótt þær söknuðu handtakanna hennar. Birna kveið ekki ferðalaginu langa. Hún vissi að hún átti örugga heimkomu í nýju föðurlandi. Hún fékk að starfa fram á síðustu stund. Kallið kom óvænt og söknuður ást- vina hennar er sár. En um leið hljómar r eyru okkar fagnaðarboð- skapurinn um frelsara mannanna og fyrirheit um nýtt föðurland sem við öll megum erfa. Við þökkum Guði fyrir Birnu Helgadóttur og megi bænir hennar blessa alla ástvini hennar. Elín, Guðm. Ingi og dætur. Hinn 21. desember sl. andaðist á heimili sinu, Fremstagili í Engi- hlíðarhreppi, Birna Helgadóttir fyrrum húsfreyja þar. Birna var fædd 6. júlí 1911 á Kirkjubóli, býli er var skammt frá Víðimýri í Skagafirði. Foreldrat' hennar voru Helgi Guðnason er ættaður var úr Bárðat'dal og kona hans, Sigurbjörg Jónsdóttir ey- firskrar ættar. Birna var yngst ijög- urra alsystkina og átti auk þess þijú hálfsystkini yngri. Öll eru þessi systkini nú látin nema eitt. Móður sína missti Birna þriggja ára, en dvaldist áfrarn með föður sínum og seinni konu hans Maríu Björnsdóttur á nokkrum stöðum í Skagafirði til 14 ára aldurs, en fluttist þá til Akureyrar og dvaldist þar við ýmis störf, þar til hún kom sem kaupakona vorið 1935 vestur í Laugadal að Fremstagili til Hilm- ars Frímannssonar, er þá vat' bóndi á Fremstagili. Sem af líkum má ráða var ekki um skólagöngu hjá Birnu að ræða utan hins hefðbundna barnaskóla- náms. Á Akureyri dvaldist hún hjá frændfólki sínu og átti þar gott atlæti og góð ár, en að sjálfsögðu varð hún að fara að vinna strax og hún gat sér til framfæris, því snemrna mun það hafa orðið hennar takmark að sjá fyrir sér sjálf, halda sérstaklega vel á því sem aflaðist og gjat-nan frekar miðla öðrum en 1 -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.