Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 4
------MORGUNÍJLAÐÍÖ ÞRlOJUDAÖUR-22; JANÚAR 1J0ÖX'
Skattstjórar dreifa 143 þúsund
skattframtölum á næstu dögum
SKATTSTJÓRAR landsins senda
skattframtalseyðublöðin út eftir
fáa daga ásamt leiðbeiningum.
Prentun er lokið og eru árituð
eyðublöð þegar farin frá Ríkis-
skattstjóra til sumra skattstjóra-
embættanna. Send verða út
142.990 framtalseyðublöð að
þessu sinni, heldur fleiri en á
síðasta ári.
Framtalseyðublaðinu hefur verið
breytt lítillega frá síðasta ári, að
sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar
vararíkisskattstjóra. Nýir reitir
hafa verið útbúnir fyrir hlunnindi.
Þá er óskað eftir upplýsingum um
húsaleigugreiðslur framteljenda. Er
það gert til að tengja skattframtal-
ið greiðslumiða fyrir húsaleigu sem
ber að útfylla og senda skattstjóra.
Þá er tilgangurinn einnig að afla
upplýsinga um húsaleigumarkað-
inn.
Breytingar hafa verið gerðar á
uppsetningu og að nokkru leyti efni
þeirra leiðbeininga sem fylgja skatt-
framtölum í sérstöku hefti. Nú eru
til dæmis upplýsingar um hvemig
á að telja fram, sem voru í fylgi-
riti, felldar inn í leiðbeiningaheftið.
Tilgangurinn er að auðvelda gjaid-
endum að fylla út skattframtalið. í
leiðbeiningunum eru einnig sýnd
dæmi um útreikning opinberra
gjalda.
Bíldudalur:
30 þakplötur fuku
af félagsheimilinu
Bíldudal.
MIKIÐ suðvestan hvassviðri gekk yfir Bíldudal í gærmorgun. Um
30 þakplötur fuku af félagsheimilinu og hafnaði ein þeirra á kyrr-
stæðri bifreið. Landgangur brotnaði við flotbryggju og þakplötur
losnuðu af eyðibýli innar I dalnum.
Björgunarsveitarmenn voru kall- við að vera á ferli að óþörfu. Talið
aðir út um klukkan hálf sjö í gær-
morgun til að tína saman lausar
þakplötur sem voru ijúkandi um
allt þorp. Aflýsa varð skólahaldi í
gmnnskólanum og margt fólk var
frá vinnu vegna óveðursins. Mikil
hálka er á götum og varaði Al-
mannavamanefnd íbúa staðarins
VEÐUR
er að yfir tólf vindstig hafi verið í
snörpustu kviðunum en um hádegið
dró heldur úr vindi.
Engin slys urðu á fólki. Viðgerð-
ir hefjast á þaki félagsheimilisins
um leið og veður leyfír.
R.Schmidt
VEÐURHORFUR IDAG, 22. JANÚAR
YFtRLIT í GÆR: Yfir Bretlandseyium er 1.040 mb hæö en 980
mb laegð skammt suður af Scoresby-sundi fer norðaustur og grynn-
ist. Um 1.400 km suövestur i hafi er dálítil lægð sem mun fara
allhratt norðaustur fyrir suhnan landið.
SPÁ: Vestlæg átt, víðast goía eða kaldi. Slydduól vestanlands ogá
annesjum norðanlands en bjart veður á Suðaustur- og Austur-
landi. Heldur kólnandi í bili.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG; Suðlæg átt og milt.
Lengst af nokkuð hvasst með rigningu eða skúrum um mest allt
land, síst þó norðaustanlands.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
MMmk Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vmd-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V B
= Þoka
= Þokumöða
% ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
I" Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tima
híti veður
Akureyri 8 skúráslS. klst.
Reykjavik 8 rigning
Sergen 3 léttskýjað
Helsinki 1 alskýjað
Kaupmannahöfn 4 rigning og súld
Narssarssuaq snjóél
Nuuk ■í-9 snjókoma
Ósló 4 léttskýjaó
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 1* léttskýjað
Amsterdam 6 skúr
Barcelona 13 heiðskírt
Berlín '4 þokumóða
Chicago +11 alstýjað
Feneyjar 6 bokumóða
Frankfurt r þokumóða
Glasgow s reykur
Hamborg 5 skúr
LasPalmas 20 heiðskirt
London 9 léttskýjað
LosAngeles 12 1 1
Lúxemborg 0 þoka
Madrfd 8 heiðskírt
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Montreal +22 léttskýjað
NewYork 2 rigning
Orlando vantar
Parfs 8 þokumóða
Róm 10 þokumðða
Vfn +4 þokumóða
Washington 6 léttskýjað
Winnipeg +22 alskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Kristján Karlsson, skáld, með Davíðspennann og Sveinn Sæ-
mundsson, formaður Félags íslenskra rithöfunda.
Félag íslenskra rithöfunda:
Krislján Karlsson hlýtur
fyrsta Davíðspennann
KRISTJÁNI Karlssyni, skáldi, voru í gær veitt bókmenntaverð-
laun Félags íslenskra rithöfunda fyrir bókina Kvæði ’90. Bók-
menntaverðlaunin bera heitið Davíðspenni til minningar um
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Þau voru nú afhent í fyrsta
skipti.
A síðasta aðalfundi Félags
íslenskra rithöfunda var ákveðið
að efna til bókmenntaverðlauna
og nefna þau Davíðspenna til
minningar um Davíð Stefánsson,
skáld og einn af stofnendum Fé-
lags íslenskra rithöfunda, og voru
verðlaunin afhent í gær en þann
dag voru 96 ár liðin frá fæðingu
skáldsins.
Verðlaunin hlaut eins og áður
sagði Kristján Karlsson, skáld,
fýrir bókina Kvæði ’90. Við af-
hendingu sagði Sveinn Sæmunds-
son fonnaður Félags íslenskra rit-
höfunda að Kristján nyti, eins og
Davíð Stefánsson, vinsælda og
virðingar meðal ljóðaunnenda.
Hann væri meðal virtustu skálda
íslensku þjóðarinnar í dag.
Verðlaunin sem Kristján hlýtur
eru Davíðspenni og eitt hundrað
þúsund krónur.
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra:
Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son valinn prófastur
BISKUP hefur leitað eftir til-
nefningu hjá sóknarprestum og
fulltrúum leikmanna í Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra vegna
vals á prófasti.
Mikill meirihluti kjörmanna hefur
tilnefnt séra Jón Dalbú Hróbjarts-
son til að vera prófastur í Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra og nýtur
hann stuðnings biskups til embætt-
isins, segir í frétt frá Biskupsstofu.
Skv. lögum frá 1. júlí sl. var
Reykjavíkurprófastsdæmi skipt í
tvo hluta — Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra og vestra.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
Sjónvarpsþáttum á mynd-
böndum stolið úr bifreið
BROTIST var inn í bifreið við
neðanverðan Vitastíg aðfaranótt
sunnudagsins og stolið þaðan
efni fyrir sjónvarp sem var á
einnar tommu breiðum spólum.
Spólur þessar nýtast ekki öðrum
en sjónvarpsstöðvum og því er talið
líklegt að þjófamir hafí fljótlega
losað sig við spólumar. Borðbúnað-
ur var einnig í bflnum og er hann
einnig horfínn. Á spólunum vom
sjónvarpsþættir sem unnir höfðu
verið um Bubba Mortens á Púlsin-
um og Todmobile á Púlsinum.
Þeir sem einhveijar upplýsingar
geta veitt um mannaferðir við
kremgulan Mitsubitsi Tredia, að-
faranótt sunnudagsins, em beðnir
að snúa sér til rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Lærbrotnaði þegar vél-
sleði valt á Hellisheiði
MAÐUR slasaðist á Hellisheiði á
sunnudag, þegar hann ók snjó-
sleða sínum á grjótnibbu.
Lögreglunni á Selfossi barst til-
kynning frá slökkviliðinu í
Reykjavík, um að óskað hefði verið
eftir sjúkrabifreið upp á heiðina. í
Ijós kom að vélsleðamaður hafði
ekið sleða sínum á gijótnibbu, sem
stóð upp úr snjónum, með þeim
afleiðingum að sleðinn valt og mað-
urinn lærbrotnaði.