Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 25
M0RGUN3LAÐ1Ð WtlÐJUDAGUR 22.. JANUAR 1991 25 UNUM: Drápin í Riga: Aukið tílefni tíl að endurskoða stefnuna gagnvart Kreml segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra „EF ÆTLUNIN með þessum árásum var að auðmýkja Eystrasaltsrík- in hafa áhrifin orðið þveröfug og verði þeiin haldið áfram gef'ur það vestrænum ríkisstjórnuin aukið tilefni til að endurskoða stefnuna gagnvart stjórnvöldum í Kreml,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra á blaðamannafundi sem hann hélt ásamt eistneska utanríkisráðherranum, Lennart Meri, í Tallin í Eistlandi í gærmorg- un. Á fundinum, sem fulltrúar alþjóðlegra fjölmiðla sátu, var kynnt sameiginleg yfirlýsing ráðherranna tveggja vegna drápanna í Riga og ástandsins í Eystrasaltsríkjunum. Er sú yfirlýsing birt í heild ann- ars staðar hér á siðunni. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson lótelsins, þaðan hélt Jón Baldvin þessir tveir lögreglumenn á sjón- Glórulaus villimennska „Þessi ögrandi ofbeldisverk, sem Kremlveijar komast ekki undan ábyrgð á, eru fullkomlega ósam- rýmanleg þeim skuldbindingum sem þeir hafa tekist á hendur við undirritun lokaályktunar Helsinki- fundarins og Parísaryfirlýsingar- innar, sem ætlað var að binda endi á afleiðingar heimsstyijaldinnar síðari og leggja grundvöll að nýjum tímum í Evrópu þar sem allir aðilar samþykktu að virða í verki alþjóða- lög og grundvallarreglur um mann- réttindamál og sjálfsákvörðunarrétt þjóða,“ sagði hann. „Nái þessar aðgerðir tilgangi hefur það ekki aðeins áhrif á þjóðir Eystrasaltsríkj- anna, Rússa og aðra innan Sovét- ríkjanna, heldur einnig þessa djörfu tilraun. Ég skora því á Kreml- stjórnina að taka sér tak og stöðva ofbeldisverkin og hafa taumhald á glórulausri villimennsku fasista- bullnanna í svarthúfusveitunum," sagði Jón Baldvin. Lennart Meri utanríkisráðherra Eistlands rakti að undanfarna þijá mánuði hefði velvilji í garð málstað- ar Eystrasaltsþjóðanna stóraukist í vestrænum lýðræðisríkjum, auk þess sem nú væri pólitískur vilji tit að ræða formlega viðurkenningu bráðabirgðastjórna ríkjanna og stjórnmálatengsl við þær. Hann leiddi getum að því að tilgangur árása svarthúfusveitanna í Vilnius og Rigu væri sá að reyna að sýna umheiminum fram á að slík viður- kenning ríkjanna væri ótímabær þar sem þjóðþing og ríkisstjórnirnar uppfylltu ekki þau skilyrði slíkrar viðurkenningar að hafa landsvæði ríkisins á valdi sínu, ráða landa- mærum og til dæmis höfuðborg. „Hafi þetta verið tilgangurinn hafa áhrifin oi'ðið þveröfug," sagði Meri. Hann er nýlega kominn heim til Eistlands frá Svíþjóð og rakti að ástandið í Eystrasaltsríkjunum hefði undanfarið vikið Persaflóa- deilunni til hliðar í fjölmiðlum Norð- urlanda og að þar og að minnsta kosti annare staðar í Norður-Évr- ópu fylgdist allur almenningur með og styddi málstað Eystrasaltsþjóð- anna. (Þetta atriði virðist hafa mikla þýðingu fyrir jafnt Eista, Letta og Litháa, en fjölmargir inn- fæddir sem blaðamaður ræddi við kváðust hafa orðið fyrir gífurlegurp vonbrigðum vegna þess hve gervi- hnattastöðvarnar CNN og Sky snið- gengju fréttaflutning af ástandinu í þessum löndum og sinntu nær ekki öðru en Persaflóastríðinu.) „Tilraunir Kreml-stjómarinnar til að endurtaka leikfléttuna frá 1956, þegar uppreisnin í Ungverjalandi var bæld niður í skjóli þess að á Vesturlöndum voru menn uppteknir af Suez-deilunni, breytir engu um einbeittan ásetning ríkisstjórna ríkjanna þriggja að endurheimta það sjálfstæði sem af þeim var tek- ið með innlimuninni í Sovétríkin, samkvæmt hinum glæpsamlega samningi Hitlers og Stalíns frá 23. ágúst 1939,“ sagði ráðherrann. „Þjóðir sem eru staðráðnar í að endurheimta sjálfstæði sitt getur enginn stöðvað.' "Þær munu hafa sigur.“ leftír ráRigu Morgunblaðið/Ragnar Axelsson Jón Baldvin og Landsbergis héldu geysifölmennan blaðamannafund í Vilnius í Litháen, þar sem mættir voru blaðainenn frá öllum heimsálfum. fylgst með fréttum í útvarpi og hætti útsendingum um skeið og menn óttuðust að einnig hefði verið látið til skarar skríða í Eistlandi en svo var ekki. í eistneska utanríkis- ráðuneytinu voru menn í stöðugu símasambandi við Rigu og fylgdust náið með framvindunni en eistn- eskir lögreglumenn sem stóðu þar vörð virtust Iáta sér fátt um finnast og vildu helst fá að fylgjast með fegurðarsamkeppni í Moskvusjón- varpinu, en á þeim bæ var ekki að sjáað nokkuð amaði að-ísæluríkinu- Sameiginleg yfirlýsing utan- ríkisráðherra Eistlands og íslands: Sameinuðu þjóð- irnar beiti sér fyr- ir alþjóðlegri lausn Utanríkisráðherra Eistlands, Lennart Meri, og Jón Baldvin Hannib- alsson utanríkisráðherra áttu viðræður í Tallinn í gær og fer saineig- inleg yfirlýsing þeirra um málefni Eystrasaltsríkjanna hér á eftir í þýðingu Morgunblaðsins. Meðal annars segir í yfirlýsingunni að Sam- einuðu þjóðirnar eigi beita sér í málinu. Utanríkisráðherrar íslands og Eistlands hafa fylgst með atburðum í Riga, höfuðborg Lettlands, er þeir áttu vinnufund í Tallinn, höfuðborg lýðveldisins Eistlands, og fordæma harðlega beitingu sovésks hervalds gegn íbúum og ríkisstjórn lýðveldis- ins Lettlands, hervalds sem haft hefur í för með sér að nokkrir hafa særst og fimm fallið að því er bráða- birgðaupplýsingar gefa til kynna. Embættismenn ríkisstjórnar Sov- étríkjanna vísa því á bug að þeir hafi átt nokkurn þátt í þessum at- þiirðnm að sams konar atburðir urðu í Lithá- en 13. janúar þegar 14 manns létu lífið er sovéskir hermenn réðust á sjónvarpsstöð á staðnum. Sovétmenn hafa í nokkrar vikur beitt hervaldi gegn lýðræðislegum stofnunum í Eystrasaltsríkjunum. Samkvæmt alþjóðalögum er hér um að ræða árásaraðgerðir. Sovét- stjórnin getur ekki skotið sér undan ábyrgð á gerðum hereveita sinna. Sjálfstæð nefnd á vegum Samein- uðu þjóðanna ætti að rannsaka umrædda atburði og skýra frá nið- .urstöðu sinni. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra íslands og Lennart Meri utanríkisráðherra Eistlands undirrita sameiginlega yfirlýsingu á blaðamannafundi í Tallinn, höfuðborg Eistlands í gærmorgun. Þegar í stað ætti að hefja alþjóð- legar aðgerðir til að finna lausn á deilunni í Eystrasaltsríkjunum. Sameinuðu þjóðirnar ættu að út- vega heppilegan vettvang til þess- ara ráðstafana. Umheimurinn ætti framvegis að fylgjast mjög náið með því hver stefna Sovétríkjanna er gagnvart Eystrasaltsríkjunum og jafnframt hvernig staðið er að mannréttinda- málum og lýræðislegum réttindum .( Sovétríkjunum. Ekkert ríki, hvort sem það er stórt eða smátt, hefur leyfi til að brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum sínum. Ef slíkt gerist er nauðsynlegt að það sé rækilega minnt á ólögmæti slíkra gerða. Komi til frekari ofbeldisverka í Eystrasaltsríkjunum mun það hafa afdrifarík áhrif á framtíðarþróun í Evrópu, vilja Evrópuþjóða til að eiga samvinnu við Sovétríkin og veita forystu ríkisins fjármálalega og efnahagslega aðstoð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.