Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991 47 hennar Matthías Magnússon og eiga þau tvö börn; Sigríður, fóstra, fædd 21. febrúar 1960, búsett í Vestmannaeyjum. Maður hennar, Jón Oddsson, eiga þau tvö börn. Palla mín, það má öllum ljóst vera að erfiðleikar þeir sem á und- an eru gengnir hafa verið þung- bærir þér og fjölskyldu þinni. Minningin um góðan dreng mun geymast í hugum okkar. Við biðj- um góðan Guð að fylgja þér og f ölskyldu þinni allri um ókomin ár. Sigþór og Sigurður. Frá afabörnum Nú er elsku afi okkar farinn frá okkur. Hann andaðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja aðfaranótt 26. mars eftir langvarandi veikindi. Afi og amma bjuggu á Höfða- vegi 46 í Vestmannaeyjum. Þang- að var ætíð gott að koma hvort sem var í stutta heimsókn eða til dvalar um lengri eða skemmri tíma. Ragnar afi hafði alltaf nógan tíma til þess að spjalla við okkur, lesa og syngja, einkum þegar eng- inn annar mátti vera að. Eftir- minnileg eru nokkur ferðalög þar sem afí var ávallt reiðubúinn að fara með okkur í leiki eða göngu- ferðir út í náttúruna og mun það seint gleymast. í nokkur ár var afi húsvörður í bankanum og þótti okkur alltaf skemmtilegt þegar við fengum að fara með honum þangað til að ganga frá í lok dagsins og þá voru bílferðimar í „afabíl“ engum öðr- um líkar. Þrátt fyrir mikil veikindi undan- fama mánuði þá tók afi alltaf vel á móti okkur, hlýr og góður og tilbúinn til að gleðjast með okkur. Hann var lengi á sjúkrahúsi og jafnvel þar gaf hann okkur tíma, leyfði okkur að sitja hjá sér í hjóla- stóinum eða keyra honum um gangana og alltaf var jafn spenn- andi að athuga hvort hann ætti eitthvað gott í sælgætisdósinni. Um síðustu jól var afi heima og áttum við þá skemmtilegar stundir saman. Margs er að minnast þegar við hugsum um afa og vorum við hepp- in að fá að kynnast honum þó sá tími hefði mátt vera lengri. Nú þegar afi er kominn til Guðs og líður loksins vel þökkum við honum fyrir allt sem hann hefur gert fyrir okkur og biðjum Guð að styrkja elsku ömmu og okkur öll í sorginni. Afabörnin: Pálína Björk, Ragna Kristín, Sigmar Þór og Hafþór. Leiddu mína litlu hendi ljúfi Jesú þér ég sendi bæn frá mínu bijósti sjáðu blíði Jesú að mér gáðu. • (Asmundur Eiríksson.) Elsku Björk, Beddi, Þórður, Birk- lr, Vagi og aðrir ástvinir. Guð huggi ykkur og styrkir í ykkar miklu sorg. Drottinn er minn hirðir >pig mun ekkert bresta. A grænum grundum lætur hann mig hvílast. Leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. (Davíðssálmur.) Gummi, Hrefna, Helga og fjölskyldur. Guð gefur og Guð tekur aftur, það er nokkuð sem við vitum öll og fáum ekki nokkru um ráðið hvenær eða hvernig það gerist. Stundum erum við tilbúin en oftar en ekki reynist það þrautin þyngri að sætta sig við kallið þegar það kemur. Óli Þór Bernódussón var fæddur í Vest- mannaeyjum 12. júní 1990 en lést á Landspítalanum 27. mars eftir að hafa barist fyrir lífi sínu hvern ein- asta dag ævi sinnar, eins og hetja, meiri en nokkur getur ímyndað sér. Lífsbaráttan og lífsviljinn bar hann áfram eins langt og hugsanlega varð komist. Gæfa hans var sú að hann átti góða móður sem yfirgaf hann aldrei í þessari baráttu. Þó kom sá Lími þrátt fyrir allt að þessi yndislegi °g duglegi drengur, [gat, elfki-meij-;, En þetta stutta líf hans skildi mig * Steinunn Amadóttir frá Hjalteyri - Minning Fædd 23. ágúst 1922 Dáin 12. mars 1991 Árið 1914 settust að á Hjalteyri við Eyjafjörð ung hjón, sem komu utan úr Fljótum. Höfðu þau verið saman gefín á Hraunum 4 árum fyrr en kynnst þar vestra, er hann, sem var fæddur 1887 inni á Höfða- strönd, hafði' farið út í Fljót ungur til sjóróðra, en hún, fædd inni í Möðruvallasókn 1893, á unglings- árunum til vinnu á vetur og í kaupa- mennsku. Voru þetta Árni Magnús- son og Helga Gunnlaugsdóttir og áttu þau nær 40 ára veru í Hlíð á Hjalteyri, en svo var bær þeirra nefndur. Eignuðust hjónin 12 börn og komust 11 þeirra