Morgunblaðið - 17.03.1991, Blaðsíða 23
cr m * rrs r ** r» '3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991
Ketill Vilhjálms-
son — Kveðjuorð
Fæddur 15. febrúar 1905
Dáinn 7. mars 1991
Við viljum í örfáum orð,um minn-
ast afa okkar, Ketils Vilhjálmsson-
ar í Meiri-Tungu. Afi var heil-
steyptur maður með ákveðnar
skoðanir, hann var víðlesinn og
fróður og nutm við systkinin-þess.
Hann var iðinn við að segja okkur
sögur, um það sem hann hafði les-
ið, heyrt og lifað. Það var gaman
og fróðlegt að hlusta á hann segja
frá vegalagningu, gijótsprenging-
um, samferðamönnunum, veiði-
skap og öðru sem hann hafði upp-
lifað. Þær voru líka ófáar vísurnar
sem hann kenndi okkur þegar við
vorum í einhveiju stússi s.s. gegn-
ingum, girðingarvinnu eða ferða-
lögum.
Afa fórst stjórnun vel úr hendi
og hafði hann það sérstaka lag að
fólki fannst það hafa mikil áhrif á
gang mála. Við systkinin vorum
ekki há í loftinu þegar afi var far-
inn að spyija okkur álits á hlutun-
um t.d. hvort okkur þætti nú ráð-
legra að snúa eða reka inn. Við
svöruðum ansi mannalega eftir
okkar bestu sannfæringu og rædd-
um málin. Þegar niðurstaða var
fengin fannst okkur við hafa átt
stóran þátt í þessari ákvarðana-
töku og fylltumst ábyrgðartilfinn-
ingu. Þetta ásamt öðru varð til
þess að okkur þótti afi vera félagi
í verki en ekki stjórnandi og gátum
við alltaf komið og talað um hlut-
ina og leitað ráða hjá honum. Þetta
breyttist ekki þó hann væri orðinn
sjúkur og hættur að taka þátt í
hinu daglega amstri því hann
fylgdist vel með öllum málum allt
fram á síðasta dag.
Afi var náttúrubarn, hann unni
sínu heimili og sinni jörð, en hvergi
kunni hann samt betur við sig en
inn á fjalli og ófáar voru fjallaferð-
irnar sem við systkinin fórum með
honum. í þessum ferðum kenndi
hann okkur að þekkja kennileiti
og staðarnöfn en um þau var hann
1
i
i
i
C 23
fróður. Það var aldrei það mikið
að gera í Meiri-Tungu að afa þætti
óþarfi „að skreppa inn á íjall“, og
þegar hann gat ekki lengur farið
sjálfur hvatti hann okkur krakkana
til fjallaferða. Þessi áhugi hans
fyrir afréttinum varði til slðastá
dags. Daginn áður en afi fór sína
síðustu ferð frá Meiri-Tungu hafði
Kalli nafni hans skroppið inn á
ijall. Þegar hann kom heim var
afi orðinn fársjúkur og átti mjög
erfitt um mál. En þó að hann
gæti varla talað spurði hann samt
hvort Hekla gamla hefði spúð mik-
illi ösku yfir afréttinn.
Með þessum fátæklegu orðum (
kveðjum við afa Kalla,. hann var i
okkur afi, vinur og félagi. j
Guð blessi minningu hans. ,
Halla Gunna, Kalli, '
Sigga Lóa, Gugga, j
Agga og Gurrý.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar tU
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
< g
£ s
ik ^
< 3
S-8
e e
U
u
Tilbúið
tréverk
-og þáerþ
skemmti le
eftir.
Þegar bygging er tilbúin undir tréverk er framundan
að gera hana að notalegum íverustað. Það getur
sannarlega verið bæði skapandi og skemmtilegt.
Nýi sýningarsalurinn í Húsasmiðjunni
Súðarvogi er nauðsynlegur viðkomustaður allra
sem eru „tilbúnir undir tréverk". Þar sýnum við:
- Duropal borðplötur, sólbekki og veggjaplötur í
miklu litaúrvali.
- Mát vegg- og loftklæðningar.
- Mát veggeiningakerfi fyrir milliveggi og útveggi.
- Parket af öllum gerðum.
- Ýmiskonar innréttingar og efni til innréttinga-
smíða.
- Vandaða færanlega skrifstofuveggi.
- Innihurðir.
- Allskonar lista og fleira til frágangs.
í Súðarvoginum eru ennfremur til sýnis gluggar, úti-
hurðir, vatnsklæðningar, þakklæðningar, sólpallar,
skjólveggir, sólstofur og girðingarefni.
Verið velkomin í Húsasmiðjuna við Súðefvog.
HUSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5 ■ Sími 68 77 00
Sýning laugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 13-16.
: