Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 13
nokkurn tíma til framkvæmda. Ég
vii því aðeins benda á tvö dæmi um
vanþekkinguna og ösamræmið í.
áróðrinum og gjörðum ráðherra. I
boðuðum aðgerðum á að koma upp
afar fuilkomnu tölvukerfi, upplýs-
ingakerfi um lyfjanotkun sem m.a.
á að koma fyrir hjá hveíjum lækni
sem skrifar lyfseðil og gera þannig
einhverjum „stóra bróður" kleift að
fylgjast með lyfseðilskrifum allra
lækna. Sérfræðingur ráðherra hefur
áætlað að þetta kerfí muni kosta
100-200 milljónir (raunhæf tala er
sennilega mun hærri). Á sama tíma
og þessir menn tala um upplýsingas-
kort sem þessi „stóri bróðir" á að
leysa, hafna þeir beiðni deilda innan
ráðuneytisins um að kaupa- yfirlit
yfir sölu lyfja á íslandi (lyfjastati-
stik) er út kemur ársfjórðungslega
og kostar á bilinu 100-150 þúsund
krónur á ári! Að mínu mati þurfa
stjórnvöld ekki miklu meiri upplýs-
ingar en fram koma í umræddu yfir-
liti til að geta tekið allar nauðsynleg-
ar ákvarðanir í lyfsölumálum.
Annað dæmi: Því er haldið að al-
menningi að með boðuðum aðgerð-
um megi spara jafnvel hundruð millj-
óna kr. í lyfjakaupum með því að
stofna ríkiseinokunarfyrirtæki um
innkaup á lyfjum. Nýlega birtist út-
dráttur úr ársreikningum hins
þekkta fyrirtækis Pharmaco sem er
með ca. 55% af lyfjaheildsölunni í
landinu. Allir sem til þekkja vita að
fýrirtækið er vel rekið en samt er
hagnaður þess af 655 milljón kr.
veltu aðeins 28 milljónir kr. 1989
og stór hluti af þeirri upphæð er
fjármagnstekjur. Hver trúir því að
ríkisendurskoðunarfyrirtæki í sov-
éskum stíl muni skila viðlíka hagn-
aði þótt það fengi þau 45% sem eft-
ir eru. Samt reyna þeir að blekkja
fólk með því að 'segja að þeir geti
sparað hundruð milljón króna með
hinu nýja fyrirkomulagi!
I umræddum tillögum er gert ráð
fyrir fjölda nýrra embættismanna,
fjölmennu lyfjamálaráði, nýju emb-
ætti lyfsölustjóra í anda landlæknis-
embættisins, auk fyrrnefnds einok-
unarinnflutningsfyrirtækis í eigu
m.a. ríkissjóðs, Tryggingastofnunar
ríkisins, lífeyrissjóða, félagasamtaka
og reyndar er heildsölum boðið að
vera með! Þeir kunna það framsókn-
armenn að setja báknið á vetur.
Já, trúi því hver sem vill að slík
tillaga sjái dagsins ljós á árinu 1991.
Hér hefur sósíalisminn og trúin á
ríkisforsjá gengið aftur eins og
draugur, því flestir hafa staðið í
þeirri trú að þessi kerfi hafið gefið
upp öndina í Austur-Evrópu. Allar
þessar tillögur ganga í berhögg við
þróun í Evrópu þar sem lögð er
áherzla á frelsi í viðskiptum, einnig
með lyf. Þær tillögur ætti ráðherra
að glugga ofurlitið í áður en hann
byijar á skipulagsbreytingum sínum.
Það er vissulega kominn timi til
að skipta um stjórn í heilbrigðisráðu-
neytingu svo þjóðinni verði forðað
frá dýrkeyptum mistökum óupp-
lýstra manna.
Höfundur er lyfjafræðingur og
forstjóri Lyfja hf.
Næturgal-
iiui túlkaður
á táknmáli
SÝNING verður á leikritinu Næt-
urgalanum á Litla sviði Þjóðleik-
hússins laugardaginn 12. janúar,
fyrir félag heyrnarlausra. Þetta
verður í annað sinn sem sýningin
er leikin fyrir heyrnarlausa og
túlkuð um leið á táknmáli, en leik-
ritið var leikið fyrir nemendur
Heyrnleysingjaskólans fyrir
skömmu.
Ekki er vitað til þess að heil leik-
sýning hafi áður verið túlkuð á þenn-
an hátt hérlendis. Heyrnarlausir nutu
sýningarinnar mjög vel og hefur
Þjóðleikhúsið í hyggju að halda
áfram þar sem því verður við komið.
Sýningin á Næturgalanum á laugar-
daginn er sú 112., en leikritið hefur
nú verið sýnt í grunnskólum
Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar,
Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og
Akraness.
