Morgunblaðið - 17.03.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAÖUR 17. MARZ 1991
e 9
Friðargyðjan snýr höfði og horfir hugfang-
Stundagyðjurnar og Pan—
in á blómið.
þráðu blíðu hennar.
Hún var ekki kynþokkafull, heldur
eins og engill. Hún var ekki visku-
brunnur, þó bjó sannleikurinn í
hjarta hennar. Lystisemdir líkamans
freistuðu hennar ekki, né röksemdir
skynseminnar. Hún skildi ekki flókn-
ar kenningar fræðimanna. Hún var
bamslega einföld. Hennar sannleik-
ur var skýr og skiljanlegur. Setning
sem Jesú sagði löngu síðar, „sælir
eru einfaldir, því þeirra er himna-
ríki,“ hefði átt vel við um hana.
Ahrif hennar vom siðferðileg.
Hún vakti ábyrgðarkenndina í
bijóstum manna, en ekki þrá
ástríðnanna eftir fullnægingu eða
þrá skynseminnar eftir visku. Aðeins
ábyrgð og siðferðiskennd. Hún
minnti mennina á að sannar siða-
reglur em í algera samræmi við lög-
mál náttúmnnar, og ásetningur
hennar var að milda áhrifamátt
mannlegrar öfgahegðunar. Menn
þurftu þó að koma sjálfviljugir á
fund hennar og fáir komu. Því fáir
báðu um hjálp til að slökkva hatur
sitt og hefndarþorsta. Ares, stríðs-
guðinn mikli og hans líkar, var vin-
sælli og varð fyrir vikið einn af leið-
togum guðanna, en hún aðeins
hljóðlát mær í þjónustuliði húsbænd-
anna.
Hún var yngismær, sem átti að-
eins blóm að gefa, stundagyðja var
hún ásamt systmm sínum tveimur,
Evnomíu og Dike. Móðir hennar hét
Þemis, gyðja hins eilífa alheimslög-
máls, sem dætur hennar störfuðu
eftir. Faðir hennar var Seifur, faðir
manna og guða. Þemis var áhrifarík
gyðja, enda dóttir Úranusar, eða
himinsins og Gaiu, eða jarðarinnar,
sem risu í öndverðu úr Kaosi, upp-
hafsástandi veraldarinnar. Barna-
barn Úranusar og Gaiu lét sjaldan
á sér bera, en af andliti þess stafaði
friði. Barnið þráði hvorki frægð né
frama, það þurfti ekkert nema blóm,
sem það var tilbúið að gefa en hélt
þó dauðahaldi í. Stúlkubarnið beið
við eitt himinhliðið og skynjaði feg-
urð og friðsemd. Barnshjartað sló
friði og ekkert gat komið því úr jafn-
vægi. Nafn þess var írene (Eirene).
Það var fætt til friðar og er friðar-
gyðjan eina í grísku goðafræðinni.
Irene fékk aldrei tækifæri í grísku
goðafræðinni, hún var ýmist bak-
sviðs eða í aukahlutverki. Ef til vill
oftast dulinn hvíslari undir þiljum.
Stríðsguðinn Ares stóð iðulega gal-
vaskur á sviðinu tilbúinn til ormstu.
Menn og áhorfendur hafa alltaf haft
áhuga á stríði, enda er stríðið sett
í öndvegi, bæði í goðafræðinni og
mannkynssögunni. Stríð em skrá-
sett. Friður er það sem ekki er skrá-
sett. Atburðarásin í stríði er hröð,
en friðurinn er hægur. Stríð er
spennandi, en friðurinn talinn bragð-
daufur...
Hví er írene aðeins friðsöm yngis-
mær sem veifar blómi? Hún sem
hefur friðinn á valdi sínu. Hví er hún
ekki ógnvekjandi dreki sem spýr eldi
yfír menn sem ekki vilja þóknast
henni? Hví heldur hún ekki á skamm-
byssu með kjarnorkuhleðslu í stað
blóms? Hvaða gagn er í einu litlu
blómi? Hví er hún ekki grimmúðleg
og ógnvekjandi friðargyðja, svo öll-
um þverri þor til að hefja stríð og
leyfa hatrinu að geisa? Irene, hví
ertu ekki sem Ares, hver þorir í
hann?
