Morgunblaðið - 20.01.1991, Blaðsíða 8
IT\ \ /''' er sunnudagur 20. janúar, sem er annar
l-'sunnudagur eftir þrettánda. 20. dagur
ársins 1991. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 8.58 og síðdegisflóð
kl. 21.17. Fjarakl. 2.44 ogkl. 15.15. Sólarupprás í Rvík
kl. 10.43 ogsólarlagkl. 16.35. Myrkurkl. 17.39. Sólin er
í hádegisstað í Rvík kl. 13.39 og tunglið er í suðri kl. 17.02.
(Almának Háskóia íslands.)
Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð
fyrir honum. (Sálm. 95, 2.)
ÁRNAÐ HEILLA
D fTára afmæli. í dag 20.
O t) janúar, er 85 ára
Ársæll Kjartansson, Háa-
leitisbraut 103, Rvík. Hann
er nú á Vífilsstaðaspítala.
O /\ára afmæli. Á þriðju-
OU daginn, 22. þ.m., er
áttræð frú Björg Andrea
Magnúsdóttir, Hamarsgötu
1, Fáskrúðsfirði. Hún er
stödd hér syðra og ’tekur á
móti gestum á heimili sonar
síns og tengdadóttur í Eski-
holti 13, Garðabæ, í dag, 20.
jan., kl. 16-19.
^ pfára afmæli. í dag, 20.
I O þ-tn., er 75 ára Jó-
hannes Þ. Jónsson frá Súg-
andafirði, Kleppsvegi 50,
Rvík. Hann var kaupfélags-
stjóri á Súgandafírði í 25 ár,
en starfaði síðar hjá SÍS og
hjá Samábyrgð Islands á
fískiskipum. Hann er að
heiman.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
BRÆÐRAMESSA er í dag,
20. janúar. — „Messa til
minningar um tvo róm-
verska menn, Fabianus og
Sebastianus, sem reyndar
virðast ekki hafa verið
tengdir að neinu leyti. Fab-
ianus mun hafa verið bisk-
up í Róm á 3. öld e.Kr., en
um Sebastianus er lítið vit-
að með vissu,“ segir í
Stjörnufræði/Rímfræði.
FRÍMERKJAÚTGÁFA
1991. í tilk. frá Pósti og síma
um frímerkjaútgáfuna á
þessu nýbyijaða ári segir að
ákveðið hafí verið að gefa út
alls níu sinnum ný frímerki á
árinu. Fyrsta útgáfan kemur
út 7. febrúar. Koma þá út tvö
frímerki með íslenskum
fuglum, sem sýna myndir af
flórgoða og súlu. Þau eru í
verðgildunum 25 kr. og 100
kr. Þröstur Magnússon
teiknaði þau.
KRISTILEGT félag heil-
brigðisstétta heldur afmælis-
fund í safnaðarheimili Laug-
arneskirkju annað kvöld, 21.
janúar kl. 20.30. Sigríður
Halldórsdóttir hjúkrunar-
kennari flytur erindi um
tengsl trúar og heilbrigðis.
Sr. Magnús Björnsson
greinir frá samstarfi á Norð-
urlöndum. Unnur María Ing-
ólfsdóttir leikur á fíðlu, íris
Guðmundsdóttir syngur ein-
söng. Biskupinn herra Ólaf-
ur Skúlason flytur hugvekju.
Þessi afmælisfundur er öllum
opinn, félagsmönnum sem og
öðrum.
ÓVEITT prestaköll á
landinu eru um þessar mund-
ir fímm. Biskup íslands aug-
lýsir í nýlegu Lögbirtinga-
blaði þessi prestaköll laus til
umsóknar með umsóknar-
fresti til 30. þ.m. Prestaköllin
eru: Oddaprestakall í Rangár-
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 logið, 5 bát-
ar, 8 skæru, 9 sníkja, 11 vot-
an, 14 hár, 15 lofað, 16 fífl,
17 leðja, 19 frumeind, 21 tala
mikið, 22 jórturdýr, 25 svelg-
ur. 26 hvíldi, 27 flani.
LÓÐRÉTT: — 2 atvikast,
3 álít, 4 ófúsa, 5 kvistar nið-
ur, 6 heiður, 7 dráttardýrs, 9
át, 10 hlutavelta, 12 þekkt-
ara, 13 hímdi, 18 sælu, 20
skóíi, 21 skordýr, 23 leyfist,
24 rómversk tala.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 magál, 5 gómar, 8 mánum, 9 angan, 11
safna, 14 art, 15 vagns, 16 uglum, 17 tak, 19 nían, 21
áðan, 22_ sálgaði, 25 alt, 26 óar, 27 rói.
LÓÐRÉTT: — 2 ann, 3 áma, 4 lánast, 5 gustuk, 6 óma,
7 agn, 9 aðventa, 10 gagnast, 12 falaðir, 13 aumingi, 18
agga, 20 ná, 21 áð, 23 ló, 24 ar.
Morgunblaðið/ Þorkell
Krakkarnir á dagheimilinu í Hlíðarenda við Laugarásveg urðu að leika sér inni einn daginn fyr-
ir skömmu því úti var slæmt veður. Farið var í innileiki með fóstrunum. Hér er einn leikjanna
að hefjast.
vallaprófastsdæmi. Hraun-
gerðisprestakall í Ámespróf-
astsdæmi. Þorlákshafnar-
prestakall í Ámesprófasts-
dæmi. Þetta er nýtt presta-
kall. Það tilheyrir nú Hvera-
gerðisprestakalli. í Þorláks-
hafnarprestakalli em Hjalla-
og Strandarsóknir. Tálkna-
fjarðarprestakall í Barða-
strandarprófastsdæmi og
Skggastrandarprestakall í
Htfnavatnsprófastsdæmi.
KR-konur halda aðalfund
sinn nk. þriðjudagskvöld í
KR-heimilinu kl. 20.30.
RADÍÓÞJÓNUSTUDEILD.
Samgönguráðuneytið augl. í
Lögbirtingi lausa stöðu yfír-
umsjónarmanns í radíóflug-
þjónustudeild Pósts og síma
í Gufunesstöðinni. Umsókn-
arfrestur er settur til 24. þ.m.
SÓKN og Framsókn, starfs-
mannafél. og verkakvennafé-
lagið, halda sameiginlegt
spilakvöid miðvikudaginn 23.
þ.m. í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a, kl. 20.30.
HEILBRIGÐIS- og trygg-
ingamálaráðuneytið hefur
veitt þrem eldri starfandi
læknum í Rvík leyfi til að
reka lækningastofur sínar til
næstu áramóta. Það eru þeir
læknamir Erlingur Þor-
steinsson, Bjarni Konráðs-
son og Karl Strand. Ráðu-
neytið tilk. þetta í Lögbirtingi.
LANDSSAMTÖK ITC.
Þessar konur starfa fyrir
landssamtökin sem upplýs-
inga- og blaðafulltrúar: Ólöf
Jónsdóttir, s. 72715, Guðrún
Bergmann, s. 672806, Jóna
S. Olafsdóttir, s. 672434, og
Elínborg J. Ólafsdóttir, s.
656790. Þær svara fyrir-
spurnum og veita uppl. varð-
andi samtökin.
FÉL. eldri borgara. Opið hús
í dag í Goðheimum við Sigtún
kl. 14, frjáls spilamennska og
kl. 20 dansað. Mánudag er
opið hús í Risinu kl. 13. Félag-
ið efnir til þorrablóts í Goð-
heimum bóndadag 25. þ.m.
er þorri gengur í garð.
YFIRLÆKNISSTÖÐU við
fyrirhugaða réttargeðdeild
auglýsir heilbrigðis- ogtrygg-
ingamálaráðuneytið lausa til
umsóknar í nýju Lögbirtinga-
blaði. Yfírlæknirinn skal hafa
sérfræðiviðurkenningu í geð-
lækningum og sérþekkingu
eða reynslu á því sviði réttar-
geðlækninga. Ráðuneytið set-
ur umsóknarfrestinn til 5.
febrúar n.k.
ITC-deildin Ýr heldur fund
mánudagskvöld í Síðumúla
17 kl. 20.30. Hann er öllum
opinn. Þær Anna, s. 611413,
Ester, s. 74730, eða Unnur,
s. 45119, gefd uppl. um fund-
inn.
HÉRAÐSDÓMARI verður
ráðinn til starfa hjá embætti
bæjarfógeta og sýslumanns-
ins í Hafnarfírði. Embættið
er augl. af dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, í Lögbirt-
ingi. Umsóknarfrestur er til
31. jan.
LÆTUR af embætti. Dóms-
og kirkjumálaráðuneytið tilk.
í Lögbirtingi að sr. Flóki
Kristinsson sóknarprestur
í Stóra-Núpsprestakalli í
Ámesprófastsdæmi hafí
fengið lausn frá embætti, að
eigin ósk, frá 1. mars nk. að
telja.
HÉRAÐSLÆKNIR í Norð-
urlandshéraði eystra. í tilk. í
Lögbirtingi frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
segir að Ólafur Hergill
Oddsson læknir hafi verið
skipaður héraðslæknir í þessu
læknishéraði til ársloka 1994.