í næstu viku flýgur Næturgalinn
til Austurlands, þar sem leikið verður
fyrir nemendur 20 skóla í Austur-
landsumdæmi.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1991
13
Dulheimar bergsins
eftir Jón Jónsson
Fegurð hrífur hugann meira
ef hjúpuð er.
Svo andann grundar ótal fleira
en augað sér.
(H.H.)
Einhver kvað hafa sagt, að hin
mesta fegurð væri falin í hinu
smásæja, og víst er um það, að
meiri fegurð er í einu blómguðu
puntstrái en margan grunar, þótt
falin sé hún öðrum en þeim, sem
eftir leita með tæknilegri aðstoð.
Fæsta mun þó gruna fegurð þá, sem
falin er í myrkri neðanjarðar, sem
skaþaðist í eldglansi og ofsahita,
en eftir það er dulin í kulda og
eilífu myrkri. Nokkuð þarf því til
að lokka fram þá fegurð, sem hjúp-
uð er myrkri og aðeins „andann
grunar“. Í bókinni Hraunhellar á
Islandi, sem Mál og menning nú
sendir frá sér, en höfundur er Björn Jón Jónsson
Hróarsson, jarðfræðingur, hefur
tekist að varpa ljósi á bókstaflega
og í dýpri merkingu, þá huldu feg-
urð sem hraunhellar íslands hafa
að geyma.
Bókin er 174 blaðsíður, í henni
er 141 litmynd, sumar þeirra frá-
bærar, auk korta og skýringar-
mynda. Frágangur bókarinnar er
vandaður. Það má því segja að vel
sé af stað farið, því þetta er það
ég be?t veit, fyrsta ritið á íslensku
sem fjallar um þetta efni.
Rannsóknum á hraunhellum hef-
ur til þessa lítið verið sinnt hér á
landi og lítið um þá ritað, nema þá
helst Surtshelli. Guðmundur Kjart-
ansson, jarðfræðingur, er einn af
þeim fáu sem það hafa gert og það
er ánægjulegt að sjá að höfundur
bókarinnar hefur tileinkað Guð-
mundi þetta verk, sem eingöngu
ijallar um hella og hellarannsóknir.
Gott er að heyra góðs manns getið,
þótt horfinn sé hann af sjónarsviði.
I inngangi er farið yfir það, sem
hraunhellar kallast og þeir fiokkað-
ir eftir því hvernig þeir hafa mynd-
ast og þannig fengnir 7 flokkar.
Með því er lagður grunnur að
vísindalegri skilgreiningu og skipu-
lagningu. Ætla ég að það muni
vera, svo sem mest annað í þessari
bók, brautryðjendastarf. Þá er
sögulegt yfirlit yfir það, sem höf-
undur kallar hellamennsku, og er
þar drepið á það sem fyrst er kunn-
ugt um íslenska hella, viðhorf fólks
til slíkra myndana, þjóðtrú og sagn-
ir sem tengjast hellum, o.s.frv. Stutt f
ágrip af jarðsögu íslands fylgjr og
þar fellt inn í stærð nokkurra
stærstu hrauna. Mér telst til að í
bókinni sé lýsing á 153 hellum.
Megin kafli bókarinnar feilur
undir yfirskriftina hellaskrá og hef-
ur inni að halda lýsingu á fjölda
hraunhella víða um land ásamt frá-
sögum um hellaferðir og hellarann-
sóknir. Fjallað er um útbúnað til
hellaferða, en þann kafla hefði ég
kosið að hafa styttri og eitthvað á
þessa leið: Gerist félagar í Hella-
rannsóknafélagi íslands og farið
aðeins með sérfróðu fólki í hella-
ferðir. Ábyrgðarhluti er að um-
gangast hella.
Ég hygg að það verði ljósmynd-
irnar, sem nær allar eru í lit, sem
fyrst og fremst vekja áhuga al-
mennings á bókinni og efni hennar.
Þar er slegið „hlið að huliðsbyggð-
um“ og opnaður heimur, sem öðrum
en hellamönnum og þeim, sem dirf-
ast að feta í fótspor þeirra, var og
verður hulihn. Margar myndanna
eru frábærar og sýna fegurð þeirra
myndana, sem hellarnir hafa að
geyma en líka það að þar hefur
kunnáttumaður haldið á tækjum og
sem tekist hefur að laða fram þær
töframyndir, sem þögult myrkrið
hefur varðveitt um aldir. Hvað seg-
ist t.d. um krýnda kónginn í Híðinu
þar sem hann stendur ofurlítið álút-
ur með lítinn prins á vinstri hönd,
en frammi fyrir tveim vöxtulegum
dijólum, annar jafnvel með reiddan
arm? Er það hrokinn og rangsleitn-
in sem hreykir sér yfir hógværð-
inni? „Steingert fólk með bundnar
tungur." Hvernig svo sem á er lit-
ið, þá sýnist mér að höfundi hafi
tekist að gæða þennan undirheima-
lýð því lífi, sem hann á skilið og
hefur lengi mátt bíða eftir. Sérstæð-
ar eru ísmyndanir í hellum, síbreyti-
legar og hverfular, allt eftir aðstæð-
um. Samkvæmt heiti bókarinnar
fjallar hún um hraunhella og hefði
því átt að láta þar staðar numið.
