Morgunblaðið - 11.01.1991, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991
HANDKNATTLEIKUR / SPANARMOTIÐ
Einar Þorvarðarson:
„Tekur
tíma“
Þetta var mjög köflóttur leikur,
en ég er sérstaklega ánægður
með Guðmund, og Valdimar var mjög
góður. Guðmundur fann sig ekki
gegn Júgóslövum, en eftir að hafa
komið á bekkinn og farið yfír stöð-
una, gekk honum betur. Núna var
hann með á nótunum frá bytjun,
■srþótt vörnin hafi ekki alltaf verið sam-
stíga,“ sagði Einar Þorvarðarson,
aðstoðarþjálfári landsliðsins. Beinu
hraðaupphlaupin nýttust, sem er af
hinu góða og spor í áttina, en heildar-
taktinn vantar enn og samvinnan er
stirð. En þetta eí ungt lið, þetta er
nýtt lið og þetta tekur tíma.“
Guðmundur Hrafnkelsson
„Mér gekk ágætlega með dauða-
færin, en átti að taka fleiri bolta utan
af velli. Ég er ánægður með hrað-
aupphlaupin, en í heildina spiluðum
við ekki nógu vel. Við gerðum of
mörg mistök, sérstaklega í fyrri hálf-
leik og var eins og leikgleðina vant-
aði. En þetta kemur, mér finnst við
vera með betra lið en Svisslendingar
^og það er undir okkur komið að Ijúka
dæminu.“
Valdimar Grímsson
„Það var tími til kominn að standa
sig. Ég fann mig mjög vei og er
ánægður með minn hlut, en það er
alltaf liðsheildinni að þakka, þegar
vel gengur. Vömin hefur alltaf verið
okkar aðalsmerki, en hún var ekki
nógu góð í fyrri hálfleik. Góð vörn
skilar sér í hraðaupphlaupum og þau
gengu upp.“
- Konráð Olavson
„Það er einhver lægð yfir liðinu,
en það er eðlilegt að það komi bak-
slag. Hins vegar áttum við að bæta
við, þegar forystan var orðin fimm
mörk. Þá ætluðum við að gera mörg
mörk í hverri sókn. Eins er þetta
vandamál hvað við fáum mörg mörk
á okkur á miðjunni, vandamál, sem
er einn helsti höfuðverkur okkar."
Sigurður Bjarnason
„Þetta kom hjá mér í lokin, en ég
er óánægður með nýtinguna. Hittnin
er bara ekki í lagi, þó ég nái að skapa
mér ágætis færi. Én ég gerði meira
en gegn Júgóslövum og við áttum
að sigra með mun nieiri mun, en
vonandi fylgjum við þessu eftir í
næsta leik, gegn Svisslendingum."
Þorbergur Aðalsteinsson
„Það er alltaf erfitt að ná upp
stemmningu gegn liði eins og því
spænska. Þetta eru ungir strákar og
menn freistast til að vanmeta þá, en
það má ekki ganga út frá því að
þessir drengir séu lélegir. Þeir eru
sterkir og Ortega er til dæmis fimmti
markahæsti leikmaðurinn í spænsku
deildinni.
Það kom mjög slæmur kafli í fyrri
hálfleik og í hléinu spurði ég strák-
ana hvað þeir væru -að hugsa. Við
tókum okkur sarnan í andlitinu og
þetta var mikið befrá eftir hlé. Það
er mikil breidd í hópnum, vörnin var
betri nú en síðast og þetta er að
koma — ég hef engar áhyggjur."
ÍÞRÓnW
FOLX
■ FYLKIR varð Reykjavíkur-
meistari í meistaraflokki karla í
innanhússknattspyrnu í vikunni, og
Valur í kvennaflokki. Fylkir vann
KR 5:4 í úrslitum. Aðeins tvö lið
mættu til leiks í kvennaflokki, Val-
ur og KR, og sigruðu Valsstúlkurn-
ar. Svo skemmtilega vill til að fyrir-
liðar liðanna, Ragnheiður
Víkingsdóttir og Anton Jakobs-
son, búa saman. Það hefur því
væntaniega verið glatt á hjalla á
heimili þeirra í vikunni.
Guðmundur Hrafnkelsson lék mjög vel gegn B-liði Spánvetja í gær. Hann
varði hvað eftir annað einn á móti einum, þaraf fjögur vítaköst.
Guðmundur lok-
aði á Spánverja
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson
var öryggið uppmálað, þegar
ísland vann U-21 lið Spánar
28:22 á Spánarmótinu í gær-
kvöldi. Hann varði hvað eftir
annað einn á móti einum, þaraf
fjögur vítaköst. Hraðaupp-
hlaupin nýttust vel, horna-
mennirnir Valdimar Grímsson
og Konráð Olavson voru í mikl-
um ham og öruggur sigur í
annars köflóttum leik var aldrei
íhættu.