upp, en mikill harmur var að þeim kveðinn 1946, er tvær dætur þeirra dóu úr berkl- um á Kristneshæli, eftir langvar- andi veikindi, og ung tengdadóttir þeirra hið sama ár. Var Rósamunda aðeins tvítug og Ágústa Gunnlaug 26 ára. Helgu í Hlíð er svo lýst, að hún væri mæt kona og öllum, sem þekktu hana næsta kær og minnisstæð. Sínum stóra barnahóp hafi hún verið svo góð og umhyggj- usöm móðir, að frábært mætti kalla. Var Helga upp fóstruð á Hjalteyri og við litla útgerðarþorpið, er síðar óx í mikla síldarbræðslustöð, voru flestar hennar bestu minningar bundnar frá langri ævi, þó að einn- ig þar skyggði oft ský fyrir sól eins og við dætra- og tengdadótturmiss- inn, en fátækt fyrr á árum. Þegar Árni var allur vorið 1953, var Helga ein eftir í Hlíð með fósturdóttur þeirra, Ástu Þórnýju, dóttur Stein- unnar. Flutti Helga þá inn í Glerár- hverfi, þar sem hún átti síðustu árin. Hún dó á útmánuðum 1963 og var jarðsett við hlið manns síns og dætra í Möðruvallagarði. Á Hjalteyri stundaði Árni einkum sjó lengi fram eftir ævi, viðurkenndur dugnaðarmaður og hveijum manni vinsælli, enda var til ljúfmennsku hans jafnað. Var hann forsjá stórs heimilís, mildur og nærgætinn faðir sinna mörgu barna, ósérhlífinn í þrotlausu starfi og striti til sjós og lands í harðri lífsbaráttu ævilangan dag erfiðismannsins. Er síldar- bræðsla var hafin á Hjalteyri, réðst hann þar til vinnu, starfsglaður og verkmikill sem ávallt áður. Úr þessu umhverfi stórrar fjöl- skyldu í norðlensku sjávarþorpi var Steinunn Árnadóttir runnin. Hún var 6. barn foreldra sinna og ólst að öllu upp í Hlíð, gekk í barnaskól- ann á Hjalteyri, sem var hið næsta bænum þeirra, vann ýmis þau störf, er til féllu við sjávarsíðu og börnum og unglingum voru talin nokkurn veginn fær, fermdist á Möðruvöllum 1936, en leitaði vinnu út í frá þeg- ar um 16 ára aldur, t.a.m. á Krist- neshæli um tveggja ára skeið. Síðar réðst hún til vinnu í Reykjavík og svo suður í Vestmannaeyjum, þar sem hún vann myrkranna milli sem kallað er og þókti starfsþrek hennar og úthald með ólíkindum. Var mað- ur hennar úr Eyjum, Ágúst Stefáns- son. Eftir að samvistum þeirra lauk, starfaði hún á árabili á Keflavíkur- flugvelli, en þaðan flutti hún vestur um haf og til Indiana í Bandaríkjun- um með síðari manni sínum, Will- iam Morgan, yfirmanni í hernum. Misstu þau einkabarn sitt í fæð- ingu. Morgan varð skammlífur, og að honum látnum leiddist Steinunni iðjulítil vistin í Ameríku og sneri stafnhafinu heim til íslands og tók þar upp fyrri störf og eignaðist prýðilega íbúð í Reykjavík. Horfði allt á besta veg, en Ásta Þórný dóttir hennar upp komin og hús- freyja norður á Hauganesi við Eyja- íjörð, gift Halldóri Gunnarssyni sjó- manni. Réði tilviljun ein, að Stein- unn settist að í Kaupmannahöfn, þar sem hún bjó til æviloka, eða í 19 ár. Hafði hún siglt með Gull- fossi í síðustu ferð hans 1972 og komið sem skemmtiferðamaður til Hafnar, en líkaði þar svo vel í fáa orlofsdaga, að hún ákvað að lengja dvölina nokkuð. Til bráðabirgða tók hún til við saumaskap á stórri saumastofu á Norðurbrú, en þar eð báðum féll vel, verkstjóra og starfsstúlku, lengdist í. Leið svo hvert misserið af öðru og urðu ára- raðir. Steinunn frá Hjalteyri var orðin gróinn Hafnarbúi. Síðar var hún um mörg ár við störf á Finsen- stofnuninni á Austurbrú, allt um tæpa heilsu á köflum, sem raunar má rekja til berklanna norður við Eyjafjörð í bernsku hennar, er hann heijaði mjög hinn hvíti dauðinn. Þegar Steinunn hætti vinnu, varð hvort tveggja til þess, að hún bjó áfram í sinni góðu íbúð við Webers- gade á mörkum Miðbæjar, Norður- og Austurbrúar, og hélt sínu fallega heimili óbreyttu, að henni virtist hag sínum betur borgið á eftirlaun- um í Höfn en í Reykjavík og undi líka umhverfinu prýðilega. Átti hún ýmsa vini úr röðum fyrri starfsfé- laga í Höfn og meðal landa sinna, en hún bjó í næstu grennd við hús Jóns Sigurðssonar og tók virkan þátt í