Viðbætir um sjávarhella og íshella
hefði því mátt sleppa.
Ég verð að játa að umfjöllun
höfundar um Skaftáreldahraun og
þó sérstaklega um Landbrotshraun
er miður vel heppnuð. Fjarlægð frá
hringvegi að steinboganum (Öðul-
brúarárhelli) á Öðulbrúará er þó
um 10 km og „staðsetning" hans á
þeim stað er mér óskiljanleg. Ekki
er tímabært að gefa nafn helli, sem
ekki er fundinn og augljóst að höf-
und skortir staðþekkingu ef hann
telur að bijótast megi inn í hellinn
frá Krummagili á nokkrum klukku-
stundum.
Látum nafngift bíða síns tíma
og hugmyndina um loftpressuinn-
brotið frásegi ég mér með öllu. Öllu
verri er þó klausan um Landbrots-
hraun því þar er farið með rangt
mál. Það er fyrir allnokkru fullsann-
að að hraun það getur ekki verið
úr Eldgjá og er auk þess mörg
þúsund ára gamalt. Undarlegt
finnst mér ef ekki er hægt að taka
afstöðu í deilumáli þar sem annars
vegar er sett fram rökstudd 5 ald-
ursákvörðunum, sem í öllu falli
hljóta að dæmast hlutlausar niður-
stöður og hins vegar rakalausar
fullyrðingar. Þessum klausum báð-
um hefði að skaðlausu mátt sleppa.
Eigi ber segja það ekki veit. Nokkra
smámuni mætti einnig tína til svo
sem það að Leitahraun er ekki á
Hellisheiði og svolítið hljómar hjá-
kátlega að segja að hellir beri höfuð
og herðar yfir. Hefði ekki mátt
segja t.d. ber af?
Bókin er sögð vera árangur tíu
ára starfs. Má það vel heita góður
árangur. Sem heild er þetta hin
eigulegasta bók, fræðirit og lista-
verk. Lesmál og myndmál. Fræði-
mennskan fær sitt og þeir, sem
ráða yfir nokkru myndlæsi hafa í
hana mikið að sækja. Hún er ný-
mæli og á erindi til allra þeirra, sem
hafa hug á að kynnast sem flestum
þáttum hinnar fjölbreyttu náttúru
landsins. Hún sómir sér vel í hópi
þeirra verka sem kynna landið.
Útgefanda bera þakkir fyrir vand-
aðan frágang bókarinnar.
Höfundur erjarðfræðingur.
Bók um Rauða penna
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Rauðir pennar - bók-
menntahreyfing á 2; fjórðungi
20. aldar, eftir Örn Ólafsson.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í bókinni fjallar höfundur um þessa
áhrifamiklu bókmenntahreyfingu
sósíalista þar sem meðal annars
komu við sögu menn á borð við
Halldór Laxness, Stein Steinarr,
Halldór Stefánsson, Jóhannes úr
Kötlum og Kristin E. Andrésson.
Rakin eru stefnumið hreyfingarinn-
ar og tengsl þeirra við bókmennta-
sköpun höfundanna sjálfra, alþjóð-
leg tengsl eru dregin fram og mikil-
væg verk rædd. Órn hefur stuðst
við fjölmargar heimildir, þar á með-
al margvísleg gögn sem aldrei hafa
birst áður.“
Bókin er 286 blaðsíður, unnin í
Fjölritunarstofu Daníels Halldórs-
Örn Ólafsson
Honda
Accord
Sedan
2,0 EX
’91
Verðfrá 1.360 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁIAR
FYRIR ALLA
(H)
VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
TOPPTTLBOÐ
Kvenskór m/spennu
Litur: Svartur
Stærðir: 36-41
Verð: 2.495,-
Herra- og kvenskór
m/spennu
Litir: Brúnn, svartur
Stærðir: 36-46
Verð. 2.995,-
Kvenkuldaskór
Litir: Svartur, brúnn
Stærðir: 36-41
Verð:
2.995,-
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
Kringlunni 8-12,
s. 689212
Domus Medica,
Egilsgötu3,-s. 18519
Toppskórinn
Veltusundi 1, - s. 21212