Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 2

Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 2
2 MOKGUNHLAÐÍÐ LAUgARDAGUR 6. ÁPRÍL Í991 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ánægðar mæður með börn sín á Fæðingardeild Landspítalans í gær. Þurft hefur að setja aukarúm inn á stofurnar. Mikill fjöldi bamsfæðinga ALLT stefnir í að met verði slegið í fjölda barnsfæðinga í apríl- mánuði. í gærmorgun höfðu yfir 50 börn fæðst á Fæðingardeild Landspítalans frá byrjun mánaðarins og búist er við að um 210 börn til viðbótar verði komin í heiminn fyrir lok hans. í meðalmán- uði fæðast um 210-220 börn á Fæðingardeildinni. Á hverjum sólar- hring fæðast venjulega 7 til 8 börn. Hinn 3. apríl sl. litu hins vegar 18 nýir einstaklingar dagsins ljós á deildinni. „Það er vægast sagt fullt hérna hjá okkur. Við höfum fengið auka- rúm og reynt að koma þeim fyrir með einhveijum ráðum, því við neitum auðvitað aldrei konum, en þetta er mjög erfitt. Einkum kem- ur þetta niður á vökudeildinni sem þjónar fyrirburum og veikum bömum bæði héðan og utan af landsbyggðinni. Þar er allt yfir- fullt, ekki síst vegna þess að tví- burafæðingar hafa verið óvenju- margar að undanförnu," sagði Kristín I. Tómasdóttir, yfirljós- móðir á Fæðingardeild Landsspít- alans, í samtali við Morgunblaðið. „Það var mikið að gera í mars og nú í apríl hefur allt verið í botni héma hjá okkur. Heildar- ijöldi fæðinga er hins vegar svip- aður og á sama tíma í fyrra. í ár hafa verið fleiri tarnir en ró- legra þess á milli,“ sagði Kristín. Að sögn Kristínar er algengt að sumarmánuðirnir séu svo annasamir á Fæðingardeildinni en yfírleitt sé minna að gera á öðmm tímum ársins. „Síðustu ár hefur verið mjög mikið að gera. Allt frá 1980 hefur barnsfæðingum fjölg- að jafnt og þétt og við höfum verið með á milli 2.700 og 2.800 fæðingar á ári, sem er rúmlega það sem gert er ráð fyrir að deild- in geti annað. Oft hafa því komið svona miklir toppar en venjulega gerist það á sumrin," sagði Krist- ín að lokum. Hart slegist um Dagsbrúnarbréfin: Landsbréfum fal- ið að leita tilboða VITAÐ er um fimm aðila sem kepptu um hlutabréf Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar í Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans í vikunni, en verð- bréfafyrirtækinu Landsbréfum hf. hefur nú verið falið að selja bréfin sem eru að nafnvirði 35 milljónir króna. Ákveðið hefur verið að óska eftir tiibóðum í bréfin og þurfa þau að hafa borist fyrir hádegi mánu- daginn 8. apríl. Hlutur Dagsbrúnar í eignarhaldsfélaginu er 4,8% en það samsvarar því að félagið eigi um 1,4% hlutafjár Islandsbanka. Fyrirkomulag vegna sölu hluta- bréfanna hjá Landsbréfum verður þannig að einstakir kaupendur geta gert eins mörg tilboð í þau og þeir óska eftir. Hins vegar verður ekki gengið að neinu tilboði sem er undir genginu 1,85, en skráð sölugengi er nú 1,72 hjá Landsbréfum. Eftir að tilboðsfrestur rennur út verða tilboð- in afgreidd með þeim hætti að fyrst verður gengið að hæsta tilboðinu, síðan því næst hæsta og síðan koll af kolli uns öll bréfin hafa verið seld. Davíð Björnsson, forstöðumaður hjá Landsbréfum, sagði að með þessu fyrirkomulagi væri tryggt að eigandi bréfanna fengi eins hátt verð og mögulegt væri fyrir bréfin. Hann sagði að strax í gær hefðu borist nokkur 'tilboð og fjölmargar fyrir- spurnir, þannig að ljóst væri að auð- velt yrði að selja bréfin á mánudag. Verðbréfaviðskipti Samvinnu- bankans gerðu bindandi tilboð í hlutabréf Dagsbrúnar sl. miðvikudag miðað við gengið 1,81 og stað- greiðslu bréfanna, að sögn Þorsteins Olafs, forstöðumanns. Hann sagði tilboðið hafa verið gert fyrir hönd nokkurra aðila innan sama geira og Dagsbrún en kvaðst ekki geta greint frá nöfnum þeirra. Gengið 1,81 væri hæsta verðið sem þeir hefðu verið tilbúnir að greiða fyrir bréfín. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var hér um nokkra lífeyrissjóði að ræða með Lífeyrissjóð rafiðnaðar- manna fremstan í flokki. Auk Landsbréfa og Verðbréfavið- skipta Samvinnubankans munu sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins einnig hafa átt sér stað þreifingar með sölu bréfanna á vegum verð- bréfafyrirtækisins Handsals hf., Fasteignasölunnar Húsafells og Jóns Halldórssonar, lögmanns, sem stað- festi að ákveðnar þreifingar hefðu átt sér stað af sinni hálfu en kvaðst ekki geta tilgreint fyrir hvaða aðila hann hefði verið að vinna. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins freistaði Jón þess að bjóða í bréfin á genginu 1,90 en féll síðan frá því að bjóða í þau. ♦ ♦ ♦ Akureyrarsamkomulagið: Fiskverðið hækkar um 3,3% frá 30% heimalöndunarálagi Lækkun frá því sem ÚA hafði boðið MIÐAÐ við samsetningu á aflakvóta ísfisktogara Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA) og meðalverð á fiskmörkuðum suðvestanlands sl. 12 mánuði fá sjómenn' á togurunum að meðaltali tæplega 3,3% fisk- verðshækkun frá 30% heimalöndunarálagi, samkvæmt samkomulag- inu, sem þeir samþykktu á fimmtudag, að sögn Konráðs Alfreðsson- ar formanns Sjómannafélags Eyjafjarðar. ÚA hækkaði heimalöndun- arálagið úr 30% i 40% 1. mars sl. en sjómennirnir sættu sig ekki við það. Fiskverðið hækkaði hins vegar um 7,7% samkvæmt þeirri hækkun, að sögn Konráðs. ÚA hafði einnig boðið sjómönn- um á ísfísktogurum féiagsins hækk- un á heimalöndunarálagi úr 30% í 41% frá áramótum og Konráð Al- freðsson upplýsir að sjómennirnir fái 41% heimalöndunarálag frá ára- mótum til 3. apríl sl. Hækkun á heimalöndunarálagi úr 30% í 41% þýðir 8,5% fiskverðshækkun. Samkvæmt Akureyrarsamkomu- laginu er greitt fast verð fyrir 85% aflans en fiskmarkaðsverð fyrir 15%. Þá er miðað við það verð, sem fengist hefur á Fiskmarkaði Suður- nesja, fískmarkaðinum í Hafnarfirði og Faxamarkaði í Reykjavík vikuna áður en viðkomandi togari landar aflanum. „Við metum mjög mikils þessa markaðstengingu en aflasam- setningin í hverri veiðiferð skiptir mjög miklu máli þegar fískverðið er reiknað út,“ segir Konráð. Búist er við verðlækkun á fisk- mörkuðum eftir vetrarvertíðina, þar sem stór hluti af þorski, sem seldur hefur verið á fiskmörkuðum suð- vestanlands undanfarið, er stór ver- tíðarfiskur, að sögn Valdimars Bragasonar framkvæmdastjóra Út- gerðarféiags Ðalvíkinga hf., sem á birgða. Skipið er í eigu Búlands- tinds hf. á Djúpavogi og fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að greiða áhöfninni sambærilegt fiskverð og samið verður um annars staðar, að sögn Ingólfs Sveinssonar fram- kvæmdastjóra Búlandstinds hf. Áhöfnin á togaranum Hafnarey SU frá Breiðdalsvík hefur fengið 28% heimalöndunarálag en reiknað er með að hún fái fljótlega tilboð um nýtt fískverð, að sögn Svavars Þorsteinssonar framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss Breiðdalsvíkur hf. Baldur í slipp hjá Þorgeiri og Ellert Breiðafjarðarfeijan Baldur fer í skoðun 15. apríl hjá skipasmíða- stöð Þorgeirs og Ellerts á Akra- nesi. Samkomulag náðist með fyr- irtækjunum um að Þorgeir og Ellert vinni ýmis verk á sinn kostnað, verk sem Baldursmenn te(ja eftirlegukindur frá því feijan var afhent fyrir ári. Tilboðsgögn voru send til fimm skipasmíðastöðva á sínum tíma vegna skoðunarinnar. Síðan þá hafa forsendur breyst. „Það er ljóst að okkar hagsmunir eru aðrir en þegar tilboðin voru send út í upphafí. Þá voru erfiðleikar hjá Þorgeiri og Ell- ert en nú er útlit fyrir að fýrirtækið starfí áfram af fullum krafti. Þeir hafa