Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22, JANUAR 1991 HLUTLEYSI, POLI- TÍK OG LÖGFRÆÐI eftir Hróbjart Jónatansson Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður ritar í Morg- unblaðið þann 4. janúar síðastliðfnn. Tilefnið var greinar sem undirritað- ur og Jón Sveinsson hdl. rituðu í Morgunblaðið skömmu fyrir jól og fjölluðu um bráðabirgðalögin um- deildu frá því sl. sumar. Skrif Jóns S. Gunnlaugssonar bera það með séi' að hann taki til sín gagnrýni mína þess efnis að umræða um lög- mæti bráðabirgðalaganna væri um of lituð af pólitískum deilum. Slíkt er í sjálfu sér eðlilegt enda hefur hann ekki legið opinberlega á af- dráttarlausri skoðun sinni um ólög- mæti hinna umdeildu bráðabirgða- laga. Þess vegna kom það mér ekki á óvart að Jón S. Gunnlaugsson myndi leggja orð í belg í þessari umræðu. Það sem mér kom hins- vegar á óvart í skrifum Jóns er það hvernig hann setur fram aðfinnslur sínar við efni greinar minnar og Jóns Sveinssonar. Greinilegt er af skrifum Jóns S. Gunnlaugssonar að hann tekur skoðanir mínar óstinnt upp. Að mínu áliti skortir umfjöllun Jóns S. faglegt umburð- BRÉFA- 1 BINDIN 1 frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. 2 Múlalundur 'I SÍMI: 62 84 50 1N 'ij Wt 11>: VILT ÞU KYNNAST STARFSEMI RAUÐA KROSSINS? Langar þig til að starfa fyrir Rauða krossinn, innanlands eða á alþjóðavettvangi? Kynningarnámskeið (Grunnnámskeið 1) fyrir ungt og áhugasamt fólk verður haldið dagana 25., 28., 30. jan., 2. og 3. febr. nk. Dagskrá: 1. Ungmennastarf Rauða kross íslands. 2. Starfsemi Rauða kross íslands, innanlands og á alþjóðavettvangi. 3. Málefni flóttamanna. 4. Framtíðarverkefni. Námskeiðið hefst kl. 20.00 fyrstu þrjú kvöldin og endar með helgardvöl fyrir utan borgina, frá laugardegi og fram á sunnudag. Námskeiðsstaður: Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Skráning og nánari upplýsingar geínar á skrifstofu ” Rauða kross íslands í síma 26722 (Ólafur). Ekkert þátttökugjald. Allt áhugafólk velkomið. Ungmennahreyfing Rauða kross íslands arlyndi og verður, fyrir bragðið, ekki lögfræðilega sannfærandi og á köflum jafnvel ómálefnaleg (pólitísk?). Grípur Jón S. Gunn- laugsson m.a. til þess óyndisúrræð- is að gera undirrituðum upp annar- legan tilgang með skrifum á téðri blaðagrein. Er þetta síðastnefnda einkum kveikjan að skrifum mínum nú enda þó ég ætli mér ekki að stunda ómálefnalega þrætubókar- list á síðum blaðsins. í greininni, sem rituð er af nokkr- um þjósti, talar Jón S. Gunnlaugs- son niður til okkar Jón Sveinssonar hdl. og finnst innlegg okkar í um- ræðuna „ruglandi" og „vegið og léttvægt fundið". Virðist Jón S. viss í sinni afstöðu og umlíður ekki þær skoðanir okkar Jóns Sveinssonar sem hann gerir að umtalsefni. Hins- vegar skortir nokkuð á, að mínu mati, að fullyrðingar hans um ólög- mæti lagasetningarinnar standist að öllu leyti lögfræðilega svo óyggj- andi sé. Skilyrði 28. gr. stj órnarskrárinnar Jón S. Gunnlaugsson heldur því fram að skilyrði 28. gr. hafi ekki verið uppfyilt við útgáfu bráða- birgðalaganna og það stafi ....Öðru fremur af því að öll at- vikin sem urðu tilefni setningar lag- anna lágu fyrir áður en þingi var slitið. 28. gr. getur aldrei talist fela í sér heimild fyrir ráðherra til að bíða með nauðsynlega löggjöf þar til eftir að þing er farið heim þó að „brýn nauðsyn" hafi legið fyrir áður“. Þessi skoðun Jóns S. Gunnlaugs- Hróbjartur Jónatansson sonar er í andstöðu við fræðimenn á sviði stjórnskipunarréttar. Ólafur Jóhannesson segir t.a.m. í bók sinni „Stjórnskipun Islands“ á bls. 324 (endurskoðuð útg. 1978) að það skipti ekki máli hvaðan hin brýna naúðsyn stafi eða hvenær hin brýna nauðsyn hafi verið til orðin. Gildi einu þó hægt hefði verið að leita ákvörðunar Alþingis um tilefni bráðabirgðalaga. Afstaða Ólafs Jó- hannessonar til þess álitaefnis er skýr og ótvíræð. Séu önnur skilyrði 28. gr. stjórnarskrár uppfyllt, sýnist mér ljóst að það skipti engu þótt að það ástand sem kalli á setningu bráðabirgðalaga eigi sér nokkurn aðdraganda. Ef unnt er að fallast á að framkvæmdavaldið eigi mat um það hvort „brýn nauðsyn" sé fyrir hendi, var heimilt af þeim ástæðum að gefa út hin umdeildu bráðabirgðalög. SIEMENS Uppbvottavélar í miklu úrvali! SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar, hljóölátar og sparneytnar. Breidd: 45 og 60 sm. Verð frá 57.900,- kr. SMUH&NORLAND NÓATÚNI4 - SÍMI 28300 m. Mat dómstóla á brýnni nauðsyn Jón S. Gunnlaugsson veltir fyrir sér ýmsum dæmum um það hvenær dómstólar eigi mat um hvort ákvæðum 28. gr. sé fullnægt. Hann telur m.a. að dómstólar eigi mat um það hvort skilyrðinu um brýna nauðsyn sé fullnægt eður ei enda þó .. . „fara verði varlega í það að hnekkja mati bráðabirgðalöggjaf- ans“. Þá fullyrðir Jón S., í þessu sambandi, að „ ... engum dómafor- dæmum er til að dreifa...“ Framkvæmdin hefir hinsvegar um árabil verði sú að Alþingi hefur fallist á slíka túlkun á hugtakinu „brýn nauðsyn“ að hlutlausum- at- huganda myndi eflaust finnast teflt á tæpasta vað. þessi afstaða Alþing- is staðfestir að bráðabirgðalöggjaf- inn sjálfur eigi mat um það hvort „brýn nauðsyn" sé fyrir hendi. Ég get ekki með góðu móti séð hvern- ig unnt er að leggja þá skyldu á dómstóla að meta það hvort tilefni til útgáfu einstakra bráðabirgða- laga teljist „brýn nauðsyn" eða ekki, fremur en það er á færi dóm- stóla yfirleitt að hafa skoðun á því hvort einstök löggjöf skyldi sett eða ekki. Pólitískar forsendur eru af- stæðar og matskenndar og því dóm- stólum mikill vandi á höndum að kveða upp úr um rétt eða rangt í þessum efnum. Hæstiréttur hefur og staðfest að una verði við mat bráðabirgðalöggjafans um að brýna nauðsyn hafi borið til útgáfu laga sbr. t.d. HRD VIII:322. enda þó Jón S. hafi ekki kannast við þá afstöðu dómsins. Hafa ber og í huga að ekki er sjálfgefið að dómstólar hafi vald til þess að meta hvaðeina. Hæstiréttur hefir t.d. staðfest að löggjafarvaldið eigi sjálft fullnaðar- mat um það hvort skilyrði 69. gr. stjórnarskrár um að „almennings- heill krefji“ sé fullnægt sbr. tilvitn- aður HRD og t.d. HRD. XXX:455 og HRD. XXXV:960. Sýnist mér hið sama hljóti að gilda um hugtak- ið „biýn nauðsyn". Hvort tveggja varðar pólitískt mat. Þá má og nefna að löggjafarvaldið á sjálf- dæmi um það hvort einstakir al- þingismenn séu ranglega kjörnir eða ókjörgengir. Úrskurði Alþingis þar um geta dómstólar ekki hnekkt. Hvað sem öðru líður verður að hafa venjuna um beitingu ákvæðisins til hliðsjónar við skýringu á 28. gr. stjórnarskrárinnar. Um það er tæp- ast þörf að deila. Um önnur tilvik 28. gr. stjórnarskrár eiga dómstólar vissulega mat, s.s. um hvort iögin séu sett með stjórnskipulegum hætti, fari í bága við eignarréttar- ákvæði stjórnarskrárinnar o.s.frv. í grein sinni sakar Jón S. Gunn- laugsson undirritaðan um ruglanda og á erfitt með að skilja rökfærslu mína í umfjöllun um 28. gr. stjórn- arskrárinnar. Ef honum er um megn að skilja rökfærslu mína er ekkert við því að gera þó mér finn- ist hún hljóti að vera auðskiljanleg flestum sem vilja hana skilja. Rök mín byggja á viðtekinni fram- kvæmd á 28. gr., skoðunum fræði- manna og úrlausnum dómstóla. Hinsvegar virðist mér að rök Jóns S. séu að sumu leyti einstök. Eignarréttarákvæði 67. gr. stjórnarskrár Jón S. Gunnlaugsson finnur að því að umfjöllun mín um 67. fgr. stjórnarskrár sé ófullnægjandi. í stuttri blaðagrein verður hinsvegar að takmarka umfjöllun m.t.t. rýmis og því eigi unnt að gera öllu tæm- Wýn. skrifstofutækninám Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og hagkvæman hátt. Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al- mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds, verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga. Innritun stendur yfir. Hringið og fáið sendan ókeypis bækling. Tölvuskóli Reykiavíkur Borgartúni 28, sími 91-687590

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.