Morgunblaðið - 11.01.1991, Síða 44
- svo vel
sétryggt
SJOVAooALMENNAR
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Laxalón óskar eftir
gjaldþrotaskiptum
STJÓRN fiskeldisstöðvarinnar Laxalóns hf. hefur farið fram á að
fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta, en beiðni um það var lögð
fram í gær hjá skiptaráðandanum í Arnessýslu þar sem fyrirtækið
er skráð. Auk eldisstöðvar á Laxalóni við Vesturlandsveg á fyrirtæk-
ið eldisstöðina Fiskalón í Ölfusi og kvíaeldisstöð í Hvammsvík í Hval-
firði, en þar hefur það einnig starfrækt golfvöll og veiðihús.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ákváðu eigendur Laxalóns
hf. að óska eftir gjaldþrotaskiptum
í framhaldi af því að íslandsbanki
gjaldfelldi nú í vikunni 83 milljóna
kr. afurðalán til fyrirtækisins, en það
hafi verið gert vegna þess að trygg-
ingum á fiski í kvíunum í Hvalfirði
hafði verið sagt upp.
Heildarskuldir Laxalóns nema
samkvæmt heimildum blaðsins rúm-
lega 300 millj. kr., en samkvæmt
mati ísiandsbanka eru eignir tæp-
lega 210 milljóna kr. virði miðað við
arðsemi og staðgreiðslu. Því til við-
bótar er fiskur metinn á um 80 millj^
ónir. Auk Islandsbanka eru Fram-
kvæmdasjóður og Mjólkurfélag
Reykjavíkur helstu lánardrottnar.
Heimild kennara
til yfirvinnu aukin
HÁSKÓLARÁÐ ákvað í gær að lyfta yfirvinnuþaki fástráðinna kenn-
ara við Háskóla Islands úr 60 stundum á mánuði í 100 stundir. Þá er
í athugun innan háskólans hvernig unnt er að fækka námskeiðum eða
samnýta þau á milli deilda. Samtök stundakennara við HÍ hafa beint
þeim tilmælum til félagsmanna að þeir taki ekki að sér kennslu á
vorönn vegna yfirstandandi kjaradeilu þeirra og ríkisins.
„Við gerum hvaðeina sem í okkar
valdi stendur fil að tryggja að starf-
semi háskólans verði með sem eðli-
legustum hætti,“ sagði Sigmundur
Guðbjarnarson, háskólarektor. „Það
fyrsta sem rætt var um var að reyna
að fá fastráðna háskólakennara og
sérfræðinga háskólastofnana til að
taka að sér meiri kennslu. Til þess
að svo megi verða urðum við að lyfta
svokölluðu yfirvinnuþaki sem hefur
verið á kennslu og rannsóknum, úr
60 stundum í 100 stundir fyrir sann-
anlega unna yfiivinnu," sagði Sig-
mundur.
Hann sagði að ekki yrði ljóst fyrr
en eftir hálfan mánuð hve margir
stundakennarar telja sér ekki fært
að kenna á vorönn. Stundakennarar
við háskólann eru yfir eitt þúsund á
vormisseri en gm sex hundruð þeirra
kenna tiltölulega lítið.
Á fundinum var einnig samþykkt
að fram skuli fara hæfnismat fyrir
stundakennara og er undirbúningur
að því hafinn. „Ætlunin er að
stundakennarar verði flokkaðir eftir
hæfni og ágæti í starfi á sínu fag-
sviði og í kennslustörfum. Það verð-
ur þá hægt að umbuna þeim eitt-
hvað meira sem skara fram úr,“
sagði Sigmundur.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Skammdegisstemmning frá Snæfellsjökli
Bilun í hjólabón-
aði Fokker-vélar:
Farþegi
stöðvaði
vélina fyr-
ir flugtak
BILUN varð í hjólabúnaði á
Fokker Friendship-flugvél Flug-
leiða á flugvellinum á Höfn í
Hornafirði á miðvikudag. Þegar
vélin var að aka út á flugbraut-
ina til flugtaks kom í ljós að slátt-
ur var á öðru vænghjólinu. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins var það farþegi sein sá að
hjólið titraði óeðlilega og gerði
viðvart. Var vélinni snúið við og
ákveðið að senda aðra vél til
Hornafjarðar eftir farþegunum
en viðgerðarmenn fóru austur
og gerðu við hjólið. Var vélinni
flogið til Reykjavíkur um kvöld-
ið.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa, höfðu gengjur og ró
brotnað í stýringu á innri hluta
dempara hjólsins. Sagði Einar óljóst
hvaða afleiðingar þetta hefði getað
haft ef vélin hefði farið í loftið.
Loftferðaeftirliti var tilkynnt um
atvikið og verður því send skýrsla
um bilunina.
Truflanir á spennu á Stór-Reykjavíkursvæðinu;
Landsvirkjun stöðvi sölu
á orku til Stálfélagsins
- segir rafveitusljóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur
AÐALSTEINN Guðjohnsen, rafveitusljóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, segir að Landsvirkjun verði að stöðva raforkusölu til
Islenska stálfélagsins hf. þar til fundist hefur lausn á ójafnri spennu
sem íbúar í syðri byggðum Breiðholts, Garðabæ og Hafnarfirði hafa
mátt búa við.
