Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991
VAXANDI STJORNMALAOLGA I SOVETRIKJUNUM
Síðustu umbóta-
sinnunum vik-
ið úr forystunni
A
Moskvu. Reutor.
SJÁLFSTÆÐA fréttastofan Int-
erfax í Sovétríkjunum skýrði frá
því á laugardag að sjö helstu
umbótasinnarnir í forystuliði Sov-
étríkjanna yrðu ekki í nýrri rikis-
sljórn landsins þar sem Míkhaíl
Gorbatsjov forseti mun hafa úr-
slitavaldið samkvæmt nýjum lög-
um um æðstu stjórn Sovétríkj-
anna. Þeir voru félagar í sérs-
takri ráðgjafanefnd forsetans
sem talin var áhrifamesta valda-
stofnun landsins en hún verður
nú lögð niður. Tveir mannanna,
hagfræðingarnir Níkolaj Pet-
rakov og Stanislav Shatalín,
höfðu nokkru áður sagt af sér
embættum í mótmæiaskyni við
ofbeldi Rauða hersins í Litháen
og efnahagsstefnu Gorbatsjovs.
Mennirnir eru auk fyrrnefndra
tveggja þeir Aleksander Jakovlev,
Jevgeníj Prímakov, Leóníd Abalkín,
Stepan Sítaríjan og Júríj Osípíjan.
Jakovlev var árum saman nánasti
ráðgjafi Gorbatsjovs og gegndi um
hríð stöðu helsta hugmyndafræðings
kommúnistaflokksins. Jakovlev hef-
ur verið nefndur faðir umbótastefn-
unnar sem kennd var við perestrojku
og glasnost. Petrakov var helsti ráð-
gjafi forsetans í efnahagsmálum en
segir nú að stjórnvöld reyni að leysa
öll vandamál með aukinni seðlaprent-
un. Raunhæfar breytingar í átt til
markaðsbúskapar séu allar kæfðar í
fæðingunni af skrifræðisveldinu og
harðlínumönnum. Shatalín var höf-
undur róttækrar áætlunar um breyt-
ingu til markaðsbúskapar, svo-
nefndrar 500 daga áætlunar.
Prímakov er sérfræðingur í mál-
efnum Mið-Austurlanda og fór í
nokkrar ferðir til Bagdad og Was-
hington áður en átökin blossuðu upp
fyrír botni Persaflóa. Abalkín var
aðstoðarforsætisráðherra og sagður
fremur hægfara umbótasinni í efna-
hagsmálum. Sítaríjan var jrfirmaður
utanríkisviðskipta og aðstoðarfor-
sætisráðherra. Osípíjan var ráðgjafí
í vísindamálefnum.
!
Myndin var tekin út um brotnar rúður í einum glugga lettneska innanríkisráðuneytisins.
bardaga kom er sovéskt herlið réðst til inngöngu á sunnudagskvöld í leit að vopnum og féllu a,
í átökunum.
Reuter
Til harðra
.m.k. fjórir
Fjórir féllu í áhlaupi sovétherliðs á lettneska innanríkisráðuneytið:
Lettar stofna sjálfsvamar-
sveitir gegn Svarthúfunum
Ofbeldi Moskvustjórnarinnar í Riga fordæmt um allan heim
Riga, Moskvu. Reuter.
ÞING Lettlands samþykkti
snemma í gærmorgun að stofna
Reuter
Frá mótmælunum í Moskvu á sunnudag. Á borðanum fremst á mynd-
inni segir: „Rússar, verið á varðbergi. Stríðskommúnisminn er í
sókn.“
sérstakar sjálfsvarnarsveitir til
að „veija og vernda líf, réttindi
og frelsi“ íbúa lýðveldisins og
stofnanir þess gegn „ólögmætum
hótunum". Vopnaðar sérsveitir
sovéska innanríkisráðuneytisins,
Svafthúfurnar, réðust á sunnu-
dagskvöld á innanríkisráðuneyti
Lettlands og lögðu það undir sig.
Fámennt lögreglulið í ráðuneyt-
inu reyndi að verjast ofureflinu
um hríð og alls er talið að fjórir
menn hafi fallið í átökunum, er
stóðu í um 90 mínútur, þ. á m.
Iettneskur sjónvarpsmaður. Tíu
særðust og sovéskur hermaður
misþyrmdi finnskum frétta-
manni og tók af honum mynd-
bandsspólu. Ríkissljórnir víða
um heim hafa fordæmt ofbeldi
Sovétmanna.
