Morgunblaðið - 17.03.1991, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991
C 29
Eins og aðrir skiptinemar geng-
ur Ari í skóla í heimabæ sinum
og leikur einnig með skólaliði í
amerískum fótbolta, sem er mjög
frábrugðinn knattspyrnunni sem
leikin er í Evrópu.
að komast á auglýsingasamning í
kjölfar þessa árangurs og fyrirtæki
í sýslunni hefði boðið þeim Brian
50 dollara fyrir það eitt að fá ljós-
mynd af þeim ásamt kjúklingunum.
Að gripasýningunni lokinni var hald-
ið uppboð á dýrunum og voru kjúkl-
ingar Ara seldir á 360 dollara, sam-
svarandi um 18.000 krónum, sem
þykir gott verð.
Að sögn Ara fór töluverð vinna í
undirbúning gripasýningarinnar.
„Kjúklingarnir voru óhreinir og það
tók langan tíma að þrífa þá almenni-
lega áður en ég sýndi þá. Dómari
keppninnar sagði mér síðan að það
hefði skipt sköpum hversu vel snyrt-
ir þeir voru, þannig að það var vel
þess virði að snurfusa þá og þrífa í
heilan dag!“ Aðpsurður segist Ari
ekki hafa áhuga á að leggja fyrir
sig búíjárrækt þegar hann snýr aft-
ur til Islands. Hann stundar nám í
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
hyggst taka upp þráðinn næsta
haust og Ijúka stúdentsprófi næsta
vor.
Eins og aðrir skiptinemar gengur
Ari í skóla í heimabæ sínum í Tex-
as. Hann leikur amerískan fótbolta
með skólaliðinu og stundar veiðar
þegar svo ber undir. „Ég keypti mér
byssu og fór á dádýraveiðar fyrir
skömmu. Ég veiddi tvö þokkalega
stór dýr, en nú er veiðitímabilinu
lokið. Eg hafði ekki stundað veiðar
á íslandi áður en ég kom út, en fór
á námskeið hér í meðferð skotvopna
og fékk byssuleyfi í kjölfarið."
Sóldýrkendabænir
eir sem kaupa pakkaferðir
til Miðjarðarhafslanda, eða
bara flatmaga á svölunum hafa
ranglega verið kallaðir sóldýrkend-
ur. Þessu fylgir sú áhætta að verða
sér úti um „melonoma" húðkrabba,
sérstaklega ef ljóslampar eru nýttir
og ósongatið stækkar frá því sem
nú er. Þó hafa skáldin ort hreinar
sóldýrkendabænir meira og minna
óafvitandi, eins og dægurlagatexti
þessi ber vitni um.
Sól signdu mín spor
Sól og æskuljúft vor
Sól í vetrarsorta og hríð
Sól söngi vígð þrá
Sól og heiðríkja um brá
er endist mér ævitíð
Það er áttundi marz. Morgunsól-
in skín inn um gluggann, og þar
sem geislarnir hitta kantinn á spegl-
inum, koma fram régnbogalitir.
Auðvelt er að skilja þjóðir sem til-
báðu sólina sem lifandi vitsmuna-
veru, ekki sízt í fjalllendi milli hvarf-
bauga, þar sem fjórar árstíðir geta
komið fram á einum sólarhring, og
morguninn verður hreint krafta-
verk. Svipaðs eðlis er sú trú að ,
regnboginn, Bifröst, sé leiðin til
himinsins. Aldrei er að vita nema
trú í þessa veru sé grundvölluð á
staðreyndum, því vísindamenn
segja innra ferli sólarinnar æði
margbrotið og flókið, að ekki sé
talað um þegar að þessi elska skipt-
ir litum fyrir augum þúsunda sem
saman hafa safnast í trúarhita og
eru mörg dæmi um.
Ég hefi lesið bók og skilað henni
í bókasafnið. Þar segir frá eitt-
hundrað fjörutíu og sjö tónskáldum
með nöfn eins og Beethoven, Verdi,
Back og Chopin, auk allra hinna
sem einnig voru karlmenn. í þess- .
ari miklu rituðu hljómkviðu voru
konur aðeins í aukahlutverkum. Og
þó, burtséð frá því sem í bókinni
stendur. Selma Kaldalóns hefur
samið lög falleg og sú raddmesta
Yma Sumac (þýðir: sú dásamlega),
er að syngja rétt núna. Kannski
hallast ekki jafn mikið á með kynj-
unum um hæfíleikana og ætla hefði
mátt í fyrstu?
Bjarni Valdimarsson
Gert ráð fyrir smygli
Til Velvakanda.
Nýlega var um það rætt í fjöl-
miðlum að nýútkomin reglu
gerð um innflutning erlendra ferða-
manna á matvælum, þar sem mag-
nið var minnkað úr 10 kg á mann í
3 kg, hafi komið illa við farmenn.
