Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAL'QAKUAGl.'H 6. APRÍL 1991 27 Samningar við Evrópubandalagið: Forustumenn flestra flokka vilja þjóðaratkvæðagreiðslu Forustumenn flestra stjórnmálaflokka eru sammála þeirri skoðun Davíðs Oddssonar formanns Sjálfstæðisflokksins að ef samningar við Evrópubandalagið komist á það stig að spurning sé orðin um beina aðild, eigi að bera það undir þjóðina alla. Formaður Alþýðubandalags- ins segir sjálfsagt að viðhafa þjóðaratkvæðagreiðslu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir oddamaður Kvennalistans í Reykjavík segir sjálfgefið að bera slíkt mál undir þjóðina. Árni Steinar Jóhannsson efsti maður Þjóðarflokksins/Flokks mannsins á Norðurlandi eystra segir að þjóðar- atkvæðagreiðslur um sem flest mál séu á stefnuskrá flokkanna. Júlíus Sólnes formaður Borgaraflokksins segir þó að þessi umræða sé ekki tímabær og Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins vildi ekki tjá sig um ummmæli Davíðs Oddssonar. „EF þau öfl innan Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins, sem nú þegar hafa lýst því yfir að þau vilji ganga í Evrópubandalagið, næðu hér yfirhöndinni og það ótrú- lega gerðist, að meirihluti yrði á Alþingi fyrir slíku afsali sjálfstæðis, er hárrétt að bera það undir þjóðar- atkvæði," segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins. Ólafur sagðistvera algerlega and- vígur inngöngu íslands í EB. „í því fælist stórkostlegasta skerðing á sjálfstæði íslendinga síðan við vorum nýlenda Dana. Sjálfstæðisbarátta feðra okkar og mæðra var ekki háð til að okkur yrði stjórnað frá Bruss- el,“ sagði hann. Ólafur sagði að lýðveldisstofnunin hefði verið borin undir þjóðina og samþykkt með nær 100% atkvæða. „Þegar verið væri að fórna stærstum hluta^ árangursins í sjálfstæðisbar- áttu íslendinga með inngöngu í EB yrði þjóðin auðvitað að fá að kveða upp sinn dóm um það Ég ætla hins vegar að vona að aldrei komi til slíkr- ar atkvæðagreiðslu og aldrei verði meirihluti á Alþingi, sem sé svo skammsýnn, að vilja fórna því dýr- mætasta sem sjálfstæðisbaráttan færði okkur. Ég vil gera samninga við EB um menningu, menntun, verslun og viðskipti og að við verðum hluti af þeirri viðskiptaheild sem hefur verið að þróast í Evrópu. En Evrópubandalagið er ekki bandalag heldur er það að verða að nýju stór- ríki með sameiginlegu þingi, ríkis- stjórn _ og embættismannastétt," sagði Ólafur. Umræða um þjóðaratkvæða- greiðslu ótímabær „ÉG sé ekki að það sé nein þörf fyrir að fara að tala um þjóðarat- kvæðagreiðslu um aðild að EB á þessu stigi málsins, og ég tel að þessi spurning sem Davíð er að tala um þarna komi ekki til álita fyrr en í fyrsta lagi um aldamót," sagði Júlíus Sólnes, formaður Borgara- flokksins. „Ég og mínir samheijar höfum talið sjálfsagt og eðlilegt að reyna til þrautar að ná þessum samningum um evrópskt efnahagssvæði, serm við teljum vænlegan kost, en það er ekkert í pottinum að svo stöddu, sem segir að það komi til greina að við gerumst aðildarríki í EB á meðan þeirra fiskveiðistefna er óbreytt. Við útilokum auðvitað ekki hvað gerist í framtíðinni, en ég tel að það líði fram yfir aldamót áður en sú spurn- ing gerist kannski áleitin hvort við í raun förum inn í Evrópubandalag- ið, og við þurfum lítið að hafa áhyggjur af því þangað til. Þá kann hins vegar allt dæmið að hafa breyst þannig að þá þyki það bara eðlilegt og sjálfsagt að fara inn í EB, en á þessari stundu finnst okkur ekkert mæla með því að við tengjumst EB sem aðildarríki," sagði Júlíus. Þjóðaratkvæði er okkar stefna „ÞAÐ er á stefnuskrá okkar að allar ákvarðanir um aðild að banda- lögum verði bornar undir þjóðarat- kvæði. Við teljum að það henti ekki íslendingum að ganga í Evrópu- bandalagið en úrsögn eða aðild að öllum bandalögum á að fara undir þjóðaratkvæðagreiðslu," segir Árni Steinar Jóhannsson, efsti maður á lista Þjóðarflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra. „Við teljum að sérstaða Islands sé það mikil að aðild samrýmist ekki hagsmunum okkar. Við eigum að stunda verslun og viðskipti við aðrar þjóðir á eins hagstæðan hátt og unnt er. Ég tel að þessi bandalög leiði allt- af til miðstýringar og