Honum er jafnframt veitt
launalaust leyfí frá störfum
heilsugæslulæknis á Akureyri
sama tímabil.
HEILBRIGÐIS- og trygg-
ingamálaráðuneytið. Ráðu-
neytið tilk. í Lögbirtingablað-
inu að það hafí sett Einar
Magnússon lyfjafræðing til
þess að vera deildarstjóri
lyfjadeildar ráðuneytisins og
að hann gegni því starfi til
næstu áramóta.
HÁSKÓLINN á Akureyri.
Menntamálaráðuneytið tilk. í
Lögbirtingi að það hafí skipað
Þóri Sigurðsson lektor í
stærðfræði við sjávarútvegs-
deild Háskólans á Akureyri
frá síðustu áramótum.
KIRKJA
ÁRBÆJARKIRKJA. Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
Félagsstarf aldraðra: Fót-
snyrting á mánudögum, tíma-
pantanir hjá Halldóru Steins-
dóttur. Leikfími þriðjudaga
kl. 14. Hárgreiðsla allaþriðju-
daga hjá Hrafnhildi. Opið hús
í Safnaðarheimilinu miðviku-
dag kl. 13.30'. Björg Einars-
dóttir verður með bókakynn-
ingu og fyrirbænastund í Ár-
bæjarkirkju kl. 16.30. Opið
hús fyrir mæður og feður
ungra barna í Ártúnsholti í
safnaðarheimili Árbæjar-
kirkju þriðjudag kl. 10-12.
Brynjólfur Brynjólfsson sál-
fræðingur fjallar um einelti
bama.
BÚSTAÐAKIRKJA. Æsku-
lýðsfundur í dag, sunnudag,
kl. 17.
GRENSÁSKIRKJA. Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
NESKIRKJA. Æskulýðs-
starf unglinga mánudags-
kvöld kl. 20. Þriðjudag:
Mömmumorgunn. Opið hús
fyrir mæður og böm þeirra
kl. 10-12. Æskulýðsstarf 12
ára og yngri kl. 17.
FELLA- og Hólakirlya.
Fundur í Æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30.
Fyrirbænir í kirkjunni þriðju-
daga kl. 14.
SELJAKIRKJA. Mánudag:
Fundur KFUK, yngri deild,
kl. 17.30, eldri deild kl. 18.
Æskuiýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. Æskulýðsfundur í
kvöld kl. 20.30. Opið hús fyr-
ir 10-12 ára mánudag kl.. 17.
Opið hús fyrir foreldra ungra
bama þriðjudag kl. 15-17.
Magnús Erlendsson kemur í
heimsókn og ræðir um nýald-
arhreyfinguna.
SKIPIN
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN. Hofsjökull er vænt-
anlegur af ströndinni í dag.
ORÐABOKIIM
Neytandi — notandi
Svo virðist sem ýmsir
geri sér ekki lengur grein
fyrir þeim mun, sem hefur
verið og er raunar enn hjá
mörgum á notkun þessara
tveggja nafnorða. Þannig
talaði alþm. um orkuneyí-
endur í umræðum um ál-
verið á liðnu hausti. Sama
gerðist einnig á dögunum,
þegar heldur tók að rofa
til í rafmagnsmálum norð-
an lands eftir óveðrið. Þá
mátti bæði heyra og sjá
talað um, að rafmagn
færi að komast á til neyt-
enda. í þessum dæmum
er sjálfsagt að tala um
notanda, en ekki neyt-
anda. Margir álíta, að
þessi þróun hafí gerzt fyr-
ir ensk áhrif. Fróðir menn
segja, að no. consumer á
ensku megi bæði hafa um
neytanda og notanda. Al-
mennt er talað um not-
anda síma, rafmagns eða
útvarps eða þá símnot-
anda og útvarpsnotanda,
en hins vegar um neyt-
anda matvæla, t.d.
ávaxta, kjöts eða smjörs.
Þá er talað um not þau,
sem hafa má af síma og
rafmagni og eins um
notkun síma og rafmagns,
en aldrei um neyzlu síma
eða rafmagns. Ekki hef
ég heldur enn heyrt talað
um símneytanda. Þá á no.
neyzla við um kjöt og
smjör og aðrar matvörur,
enda neytum við þeirra,
látum þær í okkur. Þess-
um merkingarmun ber að
sjálfsögðu að halda, á
sama hátt og gerður er
munur á so. að nota og
neyta í máli okkar.
' - JAJ.
Vegna mistaka við
vinnslu þessa fasta þáttar
hér á síðunni sl. sunnu-
dag, er þátturinn endur-
birtur. Er JAJ beðinn af-
sökunar.