lofað að taka skipið til sín og gera þau verk sem við teljum að séu eftirlegukindur frá því við fengum skipið afhent fyrir ári,“ segir Guð- mundur Lárusson framkvæmdastjóri Breiðafjarðarfeijunnar Baldurs, sem á og rekur feijuna. „Þessar breyttu aðstæður riðluðu útboðinu og við höfum fallið frá því og tilkynnt það viðkomandi skipa- smíðastöðvum. Við tökum tilboði Þorgeirs og Ellerts um þau verk sem við þurfum að greiða fyrir og auðvit- að tökum við boði þeirra um ýmis- legt sem þeir gera okkur að kostnað- arlausu,“ segir Guðmundur. togarana Björgúlf EA og Björgvin EA. Þá hafa Evrópumyntir lækkað undanfarið en þorskurinn fer aðal- lega á Evrópumarkað. Valdimar segir að sjómenn á Björgúlfí EA og Björgvin EA fái 41% heimalönd- unarálag frá áramótum en áhöfnin á Björgúlfí hafi samþykkt Akur- eyrarsamkomulagið og áhöfni'nni á Björgvin verði einnig boðið það. Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað hefur boðið sjómönnum á togurum fyrirtækisins tvo kosti. Annars veg- ar Akureyrarsamkomulagið gegn því að sjómennirnir fái ekki hlut- deild í ísfiskútflutningi fyrirtækis- ins og hins vegar að heimalöndun- arálag verði hækkað úr 20% í 30% gegn því að þorskur verði flokkað- ur, að sögn Finnboga Jónssonar framkvæmdastjóra. Sjómennimir vilja hins vegar ekki missa hlut- deild í ísfiskútflutningi. Sjómenn á togaranum Sunnu- tindi SU hafa sagt upp störfum og krafíst 41% heimalöndunarálags frá síðustu mánaðamótum en þeim hef- ur verið boðin hækkun á heimalönd- unarálagi úr 20% í 30% til bráða- Sveinbjörn Björnsson kjör- inn rektor Háskóla íslands „MÉR ER auðvitað efst í huga þakklæti fyrir það traust sem menn sýna með svona kjöri og ég vona að ég reynist þess verðug- ur, standi í starfinu eins og menn gera sér væntingar um,“ sagði Sveinbjörn Björnsson, nýkjörinn háskólarektor, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að lokinni talningu atkvæða í rektors- kjöri. Sveinbjörn hlaut 59,4% atkvæða, Þórólfur Þórlindsson hlaut 38,3%. Sveinbjörn er kjörinn til þriggja ára og tekur hann við starfi í byijun næsta háskólaárs, 5. september næstkomandi. Rektorskjör fór fram í gær. Úr hópi kennara og annarra starfsmanna greiddi 441 atkvæði, eða 88,7% þeirra sem voru á kjör- skrá. 1.853 stúdentar greiddu at- kvæði, eða 36,3% þeirra sem voru á kjörskrá. Greidd atkvæði stúd- enta gilda sem einn þriðji hluti greiddra atkvæða ails. Sveinbjöm Björnsson hlaut 299 atkvæði kennara og 790 atkvæði stúdenta, eða 59,4% alls. Þórólfur Þórlindsson hlaut 136 atkvæði kennara og 985 atkvæði stúdenta, eða 38,4% alls. Sveinbjöm sagði í samtali við Morgunblaðið að starf rektors væri þannig, að segja mætti að enginn maður vaidi því einn, hann þurfí að hafa góða samstarfs- menn. „Ég veit að það hefur ver- ið og er mjög gott mannval innan Háskólans sem vill gjarnan vinna að framgangi hans og ég hugsa því gott til þess að eiga samstarf við allt það ágæta fólk,“ sagði hann. „Ég held að innan Háskólans sé tiltölulega góð eining um hvað sé honum fyrir bestu. Það er mjög hollt að hafa kosningar af þessu tagi, vegna þess að þær skerpa umræðuna og auka áhugann á því að ræða málefni skólans. Síð- an skiptir mestu máli eftir kosn- ingarnar að ná sem bestri einingu innan skólans." Sveinbjöm kvaðst vera bjartsýnn á að þessi eining næðist. „Þetta hefur verið ákaf- lega drengileg og góo barátta,“ sagði hann. „Stúdentar hafa okkur þótt vera til fyrirmyndar í sinni bar- áttu innan skólans núna undan- farin ár, þess vegna hef ég góðar vonir um að góð samvinna verði líka við þá og að þannig geti kenn- arar og stúdentar staðið saman að ýmsu því sem við vildum bæta hér,“ sagði Sveinbjörn Björnsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.