Morgunblaðið - 11.01.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 11. JANUAR 1991
19
Þættir úr sögu
Leikfélag's Reykja-
víkur á sýningu
í upphafi var óskin“ er yfirskrift sýningar, sem opnuð verður í
forsal Borgarleikhússins þann 11. janúar nk. Sýningin verður haldin
á vegum Borgarskjalasafns Reykjavíkur og Leikfélagsins.
Borgarskjalasafnið tekur við
skjölum og gögnum félaga, fyrir-
tækja og einstaklinga í Reykjavík
til varðveislu, auk skjala frá borgar-
stofnunum og borgarfyrirtækjum,
en sá hluti er að sjálfsögðu fyrir-
ferðarmestur. Safnið varðveitir
skjöl og gögn Leikfélags Reykjavík-
ur frá stofnun þess og er þar margt
skemmtilegt að finna, enda Leikfé-
lagið bráðum aldargamalt.
Á sýningunni verða tugir ljós-
mynda, aðallega úr innlendum og
erlendum verkum sem sýnd hafa
verið hjá Leikfélaginu *- allt frá
stofnun þess og fram til dagsins í
dag. Að auki verða sýnd gömul
handrit, leikskrár og ýmis forvitni-
leg skjöl. Væntanlega munu margir
sýningargesta þekkja gamalkunn-
ug andlit af sviðinu á myndum, og
til þess að kanna hversu vel menn
muna eftir stjörnum fyrri ára eða
leiksýningum, geta menn spreytt
sig á getraun - og þeir sem eru í
senn heppnir og glöggir gætu
hreppt verðlaun.
Sem fyrr segir verður sýningin
Fimm með
HlV-smit
FIMM einstaklingar greindust
með HVI-smit á árinu 1990 og
af þeim sem smitaðir voru
greindust þrír með alnæmi. Á
Islandi hafa samtals greinst sext-
án einstaklingar með alnæmi,
sem er lokastig sjúkdómsins og
eru tíu þeirra látnir.
• í frétt frá landlækni kemur enn
fremur fram að samanlagt nýgengi
sjukdómsins er 6,3/100.000 íbúa
og er kynjahlutfall HlV-smitaðra
og alnæmissjúklinga um það bil ein
kona fyrir hveqa sex til sjö karl-
menn. Fram að áramótum höfðu
samtals 59 einstaklingar á íslandi
greinst með smit af völdum HIV.
♦ ♦ ♦
Heba heldur
við heilsunni
Byrjum aftur
lí.janúar
Holl hreyfing
með tónlist
Þol - magi, rass,
læri
Teygjur - slökun
Trimm-
form
ineðferð
HEILSURÆKTIN HEBA
Auðbrekku 14, Kópavogi 1
símar 642209 og 641309.
opnuð 11. janúar, en þann dag árið
1897 var Leikféipg Reykjavíkur
stofnað og hóf starfsemi í Iðnó.
Sýningin verður opin almenningi,
en að auki opin leikhúsgestum fyrir
sýningar. Áætlað er að sýningin
standi í tvo mánuði. Aðgangur er
ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Doktor í rafmagnsverkfræði
Jón Atli Benediktsson
26. nóvember sl. varði Jón
Atli Benediktsson doktorsrit-
gerðina Statistical Methods and
Neural Network Approaches for
Classification of Data from
Multiple Sources við rafmagns-
verkfræðideild Purdue Univers-
ity í West Lafayette, Indiana í
Bandarikjunum.
Ritgerðin fjallar um tölvuúr-
vinnslu og flokkun stafrænna
myndgagna frá mörgum gagnalind-
um. Nýjar aðferðir til slíkrar flokk-
unar eru settar fram en hefðbundn-
ar flokkunaraðferðir eru ekki not-
hæfar við flokkun marglindagagna.
í ritgerðinni eru tölfræðilegar að-
ferðir þróaðar og jafnframt eru
tauganetslíkön notuð.
Jón Atli Benediktsson fæddist í
Reykjavík 19. maí 1960. Foreldrar
hans eru Katrín Jónsdóttir og Bene-
dikt II. Alfonsson kennari. Jón Atli
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1980 og prófi í
rafmagnsverkfræði frá Háskóla ís-
lands 1984. Frá 1984 til 1985 starf-
aði hann sem sérfræðingur á Upp-
lýsinga- og merkjafræðistofu Verk-
fræðistofnunar Háskóla íslands.
Hann var einnig stundakennari við
rafmagnsverkfræðiskor HÍ skólaár-
ið 1984-85. Frá haustmisseri 1985
stundaði Jón Atli nám við raf-
magnsverkfræðideild Purdue Uni-
Versity. Einnig starfaði hann á
rannsóknarstofu skólans sem helg-
uð er úrvinnslu fjarkönnunargagna
(LARS) frá 1985. Jón Atli lauk
MSEE-prófi frá Purdue University
1987. Hann er kvæntur Stefaníu
Oskarsdóttur stjórnmálafræðingi.
Krossgátubók
O.P. útgáfan hefur gefið út
Krossgátubók ársins 1991 með
krossgátum eftir Sigtrygg Þór-
hallsson, Hauk Svavars og Gísla
Olafsson.
í bókinni, sem er 67 blað’síður, eru
62 krossgátur og lausnir. Þetta er
áttunda krossgátubókin, sem Ó.P.
útgáfan gefur út. Hún er prentuð
hjá Prentstofu Guðm. Benedikts-
sonar.
ALLT AÐ 60% AFSLATTUR
______TEPPI - DÚKAR - FLÍSAR - MOTTUR - PARKET_____________
GÓLFTEPPÍ - 15-35% AFSLÁTTUR
Dæmi: Saxony kanadísk stofuteppi, Áður kr. 3.020,-
_____100% polyestert blettvarin,_________Nukr. 1.363,-_____
PARKET 15% AFSLÁTTUR
BOEN norskt gæðaparket, uppáhaldsparket allra fagmanna.
Dæmi: Eik, Dallas B. Áður kr. 3.286,-
- Nú kr. 2.793,-____
GÓLFDÚKAR - 15-20% AFSLÁTTUR
Aílir Armstrong-dúkar lækka um 15% á útsölunni. Armstrong þarf ekki að líma.
Dæmi: Boutique. Áður kr. 1.231,-
Nú kr. 984,-
FLÍSAR - ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR AF AFGAN GSFLÍ SUM
ítalskar og spænskar flísar í miklu úrvali. Öll hjálparefni og fagleg ráðgjöf.
Dæmi: Galaxy gólfflísar. Áður kr. 2.302,-
< Nú kr. 1.726,-
Tilboð á Höganás veggflísum 15x15 cm. Áður kr. 2.640,-
•____________________________________Nú kr. 1.395,-___
STÖK TEPPI, MOTTUR OG DREGLAR MEÐ 15-50% AFSLÆTTI
DÚKAR OG TEPPI:
Afgangar og bútar á heil herbergi og minni fleti með 35-60% afslætti.
Hafið málin með ykkur. Það sparar ykkur tíma og fyrirhöfn.
Þíð getið Sparað þúsundir á útsölunni hjá okkur.
KRfcDITKORT
EliURO
1 KRISPIT
EUOOCARO
rmwwíi
V/SA
Samkorf
Lego-kubbar
fyrir yngrí bömín
TEPBVBUÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950