félagslífínu þar, konukvöldun- um og kirkjustarfínu og ýmsu því, er við bar í fundum og hvers konar listkynningu. Á Hafnarárum mín- um vai' hún kærkominn gestur á heimili okkar Guðrúnar, Lárusar og Maríu, en þeim þókti skemmti- legt, þegar við sveitungarnir minnt- umst átthaganna í Möðruvallasókn og margs þess, er við okkur var á fyrri tíð nyrðra. Stundum var Grét- ar Axelsson frá Hjalteyri í hópnum, glaður og hlýr, allt um langætt veikindastríð. Reyndist Steinunn honum mikils verður vinur, um- hyggjusöm og móðurleg, en hún gjörþekkti bernskuheimili hans í Knútshúsi. Báðir erum við Grétar nú farnir norður yfír Atlantsála. Höfn er einnig horfin Steinunni, en hún fór yfir ómælishafið. Bar andlát hennar að með skyndingu hinn 12. marz sl. Var hún nýlega flutt upp á Bispebjerg og var íbúð hennar hið næsta sjúkrahúsinu þar. En þó að skjótt væri við brugðið og skammt að fara til læknis, lést hún innan fárra stunda. Ásta dóttir hennar fór þegar utan og stóð fyrir útför móð- ur sinnar í Höfn með aðstoð vinar þeirra, Fjólu Magnúsdóttur kaup- manns í Reykjavík, en Fjóla og maður hennar, Ólafur Steinar Valdimarsson ráðuneytisstjóri, voru nánustu vinir Steinunnar. Duftið verður jarðsett í grafreit foreldra hennar og systra á Möðruvöllum. Frá altari Drottins blessum vér yður í minningaþökk og páska- kveðju efalausrar trúar. Kristur er upprisinn. Hann er sannarlega upp- risinn. Ágúst Sigurðsson á Prestbakka. Dagvist barna: Launakjör starfsmanna rædd í borg- arsljórn BORGARSTJÓRN Reykjavíkur vísaði frá tillögu Nýs vettvangs og Kvennalista um endurskoðun á aðbúnaði og kjörum starfs- manna Dagvista barna í Reylqa- vík á fundi sínum á fimmtudag- inn. Anna K. Jónsdóttir, form- aður sljórnar Dagvista barna, mælti fyrir frávísunartillögunni og sagði hún, að verið væri að framkvæma endurskoðun af þessu tagi. Ólína Þorvarðardóttir mælti fyr- ir tillögu Nýs vettvangs og Kvenn- alista. Tillagan var á þá leið,.að borgarstjórn skyldi nú þegar láta fara fram endurskoðun á aðbúnaði og kjörum starfsfólks dagvistar- heimiia, til að stemma stigu við starfsmannaskorti og forða frekari samdrætti í starfsemi heimilanna. Anna K. Jónsdóttir lagði til að þessari tillögu yrði vísað frá. í frá- vísunartillögunni kom fram, að það væri hlutverk samstarfsnefnd- ar Fóstrufélagsins, Reykjavíkur- borgar og ríkisins að endurskoða launakjör og slík endurskoðun færi nú fram vegna komandi kjar- asamninga. Aðbúnaður starfsfólks hefði verið endurskoðaður og end- urbættur á undanförnum árum, meðal annars í tengslum við leik- skólaverkefni Dagvista barna. Borgarstjórn samþykkti frávís- unartillöguna með 10 atkvæðum sjálfstæðismanna gegn 5 atkvæð- um borgarfulltrúa minnihlutans. = ;Lm=P=m roocorl : — =:í=:=±i: og Wicanders S Kork-o-Plast korkflísamerkin komin undirsama þak. & Ármúla 29, Múlatorgi, síml 39640 Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 eftir, eins og án efa alla þá sem sáu eða þekktu þennan fagra dreng, kannski örlítið þroskaðri eða í það minnsta þakkláta fyrir að hafa feng- ið að sjá hann og kynnast ögn. Blessuð sé minning yndislegs drengs, Óla Þórs. Guð gefí foreldrum hans og bræðrum styrk. Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér; vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (H.P.) H. Sbj. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig, Guð í faðmi þínum. Vaktu minn Jesús, vaktu í mér vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. Láttu nú Ijósið þitt loga við rúmið mitt, Hafðu þar sess og sæti signaður Jesús mæti. Ég fel í sérhvert sinn sál og likama minn í vald og vinskap þinn, vemd og skjól þar ég finn. (H.P.) Hinsta kveðja frá ömmu ogafa í kéflavíki 1' OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 11-15 OG SUNNUDAG FRÁ KL. 13-16 SERVERSLUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA NÝBÝLAVEGI 12, SÍMI 44011 PÓSTHÓLF 167, 200 KÓPAVOGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.