írene svarar ekki spurningunni.
Hún horfír aðeins góðlegum augum
upp til himins og bíður í friðsemd
sinni. Hún er eins og barn. Hún
skilur ekki flóknar röksemdir, hugs-
un hennar er of skýr. Hún er barn.
Hún er barn náttúmnnar, sem vekur
siðferðiskenndina af værum blundi
sínum. Hún starfar nefnilega eftir
hinu eilífa alheimslögmáli. „Leyfíð
bömum að koma til mín... því
slíkra er Guðs ríki,“ sagði Jesús
Kristur, „Nema þér snúið við og
verðið eins og börn, komist þér aldr-
ei í himnaríki."
Hinn eilífi friður
Friðurinn er siðferðilegt stríðlaust
ástand. Hann er léttstígur og fer
hljóðlega eins og fuglinn yfír fjöll,
en ekki eins og skríðandi skriðdreki
í eyðimerkursandinum. Hann er fín-
legur og skapar ró í hjarta. Friðsamt
andlit er fagurt andlit. Hann er þol-
inmóður og góðviljaður. Hann öfund-
ar ekki né hatar. Hann er ekki rogg-
inn og hegðar sér aldrei ósiðlega.
Hann reiðist ekki. Hann fylgir systur
sinni réttvísinni, en ekki óréttví-
sinni. Hann er eilífur og er í fríðu
föruneyti kærleikans. Hann er stríð-
laus tími, ró og næði. Hann er vin-
átta og ást, en ekki vopnuð átök,
barátta, skapraun, harmur og þján-
ing eins og andstæðingur hans stríð-
ið. Hann er fögur mannleg hegðun,
prúð, stillt, róleg og mild. Hann legg-
ur ást á lífið, náungann, góð lög og
réttlæti. Hann er bjartsýnn.
Jesús lagði áherslu á friðinn.
Hann sagði við lærisveina sína,
„hvar sem þér komið í hús, þá segið
fyrst: „Friður sé með þessu húsi!““
Og þegar hann hitti lærisveina sína
í síðasta sinn, sagði hann fyrst, og
þau orð geri ég að mínum síðustu
hér: „Friður sé með yður!“
um er fuglaskoðun vinsæl. Fylgst
er með komu farfuglanna og þegar
þeir hópa sig og kveðja á haustin.
A vetmm má reyna að vingast við
bæjarhrafnana, una sér við að horfa
á flug mávanna, æðarfuglinn kafa
eftir skel og sendlinginn trítla í
fjöruborðinu.
Að sjálfsögðu gera vetrarveðrin
strik í reikninginn en jafnvel fann-
fergi og óveður hafa sitt gildi,
kenna krökkunum að klæða sig við
hæfí og þeir hörðustu læra að grafa
sig í fönn eða byggja snjóhús. Veð-
urathuganir em gerðar og nemend-
ur stunda stjörnuskoðun á heiðskír-
um vetrarkvöldum. Alltaf er hægt
að fara í gönguferðir. Öllum er
gert að halda dagbók.
íþróttir og leikir em dijúgur þátt-
ur í skólabúðalífínu. Deginum lýkur
með kvöldvöku að gömlum sveitasið
þótt með öðm sniði sé og er nauð-
synlegt að umsjónarkennarar hóp-
anna hafi undirbúið nemendur sína
áður en haldið er að heiman og
allir hafí eitthvað fram að færa.