Markmið sovétherliðsins virðist
hafa verið að klófesta vopn sem
geymd voru í ráðuneytisbygging-
unni. Sjónarvottar segja að fyrst
hafi um tugur Svarthúfumanna
komið í tveim ómerktum bílum að
ráðuneytinu og reynt að ryðjast inn
en verið hraktir á brott. Áður en
þeir hurfu á brott kveiktu þeir í bíl
með handsprengju. Síðar kom
öflugra herlið á vettvang.
Aðstoðarinnanríkisráðherra
Lettlands, Zenon Indrikov, var í
ráðuneytinu meðan átökin stóðu
yfir og sagði hann að vopnabirgð-
irnar þar væru sáralitlar. Hann
sagði fréttamanni Reuters í sima-
viðtali að til varnar væri 15 manna
léttvopnað lið en Svarthúfurnar
hefðu verið a.m.k. 100. „Allarrúður
í byggingunni hafa verið brotnar
með vélbyssuskothríð," sagði Ind-
rikov. „Þeir eru búnir að ná bygg-
ingunni á sitt vald, það er ekkert
vit í að halda mótspyrnunni áfram.“
Eldgæringar frá átökunum lýstu
upp gömlu miðborgina í Riga. Fjöldi
Letta safnaðist saman í skemmti-
garði í grennd við ráðuneytið er
fréttist um átökin, hrópaði slagorð
gegn Sovétmönnum og kallaði her-
mennina fasista. Mikil sprenging
heyrðist einhvers staðar í borginni
en óvíst er hvað þar gerðist.
Byssukúlur endurköstuðust milli
húsveggja og ollu skelfingu meðal
Tugþúsundir Moskvu-búa mótmæla grimmdarverkum Rauða hersins í Litháen:
Ráðamönnum líkt við böðla og
afsagnar Gorbatsjovs krafist
Moskvu. Reuter.
FJÖLMENN mótmæli fóru fram í Moskvu á sunnudag er tugþúsundir
manna söfnuðust saman við Kremlarmúra til að lýsa yfir andstyggð
sinni á grimmdarverkum Rauða hersins í Litháen. Fólkið hrópaði
vígorð gegn ráðamönnum og krafðist þess að Míkhaíl S. Gorbatsjov,
leiðtogi sovéskra kommúnista og forseti Sovétríkjanna, segði af sér.
Á Manezh-torgi í miðborginni
hrópaði fólkið I kór: „Böðlana út úr
Kreml“ og „Niður með Kommúnista-
flokinn," auk þess sem lesin var yfir-
lýsing frá Borís Jeltsín, forseta Rúss-
lands og helsta andstæðingi Kreml-
arvaldsins, þar sem almenningur var
hvattur til að vera á varðbergi gagn-
vart vaxandi ítökum harðlínukom-
múnista.
Vestrænir fréttamenn sem fylgd-
ust með mótmælunum töldu að um
100.000 manns hefðu tekið þátt í
þeim en í tilkynningu sovésku
7’AS.S-fréttastofunnar sagði að að
um 300.000 manns hefðu komið
saman í Moskvu.
Sovéskir umbótasinnar hétu því
að taka höndum saman í baráttu
sinni gegn harðlínukommúnistum,
sem fréttaskýrendur telja almennt
að náð hafi undirtökunum í valda-
baráttu þeirri sem fram fer innan
Kremlarmúra. Hétu umbótasinnar
því áð mynda öfluga andstöðu við
Gorbatsjov en það er mál manna í
Moskvu að grimmdarverk Sovét-
hersins í Vilnius í síðustu viku þegar
13 óbreyttir borgarar voru myrtir
hafi orðið til þess að sameina stjórn-
arandstöðuhópa þá sem myndast
hafa í Sovétríkjunum að undanförnu.
Ræðumenn í Moskvu sögðu að
atburðirnir í Vilnius, höfuðborg Lit-
háens, sýndu að Gorbatsjov hefði
gefið „umbótastefnuna" svonefndu
upp á bátinn. Sagnfræðingurinn
þekkti Júríj Afanasjev sagði: „Við
erum hér saman komin til að lýsa
yfir andstöðu okkar við afturhalds-
stefnu Gorbatsjovs og undirsáta
hans!“ Fólkið svaraði í kór: „Segið
af ykkur, segið af ykkur. Einræði
verður ekki komið á. Jeltsín, Jeltsín."
