Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.01.1991, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM 'SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1991 ?38 KONUR egar síðasta greln kom var ég búinn að sannfæra konuna mína um að drífa sig upp á fæðingardeild. Við út í bíl, sírenunni skellt á, keyrt með háu ljósin og flautuna á. Rauð veifa út um gluggann og ég beið eftir öskrunum í konunni. HRÍÐIR! En nei, ekki múkk í henni. Ég var byijaður að anda eins og hundur og svo inn um nefið, út um munninn, en samt var mér illt í móðurlífinu. Þegar við komum upp á deild,-sá ég mér til mikils léttis, að fjöl- miðlar höfðu enn ekki fengið nasaþef af fæðingunni, því það var bókstaflega enginn á deildinni. Jú, fullt af ljós- mæðrum og nemum, skúr- ingafólki og matráðskonum. Ég dreif mig að borðinu og spurði tafarlaust: „Er enginn karlmaður að vinna?" Skömmu síðar gat ég sann- fært ljósmóðurina um að taka löppina af hálsinum á mér, enda gólfið á fæðingardeild- inni með afbrigðum hart. Þá var konan mín komin úr öllu og i einhvern agalegan fæð- ingargalla. Það er ljóst að það var ekki Christian Dior sem hannaði hann. Ég fékk svona létta ábendingu um að hypja mig út úr herberginu, meðan athuguð væri útvíkkunin og nýtti mér þann tíma til að rifja upp öll ástarorðin sem ég kunni. til að beita í verstu hríðunum. En svo upphófust vandræðin. Ég sá að konunni minni leið ekki vel og heimt- aði því alls kyns pedatin, mogadón, dísepam, mænu- deyfingar, kæruleysisspraut- ur og glaðloft, en ljósmóðirin var hin versta, og sagði að slíkt væri fyrir konurnar, ekki eiginmennina. Ekki skánaði mér við það. En þar sem það var svo lítið að gera, var okk- ur vísað á fæðingarstofu og við beðin um að láta vita þeg- ar höfuð barnsins væri sjáan- legt, þá fengjum við hjálp. Nei, þessu lýg ég, við fengum tvær ljósmæður inn með okk- ur, sem nudduðu og stjönuðu í kringum mig, eins og ég væri með 16 í útvíkkun. A meðan tuðaði konan min eitt- hvað um að henni væri illt. Mér hefur hins vegar verið kennt af lærðum, að maður á ekki að sýna konum of mikla linkind, heldur sýna þeim hver það er sem ræður á heim- ilihu. Þess vegna hlýði ég hénni alltaf. Hvað um það. Eftir að hafa heimtað land- lækni, heilbrigðisráðherra og forstjóra Ríkisspítala, kom loksins einhver deyfingar- læknir og róaði okkur hjónin. Þar lágum við í rúminu, al- sæl, að vísu orðin dálítið sveitt, með úfið hár og ég al- veg ómálaður eins og drusla. En til að gera ianga sögu stutta, gekk síðan allt eins og í sögu. Rétt eftir fjögur vorum við hjónin byrjuð að rembast, ég með glaðlofti, hún með fæðinguna. Út kemur þetta líka unaðslega fallega barn og ljósmóðirin segir . . . Meira seinna. eftir Steingrím Ólafsson Samsöngur nokkurra lækna og tæknimanna í tilefni afmælis. Óperukórinn syngur við raust. AFMÆLI Allskonar uppákomur á sextugsafmæli rjann 20. desember síðastlið- ** inn voru nákvæmlega 60 ár síðan fyrsti sjúklingurinn var lagður inn á Landspítalann. í því tilefni var haldin mikil og vegleg hátíðardagskrá með þátttöku fjölmargra starfsmanna og vel- unnara. Hátíðin var haldin í and- dyri K-byggingar og var henni sjónvarpað um allan spítalann. Davíð Á. Gunnarsson forstjóri opnaði hátíðina með því að hjóða gesti velkofnna og síðan flutti sr. Bragi Skúlason hugvekju. Matthías Johannessen skáld og ritstjóri las úr verkum sínum, að hluta við gítarundirleik Péturs Jónassonar, og síðan söng kvennakór íslensku óperunnar nokkur lög. Kórinn fór síðan vítt og breitt um spítalann og söng fyrir sjúklinga. Þarna voru og veitingar og náðist mikil hátíðar- stemmning. En