Morgunblaðið - 29.12.1990, Side 42
HANDKNATTLEIKUR / NM STULKNA
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 29. DESEMBEIl 1990
ÍÞfémR
FOLK
■ BRYAN Robson hefur staðið
sig yel í síðustu tveimur leikjum
Manchester United og komið á
óvart, en hann hefur verið frá í
hálft ár vegna meiðsla. Alex
Ferguson segir að gengi United
standi og falli með fyrirliðanum.
■ JIMMY Ca.se og Russell Os-
man verða með Southampton í dag
gegn Tottenham, en þeir hafa ekki
leikið í síðustu leikjum vegna
meiðsla.
H ÞRIR sóknarmenn Norwich
eru meiddir og verða tæplega með
í Coventry. Það eru þeir Robert
Fieck, Robert Rosario og Lee
Power.
■ NIGEL Jemson og Steve
Hodge eru meiddir og missa senni-
lega af leiknum gegn Manchester
City.
■ WAYNE Clarke og Clive AI-
len verða tæplega með Manchester
City vegna meiðsla.
H PETER Shilton hefur. verið
meiddur en gerir allt sem hann
getur til að vera í marki Derby
gegn Everton í dag.
Tap h.efur ekki átt sér stað í
síðustu sjö heimaleikjum Co-
ventry gegn Norwich. Heimamenn
hafa unnið fimm, en tvisvar hafa
liðin gert jafntefli.
ÆT
Ottinn hjá Derby eykst með
hverri heimsókn á Goodison
Park. Everton hefur sigrað í þeim
þremur leikjum, sem liðin hafa leik-
ið þar á síðustu 10 árum og marka-
talan er 6:1.
Leeds hefur mætt Wimbledon
fjórum sinnum heima eða úti
síðan 1980, unnið tvisvar og gert
jafntefli í hinum leikjunum, en
markatalan er 10:4.
Fögnuður Chelsea var mikill eft-.
ir leikina gegn Luton í fyrra,
en Chelsea vann báða.
Róðurinn hjá Manchester City
hefur verið erfiður í Notting-
ham síðan 1980. Forest hefur unn-
ið fjóra leiki, tapað einum og einu
sinni var jafntefli.
E1 hefur ekki komið í veg fyrir
að QPR hefur unnið báða hei-
maleikina gegn Sunderland síðustu
10 árin.
Tottenham gerði jafntefli í Sout-
hampton í fyrra, sigraði 1988,
en hefur annars tapað í firhm af
síðustu sjö leikjum á The Dell.
Tipparar hafa oft lent í erfiðleik-
um með leiki í 2. deild, en Bri-
stol City og Middlesbro gerðu 1:1
jafntefli í Bristol í eina leiknum
síðan 1980.
Ian Liversedge, sjúkraþjálfari
Oldham, hefur ekki séð lið sitt
tapa á heimavelli Millwall í 10 ár.
Robson gerði átta mörk fyrir
Wolves í deildinni í fyrra, en
þá vann liðið WBA 2:1 í báðum
innbyrðis leikjunum.
ÍÞR&mR
FOLK
H JEAN Fernandez, þjálfari
Nice, hefur sagt upp eftir áskorun
frá stuðningsmönnum liðsins. „Allt
frá fyrsta leiknum hafa áhorfendur
vilja losna við mig,“ sagði Fern-
andez. Liðið byijaði illa en hefur
ekki tapað í síðustu sex leikjum
sínum og er nú í 14. sæti. Jean-
Noel Huck tekur við liðinu og
stjórnar því í næstu leikjum.
H ANDREAS Brehme kemur-
aftur inní lið Inter Mílanó fyrir
leik liðsins gegn Sampdoria á
morgun. Juventus mætir AC
Mílanó en tvo sterka leikmenn
vantar í liðin. Roberto Baggio
verður ekki með Juventus vegna
meiðsla og Marco van Basten er
ekki í liði AC Mílanó vegna veik-
inda.
Um helgina
HANDBOLTI
Tveir leikir verða í Flugleiða-
mótinu í handknattleik í Laugar-
dalshöll í dag. Kl. 15 leika Nor-
egur og Svíþjóð og kl. 17 ísland
og Japan. Mótinu lýkur á morg-
un, sunnudag. Þá leika Noregur
og Japan kl. 18 og ísland og
Svíþjóð kl. 20.
Norðurlandamóti stúlkna lýk-
ur í Kaplakrika í dag. Kl. 14
leika Danmörk og Svíþjóð og
kl. 16 Noregur og ísland.
KÖRFUBOLTI
Þriðji leikur Islands og Dan-
merkur á jafnmörgum dögum
verður í íþróttahúsi Vals að
Hlíðarenda í dag og hefst kl. 16.
FRJÁLSIÞRÓTTIR
í dag verður haldið innan-
hússmót í fijálsum íþróttum í
íþróttahúsinu á Selfossi. Ára-
mót er það kallað og hefst kl.
14. Képpt verður í stökkgreinum
og kúluvarpi.
Gamlárshlaup ÍR fer fram
mánudaginn 31. desember, 15.
árið í röð, og er öllum ogið.
Skráning byijar kl. 13 við ÍR-
húsið við Túngötu gegnt Landa-
kotsspítala og þar hefst hlaupið
kl. 14. Vegalengd er um 9,5 km,
en hlaupið verður eftir Túngötu,
Holtsgötu, Ánanaustum, Eiðs-
granda, Norðurströnd, 'Lindar-
braut, Suðurströnd, Bakkavör,
Skólabraut, Nesvegi, Ægissíðu,
Lynghaga, Suðurgötu og Tún-
götu, en endamark er á sama
stað og rásmark. Hlaupið verður
notað sem viðmiðun vegna vals
á HM í víðavangshlaupi, sem fer
fram í Belgíu í mars.