Fyrst varð vart við þessar trufl- I urnar í Reykjavík og Hafnarfirði
anirsíðastliðiðhaustoghafarafveit- | fengið margar kvartanir vegna
þessa. Spennutruflanir hafa jafnvel
komið fram á Suðurnesjum. Að sögn
Aðalsteins er aðallega um að ræða
trufianir á ljósum í húsum á þessum
svæðum en hins vegar hefðu ekki
borist kvaitanir um tjón.
Stálfélagið kaupir raforku beint
Borgardómur Reykjavíkur:
Greiðslur frá vinnuveitandanum
skerða ekki rétt til fæðingarstyrks
BORGARDÓMUR Reykjavíkur hefur tekið til greina kröfur Láru
V. Júlíusdóttur, lögfræðings ASÍ, í máli sem hún höfðaði persónu-
lega gegn Tryggingastofnun ríkisins til að krefjast þess að stofnun-
in skerði ekki rétt hennar til fæðingarstyrks og fæðingardagpen-
inga í fæðingarorlofi enda þótt vinnuveitandi hennar, Alþýðusam-
band íslands, hafi samið um það við hana að hún skyldi njóta
óskertra tekna í fæðingarorlofi, með því að skuldbinda sig til að
greiða það sem vantaði á greiðslur Tryggingastofnunar til að hún
nyti fullra launa.
Lífeyrisdeild Tryggingastofnun-
ar ríkisins hefur ekki talið þær
konur eiga rétt til greiðslu frá
Tryggingastofnun í barnsburðar-
leyfum sem njóti einhverra launa
frá vinnuveitanda sínum. í dóms-
málinu lágu ekki fyrir upplýsingar
um fjölda þeirra kvenna sem synj-
að hafði verið um greiðslur á þess-
um grundvelli né heldur hversu
lengi Tryggingastofnun hefur við-
haft þessa aðferð en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins varðar
hún hagsmuni og réttindi ljölda
kvenna á almennum vinnumarkaði
sem samkvæmt kjarasamningum
eiga rétt til launa frá vinnueitend-
um í fæðingarorlofi.
Dómurinn féllst á það með Láru
V. Júlíusdóttur að hún hefði ekki
notið óskertra launa þrátt fyrir
fyrrgreindan samning við vinnu-
veitanda sinn. Þótt ASÍ hafi lagt
út fyrir óskertum launum meðan
á barnsburðarleyfi stóð liafi verið
samið um að greiðslur þær sem
Lára fengi frá Tryggingastofnun
j-ynnu til ASI sem endurgreiðsla.
Þá taldi dómurinn að Lára teldist
hafa lagt niður launuð störf, en
það er skilyrði fyrir greiðslu fæð-
ingardagpeninga, þrátt fyrir að
hún hefði á tímabilinu sinnt
ákveðnúm þáttum starfs sine, með-
al annars mætt á fundum í stjórn-
skipuðum nefndum, enda væru slík
störf óverulegur hluti skyldustarfa
hennar. Tryggingastofnun var því
gert að greiða Láru V. Júlíusdóttur
232 þúsund krónur auk vaxta frá
því í apríl 1989.
Georg Kr. Lárusson, settur
borgardómari, kvað upp dóminn.
Lára V. Júlíusdóttir hdl. flutti
málið sjálf fyrir sína hönd en lög-
maður Tryggingastofnunar var
Viðar Már Matthíasson hrl.
frá Landsvirkjun en vegna eðlis
starfseminnar, sem útheimtir mikla
raforkunotkun, hefur spennan á
fyrrgreindum svæðum orðið ójöfn.
Aðalsteinn segir að spennujöfnunar-
búnaður sem Landsvirkjun kom upp
við stálbræðsluna hafi bersýnilega
ekki skilað tilskildum árangri. „Eins
og búnaðurinn er hjá Landsvirkjun
og Stálfélaginu er ekkert sem getur
komið í veg fyrir þetta nema að
raforkusala til fyrirtækisins verði
stöðvuð þar til búið er að ráða bót
á þessu og við erum að ganga frá
bréfi til Landsvirkjunar þar sem við
óskum eftir því,“ sagði Aðalsteinn.
■ Guðmundur Helgason rekstrar-
stjóri hjá Landsvii'kjun segir þetta
vera spurningu um staðsetningu
stálbræðslunnar. „Eiginlega er þetta
bara spurning um hvort stálbræðsl-
an geti verið þarna áfram eður ei.
Það er vissulega hægt að koma í
veg fyrir ójafna spennu af þessum
völdum en það tekur bæði langan
tíma og kostar peninga,“ sagði Guð-
mundur. Hann sagði að kostnaður-
inn af slíkum lagfæringum félli
væntanlega á Stálfélagið.
„Þetta er nú hálfskrítin umsögn
hjá Guðmundi," sagði Páll Halldórs-
son framkvæmdastjóri íslenska stál-
félagsins. „Sá búnaður sem Lands-
virkjun setti upp hefur gert heilmik-
ið og mjög hefur dregið ur spennu-
sveiflum í Hafnarfirði. Ég held að
það sé ekki raunhæfur möguleiki að
flytja verksmiðjuna. Ódýrara yrði
að koma upp stífara kerfi sem þyldi
álagið. Ég hygg að það sé túlkunar-
atriði á hvern kostnaður fellur sem
þessu er samfara," sagði Páll.