Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 15
b
I
I
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991
Lýðræði innan verka-
lýðshreyfingarinnar
eftir Þóri Karl
Jónasson
Hvar er lýðræði innan verkalýðs-
hreyfingarinnar og hvað er eðlilegl
lýðræði innan verkalýðshreyfíngar-
innar? Robert Michel gerir ráð fyrir
að lýðræði geti ekki þrifist innan
stórra stofnana eins og t.d. stjóm-
málaflokka og verkalýðshréyfíngar.
í slíkum stofnunum hljóti alltaf að
ráða lítill hópur sérfræðinga, sem
búa yfir, þekkingu, fjármagni og
fjölmiðlum, sem gerir þeim kleift
að halda völdum lengi. Tilvitnun
lýkur.
Ef við skoðum þetta út frá verka-
lýðshreyfingunni á íslandi er óhætt
að segja að það sé ekki mikið lýð-
ræði í verkalýðshreyfíngunni. Ef
við skoðum forystu hreyfíngarinnar
þá hefur ekki átt sér stað mikil
endurnýjun innan hennar á undan-
fömum árum. Og ef einhveijir hafa
vogað sér að minnast á það em
þeir litnir hornauga, og sakaðir um
að vera byltingarsinnar og hafa
ekkert vit á hlutunum. Em þeir fáu
sem stjórna verkalýðshreyfingunni
svo hæfir að það geti það engir
aðrir? Auðvitað er það ekki svo, en
þegar sumir verkalýðsleiðtogar trúa
því sjálfír þá er eitthvað að. Við sem
stöndum að mótframboðinu í Dags-
brún trúum því ekki að í 4.000
manna félagi finnist ekki aðrir ein-
staklingar til að stjórna en þeir sem
stjórna því nú. Ekki hætti Dagsbrún
að vera til þegar Héðinn heitinn
Valdimarsson hætti að vera for-
maður félagsins eða þegar Eðvarð
Sigurðsson hætti. Málið er nefni-
lega það að það koma alltaf menn
í manns stað. Það á ekki að vera
neitt náttúmlögmál að verkalýðs-
foringjar eigi að sitja ævilangt. Eins
og málum er háttað er mjög erfítt
að bjóða fram í verkalýðsfélögum.
Þar hafa menn byggt sér múra,
múra til þess eins að geta setið sem
lengst, helst ævilangt. Það er ekki
nokkur vafi á því að verkalýðshreyf-
ingin stendur nú á miklum tímamót-
um, því ef okkur tekst að velta
stjóm Dagsbrúnar, þá fara ýmsir
að hugsa sér til hreyfings.
Lýðræðið er svo mikið í Dagsbrún
að við sem stöndum í framboðinu
þurtum að leita annað er við ætiuð-
um að fá aðgang að fundarsal fé-
lagsins. í 2. grein í lögum félagsins
segir orðrétt: „Tilgangur félagsins
er sá, að efla og styðja hag félags-
manna og menningu á þann hátt,
sem kostur er á, með því að ákveða
kaupgjald, vinnuskilmála, tryggja
öryggi við vinnu og stuðla að því
að verkalýðurinn taki sjálfstæðan
þátt í stjórnmálum lands og bæjar-
félags í samvinnu við önnur verka-
lýðsfélög, fyrir hagsmunamálum
verkalýðs, með því að skipuieggja
innan félagsins.“
Samkvæmt 2. grein félagslag-
anna ber félaginu að upplýsa fé-
lagsmenn sína um réttindi þeirra.
En hvemig eiga félagsmenn að vita
réttindi sín þegar enginn er til að
upplýsa þá, nema á lítinn hátt. Eiga
starfsmenn félagsins ekki að fara
út á vinnustaðina og halda fundi?
Ég veit ekki betur en fyrir örfáum
ámm hafi verið samþykkt aðhækka
félagsgjöld um 0,1% til að ráða
mann í það starf. Það er nefnilega
þannig að það geta ekki allir félags-
menn farið á skrifstofu félagsins
vegna vinnu sinnar.
I fyrrahaust var salur félagsins
lagaður og endurbættur, en hann
var ekki endurbættur fyrir okkur
hinn almenna félagsmann. Þegar á
Þórir Karl Jónasson
„Gerum drauminn að
veruleika, skiptum um
forystu í Dagsbrún,
fáum þar nýja menn
með nýjar hugrnvndir
og gerum félagið að
öflugri hreyfingu.“
reyndi fengum við ekki aðgang að
honum. Það er frekar einkenniiegt
að við sem stöndum að mótfram-
boðinu höfum allir gegnt trúnaðar-
15
störfum fyrir félagið, en samt er
okkur ekki treyst fyrir fundarsal.
Við þurfum ekki nema að líta í
launaumslög okkar til að sjá hvað
stjórn Dagsbrúnar hefur staðið sig
vel. Þessum mönnum ber að skilja
það að þeir eru í vinnu hjá okkur
og við getum sagt þeim upp þegar
við viljumm það. Það er tími til
kominn að stjórn Dagsbrúnar sé
sagt upp. Forysta félagsins er kom-
in úr sambandi við fólkið. Sumir
af þeim hafa setið inná skrifstofu
félagsins í áratugi. Ætli við sem
vinnum á smánartöxtum gerum
okkur ekki betur grein fyrir því
hvaða kröfur við eigum að fara
fram á.
Það er ekki á hverjum degi sem
boðið er fram í Dagsbrún. Við vilj-
um hvetja alla Dagsbrúnarmenn að
kynna sér stefnuskrá okkar og sjá
hvað við höfum uppá að bjóða. Við
munum reyna að heimsækja alla
vinnustaði í janúar þar sem Dags-
brúnarmenn eru og við viljum ein-
dregið hvetja alla sem borga í félag-
ið að gerasts aðalfélagar. Það er
hægt með því að fara á skrifstofu
Dagsbrúnar og fylla þar út inntöku-
beiðni eða hringja á skrifstofuna
og ,fá hana senda heim. Gerum
drauminn að veruleika, skiptum um
forystu í Dagsbrún, fáum þar nýja
menn með nýjar hugmyndir og ger-
um félagið að öflugri hreyfíngu eins
og stendur í 2. grein félagsins.
Höfundur er í trúnaðarráði
Dagsbrúnar og framkvæmdastjóri
mótframboðsins.