BORÐTENNIS
Borðtennismót Víkings og
Arnarborgar hf. verður haldið í
TBR húsinu á morgun, sunnu-
dag. 2. fl. karla byrjar kl. 11,
1. fl. kárla kl. 13, 1. fl. kvenna
kl. 14, mfl. karla og kvenna kl.
16. Keppt verður í punkta-
keppni. Þátttaka tilkynnist í s.
36862, 51775, 652618 eða
25268, en dregið verður í riðla
í herbergi BTI í dág kl. 11.
SIGLINGAR
Siglingafélagið Ymir heldur
síðasta mót ársins í Fossvogi í
dag kl. 10. Sigldar verða þrjár
umferðir ef veður leyfir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lok, lok og læs. Sænsku stúlkurnar Karin Nilsson og Jessica Carlsson ná að stöðva Hörpu Magnúsdóttur í leiknum í ga;r.
Skellur gegn Svíum
Þetta eru óvönduð vinnubrögð
og árangurinn eftir því. Við
vissum það fyrir mótið að við stæð-
um þessum þjóðum langt að baki
hvað varðar reynslu
og æfingu. Þess
vegna stefndum við
að því að sleppa við
skelli en það tókst
ekki,“ sagði Gústaf Björnsson,
þjálfari stúlknalandsliðsins, eftir
ellefu marka tap gegn Svíþjóð á
Frosti B.
Eiösson
skrifar
Island-Svíþjóð 14:25
íþróttahúsið Kaplakrika, Norðurlanda-
mót stúlkna í handknattleik, föstudag-
inn 28. desember 1990.
Gangur leiksins: 3:8, 3:10, 6:12, 8:14,
11:20, 14:25.
Mörk íslands: Halla M. Helgadóttir
8/5, Harpa Magnúsdóttir 2, Hulda
Bjarnadóttir, Herdís Sigui-bergsdóttir,
Auður Hei-mannsdóttir og Matthildur
Hannesdóttir eitt hver.
Varin skot: Hjördís Guðmundsdóttir
3, Fanney Rúnarsdóttir 3.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Svíþjóðar: J. Carlsson 7/4, Á.
Eiiksson 4, K. Nilsson 3, M. Ohlsson,
M. Norén, A. Lungdahl og K. Carlsson
2 hver, L. Ohlsson, C. Eriksson og U.
Karlsson eitt hver.
Varin skot: H. Gárlid 9.
lltan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Ole Strand og Björn Börre-
son, Noregi.
Danmörk-Noregur 24:12
Norðurlandamótinu í gær.
íslensku stúlkurnar höfðu í fullu
tré við þær sænsku fyrstu tíu mínút-
ur leiksins en eftir það fylgdi fimm-
tán mínútna leikkafli þar sem ekk-
ert gekk upp hjá íslenska liðinu —
það sænska skoraði sjö mörk í röð
og breytti stöðunni í 3:10.
I síðari hálfleiknum héldu
sænsku stúlkurnar uppteknum
hætti og það er því ljóst að liðið
mætir Dönum í hreinum úrslitaleik
KNATTSPYRNA
í dag. ísland og Noregur hafa bæði
tapað báðum leikjum sínum til
þessa og leikur þeirra kemur því
til að ráða því hvort liðið hafnar í
þriðja sæti á mótinu.
Eftir hinn slæma kafla í fyrri hálf-
leik virtust íslensku stúlkurnar aldr-
ei ná upp baráttu og varnarleikur
liðsins var mun slakari heldur en í
leiknum við Dani.
Bjarni þjálfar
Ómar spilar
Bjarni Jóhannsson þjálfar lið Grindavíkur í 2. deildinni í knattspyrnu
en ekki Ómar Torfason eins og sagt var í blaðinu fyrir skömmu.
Ómar leikur með liðinu og þjálfar yngri flokka en Bjarni sér um þjálfun
meistaraflokks.
Bjarni ságði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði orðið fyrir nokkr-
um óþægindum og strax sama morgun og fréttin birtist fengið tilboð frá
nokkrum liðum.
Ólafur Ólafsson, sem lék með Víkingi, hefur einnig gengið til liðs við
Grindvíkinga. Hann á að baki rúmlega 30 leiki í 1. deild.
GETRAUNIR 1 X 2
Fjórfaldur pottur
Þrjártil fjórar milljónir til skiptanna
POTTURIIMIM hjá íslenskum
getraunum verður fjórfaldur í
dag og hefur slíkt ekki gerst
fyrrá starfsárinu.
Hákon Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Getrauna, sagði
að gera mætti ráð fyrir þremur til
ljórum milljónum í pottinum eða
helmingi hærri upphæð en mest
hefur verið í haust.
I síðustu viku kom fram 41 röð
með 11 réttum leikjum og gaf hver
10.478 krónur í vinning. 10 réttir
gáfu 765 krónur.
Leikur vikunnar hjá Sjónvarpinu
verður viðureign Manchester Un-
ited og Aston Villa á Old Trafford.
United hefur aðeins tapað einum
af síðustu níu heimaleikjum gegn
Villa, tvisvar hafa liðin gert jafn-
tefli og markataln í leikjunum níu
er 25:9 heimamönnum í hag.
Staöan á ýmsum tímum Hálfleikur Urslit Mín spá 1 x 2 12 réttir
leikv. rf't'
Coventry City : Norwich City
■ Everton : Derby County
Leeds Utd. : Wimbledon
Luton Town : Chelsea
Manchester Utd. : Aston Villa □
Notth. Forest : Manchester City
Queens Park R. : Sunderland
Southampton : Tottenham
Bristol City : Middlesbro
Millwall : Oldham
Watford : Swindon Town
West Brom. Alb. : Wolves