Þorbergur Aðalsteinsson ákvað
að láta yngri mennina spreyta
sig og lét þá ljúka dæminu. Birgir
kom aðeins inná, þegar íslendingar
voru einum ileiri og
Einar lék í vörninni
fyrir Stefán, en
Kristján, Jakob,
Bjarki, Patrekur og
á bekknum allan
Steinþór
Guðbjartsson
skrifartrá
Madríd
Hrafn sátu
tímann.
Miðjan vandamál
Eins og gegn Júgóslövum var
samvinnan ekki nógu góð á miðj-
unni í vörninni. Spánverjarnir gerðu
sex mörk, þaðan sem íslendingar
eiga að vera sterkastir fyrir, og tvö
af línunni. Samt komu ágætis kafl-
ar inni á milli og var allt annað að
sjá til Júlíusar en í fyrsta leik. Byij-
unin í báðum hálfleikjum var mjög
góð og liðið fékk aðeins á sig átta
mörk í seinni hálfleik, sem lofar
góðu.
Guðmundur var ávallt vel á verði
og íslendingar fengu ljölmörg tæki-
færi til að sigra með enn meiri
mun, en gáfu eftir, bæði í stöðunni
9:4 og 22:17. Þá var óðagotið mik-
ið í sókninni og heimamenn fengu
fimm ódýr hraðaupphlaup. Sérstak-
lega var miðkaflinn fyrir hlé slæm-
ur, en þá var tækifærið til að bijóta
Spánveijana algjörlega niður.
Sigurður á réttri leið
Sigurður Bjarnason var lengi í
gang, en undir lokin sýndi hann
hvers hann er megnugur, gerði þijú
mörk í röð og átti línusendingu á
Stefán, sem innsiglaði sigurinn á
síðustu sekúndu. Skotnýting leik-
stjórnandans var samt ekki nógu
góð og bráðlætið of mikið. á stund-
um.
Valdimar Grímsson og Konráð
Olavson fóru á kostum. Guðmundur
var vel vakandi fyrir hraða þeirra
og þeir voru óragir í hornunum.
Júlíus var mun ákveðnari í sókn-
inni en gegn Júgóslövum, en getur
meira. Stefán Kristjánsson, sem
kom ekkert inná gegn Júgóslövum,
gerði góða hluti og lét boltann
ganga og Einar Sigurðsson stóð
fyrir sínu í vörninni. Geir Sveinsson
nýtti færin, en fékk úr litlu að moða.
Liðið hefur ekki verið sannfær-
andi frá byijun til enda í fyrstu
tveimur leikjunum. Það skortir ein-
beitingu allan tímann og strengi
vantar til að ná nauðsynlegri sam-
,vinnu.
Ísland-Spánn B 28:22
íþróttamiðstöðin í Aleobendas, Spánarmótið
í handknattleik, fimmtudaginn 10. janúar
1991.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1 3:3, 7:3, 7:4,
9:4, 9:9, 10:11, 12:12, 14:12, 15:14, 15:15,
19:15, 21:16, 22:18, 26:20, 28:22.
Island: Valdimar Grímsson 9, Konráð Olav-
son 6/1, Sigurður Bjarnason 5, Stefán
Kristjánsson 3, Geir Sveinsson 3, Júlíus
Jónasson 2. Kristján Arason, Patrekur Jó-
hannesson, Bjarki Sigurðsson, Jakob Sig-
urðsson, Einar Sigurðsson, Birgir Sigurðs-
son.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15/4
(þar af 5/2, er boltinn fór aftur til mót-
heija), Hrafn Margeirsson.
Utan vallar: 10 mínútur
Mörk Spánar B: Olalla 9/1, Ortega 4,
Campos 3, Cruz 2, Femandez 1, Valenzu-
ela 1/1.
Varin skot: Perez 5, Zarate 3.
Utan vallar: 4 mínútur.
Áhorfendur: Um 300.
Dómarar: Amigo og Berridi frá Spáni.
SPÁNARMÓTIÐ
SLAND - JÚGÓSLAVÍA SPÁNN A- SPÁNNB SLAND - SPÁNNB SPÁNNA- SVISS ..23: 26 ..31:21 ..28: 22 ..27:22
Fj. leikja U T Stig Stig
SPÁNNA 2 2 0 58: 43 4
ÍSLAND 2 1 1 51: 48 2
JÚGÓSLAVÍA 1 1 0 26: 23 2
SVISS 1 O 1 22: 27 O
SPÁNN B 2 0 2 43: 59 0
KORFUKNATTLEIKUR
Svar KKÍ við opnu bréfi KKRR
Varðandi ákvörðun okkar um að
' veita frest vegna leikmanns UMF’G
þá mótaðist sú ákvörðun okkar af
eftirfarandi:
Erlendir leikmenn eru alfarið
undir stjórn þess félags sem þeir
leika með. KKÍ hefur engan rétt til
þess að nota slíkan leikmann án
heimildar félagsins. Þarna hefur
tekist gott samstarf hingað til og
félögin sýnt þá velvild að lána leik-
menn sína. Er þá bæði um leiki
eins og stjörnuleik, sem er fyrst og
fremst til að setja skemmtilegan
svip á körfuknattleikinn og jafn-
framt til fjáröflunar fyrir KKÍ.