það var nokkur aðdragandi að fyrrgreindri hátíð, nokkurs konar upphitun var haldin fyrr í mánuðinum er haldið var „opið hús“ því það þótti rétt að leggja áherslu á að riija upp og kynna fyrir almenningi hina margþættu og viðamiklu starfsemi sem fram fer innan veggja stofnunarinnar. Allar deildir kynntu starfsemi sína, saga spítalans var rakin í grófum dráttum og gömul.tæki og áhöld voru sýnd við hlið nútil- dagsverkfæra. Margt manna mætti á „opið hús“ sem þótti heppnast vel. Eitt sem vakti ekki minnstu athyglina var sýning listmuna sem starfsmenn spítalans hafa unnið hin síðari ár. Listaverka- sýning var opnuð snemma í des- ember í anddyri K-byggingarinn- ar. Þar sýndu Guðmundur Bjarnason yfirlæknir, Guðrún Indriðadóttir lyfjafræðingur, Margrét Þorvarðardóttir textíl- listakona og Sigurður Siguijóns- son læknir verk sín. Nokkru síðar var önnur uppákoma þar sem Páll Ásmundsson læknir flutti frumsamin ljóð og karlakór skip- aður læknum og tæknimönnum söng fyrir viðstadda. Hluti gesta í afmælinu 20. desember. LÆKNINGAR Spurning um að skoðanafrelsi sé virt að vakti töluverða athygli fyr- ir nokkrum dögum, er frá því var greint i fréttum, að læknir einn hefði fengið “gult spjald" eða áminningu frá Landlæknis- embættinu fyrir ummæli sem hann hafði viðhaft bæði í útvarpsviðtali og í blaðagrein nokkru áður. Læknir þessi er Hallgrímur Þ. Magnússon svæfingalæknir sem rekur læknastöð og heilsurækt á Seltjarnarnesi. Hann hefur hin seinni ár sérhæft sig í nalastungu- og leisigeislameðferð. Og í allra síðustu tíð hefur hann bætt við meðferð sína náttúrulækningum ef kalla má það svo. Morgunblaðið ræddi við Hallgrím og spurði hann hvað hann hafi eiginlega sagt til þess að verðskulda gula spjaldið frá Landlækni og hvort einhver eftirmáli verði af því. “Jú, ég fékk bréf frá Landlækni þar sem hann ritaði að han'n hefði heyrt og þau ummæli sem um ræðir. Það sem ég ritaði og sagði og gerð var athugasemd við, var að menn geti fengið orku úr jörð- inni ef þeir gangi á henni berfætt- ir. Við þetta stend ég. Landlæknir segir mig hafa lýst yfir að ógeril- sneydd mjólk hafi einhvern sér- stakan Iækningamátt. Það sem ég sagði var að ógerilsneydd mjólk væri mun hollari en hin geril- sneydda sem er beinlínis óholl. Það er því mín skoðun að ógerilsneydd .mjólk geti þannig sannarlega haft nokkurn lækningamátt með þeim hætti að manni líður betur á því að neyta hollari vöru. Við þetta stend ég einnig og mér finnst með ólíkindum að ég skuli fá ávítur frá embættinu vegna þessa. En hvers vegna þessar ávítur? “Landlæknir segir að ég hafi gengið í bérhögg við læknalög og “codus eticus“ með þessum orðum. Vel má vera að svona skoðanir bijóti í bága við reglugerðir kerfis- ins. Hitt er svo annað mál, að á íslandi er ritfrelsi, talfrelsi að ég tali nú ekki um skoðanafrelsi og þó ég hafi ákveðna menntun að þá á það ekki að mega hefta skoð- anafrelsi jafn vel þótt það gangi þvert á skoðanir kerfisins. Ef þetta frelsi er nauðbeygajnlegt með svona áminningastarfsemi þá þyk- ir mér við standa fjandi nærri ráð- stjórnarkerfinu sem heimurinn hefur reyndar hafnað eftirminni- lega,“ segir Hallgrímur. En verður eftirmáli? “Það veit ég ekki. Ég veit þó að skoðanir mínar breytast ekkert þótt Land- læknir kjósi að sýna mér með þess- um hætti hver það er sem valdið hefur. Hvaða framhald verður er ekki gott að segja til um. Það gæti komið ný áminning, eða að Landlæknir gæti skotið málinu til héilbrigðisráðherra. Þetta er þó nokkuð vald, því það er ráðherran sem gefur út læknisleyfin...“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.