Á spjöldum göngumanna mátti með-
al annars sjá eftirfarandi áletranir:
„Gorbatsjov, deildu Nóbels-verð-
laununum með Saddam" og „Herfor-
ingjar, gerið ekki synir ykkar að
morðingjum."
í ávarpi Borís Jeltsíns til fundar-
manna sagði m.a. að nú væri það
að gerast sem fjölmargir stjórnmála-
leiðtogar hefðu varað við á undanf-
örnum vikum. Hættan á því að ein-
ræði yrði komið á I Sovétríkjunum
á ný væri raunveruleg. Jeltsín kvaðst
vera reiðubúinn til viðræðna við
Gorbatsjov og hvatti almenning til
að sýna stillingu í andófi sínu þar
sem ráðamenn innan hersins og
harðlínukomúnistar kynnu að nota
mótmæli sem tylliástæðu fyrir frek-
ari valdbeitingu til að bijóta á bak
aftur frelsis- og lýðræðishreyfing-
una í Sovétríkjunum.
Fjölmenn mótmæli fóru einnig
fram í Leníngrad og fréttir bárust
af því að um 3.000 manns hefðu
komið saman í Kíev, höfuðborg
Úkraínu, og lýst yfir andúð sinni á
stjórn kommúnista. Þá voru einnig
haldnir fjöldafunir í Sverdlovsk í
Úralfjöllum, Donetesk í Úkraínu,
Kíshíníjov í Moldovu og Kalínlngrad,
nærri landamærum Litháens.
fólksins sem reyndi að komast í
skjól. Árásarsveitirnar yfirgáfu
staðinn um fímm klukkustundum
síðar eftir að samningar höfðu tek-
ist milli Ivars Godmanis, forsætis-
ráðherra Lettlands, og Borís Pugo,
innanríkisráðherra Sovétríkjanna,
Meðan átökin stóðu sem hæst
hringdi Godmanis í Dmítrí Jazov,
varnarmálaráðherra Sovétríkjanna,
og krafðist skýringa á árásinni.
Jazov sagðist ekkert vita um málið.
„Þessu er öllu lokið núna, þeir
eru farnir,“ sagði lögreglumaður á
vakt við ráðuneytið í gær. Gang-
stéttir voru þaktar glerbrotum,
tómum skothylkjum og múrbrotum
úr byggingunni eftir skothríðina. í
skemmtigarðinum var blóðpollur og
tvö hvít blóm höfðu verið lögð á
jörðina við hann.
Lettneskir blaðamenn segja að
innanríkisráðherra landsins, Alois
Vasnis, hafi flogið til Moskvu á
sunnudag til viðræðna við Pugo um
framferði Svarthúfanna. Ekki hefur
verið skýrt frá því hver hafi gefið
fyrirskipun um árásina á innanríkis-
ráðuneytið en umræddar hersveitir,
sem eru hluti svonefndra OMON-
öryggissveita, heyra beint undir
Pugo. Hann er harðlínukommúnisti
sem var áður formaður kommúni-
staflokks Lettlands og deildar ör-
yggislögreglunnar, KGB, í landinu.
Á laugardagskvöld sagðist Þjóð-
frelsisiráðið, samtök harðlínu-
manna í Lettlandi þar sem menn
áf rússneskum uppruna eru fremst-
ir í fylkingu, hafa tekið völdin í
landinu og krafðist ráðið þess að
þingið yrði þegar leyst upp. Var
mikið úr þeim tíðindum gert í so-
véskum ríkisfjölmiðlum en formað-
ur ráðsins er Álfred Rubiks, leiðtogi
flokksbrots Moskvuhollra kommún-
ista. Ráð með sama heiti og stefnu
var sagt hafa farið fram á aðgerðir
Rauða hersins í nágannalandinu
Litháen fyrir rúmri viku er 14
manns féllu þegar sjónvarps- og
útvarpsstöð var tekin herskildi.
Viktor Alksnis ofursti, sem er
harðlínumaður á sovéska þinginu,
sagði liðsmenn OMON hafa farið
að ráðuneytinu í Riga eftir að eigin-
konu liðsforingja í sveitunum hefði
verið nauðgað daginn áður. Lett-
neskur þingmaður, sem er hliðholl-
ur Moskvuvaldinu, sagði að Sovét-
liðið hefði verið lokkað í gildru eft-
ir að hafa reynt að hefja samninga-
viðræður við embættismenn ráðu-
neytisins.