Morgunblaðið - 11.01.1991, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991-
Námskeið um hjóna-
bandið haldin í Kirkju-
lundi og Bústaðakirkju
NÁMSKEIÐ um hjónabandið og
fjölskylduna verða haldin í
Kirkjulundi, félagsheimili
Keflavíkurkirkju, og í Safnaðar-
heimili Bústaðakirkju dagana
13.- 16. janúar næstkomandi.
Námskeiðið er i fyrirlestraformi
og verður mál fyrirlesarans,
Evind Froen, túlkað jafnóðum á
íslensku.
hjónabandið og fjölskylduna í Gler-
árkirkju á Akureyri, í Húsavíkur-
kirkju og Siglufjarðarkirkju.
Skráning á námskeiðið í Kirkju-
lundi er hjá Ragnari Snæ Karlssyni
í Keflavík, en þeir sem sækja vilja
námskeiðið í Bústaðakirkju geta
snúið sér þangað.
(Úr fréttatilkynningu)
Evind Froen
Námskeiðið í Kirkjulundi hefst á
sunnudaginn, 13. janúar og því lýk-
ur mánudagskvöldið 14., en í Bú-
staðakirkju verða námskeiðin hald-
in á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld í næstu viku.
Á námskeiðunum verður fjallað
um hjónabandið og fjölskylduna og
hvernig hægt er að styrkja samband
og auðvelda tjáskipti hjóna og koma
í veg fyrir misskilning og árekstra.
Evind Froen er hjónabands- og
fjölskylduráðgjafi frá Noregi. Hann
er kunnur kennari og fyrirlesari í
heimalandi sínu og víða um heim.
Hann hefur haldið námskeið um
Sýningar í Hafnarborg
í HAFNARBORG stendur ný yfir sýning á verkum eftir nemendur við
Flensborgarskóla i Hafnarfirði.
Sýningin var opnuð 20. des. sl. í
tilefni af útskrift nýstúdenta frá skól-
anum sem fram fór í Hafnarborg.
Hér er um að ræða sýnishom af
vinnu nemenda í myndmenntavali
síðasta áratuginn. Sýningin stendur
til 27. janúar nk.
í kaffístofu Hafnarborgar er sýn-
ing á verkum eftir tólf hafnfírska
listamenn. Þau eru: Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Elin Guðmunds-
dóttir, Gestur Þorgrímsson, Gunn-
laugur Stefán Gíslason, Janos
Probstner, Jóna Guðvarðardóttir,
Kristrún Agústsdóttir, Pétur Bjarna-
son, Rúna, Signður Erla Ágústsdótt-
ir og Sverrir Ólafsson.
í Sverrissal eru til sýnis verðlauna-
tillögur úr samkeppni er fram fór
um byggingu tónlistarskóla og safn-
aðarheimilis við Hafnarfjarðarkirkju.
Opnunartími í Hafnarborg er frá
kl. 14-19 alla daga nema þriðjudaga.
Kaffistofan er opin daglega frá kl.-
11-19.
Flugleiðir:
Farþegum í áætlunarflugi
fjölgaði um 7,6% árið 1990
HEILDARFJÖLDI farþega sem Flugleiðir fluttu í áætlunarflugi á
síðasta ári er áætlaður 736.681 en voru 684.541 árið 1989. Þetta
þýðir aukningu um 52.141 farþega eða 7,6% heildaraukningu í áætl-
unarfluginu. Heildartölur fyrir leiguflug Flugleiða á síðasta ári
liggja ekki endanlega fyrir en gert er ráð fyrir að fjöldi farþega
þar hafi verið svipaður og 1989 eða um 48.500. Heildarfarþegafjöldi
Flugleiða í fyrra var því um 785.000 farþegar.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir þetta vera bráða-
birgðatölur þar sem enn liggi ekki
alveg fyrir tölur desembermánaðar
sökum þess hversu stutt er liðið frá
áramótum.
Farþegum hefur íjölgað á öllum
þeim svæðum sem Flugleiðir fljúga
til. Á milli íslands og Norðurland-
anna er áætlað að 143.373 farþeg-
ar hafi flogið á síðasta ári með Flug-
leiðum en árið 1989 var samsvar-.
andi fjöldi 132.712. Milli íslands
og Norðurlandanna er aukningin
8%.
Milli íslands og annarra Evrópu-
landa en Norðurlandanna flugu í
fyrra 183.357 farþegar en voru
158.593 árið 1989. Þar er því aukn-
ingin 15,6%.
Farþegar í Norður-Atlantshafs-
flugi Flugleiða eru áætlaðir
153.154 á síðasta ári en voru árið
áður 140.999. í Norður-Atlants-
hafsfluginu er því aukningin 8,6%.
í innanlandsflugi Flugleiða voru
farþegar 256.797 en voru 1989
252.237. Þar er því aukning um
1,8%.
Einar sagði hlutfallslega mestu
aukninguna hafa orðið í fluginu til
Mið-Evrópu en einnig væri ánægju-
legt að farþegum fjölgaði nú á ný
í Norður-Atlantshafsfluginu en þar
hefði verið samdráttur árin á und-
an. Væri aukningin í því flugi að
miklu leyti til frá Norðurlöndunum
og sérstaklega áberandi í tengslum
við Baltimore-flugið frá Stokk-
hólmi.
Útlitið væri líka gott fyrir fyrri
hluta 1991 - bókanir næstu þrjá
mánuði eru 54% meiri en í fyrra.
Heildartekjur Flugleiða á síðasta
ári námu um tíu milljörðum króna
og gert er ráð fyrir að félagið muni
skila rekstrarhagnaði í fyrsta skipti
í fjögur ár.
Bestu þakkir sendi ég öllum þeim, sem heiÖr-
uðu mig í tilefni 60 ára afmœlis míns á gamlárs-
dag, með gjöfum og hlýjum kveðjum.
Guðmundur Kristinsson,
Bankavegi 2, Selfossi.
ENN
TILBOÐ
3000 steikur seldust í desember.
Það tryggir okkur hagstæðari innkaup
í janúar og febrúar. Pið njótið góðs af.
N AUTAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 690.-
SVÍNAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 650.-
uu/
jaríinn
Sparileiðir
Islandsbanka
fœra þér vœna ávöxtun!
Á síbastlibnu ári nutu sparifjáreigendur góbra vaxtakjara hjá íslandsbanka.
Ávöxtun Sparileibanna árib 7 990 var þessi:
Sparileiö '/
Sparileiö
Sparileiö
Sparileiö
>
>
Ársávöxtun
10,8%- 11,4%
11,1%- 12,0%
13,31%
10,17%
Raunávöxtun
3,4% - 3,9%
3,7% - 4,6%
5,75%
6,10%
Ávaxtaðu sparifé þitt á árangursríkan hátt.
Farðu þínar eigin leiðir í sparnaði!
ISLANDSBANKl
- t takt við nýja tíma!