Einnig hafa þeir verið til mikils
gagns við undirbúning landsliðsins,
þ.e.a.s. að skapa lið sem veitt getur
landsliðinu verðuga keppni, sem
undirbúning vegna komandi lands-
leikja. Þess konar leikur var á Sauð-
árkróki á þessum tíma. Akvörðunin
var því tekir. með það í huga að
áfram verði gott samstarf við félög-
in varðandi notkun erlendra leik-
manna. Við veltum jafnframt fyrir
okkur hvort landsliðsmenn myndú
sitja við sama borð. I okkar huga
er það ekki. Landsliðsmanni ber að
leika með landsliði þegar þess er
óskað og hann hefur persónulega
möguleika á að verða við því. Hann
er á hveijum tíma_ leikmaður
tveggja liða innan KKÍ, félagsliðs-
ins og landsliðsins. Þess vegna yrðu
slíkir hlutir skoðaðir með það í
huga.
Varðandi spurninguna um
stjörnuleik KKÍ og ef einhver myndi
slasast þar þá var það meðal ann-
ars hlutur sem við höfðum í huga.
Ef leikmaður myndi siasast þar í
örfáa daga myndum við leitast við
að fresta leik eða leikjum. Ef við-
komandi slasast þannig að hann
geti ekki leikið fljótlega myndum
við gefa liðinu ákveðinn tíma til að
ná sér í annan leikmann.
Varðandi reglugerð um móta-
nefnd KKÍ, þá er það rétt að sam-
kvæmt lögum KKÍ ber að hafa slíka
nefnd starfandi. Þetta mál hefur
verið tekið upp á formannafundum
KKÍ og á síðasta ársþingi og félög-
in beðin um að tilnefna menn í
mótanefnd. Á þessum fundum hafa
félögin óskað eftir því að mótanefnd
væri undir ábyrgð stjórnar KKI.
Stjórn KKÍ mun fagna því þegar
félögin verða tilbúin að tilnefna
menn í slíka nefnd og værum við
tilbúnir að boða til formannafundar
strax ef þessi ósk kæmi upp á borð
til okkar. Við yrðum kátastir allra
ef slík nefnd yrði skipuð.
Varðandi það að ÍBK myndi leika
3 leiki á 7 dögum, þá*viljum við
benda á eftirfarandi: Það er rnjög
algengt að lið leiki 3 leiki á 7 dög-
um og t.d. í janúar er Þór að leika
sinn 3. leik á 7 dögum, þegar liðið
leikur við ÍBK. UMFG er að leika
sinn 3. leik eftir leikinn við ÍBK,
gegn Tindastóli sem 3. leik á 7
döguni og 4. leikinn 2 dögum seinna
gegn Val, þ.e.a.s. 4 leikir á 9 dög-
um. Þetta eru örfáar ábendingar
um að mjög almennt er að lið leiki
3 leiki á 7 dögum.
Að lokum, stjórn KKRR segir í
bréfi sínu að það sé ekkert óeðlilegt
að UMFG fari fram á frestun leiks-
ins en sætta sig ekki við ákvörðun
formanns og framkvæmdastjóra
KKÍ.
Þessu til að svara þá er það verk-
svið stjórnar KKI að leysa úr beiðn-
um sem til þeirra berast. í þessu
tilviki erum við að vinna verk sem
kosin mótanefnd ætti að vinna. Það
hefur verið ósk félaganna að við
sinnum þessari ábyrgð og rök þeirra
hafa verið að verkið hafi verið vel
unnið af okkar hálfu.
í þessu tilviki byggist ákvörðun
okkar, eins og aðrar, á að sýna
sanngirni í ákvarðanatöku. í þessu
tilviki bar lið skaða af því að iána
leikmann til KKÍ, sem þeim bar
engin -skylda til að lána til okkar.
Það var mat okkar að þetta ætti
ekki að skaða ÍBK miðað við það
keppnisfyrirkomulag sem leikið er
eftir. Þeir sitji við sama borð og
önnur félög og eru ekki að leika
fleiri leiki en almennt gerist.
Við vonumst til að ósk komi um
formannafund, þar sem mótanefnd
yrði aðal umræðuefnið og tilnefn-
ingar kæmu frá félögunum um
mótanefnd.
Reykjavík 10. janúar
1991.
Kolbeinn Pálsson formað-
ur KKÍ.
Pétur Hrafn Sigurðsson
frainkvæmdastjóri KKÍ.