Ekki er að efa að þessi starfsemi
er þroskandi fyrir þá sem gista
búðirnar, þeir læra að fara að heim-
an og dveljast í hópi jafnaldra á
ókunnum stað og takast á við fram-
andi verkefni í sameiningu undir
leiðsögn reyndra manna. Þarna er
sérlega átt við þéttbýlisböm sem
kynnast nýju umhverfi og sjá ef til
vill í fyrsta sinni stjörnubjartan him-
in með bragandi norðurljósum án
þess að rafmagnsljós bæja eða
borgar deyfí skírleikann. Þá vaknar
sú spurning hvort ekki sé ástæða
til að bjóða dreifbýlisbörnum til
dvalar í þéttbýlinu og leyfa þeim
að kynnast lífinu þar. Áreiðanlega
yrðu margir foreldrar fúsir til að
opna heimili sín fyrir þeim ekki síð-
ur en erlendum skiptinemum.
Þeim sem e.t.v. fínnst Hrúta-
íjörður langur og leiðigjarn og
kenna helst við norðanfýlu sem á
það til að leggja þar inn skal sagt
að öðmm augum leit Friðrik Hans-
en, fyrrum skólastjóri á Sauðár-
króki fjörðinn í breyskjuhita að vor-
lagi þegar hann orti:
Ljómar heimur logafagur,
lífíð fossar, hlær og grær.
Nú er sól og sumardagur,
söngvar óma fjær og nær.
Vorsins englar vængjum blaka,
vakir lifsins heilög þrá.
Sumarglaðir svanir kvaka
suður um heiðavötnin blá.
Gæti kvæðið Vor allt eins orðið
skólabúðasöngur á Reykjum því að
Pétur Sigurðsson, vinur Friðriks
samdi við það hið ágætasta lag sem
alkunna er.
Tryggingafélag bindindismanna
/
morgun, 18. mar& 1991, eru liöin 30 ár frá |>ví aft Abyrgð hf.. tryggingafélag bindindismanna hóf
starfsemi sína. I tilefni þessara tímainóta kynnum við eftirfarandi trygginganýjungar:
\
EÐALBONUS
AriíS 1978 kynntum vih HEIÐURSBÓNUS (70%), sem veittur var fyrir 10 ára tjónlausan akstur hjá
Abyrg5. Heiðursbónus er nú veittur eftir 8 ára tjónlausan akstur hjá félaginu.
Nú tökuin við upp enn nýjan bónusflokk, EÐALBÓNUS, er gefur 75% afslátt, sem \4ð veituin
tryggingatökum sem liafa verið ti-yggir viðskiptavinir félagsins í samfelld 15 ár án þess að vera valdir að
bótaskyldu tjóni í ábyrgðartryggingu.
EYIJ-TRYGGING
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ AKA KVENLEGA!
Samkvæint könnunum okkar valda konur færri og minni tjónum í umferðinni en karlar og hlutur þeirra í
alvarlegum slysum er niun minni ert karla. Þessi er einnig niðurstaðamargra erlendra kannana.
Þess vegna bjóðum við nú konuni lægra bílatryggingariðgjald. Það er að segja þeiui sem bafa tainið sér
lífsstíl bindindis og neyta ekki áfengru drykkja. Þeim lijóðuin við
20% afslátt af kaskótryggingariðgjaldi
EVU TRYGGINGIN er einstök trygging. Hún er ökutækjatrygging, sem þarf að innifela ábyrgðar- og
' kaskótryggingu og aðeins konur geta tekið. Skilyrði er einfaldlega, uð aðeins konun og enginn annur aki
bflnum. Ef lnin saint sem áður lánar öðrum bílinn og sá veldur bótaskyldu tjóni,
liækkar eigin áhætta í kaskótryggingunni uni 10.000 kr. í því tjóni.
Við bjóðum upp á annan valkost!
Ef tckin er 15.000 króna cigin áhætta í ábyrgðartryggingartjónum. færðu
10% afslátt af ábyrgðartryggingariðgjaldiim.
Aliyrgð lif. hefur á 30 áru starfsferli sínum komið fram með fjölda trygginganýjunga, viðskiptavinum
sínum til liagsbótu. Með EÐALBÓNUS OG EVU-TRYGGINGU viljum við koma til móts við þá
viðskiptavini sem hafa sýnt það með gætni í umferðinni að
þeir eru verðugir sérstukra tryggingarkjaru.
Tryggingafelag bindindismanna
lágmúla 5, Reykjavík, sími 67 97 00