Morgunblaðið - 20.01.1991, Síða 34
FÓLK i *RÉTTUfl/íSuNNun»™K
m 'JAWÚAR1991
UOSMYNDUN
Mynd íslensks áhugaljós-
myndara í virtri árbók
Jón Ögmundur Þormóðsson
skrifstofustjóri í viðskiptar
áðumeytinu er mikill áhugamaður
um ljósmyndun og á síðasta ári
varð hann þess heiðurs aðnjótandi
að mynd sem hann tók var-valin
til birtingar í bókinni „Photo-
graphy yearbook 1991“. Þetta er
mikill heiður og viðurkenning fyr-
ir Jón Ögmund, því þúsundir
mynda eru sendar á ritstjórn þess-
arar bókar en einungis 200 valdar
til birtingar. Að þessu sinni áttu
aðeins fimm Norðurlandabúar
myndir í bókinni, tveir Danir, tveir
Svíar og svo Jón frá Fróni. Mynd-
in er af blindum dreng sem vinnur
við körfuvefnað. Drengurinn heit-
ir Eggert Rútsson og Jón hefur í
hyggju að færa honum eintak af
bókinni að gjöf. „Hann sér
kannski ekki innihald hennar, en
það má lýsa þessu fyrir honum
og blint fólk hefur næmt innsæi,“
sagði Jón Ögmundur í samtali við
Morgunblaðið.
Myndina af Eggert tók Jón
Ögmundur á blindravinnustofunni
að Hamrahlíð 17 og hann segir
að það hafi
komið sér
skemmtilega
á óvart að
hún skuli
hafa orðið
fyrir valinu.
„Photo-
graphy year-
book“ er vett-
vangur
áhugaljós-
myndara og
hefur komið
árlega út all-
ar götur
síðan árið
1935. Hefur
bókin í gegn
um árin
áunnið sér
virðingarsess
sem vandað
og fallegt rit.
Jón Ögmund-
ur segir að
Hjálmar R.
Bárðarson
hafi stundum
átt myndir í
bókinni, en
hann viti ekki
um fleiri ís-
lendinga sem
hafí átt
myndir í bók-
inni.
Eggert Rútsson vefur körfu. Myndin birtist i
„Photography yearbook 1991“.
4-bekkur-
inn, f.v. Þor-
steinn Guð-
mundsson,
Gunnar
Helgason,
Ingibjörg
Gréta,
Halldóra
Björnsdótt-
ir, Ari
Matthías-
son, Þórey
Sigþórsdótt-
ir, Þorsteinn
Bachmann
og Magnús
Jónsson.
LEIKLIST
Fjórði bekkur frumsýnir Leiksoppa
Fjórði bekkur Nemendaleikhúss-
ins frumsýndi leikritið Leiksopp-
ar eða „Reckless" eins og það
heitir á frummálinu í Lindarbæ
á föstudagskvöld. Leiksoppar er
nýtt verk eftir ungt bandarískt
leikskáld að nafni Craig Lucas,
en leikstjóri er Halldór E. Laxnes
og þýðingu annaðist Hallgrímur
Helgason. Eyþór Arnalds annað-
ist tónlist, en leikmynd, búningar
og lýsing eru í höndum Hlínar
Gunnarsdóttur og Egils Ingi-
bergssonar.
Gunnar Helgason talsmaður
hópsins sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeta væri áhrif-
amikið verk. Það gerðist í Banda-
ríkjum nútímans og lýsti með grát-
broslegum hætti píslargöngu Ra-
kelar Fitzsimmons í gegn um lífið,
allt frá aðfangadegi og jólasvein-
um og til sálfræðinga og sjón-
varpsmanna.
Þetta er önnur frumsýning 4
bekkjar Nemendaleikhússins á
þessum vetri, snemma vetrar sýndi
hópurinn „Dauða Dantons" eftir
Buchner. Þriðja sýning þessa hóps
á starfsörtninni er á verkinu sem
kallað er „Skipið", en það er vinnu-
heiti á nýju verki eftir Kjartan
Ragnarsson sem sjálfur leikstýrir
leikaraefnunum.
á alveg ótrúlegu verði
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti
Meö sérsamningum sínum getur Veröld nú boöiö ferðir til þessarar heillandi borgar á ótrúlega
lágu veröi. Hvort sem þú ferö til aö versla, í viðskiptaerindum eöa til aö njóta menningarlífsins
þá er Amsterdam frábær kostur á einstöku verði.
Verð aðeins kr.
FERflAMIflSTflll
♦Miöaö viö 2ja manna herbergi á Hotel Classic, Amsterdam, 3 nætur.
AUSTURSTRÆTI 17, SÍMI (91) 622011 & 622200