Talsmenn farmanna sögðust ekki
ætla sér að una við það að mega
ekki koma með nema 3 kg af mat-
vælum þar sem matvælainnflutn-
ingur þessi væri farmönnum tölu-
verð búbót.
Þegar ég talaði um þetta við
kunningja minn, sem á son sem
vinnur á flutningaskipi, sagði hann
mér að það væri beinlínis reiknað
með því í kaupsamningum við far-
menn að þeir gætu hagnast á
smygli- Kaupinu er haldið niðri með
þeim röksemdum að þeir högnuðust
nú svo og svo mikið á smygli.
Ég varð alveg agndofa þegar ég
heyrði þetta og ætlaði varla að trúa
mínum eigin eyrum. En svo las ég
þetta í einhveiju dagblaðinu og nú
síðast að Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, ætli að breyta
reglugerðinni hvað farmennina
varðar og auka það magn sem þeir
mega flytja inn. Er þetta nú ekki
óheilbrigður hugsunarháttur?
Hvernig er hægt að bera virðingu
fyrir opinberum stofnunum og
vinnuveitendum farmanna þegar
slíkt vitnast?
Annað mál tengist þessu og það
er sú þróun að skrá farskipin í öðr-
A
Eg heiti Lies Van den Eynden.
Nafnið mitt stendur líka á litl
um hvítum miða sem er á skíðatösk-
unni minni sem nú er týnd. Fimmtu-
daginn 28. febrúar komst ég í fyrsta
sinn á skíði hér á íslandi, en ég er
hér skiptinemi í eitt ár. Ég fór heim
frá Bláfjöllum kl. 22.00 í rútu frá
Teiti Jónassyni. Ég var síðust að
fara úr rútunni og tók græna Blizz-
ard skíðatösku með. Heima tók ég
svo eftir því að ég átti ekki þessa
tösku, en mín taska lítur alveg eins
út. Taskan mín er græn og bleik
um löndum og ráða svo erlenda
farmenn á undirkaupi. Er nokkur
furða þótt hægt sé að státa af hag-
stæðum ársreikningum á aðalfund-
um útgerðarfélaganna. En hugsum
aðeins út í þann hugsunarhátt og
það siðferði sem að baki liggur. A
hveiju byggist glæsileikinn?
Landkrabbi
Blizzard taska með Rossignol skíð-
um (180 sm) og gulum Atomic stöf-
um. Skíðin sem eru í töskunni (sem
ég tók með heim) eru frá Blizzard
og eru svört á litinn (150-155 sm).
Ég var búin að bíða svo lengi
eftir því að komast á skíði og þess
vegna líður mér mjög illa núna að
komast ekki aftur upp í Bláfjöll af
því ég hef ekki skíðin mín.
Ef þú getur hjálpað mér að fá
skíðin mín aftur eða ef þú átt þessi
Blizzard skíði, sem ég er með, þá
er símanúmerið hjá mér 641474.
SKÍÐATASKA
Hjartanlega þakka ég börnum mínum, tengda-
börnum, barnabörnum og mökum þeirra,
frœndfólki, vinum og öllum þeim er glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og
skeytum á 80 ára afmœli mínu. Guð blessi
ykkur öll.
Jóhanna Kristjánsdóttir.
Inni/ega þakka ég fjölskyldu minni og öðrum
œttingjum, fjœr og nœr, svo og fjölmörgum vin-
um minum, sem heiðruðu mig og glöddu með
heimsóknum, gjöfum, blómum og heillaóskum
á 70 ára afmœli mínu 4. mars sl. Hlýhug ykk-
ar og vinsemd geymi ég í hjarta mínu.
Guð blessi ykkur ötl.
Kristján Páll Sigfásson.
TIL SÖLU
mb. Vík VE 555 skrnr. 918 (áður Sigurvík VE)
67 tonna eikarbátur í góðu ásigkomulagi.
Veiðiheimildir: Bolfiskur (rækja).
Upplýsingar hjá Bátum og búnaði, s. 62 25 54.
M ■ ■ B § í'; I
TRYGGVAGATA 4—6,
SÍM115520.
Skelfisk
VEISLA
Ásunnudags-og mánudagskvöldum bjóö-
um viö uppá 6 rétta skelfiskveislu. Svo
sem marineraðar rækjur, grillaöan humar,
ferskan krækling, ristaða hörpuskel,
trjónukrabbasúpu, úthafsrækju og beitu-
kóng. Til þess aö njóta matarins betur þá
verðum viö meö lifandi tónlist þar sem sjó-
mannalög veröa í hávegum höfö.
Þessl 6 rétta veisla kostar
aðelns kr. 2.500.-
KRABBIogKLÓI
i