Morgunblaðið - 11.01.1991, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 11. JANUAR 1991
Nei, ráðherra
Svar til Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðisráðherra
eftir Guðmund
Hallgrímsson
Á miðri jólaföstu fékk ég svar frá
ráðherra við grein er ég ritaði í lok
október sl. og birtist í Mbl. 3. nóv.
Ég er sammála mörgum sem komið
hafa að máli við mig um að greinin
sé vart sæmandi ráðherra. Hann
gerir mér upp orð og skoðanir sem
eiga ekki við nokkur rök að styðj-
ast. Ég tel mig tilneyddan að svara
ráðherra þar sem hann sakar mig
um að hafa farið með helber ósann-
indi. Þar á ráðherra við tilvitnun
mína í samtal mitt við Halldór Ásgr-
ímsson sjávarútvegsráðherra og
Finn Ingólfsson þar sem þeir héldu
að þeir gætu skírskotað til eigin-
hagsmuna minna varðandi tillögu-
flutning í lyfjaverðlagsnefnd. Ég lýsi
því hér með aftur yfir að ég stend
við fyrri fullyrðingu mína, enda er
hún sannleikanum samkvæm.
Ég hef í sambandi við áburð ráð-
herra spurt sjálfan mig aftur og
aftur hvort stjórnmál séu virkilega
komin á svo lágt stig að menn vilji
ekki lengur standa við orð sín ef þau
eru óþægileg fyrir viðkomandi. Ég
er í þeirri erfiðu aðstöðu að ég var
einn á móti tveimur þekktum stjórn-
málamönnum (annar reyndar þekkt-
ur af endemum) og hef því ekkert
vitni að samtali okkar. Guðmundur
Bjarnason segir að umrætt samtal
hafi verið trúnaðarsamtal. Mér var
ekki kunnugt um það og hveiju
þurfti að leyna eða tala um í trúnaði?
Undanfarið hefur Halldór Ás-
grímsson verið auglýstur sem pred-
ikari í kirkjum, enda^eflaust sæmi-
legur predikari. Sem slíkur og sem
fyrrverandi kirkjumálaráðherra veit
ég að hann þekkir vel 8. boðorðið.
Hvað raunverulega fór fram í sam-
tali okkar Halldórs verðum við báðir
að eiga við Guð og samvisku okkar
því ég geri lítið með umsögn Finns
Ingólfssonar. Kannski eiga hér vel
við hin fleygu orð Sókratesar þegar
hann sagði „Sá sem ætlar verulega
að taka málstað réttlætisins verður
að lifa embættislaus og skipta sér
ekki af stjómmálum". Ég tel að hinn
langi valdaferill Framsóknarflokks-
ins sé farinn að sljóvga siðgæðisvit-
und ráðamanna hans svo að þeir
þurfi að komast í ærlegt frí og fara
í rækilega naflaskoðun.
Siðblinda hvers?
Guðmundi Bjarnasyni verður
tíðrætt um störf mín í lyfjaverðlags-
nefnd sem eiga að hafa mótast af
siðblindu og eiginhagsmunapoti. Ég
get ekki gert að því þótt það setji
að mönnum hlátur þegar þeir heyra
framskóknarmenn væna aðra um
eiginhagsmunapot.
Ég skal í örstuttu máli gera grein
fyrir „meintu hagsmunapoti" mínu
í nefndinni. Ég hef setið u.þ.b. 6 ár
í lyfjaverðlagsnefnd og hef aldrei á
því tímabili stutt tillögu um hækkun
heildsöluálagningar, hinsvegar hef
ég stutt allar tillögur formanns
nefndarinnar um lækkun m.a. um
20% á árinu 1990. Ég tek hinsvegar
eftir því að Guðmundur Bjarnason
nefnir ekki þá staðreynd að eitt sinn
er ágreiningur varð í nefndinni ák-
vað ráðherra að halda óbreyttri
álagningu en ekki tækka hana eins
og hann gat gert. Hverra hagsmuna
var hann þá að gæta? Á síðasta
átakafundi í lyíjaverðlagsnefnd var
fulltrúi lyfjavöruhóps félags
íslenskra stórkaupmanna (sem ég
er félagi í) flokksbróðir Guðmundar
Bjarnasonar. Ég hef rökstuddan
grun um að þessi fulltrúi hafi rætt
Guðmundur Hallgrímsson
„Ég- get ekki gert að
því þótt það setji að
mönnum hlátur þegar
þeir heyra framsóknar-
menn væna aðra um
eiginhagsmunapot.“
við Halldór og Finn um störf lyfja-
verðlagsnefndar áður en hann kom
til fundar í nefndinni. Þessi fram-
sóknarmaður taldi af og frá að hægt
væri að lækka álagningu lyfja í
heildsölu og vildi óbreytta álagning-
arprósentu. Ég greiddi hinsvegar
atkvæði með lækkun, hvar voru þá
eiginhagsmunir mínir? Ráðherra op-
inberar í skrifum sínum vanþekk-
ingu á lögum þeim sem lyfjaverð-
lagsnefnd starfar eftir og í heild
skortir hann þekkingu á því hvaða
hlutverki einstakar nefndir og stofn-
anir innan ráðuneytisins gegna og
hvemig hann getur haft áhrif á störf
þeirra. Þar sem hann skilur ekki
núverandi skipulag setur hann fram
ónauðsynlegar tillögur um breyting-
ar. Ég veit að ráðherra ber mikið
traust til Almars Grímssonar apótek-
ara og fyrrum náins samstarfs-
manns síns. Almar segir í sérstakri
bókun í desember sl.: „Ekki hafa
komið fram haldbær rök um að leysa
lyíjaverðlagsnefnd af hólmi enda
hafa opinberir aðilar, þ.m.t. Trygg-
ingastofnun ríkisins, meirihluta í
nefndinni og öllum (leturbreyting
mín) ágreiningsatriðum vísað til úr-
skurðar ráðherra.“ Ég bið þig ráð-
herra og aðra óupplýsta ráðamenn
áð hætta hér með að halda fram
ásökunum um möguleika einstakra
nefndarmanna til að skara eld að
sinni köku í nefndinni.
Ríkiseinokun á
lyfjainnkaupum
í grein ráðherra kemur fram að
boðaðar eru nýjar aðgerðir í lyfja-
sölumálum, sem lítillega hafa verið
kynntar í fjölmiðlum. Þessar aðgerð-
ir og aðdragandi þeirra eru vissulega
efni í löng skrif og bíða því seinni
tíma. Eiginlega eru þær svo gamal-
dags og andstæðar nútíma við-
skiptaháttum að það þarf ekki að
hafa áhyggjur af því að þær komi
Mf. -Jjjjljjjl IW JJJ
jjD mmvm d|s kwm 1,01,*»,
KYNNING ■ HtllSUTgPIW
Betri líðan - betra lít
" rtBL
xsss^r*1*114'”
oglaugard.kl. 13-id-
■^55-
KelloggsALLBRAN375g—I
WEETABIX morgunverður 215 g - -—1Z8.- I-ÆKM
ALPEN músli 375 g-.___198.-
Þorska-ogufsalýsi. ...85..
KORNI hrökkbrauo.
RYNKEBY ávætosato újval. tómal og ep|a. verö frá 99.-
ASP0PÆ°&s# ' ....aöeins 65.-
Í^fiSminna.«5 9 rt, ....... aðems125,
MYLLW, myslubrauð. - ,
fflSwfs-jt ajft
sarÆjg:
Pomelos kr.kgKotasæla
Appelsínnr kr. kfl—-—•
Kiwi kr.
LÉTTNUÓLKII. 59.-
SaSSBSWiS
laugard.kl.11 -16
14 KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
AHKLIG4RDUR