að árið 2010 til 2030 muni menn slíta sig undan miðstýringarvaldinu í Brussel um alla Évrópu. Hagræðingin við sam- einingu gengur kannski í einn til tvo áratugi en síðan koma stöðnunarein- kenni og hnignun sem leiða til þess að bandalög af þessu tagi leysast upp. Sagði hann það stefnu Þjóðar- flokksins að skapa mannlegra sam- félag á grundvelli smæðarinnar. „Það er í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem framsæknustu hugmyndirnar í framleiðslu og hug- viti verða til,“ sagði Árni. Sjálfgefið að fram fari þj óðaratkvæðagreiðsla „EF Alþingi samþykkir að gengið verði í Evrópubandalagið er alveg sjálfgefið að bera það mál undir þjóð- ina. Það felst ákveðið framsal á full- veldi í inngöngu í EB og mér finnst Alþingi alls ekki geta ákveðið það án þess að þjóðin fái að segja álit sitt,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, efsti frambjóðandi Kvenna- listans í Reýkjavík. Ingibjörg sagði það afdráttarlausa stefnu Kvennalistans að íslendingar ættu ekki að sækja eftir aðild að EB. „Ástæðurnar em margar, meðal annars sú hve bandalagið er mið- stýrt og ólýðræðislegt. Það má margt breytast áður en við getum séð að aðild að EB þjóni hagsmunum íslendinga. Ég tel aðeins stigsmun en ekki eðlismun á evrópska efnahagssvæð- inu og Evrópúbandalaginu sjálfu og að í samningunum um evrópska efnahagssvæðið felist í rauninni að- lögun að EB. Þjóðin hefur afskap- lega lítið verið upplýst um hvað felst í samningunum og ég verð vör við það á vinnustöðum að fólk gerir sér enga grein fyrir um hvað verið er að semja í samningaviðræðunum við EB um evrópska efnahagssvæðið. Það fínnst mér hættulegt," sagði Ingibjörg. Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri Nýs lífs, Frederic Dlick frá skri- stofu Elite í París sem útnefndi sigurvegarann, Hrönn Johannsen, Andrea Róbertsdóttir og Hjördís Árnadóttir. Elite-keppnin: Hrönn Johannsen hlaut titilinn „Útlit ársins“ Hrönn Johannsen, sextán ára gömul stúlka úr Borgarnesi, sigraði í Elite-keppninni sem haldin var á veitingastaðnum Ömmu Iú í fyrra- kvöld og hlaut þar með titilinn „Utlit ársins 1991.“ Tveimur öðrum stúlkum, þeim Andreu Róbertsdóttur og Hjördísi Árnadóttur var einnig boðið að spreyta sig. Tímaritið Nýtt líf er umboðsaðili keppn- innar hérlendis en hefur fengið samtökin Icelandic Models til liðs við sig. Hrönn mun halda til New York næsta haust ásamt fulltrúa frá Nýju lífi eða Icelandic Models, þar sem hún tekur þátt fyrir í keppn- inni um titilinn „Look of the Year 1991“ ásamt 40 öðrum stúlkum. Sigurvegarinn í New York hlýtur starfssamning við Elite sem hljóðar upp á 8.600.000 krónur. Þær Andrea og Hjördís munu að öllum líkindum fá tækifæri til þess að reyna fyrir sér í París eða Mílanó. Stefnubreyting í al- menningsíþróttum Stefnubreyting varðandi almenningsíþróttir og endurskoðun á kenn- aramenntun íþróttakennara eru tveir stórir þættir í skýrslu um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastefnu til menntamálaráðuneytisins kynnti á Tilgangurinn með skýrslunni er að marka stefnu fyrir starfsmenn menntamálaráðuneytisins yarðandi íþróttamál. Ráðuneytið telur þetta mikilvægt verkefni þar sem ný verk- askipting ríkis og bæja hefur breytt þeim verkefnum sem ríkið hefur haft með höndum. í skýrslunni er fjallað um endur- skipulagninu á íþróttalögum, en þau eru ein elstu lög sem menntamála- ráðuneytið vinnur eftir. Þar kemur ársins 2000, sem nefnd á vegum blaðamannafundi í gær. einnig fram að nú er verið að endur- skoða menntun íþróttakennara, og nauðsyn á að endurskoða reglur sem í gildi eru um afreksmannasjóð íþróttasambands íslands. Þá er einn- ig fjallað um alþjóðlegt samstarf og loks lögð áhersla á nauðsyn aukinna rannsókna á íþróttum á íslandi og þá sérstaklega möguleika á því að Islendingar verði þátttakendur í al- þjóðlegum verkefnum, t.d. á vegum Evrópuráðsins. ENN FULLKOMNARI... ...ENN BETRA VERÐ Glæsilegur staðalbúnaður m.a.: Vökvastýri, rafdrifnar rúður fjarstýrðar samlæsingar o.fl.ofl. ... Verð frá 1.080 þús st.gr. (5 dyra). SYNING UM HELGINA: LAUGARDAG KL. 10.00 -17.00 SUNNUDAG KL. 13.00 -17.00 Lagmula 5. simi 681555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.